Tíminn - 15.11.1986, Síða 1
0 STOFNAÐUR1917
limirm
SPJALDHAGI
aílar uppJýsingar
á einum staó
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986 - 261. TBL. 70. ÁRG.
'•',5 fý
í STUTTU MÍLI...
SJÓNVARPSFRÉTTIR
ríkisútvarpsins munu veröa færöar 1
aftur til klukkan átta frá og meö 1.
1 desember. Þetta var samþykkt á fundi I
!! útvarpsráðs í aær og er ástæöan fyrir I
flutningpum niöurstaöa könnunar sem |:
Félagsvísindastofnun Háskólans J
geröi fyrir Ríkisútvarpiö. í könnuninni 1
kom fram aö um 25% áhorfenda vildu ![:;
halda núverandi útsendingartíma en 1
um 70% vildu fá aftur gamla útsend-
ingartímann.
FRAMKVÆMDANEFND I
um launamál kvenna hélt ráöstefnu á :
dögunum og var þar skorað á samtök I
launafólks og atvinnurekenda aö vinna
aö því af heilum hug aö tryggja konum J
mannsæmandi laun fyrir dagvinnu í I
komandi samningum. Nýútkomin
könnun Kjararannsóknarnefndar og f
■ könnun Norrænna bankamanna staö- SJ
festir þaö launamisrétti sem konur búa :
viö í dag. Á ráðstefnunni var bent á 1
nauðsyn þess að endurmat fari nú 1
fram hiö fyrsta á störfum kvenna þar I
sem ábyrgö á vægi ábyrgðar á lífi og I
limum veröi lagt aö jöfnu við vægi §
ábyrgöar á fjármunum og tækjum. j■■
STARFSFÓLKI hraöfrysti 1
Íhússins í Keflavík hefur öllu veriö sagt
uþp störfum. Uppsagnirnar taka gildi
1. desember en vinna hefst aftur i
Sfrystihúsinu í janúar. Ástæða upp-
sagnanna er sú aö aflakvótinn er
búinn. Starfsfólk frystihússins er um |
eitt hundraö.
■ ||
GREENPEACE samtökin .
Ihöfðu uppi mótmæli við opnun nor-
rænu myndlistarsýningarinnar í Ton-
halle í Dusseidorf í lok október. Voru |
samtökin aö mótmæla hvalveiöum ís-
lendinga og Norömanna. 2 stórum if
uppblásnum hvölum auk pappakassa
meö áletruninni „frosiö hvalkjöt frá
íslandi flutt út til Japans“ og á boröa
stóð „hvaladráparar" en honum haföi ij
veriö komiö fyrir milli íslenska og il
norska fánans.
1 HELGI GÍSLASSON
myndhöggvari hefur opnað sýningu í 1
Dusseldorf í Galerie Vömel og stendur i
sýningin til 29. nóvember n.k.. Sýning- 1
Íarsalur þessi er einn af þekktustu |
sýningarsölum borgarinnar. Á sýning- ij
unni eru bronsmyndirog nokkrarteikn- 1
ingar.
TVEIR suður-afrískir hermenn og
39 skæruliöar létu lífið í árás stjórnar-
hers Namibíu, undir stjórn Suöur-Afr-
íku, á skæruliöabúðir í sunnanverðri
Angólu. I tilkynningu stjórnarhersins
voru Þjóðarsamtök Suö-vestur Afríku,
sem berjast fyrir sjálfstæöi lands síns J
frá Suður- Afríku, sögö hafa þjálfað
skæruliða í þessum búðum.
I
CORAZON AQUINO for
seti Filippseyja er nú komin heim frá
opinberri heimsókn í Japan. Heima
fyrir biðu hennar mörg vandamál eftir
morðiö á verkalýðsforingjanum Rol-
ando Olalia fyrr i vikunni. Mótmæli á
strætum úti vegna morðsins voru
fjölmenn, hótað var allsherjarverkfalli
og samningaviöræöur við skæruliða
kommúnista sigldu í strand.
KRUMMI
-------
„Þetta gerum við líka
á Hrafnaþingum —
stingum saman
nefjum. “
Hvalbátum
bjargað
Starfsnienn Köfunarstöðvar-
innar vinna nú aft þvi að ná
hvalbátunum tveiin upp af
hafnarbotninum vift Ægisgarft.
í gær var verift aft þéttu skipift
og koma fyrir dælubúnafti til aft
dæla úr skipunum. Heljar-
mikill prammi var kominn á
svæftift en á honum var krani
eins ogsést á myndinni. Tilboði
Köfunarstöðvarinnar um aft ná
skipunum upp var tekift fyrr í
vikunni en þaft hljóftafti upp á
rétt rúma milljón króna.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Allt starfsfólkið sagði upp stórfum
— Stjórnarformaður sagði af sér
Á fratnkvæmdanefndarfundi
Hjálparstofnunar kirkjunnar
sagði formaður stjórnar, Erling
Aspelund af sér og hefur því látið
af störfum.
Framkvæmdastjóri stofnunar-
innar, Guðmundur Einarsson
sagði upp störfum með þeirri ósk
að verða leystur frá störfum svo
fljótt sem auðið yrði og allt fast
starfslið Hjálparstofnunar sagði
einnig upp störfum sínum. Fram-
kvæmdanefndin mun ekki gefa
kost á sér við kjör sem fram mun
fara eftir áramót en hún óskaði
eftir því að starfsliðið ynni upp-
sagnarfrest sinn sem eru þrfr
mánuðir.
Að sögn Guðmundar Einars-
sonar koma þessar uppsagnir og
afsögn í framhaldi af þeirri um-
ræðu sem hefur verið í þjóðfélág-
inu. Það hafi verið álit stjórnar-
innar að hvorki starfsfólk né
framkvæmdastjóri ætti að láta af
störfum - „en hins vegar nýtum
við rétt okkar til að segja upp
störfum vegna þess að við erum á
þeirri skoðun að til þess að Hjálp-
arstofnun kirkjunnar megi endur-
heimta traust almennings þá þurfi
að skipta hér um áhöfn."
Aðspurður sagði Guðmundur
það sína skoðun að trúnaðar-
brestur sá sem nú hefði orðið,
væri tilkominn vegna einhliða
umfjöllunar á einstaka þáttum
sem gagnrýndir hafa verið í starfi
Hjálparstofnunar. Þessir þættir
hefðu orðið svo yfirþyrmandi að
það starf sem stofnunin hafi unn-
ið á undanförnum árum hafi fallið
í skuggann.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvernig fer með þær
safnanir sem nú hafa verið í gangi
en uppsagnarfrestur þess starfs-
liðs sem nú lætur af störfum
verður notaður til að leita að
öðru starfsliði.
ABS
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Þorsteinn gefur
krötum langt nef
- varðandi stjórnarsamstarf og segir að forða verði vinstra slysi eftir kosningar
Flokksráðsfundur Sjálfstæðis-
flokksins hófst í Reykjavík í gær.
Meginefni fundarins eru þau við-
fangsefni sem varða mismunandi
aðstöðu manna í þéttbýli og dreif-
býli.
I yfirlitsræðu Þorsteins Pálssonar
formanns Sjálfstæðisflokksins kom
fram að næstu kosningar ntunu
snúast urn árangur núverandi
stjórnarsamstarfs og hvort árangur
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um yrði varanlegur vcruleiki cöa
aðeins stundarfyrirbrigði. „Með
nýrri vinstri stjórn myndu allar dyr
opnast fyrir verðbólguglundroða á
nýjan leik,“ sagði Þorsteinn.
Það andaöi .mjög köldu í garð
Alþýðuflokksins í ræðu formanns
Sjálfstæðisflokksins og virðist hug-
myndin unt nýja „viðreisnarstjórn"
ekki eiga fulltingi á þeim bæ. Sagði
hann Alþýðuflokkinn nt.a. knýja á
um þreíöldun eignaskatta. „Nái
Alþýðuflokkurinn fylgi frá Sjálf-
stæðisflokknum, er viðbúið að það
verði túlkað sent krafa um að þetta
meginstefnumál flokksins (þre-
földun eignaskatta) verði gert að
veruleika nteð myndun nýrrar
vinstri stjórnar."
Um leið og Þorsteinn lagði
áhcrslu á að Sjálfstæðisflokkurinn
yrði að beita öllu sínu afli til að
koma í veg fyrir nýja vinstri stjórn,
forða „vinstra slysi" í íslensku
stjórnarsamstarfi, þá sagði hann
að Alþýðuflokkurinn væri líklegri
en ekki til að lilaupa í fang Alþýðu-
bandalagsins eins og Hannibal
Valdimarsson gerði 1971.
Unt fjárlagahallann sagði Þor-
steinn.að nauðsynlcgt hefði vcrið
að fórna tímabundið markmiðinu
um hallalausan ríkisrekstur til að
ná öðrum mikilvægari efnahagsleg-
um áformum. Staðhæfing stjórnar-
andstöðunnar um að hallinn á
fjárlögum væri mesti efnahags -
vandi þjóðarinnarværi fjarstæða,
heldur væri hann.einmitt lykillinn
að þeirri jtjóðarsátt sem gerð var
um kjarasamningana.
Þá sagði lormaðurinn að tillögur
um virðisaukaskatt væru á lokastigi
og vakti jafnframt athygli á því að
eftir að efnahagsráðgjafi ríkis-
stjórnarinnar (Jón Sigurðsson) hafi
gengist inn á íramboð fyrirAljiýðu-
tlokkinn, þá hafi sá flokkur snúið
við blaðinu og lýst yfir stuðningi
við virðisaukaskattinn.
Varðandi bankamál ítrekaði
Þorsteinn nauðsyn þess að sameina
Útvegsbanka, Iðnaðarbanka og
Verslunarbanka í öflugan einka-
banka og Sjálfstæðisflokkurinn
mætti hvcrgi hvika frá þcirri af-
stöðu. „Ríkisstjórnin verðurþegar
í stað að taka af skariö. Það er
fullkomlega ábyrgðarjaust, að láta
þessi mál velkjast áfram án ákvörð-
unar,” sagði Þorsteinn ennfremur
,og stillti þar með Framsóknar-
flokknum upp við vegg í málinu.
-ÞÆÓ