Tíminn - 27.11.1983, Side 22
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
únuós í
SKAMMDEGINU
KOMBI-PACK-útiljósið er með 80 watta
kvikasilfursperu, sem gefur mikla birtu.
Það er sterkbyggt og auðvelt
í uppsetningu.
KOMBI-PACK eykur öryggi hvar sem er,
á vinnusvæðum, við útihús, á
skólasvæðum og við hvers manns dyr
Lýsið umhverfið
með KOMBI-PACK
Heimilistæki hf
SÆTUNI 8-S: 27500
Hlý
vetrar-
stígvél
NOKIA
Gúmmístígvél
Filt-fóðruð.
Breið og hlý.
Kr. 1.700.-
Póstsendum
títílíf
Glæsibæ - Sími 82922
nútíminnl
Jólatónleikar
Mezzoforte
■ Hljómsveitin Mezzoforte kemur
heim nú um miðjan næsta mánuð og
heldur hér tvenna tónleika sunnudaginn
18. desember í Háskólabíói. Fyrri tón-
leikarnir verða kl. 16 og eru haldnir í
nafni Flugleiða, hér er um góðgerðartón-
leika að ræða og verður boðið á þá
ýmsum hópum sem að öðru jöfnu eiga
ekki kost á að sækja skemmtanir sem
þessa.
Seinni tónleikarnir verða kl. 21 um
kvöldið og rennur allur hagnaður af
þeim til tónlistarskóla FÍH en tveir af
meðlimum hljómsveitarinnar hafa kennt
þar. Hópur nemenda skólans mun koma
fram með Mezzo og gefa gestum sýnis-
horn af árangri kennslunnar.
Að sögn Steinars Berg sem nú er
staddur hérlendis, hafa Flugleiðir að-
stoðað hljómsveitina mikið varðandi
ferðir til og frá landinu. Hann sagði að
nú byggi hljómsveitin við svipuð vanda-
mál og erlendar hljómsveitir sem hingað
kæmu, þ.e. mikill og stór tækjabúnaður
sem erfitt væri að flytja á milli, en á
tónleikaferðum þeirra erlendis er þessi
búnaður nú um 6 tonn að þyngd. Þær
kæmu því aðeins með hljóðfærin með sér
hingað en síðan yrði eitthvert gott kerfi
fengið að láni.
Nú hafa plötur þeirra í Bretlandi selst
í upplagi sem liggur á bilinu 220-240
þúsund eintök og áætlað er að yfir 30
þúsund manns hafi séð þá á tónleikum á
ferðalagi þeirra um Bretland s.l. sumar.
Steinar sagði að þeir hefðu meir en
nóg að gera, nýlega var þeim boðið í
tónleikaferðalag til Suður-Afríku og
meðan þeir voru að velta því fyrir sér
kom annað boð frá Japan og fara þeir
Steinar
Berg
annaðhvort, eða á báða staðina, nú strax
eftir áramót...við erum að reyna að
koma þessum tveimur ferðum saman“
sagði Steinar.
í apríl er svo áformuð tónleikaför um
öll Norðurlöndin en plötur þeirra hafa
selst vel þar, einkum í Noregi. -FRI
Einar skemmtilegur
en Psychic hroðaleg
■ Tónleikar Psychic TV eru í mínum
huga einhver mesti bömmer ársins,
svona álíka atriði og að vakna upp eftir
áramótagleðskapinn, síðdegis á öðrum
degi nýársins í verbúðinni á Fáskrúðs-
firði.
Rödd úr áheyrendaskaranum: „Ég
finn hvergi laglínu í þessu...“ og var sá
að mér skildist búinn að leita lengi.
Raunar var það ekki hið eina sem skorti,
tónlistin var samkrull ýmsra hljóða, m.a.
fengnum úr fiðlu, með því að skafa
strengi rafmagnsgítars, berja á víbrafón
o.fl. að því er virtist til þess eins að ná
þessum hljóðum fram. Kannski hafa
textarnir verið aðalmálið en hið eina
sem maður náði af þeim voru álíka
djúphugsaðar línur hjá Genesis P. Orr-
idge og „Where there is truth there is
money, where there is not truth there is
no money“... eða eitthvað í þá áttina.
Svo vikið sé að atburðum í réttri
tímaröð þá kom fyrst leynigesturinn
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði
og kvað rímur að gömlum hætti, eftir á
að hyggja var þetta langbesta atriði
kvöldsinsæn kveðskapurinn snérist mik-
ið um hjónabandið og hjúskaparsæluna,
efniviður sem goðanum er ekki með öllu
ókunnur enda giftir hann fólk hvar sem
er og hvenær sem er ef marka má
blaðaskrif nýverið og raunar gaf hann
þau saman Genesis og vinkonu hans, að
heiðnum sið upp á Draghálsi nú á
fimmtudaginn.
Á eftir goðanum kom hljómsveitin
Kukl fram og var ætlunin að senda
videomynd beint frá London af söngvar-
anum Einari Erni en taka rödd hans í
gegnum símann og láta hann syngja
með. Fyrrnefnda atriðið brást og hvað
hið seinna varðar áttu menn í mesta basli
framan af, hljómurinn var eins og Einar
væri staddur á tunglinu en undir lokin
lagaðist þetta aðeins og varð nokkuð
skemmtilegt atriði.
Leynigestur kvöldsins númer tvö tróð
svo upp en það var bróðir Einars með
leiðinlegan „einþáttung" þar sem hann
spjallaði við Einar á milli þess sem hann
gaf skít í áheyrendur, atriði sem maður
hefði vel getað hugsað sér að missa af en
að öðru leyti hafði kvöldið verið
skikkanlegt hjá þeim rúmlega fimm
hundruð manns sem mættu á svæðið,
fram að þessu.
Síðan tóku Psychic TV við sviðinu.
Skemmtun með sársauka er kannski
réttasta lýsingin á því sem þau voru að
gera og ef það hefur verið ætlunin má
segja þeim til hróss að ekki hefði verið
hægt að standa betur að því.
Þungur einfaldur ásláttur, keyrður
með þéttum bassahljóðum og einstaka
gítar-og fiðluriffum inn á milli var, svona
á heildina litið, það sem þau fram-
kvæmdu á sviðinu en með þessum
kokteil var svo boðið upp á videómyndir,
sýrulegar til að byrja með, létt-bláar um
miðbikið og mjög ógeðfelldar undir
lokin, þannig að hið eina sem maður
fékk út úr þessu kvöldi var verulegur
höfuðverkur.
Áheyrendur sátu þögulir undir „sýn-
ingunni" allt til lokalagsins og klöppuðu
þá fyrir Psychic, margir sennilega vegna
þess að þeir voru fegnir að þessu væri
loksins lokið. _fri