Tíminn - 15.11.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 15. nóvember 1986
Býður hlutabréf
- sem veita skattafslátt
Hlutabréfasjóðurinn hf. er nýtt
fjárfestingarfélag sem stofnað hefur
verið í Reykjavík og er jafnframt
hið fyrsta sinnar tegundar hér á
landi. Markmiðið með stofnun þess
er sagt þríþætt: Að veita einstakling-
um tækifæri til góðrar ávöxtunar í
hlutabréfum með samspili skattfrá-
dráttar og arðsemi traustra atvinnu-
fyrirtækja - að veita auknu fjár-
magni inn í arðbær atvinnufyrirtæki
- og að virka til örfunar á hlutabréfa-
viðskiptum hér á landi.
Hlutabréfasjóðurinn verður opinn
bæði einstaklingum og lögaðilum.
Félagið uppfyllir skilyrði um frádrátt
frá skattskyldum tekjum vegna fjár-
festingar einstaklinga í atvinnu-
rekstri. í því felst að kaup einstakl-
inga á hlutabréfum í sjóðnum eru
frádráttarbær frá skatti næsta ár upp
að vissu marki, sem á síðasta ári nam
34 þús. kr. hjá einstaklingum og
tvöfalt hærri fjárhæð hjá hjónum.
Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins
verða til sölu hjá Kaupþingi, Fjár-
festingarfélaginu, Hlutabréfamark-
aðinum og Verðbréfamarkaði Iðn-
aðarbankans. Þau verða seld í
10.000 kr., 50.000 kr. og 100.000 kr.
einingum.
í stjórn Hlutabréfasjóðsins eru:
Baldur Guðlaugsson, form., Davíð
Sch. Thorsteinsson, Árni Árnason,
Árni Vilhjálmsson, Ragnar S. Hall-
dórsson, Gunnar Helgi Hálfdánar-
son, Pétur H. Blöndal og Sigurður
B. Stefánsson. -HEI
Ásgeir Guðmundsson forstöðumaður Námsgagnastofnunar afhendir Davíð
Oddssyni borgarstjóra hið nýja námsefni um Reykjavík, við hátíðlega athöfn
í Höfða. (Tímamynd Pjetur)
Þetta þurfa
auglýsendur að vita
um útvarpshlustun:
Sjáið styrka stöðu Rásar 1 ogRásar 2
skv. nýrri könnun *
ÚTVARPSHLUSTUN, LANDIÐ ALLT FIMMTUDAGINN 6. NÓVEMBER1986.
Frá kl. 7-9 eru 3 auglýsingatímar, hámark 3 minútur
hver.
Nýr auglýsingatími er kl. 12:10 á undan
hádegisfréttum.
Sterkur auglýsingatími er að loknum kvöldfréttum.
Þeir sem auglýsa á Rás 1 og svæðisútvarpinu Akureyri
geta fengið sambirtingu á Rás 2 með u.þ.b. 40%
afslætti.
Aðrir auglýsingatímar en þeir sem nefndir eru hér
að ofan eru ódýrarí og dreifðir um dagskrána.
* Könnunin var unnin á vegum
Félagsvísindastofnunar, eftir úrtaki úr þjóðskrá.
Könnunin var birt í gær, 14. nóvember.
* * Bent er á, að Bylgjan sendir út til hluta landsins.
KL. % sem . % sem hlustaði RAS 1 hlustaði RÁS2 % sem hlustaðj BYLGJAN"
6-7: 3 Veður/bæn Enginútsending 1 Tónlist í morgunsárið
7-8: 20 Morgunvaktin Enginútsending 8 Sigurður G. Tómasson
8-9: 19 Morgunvaktin Enginútsending 11 Sigurður G. Tómasson
9-10: 7 Morgunst. barnanna 9 Morgunþáttur 11 PállÞorsteinsson
8 Lesturúrforystugr. 9 Sama 10 Sama
10-11: 8 Égmanþátíð 10 Morgunþáttur 11 PállÞorsteinsson
11-12: 5 Söngl. áBroadway 10 Morgunþáttur 13 PállÞorsteinsson
12-13: 21 Tilkynningar 7 Létttónlist 11 Fréttir
50 Fréttir/veður Enginútsending 7 Jóhanna Harðardóttir
(Áhádegismarkaði)
13-14: 8 Tilkynningar/tónleikar 9 Hingaðogþangað 13 Jóhanna Harðardóttir
7 ídagsinsönn 9 Sama 13 Sama
14-15: 6 Miðdegissagan 10 Sama 11 PéturSteinn
3 ílagasmiðjuL.W. 9 Sama 11 Sama
15-16: 6 Fréttir/tilkynningar 7 Sólarmegin 11 PéturSteinn
6 Landpósturinn 7 Sama 11 Sama
16-17: 8 Fréttir/veður 8 Tilbrigði 9 PéturSteinn
4 Bamaútvarpið 7 Sama 9 Sama
17-18: 2 Tónskáldatími 10 Rokk/J.L.Lewis 9 Hallgr. Thorsteinsson
4 Torgið (17.40) 8 Sama 8 Sama
18-19: 6 Torgið Enginútsending 7 Fréttir
12 Tilkynningar/veður Enginútsending 6 Haligr. Thorsteinsson
19-20: 47 Fréttir Enginútsending 2 Tónl. með léttum takti
21 Tilkynningar Enginútsending 3 Sama
18 Dagl. mál/Aðutan Enginútsending 3 Sama
20-21: 13 Leikrit 12 Vinsældalisti 5 JónínaLeósdóttir
21-22: 12 Sama 10 Gestagangur 5 Sama
12 Sama 10 Sama 5 Spumingaleikur
22-23: 8 Fréttir/veður 7 Rökkurtónar 4 Sama
3 Kvöldsaga 7 Sama 6 Leikrit
23-24: 3 Túlkunítónlist 6 DavidBowie 6 Vökulok
24-01: 3 Fréttir/dagskr.lok Enginútsending 3 Rólegtónlist
Til auglýsenda:
Við hvetjum auglýsendur til að kynna sér niðurstöðu könnunarinnar.
Tvennt vekur einkum athygli:
1. Yfirburðastaða Rásar 1 miUi kl. 7 og 9 á morgnana, í hádeginu milli
kl. 12ogl3ogákvöldinmillikl. 19og20.
2. Styrk staða Rásar 2, þrátt fyrir fullyrðingar ýmissa í gagnstæða átt.
RÍKISÚTVARPIÐ
Sterkasti ljósvakamiðillinn
á landsvísu
á\
Rás 1
Rás 2 Sjónvarp
Námsefni um
Reykjavík
Námsgagnastofnun og Skólaskrif-
stofa Reykjavíkur hafa gefið út nýtt
námsefni um Reykjavík fyrir 7.bekk
grunnskóla.
Námsefni þetta er þrenns konar,
ágrip af sögu Reykjavík eftir Lýð
Björnsson sem ber nafnið „Við Fló-
ann byggðist borg“, loftmynd af
Reykjavík þar sem á hafa verið
skráð helstu örnefni og þar er enn-
fremur hægt að bera saman nokkur
svæði í borginni nú og fyrir 35 árum.
Þriðji hlutinn eru þrjú myndbönd
um Reykjavík sem heita „Borgin
okkar“, þögul mynd þar sem börn-
um er ætlað að semja eigin skýring-
artexta, „Höfuðborg í sjón og raun“
þar sem fjallað er um Reykjavík sem
miðstöð þjóðlífs og „Höfnin lífæð
borgar" þar sem fjallað er um at-
vinnulíf tengt höfninni. Magnús
Bjarnfreðsson er höfundur mynd-
bandanna.
Á næsta ári kemur út þrenns
konar námsefni um Reykjavík; stutt
lýsing á landsháttum í Reykjavík í
máli og myndum ásamt verkefnum,
hefti um sveitarfélagið Reykjavík og
tvö myndbönd. -ABS
Villibráð
I Firðinum
Síðustu daga hefur veitingahúsið
A.Hansen í Hafnarfirði verið að
gera tilraun með aða koma Hafn-
firðingum upp á að snæða villi-
bráð sér til hátíðarbrigða. Villi-
bráð þykir eitt það fínasta sem
sælkerar erlendis komast í og hví
gæti það ekki átt við um íslend-
inga? Á boðstólum hjá A. Hans-
en eru fjölmargar tegundir ís-
lenskrar villibráðar ss. lundi,
skarfur, hreindýr, endur og
svartfugl.
Síðasti dagur þessarar tilraunar
hjá veitingahúsinu í Hafnarfirði er
í dag laugardag og munu herleg-
heitin hetjast um átta leytið, en
Haukur Morthens leikur fyrir
matargesti.