Tíminn - 19.04.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 19.04.1986, Blaðsíða 12
A Tilkynning til launagreiðenda Athygli launagreiöenda skal vakin á breytingum sem geröar hafa veriö á fyrirframgreiðsluskyldu 1986 meö reglugerö nr. 105 1986 en þar er ákveðið aö hver gjaldandi skuli í mánuöunum apríl, maí og júní greiða 11,67% af gjöldum fyrra árs í staö 13% sem ákveðin höföu verið í reglu-' gerð nr. 468 1985. Nýjar skilagreinar vegna fyrirframgreiðslu starfs- manna fyrir ofangreinda mánuöi hafa verið send- ar út og sýna þær aðeins reiknaöa fyrirfram- greiöslu mánuöina apríl - júní, en hvorki gjald- fallnar skuldir né greiöslustööu nú. Er um þaö vísað til fyrri kröfubréfa, en innborganir ganga fyrst til lækkunar á eldri skuld. Innheimta Kópavogskaupstaðar. LAUSAR STÖÐURHJÁ REYKJAVIKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftir- talinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara- samningum Seljahlíð vistheimili aldraðra við Hjaila- sel 1. Sjúkraliðar 2. Starfsfolk í eldhús og borðstofu Upplýsingar fengnar í síma 73633 frá kl. 10-12 alla virka daga. Umsóknum ber að skila til starfsmanna- halds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum umsóknareyðublöð- um sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. apríl nk. fFrá Grunnskólum Reykjavíkur Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á árinu 1980) fer fram í skólum borgarinnar mánudaginn 21. og lýkur þriðjudaginn 22. apríl n.k., kl. 15-17 báða dagana. Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börnin á þessum tilgreinda tíma eigi þau að stunda forskólanám næsta vetur. Skólastjórar SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA 3 108 RRYKJAVIK SÍMI (91)681411 Húsvarsla Óskum að ráða mann til húsvörslustarfa í Ármúla 3. Unnið er á vöktum. Upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá Starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411. Bændur Til sölu Alfa Laval rörmjaltakerfi 4 ára og með öllu. Einnig nokkrar kvígur komnar að burði, og gott hey. Upplýsingar í síma 93-7063. 12 Tíminn Laugardagur 19. apríl 1986 Laugardagur 19. apríl 1986 Tíminn 13 llllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Úrslitakeppni NBA-körfuknattleiksins: Pétur lék vel er Lakers unnu auðveldan sigur á San Antonio Spurs I fyrrinótt voru fyrstu leikirnir í úrslitakeppninni í bandaríska NBA körfuknattleiknum. Pétur Guð- mundsson og félagar spiluðu gegn San Antonio Spurs og rúlluðu fyrir þá eins og við var að búast. Leikur- inn var í The Forum í Ingelwood í Kaliforníu sem er heimavöllur Lakers. Lokatölur urðu 135-88. Pét- ur lék með Lakers sem sjötti maðuy og var inná í einar 18 mínútur. Hann skoraði 10 stig í leiknum og tók nokkur fráköst. Pétur fékk reyndar sex villur og varð að fara af velli en hefði eflaust spilað meira ef villu- vandræðin hefðu ekki háð honum. Helstu keppinautar Lakers í Vest- urdeildinni, Houston Rockets unnu léttan sigur á Sacramento Kings 107-87. í Austurdeildinni voru Bost- on Celtics ekki í vandræðum með Chicago Bulls og unnu 123-104. Þá unnu Atlanta Hawks sigur á Detroit Pistons 140-122. NM pilta í handknattleik: Spilað í Danmörku Norðurlandamót pilta í hand- knattleik fer fram í Danmörku um helgina. íslendingar verða að sjálf- sögðu með á mótinu og þjálfari liðsins Geir Hallsteinsson hefur valið eftirtalda pilta til þátttöku á mótinu: Bergsveinn Bergsveinsson, FH Sigtryggur Albertsson, Grótta Ólafur Kristjánsson, FH Hafsteinn Bragason, Stjörnunni Bjarki Sigurðsson, Víkingi Jón Kristjánsson, KA Stefán Steinsen, Vikingi Einar Einarsson, Stjörnunni Halldór Ingólfsson, Gróttu Konráð Ólafsson, KR Héðinn Gilsson, FH Sigurður Sveinsson, UMFA Stefán Kristjánsson, FH Axel Björnsson, KA Mótið hófst reyndar í gær með leik íslendinga og Svía. 1 dag spila okkar menn síðan gegn Norðmönn- um og Grænlendingum og á morgun er spilað við Dani og Færeyinga. SAAB féll úr leik SAAB, lið Þorbergs Aðalsteins- sonar í sænska handknattleiknum, varð að sætta sig við tap 17-19 fyrir Allsvenska-liðinu Drott í undanúr- slitum sænsku bikarkeppninnar í gær. Staðan var 17-17 er örskammt var til leiksloka en Drott var sterkara er mest á reyndi. Þorbergur var í miklu stuði og skoraði 9 mörk eða rúman helming marka SAAB. Pá má geta þess að Olympia, liðið sem Brynjar Harðarson spilar með, vann sig uppí 1. deild í handknatt- leiknum sænska í fyrradag. ssææss Knattspymudeild ÍK og Veggfóðrarinn, Málning og járnvörur, Síðumúla 4, hafa gert með sér auglýsingasamning fyrir komandi keppnistímabil. Meistara- flokkur ÍK mun auglýsa Sapur-teppahreinsinn á keppnisbúningum og bera merki lýrirtækisins á upphitunarbúningum. Á myndinni sýna leikmenn ÍK nýju búningana sem framleiddir eru af Henson. Þeir eru Reynir Björnsson, Úlfar Óttarsson, Hörður Sigurðsson fyrirliði og Guðjón Guðmundsson þjálfari. Lengst til vinstri er Magnús Harðarson forinaður ÍK og lengst til hægri er Sigvaldi Einarsson, fulltrúi Veggfóðrarans. 1‘ess má geta að einn leikmanna IK, Vilhjálmur Sigurðsson, hannað upphitunarbúningana. Unglingaþjálfarastyrkur íþróttasamband íslands hefur ákveðið, samkvæmt tillögu ung- linganefndar ÍSÍ, að veita þremur unglingaþjálfurum fjárstuðning í því skyni að auðvelda þeim að sækja námskeið erlendis. Nemur ijár- stuðningurinn kr. 18.000 til hvers þjálfara. Umsóknareyðublöð hafa verið send öllum héraðs- og sérsambönd- um innan ÍSÍ. Umsóknum ber að skila til skrif- stofu ÍSÍ, Laugardal, eigi síðar en 10. maí nk. Louganis öruggur - sigradi á meistaramóti í dýfingum í 36. sinn á ferlinum Bandaríkjamaðurinn Greg Louganis varð í fyrradag bandarísk- ur meistari í dýfingum innanhúss. Louganis þessi varð tvöfaldur ólym- píumeistari á ÓL í Los Angeles og hefur unnið til meistaratitla í Banda- ríkjunum í 36 skipti - sannarlega árangur. Louganis keppir nú fyrir sundklúbb á Florida en mótið í fyrradag fór fram í Indianapolis í Indiana. Næstur á eftir Louganis varð Doug Shaffer frá UCLA-há- skólanum en hann er háskólameist- ari í dýfingum. Sigur hjá Norðmönnum Norðmenn unnu sanngjarnan sig- ur á Portúgölum á Evrópumótinu í körfuknattleik sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Leikurinn endaði 89-78 eftir að staðan hafði verið jöfn nær allan leikinn. Norðmenn unnu á lokasprettinum. Norðurlandamót pilta í handknattleik: Stórtap fyrir Svíum Seinni hálfleikur slakur og Svíar unnu með átta mörkum íþróttablöðin Skinfaxi og íþrótta- blaðið komu út fyrir skömmu. Bæði hafa skipt dálítið um útlit og efnis- tök. Nýr ritstjóri er að íþróttablað- inu. Er það hinn kunni knattspymu- maður Þorgrímur Þráinsson. Rit- stjóri Skinfaxa er sem fyrr Guð- mundur Gíslason. Meðal efnis í Skinfaxa er viðtal við Eirík Hauks- son og Steingrím Hermannsson. Þá er skák- og bridgeþáttur og auðvitað fréttir frá Ungmennafélögunum vítt og breitt um landið. í íþróttahlaðinu er m.a. viðtal við Pálmar Sigurðs- son, körfuknattleiksmann ásamt út- tekt á körfuknattleiksvertíðinni í vetur. Þá er fjallað um HM í hand- knattlcik í Sviss og m.a. spjallað við Vasle Stinga leikmann Rúmena. Greg Louganis í fallegu stökki á ÓL í L.A. þar sem hann varð tvöfaldur meistari. íslenska piltalandsliðið í hand- knattleik steinlá fyrir Svíum í fyrsta leik Norðurlandamótsins í hand- knattleik sem nú er háð í Danmörku. Lokatölur í gær urðu 19-27 fyrir Svíana eftir að þeir höfðu leitt í hálfleik 10-8. Eins og tölur gefa til kynna þá áttu íslendingar nokkuð í Svíana í fyrri hálfleik en í þeim síðari hrundi leikur liðsins. Þeir Ólafur Kristjánsson og Hafsteinn Bragason voru atkvæðamestir ís- Konráð Ólafsson skoruðu 3 hvor. lensku strákanna og gerði hvor um íslensku piltarnir leika við Græn- sig 4 mörk. Þeir Stefán Steinsen og lendinga og Norðmenn í dag. Hraðbankinn - hagkvæm samvinna í þína þágu Alþýöubankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Verzlunarbankinn og Sparisjóðirnir. Afgreiðstustaðir Hraðbankans verða i byrjun á eftirtöldum stöðum: Borgarspítalanum • Landsbankanum Breiðholti • Lands- bankanum Akureyri • Landsspítalanum • Búnaðarbankanum Austurstræti • Búnaðarbankanum við Hlemm • Búnaðarbankanum Garðabæ • Sparisjóði vélstjóra • Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegs- bankanum Hafnaríirði. Leitaðu upplýsinga í viðskiptabankanum þínum eða sparisjóði. Þessir sterku kappar eru nú staddir í Þrándheimi í Noregi þar sem þeir keppa á NM í lyftingum. Mótið hefst í dag en verður einnig á morgun. Kapparnir eru frá vinstri: Birgir Þór Borgþórsson, Oskar Kárason, Þorkell Þórisson og Guðmundur Sigurðsson. Þeir eru væntanlegir heim síðla sumars. _____ Timamynd Pétur Stórsigur Uerdingen Frá Guðmundi Karlssyni í Þýskalandi: Uerdingen sigraði í Nurnbcrg held- ur stórt í v-þýsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Lokatölur urðu 6-2 fyrir Uerdingen sem nú er komið í fjórða sæti í deildinni. Atli lék með í leiknum en Lárus hvíldi. Longtiens gerði þrennu í leiknum. Andrés á Akureyri Elieftu Andrésar andar lcikarnir verða haldnir á Akureyri í lok næstu viku. Setningarathöfn fer fram í Akureyrarkirkju á miðvikudaginn þann 23. apríl. Keppni í hinum ýmsu greinum fer fram fimmtudag og lýkur henni á laugardag, eftir rétta viku. Mótinu verður slitið klukkan 17 á laugardag í íþróttahöllinni. Keppendur eru á aldrinum sex til tólf ára og koma frá öilum hefðbundnum skíðastöðum á landinu. Alls ntunu ijórtán héruð á landinu senda fulltrúa sína til þess að keppa í nafni Andrésar andar. Gert er ráð fyrir 410 keppendum á mótinu og þeim munu fylgja um 120 fararstjórar. Allur þessi fjöldi mun gista í Lundarskóla. HIÁ Brassar unnu Finna Brasilíumenn skoruðu tvö mörk á síðustu tveim- ur mínútunum í viðureign sinni við Finna í landsleik í knattspyrnu í Brasilíu í gær til að tryggja sér 3-0 sigur. Leikur Brassanna olli vonbrigðum og það tók þá heilar 70 mínótur að brjóta á bak aftur vörn Finnanna. Marinho skoraði þá fyrsta markið með skalla. Þeir Oscar og Casagrande bættu síðan við ntörkum á lokamínótunuin eins og fyrr scgir. Finnar áttu gott færi á ll.mínútu til að ná forystu í leiknum en skot frá Turunen smaug rétt yfír slána á niarki Brassanna. BANKAWONUSTA Hvað er Hraöbankinn og hvar? Hraöbankinn er heiti á nýju sameiginlegu þjónustukerfi Alþýðubankans, Búnaöar bankans, Landsbankans, Samvinnubankans, Útvegsbankans, Verzlunarbankans og sjóöanna. Hraöbankinn er sjálfsafgreiðslubanki sem þú opnar þegar þér hentar og getur þú notað hvaöa afgreiöslustaö Hraöbankans sem er, svo fremi aö þú sért í viö- skiptum hjá eínhverjum aðildarbankanna. Hraðbankaþjónustan Þegar þú hefur stofnaö tékkareikning og/eöa sparireikning í Hraöbankanum getur þú hvenær sem er sólarhringsins í hvaöa Hraðbanka sem er: • tekið út fé • lagt inn • greitt reikninga • millifært • fenaiö uDDlvsinaar um stóöu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.