Tíminn - 27.11.1983, Blaðsíða 25
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 19S3
25
Þegar hvorki má hósta né
leggja frá sér blýantinn
■ í Ameríkunni hafa svindlmál skotið upp
kollinum undanfarið sem sum hafa dregið
dilk á eftir sér. Fyrir um 8 árum var einu
fremsta bridgepari í Ameríku þá, Cohen og
Katz, vikið úr ameríska bridgesambandinu
vegna gruns um að þeir hefðu unnið sín mót
með því að nota frumlegt merkjakerfi: hósta.
Ekki hefur verið upplýst hvernig þetta kerfi
átti að hafa virkað í smáatriðum en málið
kom upp í miðju landsliðseinvígi þar sem
þeir, ásamt Sontag og Weichsel meðal
annars, voru um það bil að vinna sér rétt í
landsliðið fyrir Heimsmeistaramótið.
Þeir Katz og Cohen fóru í mál við bridge-
sambandið og það mál stóð yfir þar til fyrir
ári að dómssátt varð og þeim félögum var
leyfð innganga í bridgesambandið að nýju,
að því tilskildu að þeir spiluðu ekki við hvorn
annan. En spurningunni stóru var aldrei
svarað: voru mennirnir svindlarar?
Nokkrum árum seinna kom annað svipað
mál uppþegar nýstjörnurnar Kokin og Sion
voru reknir úr ameríska bridgesambandinu
vegna gruns um að hafa svindlað. Þessir
kumpánar voru þá eitt mest umtalaða par í
Ameríku og höfðu unnið nokkur stórmót.
En í miðjum úrslitaleik í einu stærsta móti í
Ameríku voru þeir sakaðir um að hafa gefið
hvor öðrum bendingar með því að láta
pennana á borðinu hjá sér vísa í mismunandi
áttir og sýna þannig hvaða litur var sterkastur
á hendinni hjá þeim.
Nú en í kjölfar þessarar ákæru fylgdi
auðvitað málshöfðun og hún hefur verið að
malla í kerfinu þar til í sumar. Þá lauk málinu
á sama hátt og því fyrra; Kokin og Sion voru
teknir í bridgesambandið aftur með þeim
skilyrðum að þeir spiluðu ekki saman. Og
enginn veit fyrir víst hvort ákæran var á
rökum reist. Þannig fara þeir að þessu í
Amríkunni og hafa ýmsir orðið til að gagn-
rýna þessa málsmeðferð, m.a. tímaritið The
Bridge World.
Reidar Lien hættur
Hinn góðkunni norsksi spilari Reidar Lien
hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila á
alþjóðamótum og sennilega einnig á heima-
slóðum. Lien er íslendingum að góðu kunnur
en hann hefur nokkrum sinnum spilaði hér á
landi með félaga sínum Per Breck. Lien
spialði síðast á Evrópumótinu í sumar þar
sem Norðmenn náðu þriðja sæti.
Bridgefélag Breiðfirðinga
Eftir 12 umferðir í aðalsveitakeppninni
eru þessar sveitir efstar:
Helgi Nielsen 177
Jóhann Jóhannsson 177
Ingibjörg Halldórsd 165
Sigurður Ámundason 164
Guðlaugur Nielsen 138
Bergsveinn Breiðfjörð 136
Hans Nielsen 131
Erla Eyjólfsdóttir 127
Eftir tvær umferðir í hraðsveitakeppni er
þetta staða efstu sveita:
Sævar Arngrímsson 1241
Heimir Tryggvason 1192
Sigurleifur Guðjónsson 1187
Gunnar Helgason 1187
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Nú er lokið 11 umferðum af 17 í aðalsveita-
keppni félagsins og línur nokkuð farnar að
skýrast, en þessar sveitir eru efstar:
Úrval 176
Samvinnuferðir-Landsýn 150
Þórður Sigurðsson 147
Jón Hjaltason 146
Ólafur Lárusson 129
Runólfur Pálsson 128
Ágúst Helgason 122
Guðbrandur Sigurbergsson 122
Næstu tvær umferðir verða spilaðar n.k.
miðvikudag í Domus Medica. Þá eigast m.a.
við tvær efstu sveitimar og sveitir Þórðar Sig.
og Jóns Hjaltasonar.
„TBK“
Síðastliðinn fimmtudag 24. nóv. var þriðja
kvöldið háð í Hraðsveitakeppni félagsins.
Hæstu skor hlutu:
sv. Gests Jónssonar 653
sv. Rafns Kristjánssonar 635
sv. Magnúsar Torfasonar 624
sv. Sigfúsar Árnasonar 624
sv. Arnar Bragasonar 599
Heildarstaðan eftir 3. kvöld er þessi:
Sigfús Ö. Árnason 1952
Gestur Jónsson 1892
Magnús Torfason 1862
Rafn Kristjánsson 1844
Margrét Þórðardóttir 1784
Bragi Jónsson 1780
Spilamennskan heldur svo áfram eins og
venjulega í Domus Medica næstkomandi
fimmtudag 1. des. Spilarar mæti stundvíslega
kl. 19.30. Keppnisstjórier AgnarJörgenssen.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Aðalsveitakeppni félagsins er nú að ljúka
og er aðeins ein umferð eftir. Mótið hefur
allan tímann verið afar jafnt og spennandi,
en eftir síðasta kvöld hafa línumar skýrst
nokkuð. Tvær sveitir em líklegar til að
hreppa sigurinn, sveitir Georgs Sverrissonar
og sveit Björns Halldórssonar. Staðan fyrir
síðustu umferð er þessi:
1. sv. Georgs Sverrissonar 151
2. sv. Björns Halldórssonar 148
3. sv. Ólafs Gíslasonar 137
4. sv. Sævars Magnússonar 124
5. sv. Kristófers Magnússonar 116
6. sv. Þórarins Sóphussonar 114
Síðasta umferðin verður spiluð mánu-
daginn 28 nóv. Spilað er í Iþróttahúsinu við
Strandgötu, og hefst keppnin kl. 7.30. Þar
sem aðeins ein umferð er spiluð verður hægt
að spila eitthvað létt á eftir.
Bridgefélag Breiðholts
Þriðjudaginn 22. nóv. var spilaður eins
kvölda tvímenningur í tveimur 10 para
riðlum. Röð efstu para varð þessi.
A-riðill.
1. Sveinn Sigurgeirsson -
Baldur Árnason 123
2.-3. Ragnar Ragnarsson - Stefán Oddsson 118
2.-3. Eiríkur Bjarnason - Halldór Magnússon 118
4. Sigurbert Hannesson - Lárus Konráðsson 117
B-riðill. 1. Anton Gunnarsson - Árni Alexandersson 125
2. Garðar Garðarsson - Ingólfur Eggertsson 117
3. Tryggvi Gíslason - Bernharð Gumundsson 116
4. Guðmundur Grétarsson - Stefán Jónsson 114
Meðalskor 108
Næsta þriðjudag hefst þriggja kvölda hrað-
sveitakeppni. Skráning er hafin hjá Baldri í
síma 78055. Spilaðer í Gerðubergi. Keppnis-
stjóri er Hermann Lárusson.
Bridgefélag Kópavogs
Fimmtudaginn 17/11 var spilað fjórða
umferð í hraðsveitakeppni. Efstir urðu:
Sigurður Vilhjálmsson 644
Bragi Erlendsson 614
Árni Bjarnason 602
Síðasta fimmtudag lauk keppninni. Það
kvöld urðu efstir:
Árni Bjarnason 605
Sigurður Vilhjálmsson 604
Grímur Thorarensen 604
Sigurður.Vilhjálmsson sigraði í mótinu en
með honum voru Vilhjálmur Sigurðsson.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Sturla Geirsson,
en sveitin hlaut 3084 stig.
Árni Bjarnason 3034
Grímur Thorarensen 2976
Guðrún Hinriksdóttir 2903
Næsta fimmtudag hefst þriggja
kvölda jóla-Butler. Spilamennska hefst
klukkan 19.45 stundvíslega.
Lögmannafélag íslands
Bridgemóti Lögmannafélags fslands er
nvlokið. Alls tóku 6 sveitir þátt í mótinu.
Sigurvegari var sveit Jóns Arasonar, hdl.,
með 61 stig og í 3. sæti sveit Þorvalds
Lúðvíkssonar, hrl., með 49 stig.
Sigursveitina skipuðu auk fyrirliða þeir
Jón Þorsteinsson, hrl., Einar Viðar, hrl.,
Sigtryggur Sigurðsson og Jóhann Jónsson.
Frá Bridgesambandi
íslands
Eftirtalin mót fara fram á vegum B.S.Í. 1983.
1. Bridgehátíð haldin í samvinnu við B.R.
2.-5 mars á Hótel Loftleiðum.
2. íslandsmót kvenna og yngri spilara í
sveitakeppni 17.-18. mars á Hótel Heklu.
3. Tvímenningur haldinn í samvinnu við
Samvinnuferðir-Landsýn 31. mars-1. apríl.
4. íslandsmót í sveitakeppni undanúrslit
6.-3. apríl á Hótel Loftleiðum.
5. íslandsmót í sveitakeppni úrslit 19.-22.
apríl á Hótel Loftleiðum.
6. íslandsmót í tvímenning undankeppni
5.-6. maí á Hótel Esju.
7. íslandsmót í tvímenning úrslit 26.-27.
maí á Hótel Loftleiðum.
8. Bikarkeppni undanúrslit og úrslit 29.-30.
september á Hótel Loftleiðum.
9. íslandsmót kvenna í tvímenning 6.-7.
október á Hótel Heklu.
10. íslandsmót blandaðs flokks í tvímenning
13.-14. október á Hótel Heklu.
11. Þing Bridgesambands fslands 27. októ-
ber.
Bridgedeild Skagfirðinga
Þriðjudaginn 22. nóvember lauk keppni í
Barometer með sigri þeirra Erlends Björg- vinssonar og Sveins Sveinssonar. Náðu þeir forustu í 7. umferð og gáfu síðan ekkert eftir enda ferð á sæluviku Skagfirðinga í boði sem
vinnmgur.
Næstu pör: 2. Lúðvík Ólafsson -
Rúnar Lárusson 3. Guðni Kolbeinsson - 168
Magnús Torfason 4. Baldur Ásgeirsson - 144
Magnús Halldórsson 5. Hreinn Magnússon - 141
Ragnar Björnsson 104
Næst veröur spiluð 3ja kvölda hraðsveita-
keppni, sem hefst næstkomandi þriðjudags-
kvöld, að Síðumúla 35. Þáttaka tilkynnisttil
Sigmars Jónssonar í síma 12817 og 16737 og
Hauks Hannessonar í síma 42107.
GuUfaUeg ítölsk sófasett
JÓLASENDINGIN ER KOMIN
Leður og tauáklœði -11 gerðir -15 litir
Ódýrast kr. 32.800.-
Dýrast kr. 53.900. -
Einnig ítalskir leðurstólar. Verð kr. 12.900.-
og sófaborð með onyxplötu. Verð frá kr. 8.950. -
Húsgögn og
. . ... Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
VIÐ HÖNNUM, TÖLVUSETJUM OG PRENTUM
SKÝRSLU- OG REIKNINGSEYÐUBLÖÐ FYRIR TÖLVUR.
TÖLVUPAPPÍR Á LAGER.
NÝ, FULLKOMIN LEISER-LJÓSSETNINGARVÉL
OG PRENTVÉLASAMSTÆÐA.
REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
PRENTSMIDJAN H. F. Smiöjuvegi 3, 200 Kópavogur, simi 45000