Tíminn - 27.11.1983, Side 16
16
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
„Leikgleðin
er gífurleg
Halldór Einarsson fór með mér út í
upphafi, sem eins konar fulltrúi Vals.
Hann var með mér í nokkra daga, en í
upphafi bjó ég hjá umboðsmanninum
Reinke, sem komiðbafði mér í samband
við Dortmund. Hann bjó 70 kílómetra
frá Dortmund í litlu þorpi sem heitir
Aalen í Westfalen. Ég fékk svo fljótlega
eigin íbúð þar í þorpinu og keyrði því
daglega 140 km á æfingar og heim aftur.
Steinunn Guðnadóttir kona mín kom
svo hingað út seinna um haustið.
Það hefur nú verið talsvcrt alag að
þurfa að aka svona langt á æfingar?
- Nei, nei, maður þekkti ekkert ann-
að fyrr en við fluttumst hingað til
Dússeldorf. I>að var fyrst þá að við
gerðum okkur grein fyrir hversu tíma-
frekt, erfitt og leiðinlegt þetta fyrir-
komulag var, því nú búum' við 10 km frá
æfingasvæði félagsins.
Gekk þér vel hjá félaginu strax í
upphafi?
- Maður hafði sig nú lítið í frammi á
fyrstu æfingunum. Ég var búinn að
koma mér í þokkalega líkamlega æfingu
þegar ég kom til Dortmund og það hafði
mikið að segja fyrst í stað, því æfingarnar
voru erfiðar og vafalaust hefði maður
gefist upp hefði maður ekki verið sæmi-
lega á sig kominn. Þetta hjálpaði mér
einnig að því leyti að þjálfarinn fylgdist
betur með mér fyrir vikið. Margir aðrir
leikmenn gáfust hreinlega upp á æfing-
unum og ég fékk því fljótlega tækifæri til
að spreyta mig í æfingaleikjum með
félaginu. Strax í fyrsta leiknum um
sumarið fékk ég tækifæri. Við lékum þá
gegn áhugamannaliði og í hálfleik var
staðan 1:() okkur í hag, þótt við hefðum
leikið ntjög illa. Ég var síðan settur inn
á í síðari halfleiknum og var mjðg
heppinn, því ég var varla kominn inn á
þegar ég skoraði mark. Ég náði síðan að
lcggja upp tvö mörk fyrir Borgsmúller
liðsfélaga minn og skora sjálfur tvö til
viðbótar, bæði með sköllum og við
unnum leikinn að lokum 10:1. Þetta
hafði að sjálfsögðu mikið að segja með
að gefa manni sjálfstraust og vekja tiltrú
liðsfélaganna og þjálfarans á manni.
Atvinnumennskan er
harður skóli
í næsta leik gekk mér aftur á móti illa,
en maður var búinn að öðlast það
sjálfstraust sem þurfti til að standa af sér
stormana. Ég var líka í mjög góðri
æfingu þegar líða tók á sumarið. Þegar
ég kom til Dortmund af íþróttakennara-
skólanum var ég 89 kg, og á tæpum 3
vikum fór ég niður í 79 'A kg. Samt sem
áður borðaði ég tvær heitar máltíðir á
dag og drakk morgun-, eftirmiðdags- og
kvöldkaffi með tilheyrandi bakkelsi.
Samt sem áður léttist maður svona og
segir það allnokkuð um æfingarnar hjá
liðinu.
Gerðirðu þér grein fyrir því að at-
vinnumennskan yrði svona harður skóli?
Þú hefur e.t.v. kynnst lífi og starfi
atvinnumanna og þeim kröfum sem tii
þeirra eru gerðar í gegnum Jóhannes
hróður þinn, sem lengi hafði leikið
erlendis þegar þú fórst utan?
- Gagnstætt því sem e.t.v. hefur verið
um marga íslenska stráka sem gengið
hafa til liðs við erlend atvinnumannafé-
lög gerði ég mér fullkomna grein fyrir
þeim kröfum og þeirri hörku sem fylgir
lífi atvinnuknattspyrnumannsins. Eins
og þið bendið á hafði ég kynnst þessu að
verulegu leyti í gegnum Jóhannes
bróður, sem þegar í upphafi gaf mér góð
ráð, og gefur mér enn góð ráð þegar ég
þarf á að halda. Hann hefur verið lengi
í þessum bransa og þekkir hann út og inn
og hefur því mörgu að miðla manni.
Varðandi alla samninga og því um líkt
var hann mér innan handar alveg frá
byrjun?
Og þú varst í byrjunarliði Dortmund
þegar Bundeslíkan hófst í ágúst 1980.
- Já, ég hafði verið í byrjunarliði
okkar í flestum æfingaleikjum liðsins
fyrir keppnistímabilið. Svo var það viku
fyrir upphaf deildarkeppninnar, að við
lékum æfingaleik gegn Núrnberg og þá
var ég settur út úr liðinu. Þá leist manni
nú ekki á blikuna. Ég taldi alveg eins
líklegt að þar með væri draumurinn
búinn að vera, þótt ég teldi að mér hefði
gengið vel í flestum æfingaleikjunum.
Liðið var tilkynnt á e.k. fundi leikmanna
og þjálfara og á eftir beið Lattek eftir
því að aðrir leikmenn færu þannig að
hann gæti talað við mig í einrúmi. Þá
■ Sex mörk skoruð á einum sól-
arhring eða svo í tveimur leikjum
erþokkalegur árangur. Ekkisístef
á það er litið að fimm þeirra voru
skoruð i sama leiknum í Búndeslíg-
unni í V-Þýskalandi, og það sjötta
var í landsleik íslands og Möltu
daginn eftir á Laugardalsvellinum.
Þrátt fyrir mikið álag lék Atli á fullri
ferð gegn Möltu, gaf aldrei eftir eins
og sjá má á myndinni. Tímamynd
Ari.
sagði hann. „Þetta er allt í lagi Atli
minn, ég er bara að hvíla þig fyrir
leikinn. Þú verður með á laugardaginn
kemur“. Ég spilaði svo þann leik og náði
að skora fyrsta markið í deildarkeppn-
inni þetta ár, eftir 14 eða 15 mínútna
leik.
Móti hverjum spiluðuð þið þá?
- Það var á móti Bayern Úrdingen.
Ég spilaði auðvitað
áfram...!
Og svo ert þú fastur maður í liðinu
alveg þangað til þú slasast?
- Já, ég spilaði 11 fyrstu leikina á
tímabilinu alveg þangað til ég fótbrotna
og skora sjö mörk í þeim. Fyrstu leikirnir
gengu ágætlega, en svo lendi ég í
nokkurri lægð. Ég var hins vegar að ná
mér upp úr henni, þegar fótbrotið kom
til sögunnar í leik á móti Mönchenglad-
bach. í vikunni á undan hafði ég t.d.
staðið mig mjög vel á móti Frankfurt og
fann á mér, að erfiðleikatímabilið var
liðið. En á 5. mínútu í leiknum móti
Gladbach brýtur Hannes hinn eineygði
illa á mér. Ég spilaði auðvitað áfram,
því maður reiknar aldrei með því versta,
en korteri seinna varð ég að láta taka
mig útaf. Það var farið með mig beint
upp á sjúkrahús og í ljós kemur að
löppin var brotin.
Brotið hefði ekki getað komið á verri
tíma, því framundan voru mikil ferðalög
hjá okkur Steinunni. Sama kvöld fórum
við til Lúxemborgar á leiðinni til Reykja-
víkur. Þar vorum við í 3 daga, en svo var
haldið vestur um haf til Jóhannesar
bróður, sem var þá í Tulsa. Eftir fimm
daga dvöl þar var farið til baka í
snarvitlausu veðri og allt þetta klöngrað-
ist ég með brotna löppina. Þegar ég
komst svo að lokum aftur til Dortmund
kom auðvitað í Ijós, að brotið hafði
versnað og næstu níu vikurnar var ég frá
allri keppni.
Var ekki erfitt að komast aftur inn í
liðið eftir mciðslin?
- Það má segja, að mér hafi tekist að
tala mig aftur inn í liðið. Sumir forráða-
mannanna töldu, að ég væri ekki búinn
að ná’mér almennilega eftir meiðslin, en
ég vildi strax í ntarsbyrjun fara að
berjast fyrir sæti mínu í liðinu. Ég talaði
því beint við Udo Lattek og fékk hann
til að samþykkja það. Á æfingunum
hamaðist ég síðan sem vitlaus væri og
strax viku síðar tók Lattek mig fram fyrir
þrjá aðra, sem komu einnig til greina.
Hann var líka gagnrýndur fyrir þessa
ákvörðun, svo skömmu áður en þessi
leikur móti Schalke hófst, bað hann mig
um að gera góða hluti í leiknum. Og það
skipti engum togum, á fimmtu mínútu
skora ég mark.
Mátti fara að
„plata“ aftur
Hvernig féll þér við þennan fræga
þjáifara, Udo Lattck?
- Udo Lattek er minn fyrsti þjálfari í
atvinnuknattspyrnunni og hann tók mér
frá byrjun mjög vel. Hann hjálpaði mér
mikið og kenndi mér mikilvæga hluti.
Þegar ég kom út, reyndi ég t.d. að spila
eins og ég hafði gert heima, þ.e. að plata
og plata aftur. Stundum gengur slík
knattspyrna upp, en oftast ekki. Það var
eftir leik móti ungversku meisturunum,
sem ég fékk mína fyrstu kennslustund.
Mér fannst sjálfum, að ég hefði átt
þrumuleik. Tókst að plata andstæðing-
ana upp úr skónum hvað eftir annað,
fiska aukaspyrnur og skapa hættu. Á
mánudeginum eftir leikinn, safnaði Latt-
ek hópnum saman og beindi strax máli
sínu til mín. í stuttu máli, gekk ræða
hans út á: Svona knattspyrnu spilar þú
ekki hjá mér piltur minn. Láttu boltann
ganga og snertu hann bara einu sinni í
hvert sinn. Og ég tók meistarann svo
bókstaflega, að eftir þetta var ég bara í
því að gefa hann frá mér. Rétt áður en
Lattek fer svo frá félaginu til Barcelona,
ræddi hann við mig um þetta og segir að
nú megi ég fara að plata aftur - en í
hæfilegum skömmtum.
Hefur þú haft samband við Lattek
eftir aö hann fór frá Dortmund?
- Ekki beinlínis, en ég hef þó hitt
hann þrisvar á þessu ári og verð að segja,
að ég kann alltaf jafn vel við hann.
Hvaða leikmenn umgekkst þú mest á .
Dortmundarárunum?
- Magnús Bergs kom út til Dortmund
haustið 1980 og þrátt fyrir að hann hefði
búið í sjálfri Dortmund, hélt ég mestu
sambandi við hann. Svo var ég mikið
með tveimur ungum strákum, Schneider
(nú hjá Oberhausen) og Bernd Klotz,
sem er nú aðalmaðurinn hjá Dortmund.
Þýðingarmestur var þó vinskapur minn
við hinn fræga Manfred Búrgsmúller.
Strax frá fyrsta degi var þessi stjarna
liðsins mér hjálpleg og hann varð alltaf
fyrstur til að tala máli mínu, ef á þurfti.
Þar sem hann var fyrirliði liðsins og orð
hans nær lög, skipti þetta auðvitað miklu
máli fyrir mig byrjandann í atvinnu-
knattspyrnunni.
Þjálfaraskipti
Árið 1981 urðu þjálfaraskipti hjá
Dortmund. Udo Lattek hélt til F.C.
Barcelona, en í staðinn kom annar
kunnur þjálfari Branko Zebec. Þessi
þjálfaraskipti höfðu nokkur áhrif á
stöðu þína í liðinu, ekki satt?
- Jú það má kannski segja það. Zebec
sá mig leika tvo leiki með liðinu, þegar
það var til umræðu að hann tæki við
þjalfun þess. Égstóð mig ekkert sérstak-
lega íþessum leikjum. Þettavarsnemma
sumars 1981, í miklum hita, ca 35° C,
sem er nú ekki góður hiti fyrir íslendinga
til að leika knattspyrnu. Hann vildi
styrkja framlínu liðsins og lét þá kaupa
Bernd Klotz. Ég taldi víst að hann
keypti ekki Klotz nema til að láta hann
taka mína stöðu í liðinu. Það kom
reyndar á daginn að ég var varamaður
fyrstu leikina haustið 1981 svo ég talaði
við Zebec og spurði hvort hann vildi
ekki setja mig a sölulista. Hann sagðist
þá ekki vilja missa mig, hann væri að
byggja upp liðið og þyrfti á öllum
þáverandi leikmönnum þess að halda.
Ég gerði mig ánægðan með þetta.
Skömmu síðar heyrði ég það hins vegar
á skotspónum að stjórn félagsins vildi
selja mig, þar sem félaginu stóð til boða
að fá Marcel Raducano, landflótta Rú-
mena til liðs við sig. Þar sem óheimilt er
að nota fleiri erlenda leikmenn en 2 í
hverju þýsku liði þurftu þeir því að selja
annan hvorn okkar Magnúsar Bergs.
Dússeldorf vildi þá kaupa mig og hafði
sett sig í samband við Dortmund og
þetta varð þess valdandi að félagsstjórn-
in vildi selja mig. Ég las hins vegar bara
um þetta í blöðunum. Ekkert var við
mig talað og ég neitaði því öllu saman er
þetta var borið undir mig. Einn daginn
þegar ég kom á æfingu var t.d. búið að
taka öll fötin mín og svona gekk það í
nokkra daga. Umsjónarmenn og leik-
menn liðsins héldu alltaf að nú hlyti að
vera búið að ganga frá sölu á mér til
Dússeldorf. Forráðamenn Dússeldorf-
liðsins voru einnig í sambandi við mig á
þessum tíma og að lokum var afráðið að
ég gengi til liðs við þá. Þetta var í
október 1981. Ákveðið var að ég mundi
skrifa undir samning við Dússeldorf á
sunnudegi, halda síðan til liðs við ís-
lenska landsliðið og leika gegn Tékkum
í undankeppni Heimsmeistarakeppninn-
ar á miðvikudegi og leika síðan laugar-
daginn á eftir fyrsta leik minn með
Dússeldorf. Ég kvaddi því félaga mína
hjá Dortmund á föstudegi og þá bað
Borgsmúller mig um að hugsa málið
hvort ég vildi fara, hann skyldi tala við
þjálfarann og forráðamenn liðsins og
athuga hvort þeir vildu ekki hætta við
söluna. Ég sagði honum sem var að ég
væri búinn að ákveða mig. Ég vildi flytja
mig um set til Dússeldorf. Zebec skipti
sér ekkert af þessu máli. Hann sagðist
hafa þá pólitík að setja aldrei fótinn fyrir
leikmenn vildu þeir skipta um félag.
Þegar ég kvaddi hann, sagði ég að mér
þætti leitt að við hefðum ekki getað
unnið saman. Hann sagði þá að hann
hefði ekki látið selja mig og vildi gjarnan
hafa mig áfram hjá félaginu, ég yrði að
muna það að ég hefði tilheyrt þeim hópi
leikmanna er hann hygðist byggja fram-
tíð liðsins á. Við skildum því alveg í
góðu.
Dapurleg staða
Hvernig var staðan hjá Dússeldorf
þegar þú komst þangað?
- Staðan hjá liðinu var þá heldur
dapurleg. Sumarið á undan höfðu for-
ráðamenn liðsins selt helstu stjörnu þess
og markaskorara, þýska landsliðsmann-
inn Klaus Allofs, til Kölnar. Liðið hafði
leikið 9 leiki í deildarkeppninni 1981-
1982 þegar ég kom til liðs við þá og gert
þrjú jafntefli og tapað sex leikjum.
Þú hefur ekkert óttast að þú værir að
gera rangt með að ganga til liðs við lið
sem væri svona illa á vegi statt?
- Auðvitað velti maður þessu fyrir
sér. Mér fannst hins vegar ólíklegt að
svona gæti gengið hjá liðinu til lengdar.
Það var ekki hægt að halda áfram að
tapa og tapa. Ástandið gat því raunar
einungis batnað. Ég vissi að stjórn
félagsins og fjárhagsstaða var álitin
traust, þótt félagið sé ekki í hópi hinna
ríkustu hérlendis. Áhorfendur liðsins
eru góðir stuðningsmenn þegar vel
gengur, og leikmenn og þjálfari voru
staðráðnir í því að rétta við hlut félagsins
í deildarkeppninni. Nú að auki þá leist
okkur hjónunum vel á borgina og ég
vildi ekki una því að vera á varamanna-
bekknum hjá öðru félagi. Ég vildi fá að
spila og sanna að ég ætti fullt erindi sem
knattspyrnumaður í bundeslígunni.
Hvernig gekk þér svo að finna þig hjá
liðinu?
- Nú það gekk allvel í upphafi eins og
hjá Dortmund. í fyrstu 5 leikjunum
skoraði ég 3 mörk. Okkur fór að ganga
betur. Við unnum loks leiki, þótt staða
okkar í deildinni væri mjög tæp allan
veturinn. Nú eftir fyrstu fimm, sex
leikina kom stutt erfiðleikatímabil hjá
mér. Það tók sinn tíma að kynnast fólki
hjá nýju félagi, vinna traust meðspilar-
anna og læra að leika með þeim. Mér
gekk hins vegar alls ekki illa sé tekið tillit
til alls þessa. Nú þessi vetur var með
ólíkindum snjóþungur, miðað við það
sem hér gerist og gengur og um jólaleytið
var skrifað um það í íþróttafréttum
einhvers dagblaðsins hér að ég hefði
enga reynslu af því að leika í snjó og gæti
það ekki. Þjálfarinn, sem tók nú blöðin
kannski full alvarlega trúði þessu og setti
mig á tímabili út úr liðinu af þessum
sökum. Sá sem tók stöðu mína skoraði
hins vegar ekkert, en þjálfarinn, Júrg
Berger, gaf mér hins vegar ekki séns
aftur í nokkra leiki. Ég fékk þó aftur
minn séns og stóð mig ágætlega, náði að
skora 8 mörk á keppnistímabilinu og við
björguðum okkur frá falli, þótt naumt
væri, lentum í 4 neðsta sætinu í deildinni.
Nú ýmislegt mátti finna að stjórn
þessa þjálfara Bergers, þótt ég fari ekki
nánar út í það hér. Hann reyndi að halda
uppi ströngum aga, en var ákaflega
spéhræddur, óöruggur með sig og
hræddur um stöðu sína, þar sem árang-
urinn lét á sér standa. Berger er land-
flótta Austur-Þjóðverji og ýmislegt í
stjórn hans og ákvörðunum fannst mér
minna á stjórnkerfið þar.
„Ég fer nú samt,“
sagði ég
Þrátt fyrir þennan slaka árangur byrjið
þið með óbreytt fið i fyrra?
- Já, það er reyndar rétt. Við vorum
hins vegar ákveðnir að gera góða hluti á
tímabilinu og æfðum þess vegna stíft og
vorum bara vongóðir. Svo vinnum við
fyrsta leikinn, en töpum svo fleiri
leikjum og ekkert gengur upp. Þjálfaran-
um má kenna um þetta allt saman, hann
skipti stöðugt um menn og engin regla
var á hlutunum. Stjórnin segir svo af sér
og nýja stjórnin sér strax hvar vandann
sé að finna. Hún losar sig við Berger og
finnur Wilbert Kremer, sem gerði smá-
vægilegar breytingar á liðinu og hélt því
síðan nær óbreyttu jafnvel eftir tapleiki
og brátt fórum við að spila eins og ein
liðsheild. Sem dæmi um það hversu góð
áhrif þetta hafði á mig var að í tíð
Bergers skoraði ég aðeins 2 mörk í tíu
leikjum, en í 24 næstu leikjum skoraði
ég 19 mörk.
Þessi þjálfaraskipti urðu annars á ansi
skemmtilegum tíma fyrir mig. Ég hafði
alltaf átt í vandræðum með Bergur út af
landsleikjum mínum. Svo var það
skömmu fyrir landsleikinn gegn Spáni í
nóvember í fyrra, að ég minnti Berger á,
að ég þyrfti að fara. Við tölum bara um
það eftir leikinn móti Schalke á laugar-
daginn, sagði hann þá. Nú í leiknum
skoraði ég jöfnunarmark okkar nokkr-
um sekúndum fyrir leikslok og þóttist
því eiga a.m.k. vinaleg orð inni hjá
Berger og minni hann á landsleikinn. Þú
ferð ekkert, sagði hann þá einfaldlega.
Ég fer nú samt, sagði ég auðvitað og þá
sagði hann mér að ég myndi ekki spila
aftur fyrir sig. Það reyndust orð að
sönnu, því þegar ég kom til baka frá
Spáni var búið að reka hann.
Hvers vegna komst Pétur Ormslev
ekki í liðið eftir þjálfaraskiptin?
- Það er óhætt að segja, að Pétur hafi
verið ansi óheppinn. Hann var slasaður,
þegar Kremer kemur til Dúseldorf og
missir þannig af uppbyggingastarfinu
meira eða minna. Þegar meiðsli hans
voru fullgróin var þjálfarinn hins vegar
kominn með sterka liðsheild, sem var
erfitt að breyta. En það er á hinn bóginn
athyglisvert, sem Kremer hefur bent á,
að Dússeldorf er með þrjá menn á
varamannabekknum, þá Pétur, Thile og
Theis, sem geta alltaf komið inn í liðið
án þess að liðsheildin breytist. í því
liggur m.a. styrkleiki liðsins um þessar
mundir. Ég vona að Pétur fari að vinna
sér fast sæti í liðinu. Hann hefur alltaf
staðið sig vel þegar hann hefur komið
inná eða leikið heila leiki með liðinu og
finnst mér hann fyllilega hafa sannað
getu sína.
1 hverju öðru liggur styrkur liðsins
núna? Velgengni liðsins í vetur hefur
verið með ólíkindum, því þið hafið ekki
keypt nýja leikmenn eins og hin liðin.
- Nú, það er einmitt það sem allir eru
að spá í núna. Eins og þið segið, erum
við eina Iiðið, sem hefur ekki keypt
neinn einasta leikmann. Ég held, að það
sé þjálfarinn sem hefur skipt mestu mali.
Kremer hefur ekki einungis tekist að ná
því besta út úr þessu liði, heldur hefur
honum einnig tekist að gefa okkur
gífurlegt sjálfstraust og það skiptir ekki
svo litlu máli.
Eins og sjá má á leikjum okkar er
leikgleðin gífurleg hjá okkur um þessar
mundir. Það er ótrúlega gaman að spila
fótbolta, þegar maður leikur fyrir
hraðann, baráttuna og leikgleðina.
Góður árangur -
meiri kröfur
Hverju viltu spá um gengi Fortuna
Dússeldorf í vetur?
- Mér finnst nú alltof snemmt að spá
einhverju. Margir af leikmönnum liðsins
eru farnir að tala um sæti í Evrópukeppni
á næsta ári og því um líkt. Ég held að
ótímabært sé að velta slíku fyrir sér. Við
verðum að hugsa um það fyrst og fremst
að ná okkur í 26-28 stig til að halda
okkur í deildinni. Þegar þeim áfanga er
náð er svo hægt að hugsa um sæti í
Evrópukeppni. Við erum nú komnir
með 17 stig í 14 leikjum, sem verður að
teljast frábær árangur og erum nú í hópi
efstu liða í deildinni. Þetta er árangur
sem ég held að fáir hafi reiknað með.
Vonandi tekst okkur að fylgja þessu
eftir. Árangurinn hefur vitaskuld verkað
hvetjandi á okkur leikmennina, kannski
ekki síst vegna þess að aðsókn á leiki
okkar hefur stóraukist og þjálfarar ann-
arra toppliða hérlendis tala um að við
leikum skemmtilegustu knattspyrnuna
sem boðið er uppá í Þýskalandi í
augnablikinu. Hinn góði árangur hefur
það hins vegar í för með sér að gerðar
eru til okkar meiri kröfur og við reynum
okkar besta til að standa undir þeim.