Tíminn - 15.11.1986, Page 3
Laugardagur 15. nóvember 1986
3 Tíminn
Fjárlaga- og hagsýslustofnun:
Ríkisstarfsmenn á skólabekk
Stjórnsýslufræösla ríkisins sett á stofn
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
ríkisins hélt fund í gær til að kynna
áætlanir sínar um að stofna til
fræðslu fyrjr ríkisstarfsmenn, Stjórn-
sýslufræðslu ríkisins í samvinnu við
Endurmenntunarnefnd Háskóla
íslands.
Markmið fræðslunnar er ,.að auka
þekkingu og skoðanaskipti um rekst-
ur og stjórnun ríkisstofnana og um
ríkiskerfið almennt". Hlutverk
Stjórnsýslufræðslu ríkisins í þessu
sambandi er að kcnna ríkisstarfs-
mönnum ýmislegt um stjórnun,
rekstur ríkisstofnana og stjórnkerf-
ið.
Fræðslan fer þannig fram að boðið
er upp á námskeið, sem annað hvort
verða opin öllum ríkisstarfsmönnum
eða þá skipulögð sérstaklega með
þarfir einstakra ríkisstofnana eða
hópa ríkisstarfsmanna í huga.
Þcgar hafa vcrið ákveðin 9 eins til
þriggja daga námskeið um fjárlaga-
gerð, bókhald ríkisins, launamál,
greiðslufyrirkomulag og áætlunar-
gerð, tölvumál og stjórnun.
Þessi námskeið verða öll haldin
fyrir áramót.
Þá eru fyrirhuguð námskeið um
Stjórnsýslufræðsla ríkisins kynnt.
ýmis önnur efni strax eftir áramót.
Má þar nefna námskeið um arð-
semismat.framkvæmdir, stjórnkerfi
og stjórnsýslureglur og loks starfs-
mannastjórnun.
Jafnframt var kynntur á fundinum
nýr bæklingur, sem Fjárlaga- og
hagsýslustofnun hefur látið vinna í
samvinnu við launadeild fjármála-
ráðuneytisins. Bæklingur þessi, sem
ber nafnið „Hugleiðingar um stefnu
ríkisins í starfsmarmamálum“, fjall-
ar unt ýmsa þætti í starfsmannahaldi
hins opinbera og má þar nefna
ráðningu, kynningu starfsmanna,
mat á frammistöðu og endurmennt-
un starfsmanna.
I kynningu sinni sagði Magnús
Pétursson hagsýslustjóri að þessi
útgáfa væri liður í að hvetja stjórn-
völd til að móta starfsmannastefnu í
samvinnu við forstöðumenn stofn-
ana og samtök opinberra stofnana.
Bæklinginn má fá hjá launadcild
Fjármálaráðunéytisins og Fjárlaga-
og hagsýslustofnun. Hins vegar má
fá frekari upplýsingar um námskeið-
in hjá cndurmcnntunarstjóra Há-
skóla Islands.
ÞÆÓ
Samnorrænt verkefni:
Flotábreiður leysa
tæringarvandamál
- í miðlunargeymum hitaveitna.
Samband íslenskra hitaveitna hef-
ur s.l. tvö ár tekið þátt í samnorrænu
rannsóknarverkefni um málmtær-
ingu í hitaveitum. íslenski hluti verk-
efnisins var að gera athugun á flot-
ábreiðum í miðlunargeymum til þess
að hindra innstrey'mi súrefnis í heita
vatnið. Þessar flotábreiður fljóta á
vatnsborði geyntanna. Vinna hér-
lendis hefur að mestú farið fram hjá
Hitavcitu Suðurnesja í Svartsengi.
Niðurstöður verkeínisins sýna að
unnt er að koma nær alveg f veg fyrir
að heitt vatn taki í sig súrefni úr
miölunargeymum með notkun flot-
fleka úr ryðfríum stálplötum scnt
fleytt er á flotgrind úr svörtu stáli. Ef
vatnshitastig er lágt eða um og undir
70 gráðum á Celsius má þó nota
plasthúðaðan áldúk í stað ryðfrýja
stálsins. Með þessu móti cr unnt að
lækka súrefnismagn heita vatnsins
úr um það bil 200 míkrógrömmum á
lítra niður í 0-10 míkrógrömm.
Tæringarprófanir sýna, að hita-
veita Dalvíkur hefur þegar leyst
tæringarvandamál sín vegna tilkomu
þessa verkefnis en hlilti vinnunnar
fór einmitt fram þar. Hitaveita
Suðurnesja cr á leiðinni að leysa slík
vandamál hjá sér.
ABS
Naustið tekið til
gjaidþrotaskipta
- áætlaöar skuldir eru yfir 20 milljónir
Veitingastaðurinn Naustið hf. á sinni. Bústjóri mun fara yfir þær
Vcsturgötu hefur verið tekið til kröfur sem berast skiptaráðanda
gjaldþrotaskipta. Jafnframt hefur og meta hverjar þeirra verða tekn-
Brynjólfur Kjartansson hæstarétt- ar gildar.
arlögmaður verið ráðinn bústjóri Beiðni kom frá tollstjóranum í
þrotabúsins til bráðabirgða. Hann Reykjavík 21. október um að
kannar nú eignir búsins og athugar Naustið yrði tekið til gjaldþrota-
hvernig hægt er að koma þeim f skipta en þá hafði grciðslustöðvun
verð svo ekki er vitað nákvæmlcga fyrirtækisins runnið út fyrir nokkr-
um eignir búsins sem stendur. um dögum. Sótt hafði verið unt
Talið er að skuldir þrotabúsins framlenginu greiðslustöðvunar en
séu á milli 20-25 milljónir, en Skiptaréttur hafnaði henni. Stuttu
frestur til að skila kröfurn inn til síðar lét tollstjóri innsigla starfsað-
þrotabúsins eru tveir mánuðir frá stöðu fyrirtækisins vegna sölu-
því að auglýsing um innköllun skattsskuldaogbaðumgjaldþrota-
birtist í Lögbirtingarblaðinu fyrra skipti í framhaldi af því. ABS
J0N SIGURDSS0N
í FYRSTA SÆTIÐ
Jón Sigurðsson, forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar hefur ákveðið
að gefa kost á sér í fyrsta sætið í
forvali Alþýðuflokksins f Reykja-
vík. Jóhanna Sigurðardóttir mun
gefa kost á sér í annað sætið og Jón
Baldvin formaður flokksins í það
þriðja. Björgvin Guðmundsson og
Lára V. Júlíusdóttir hafa hins veg-
ar bæði gefið kost á sér í fjórða
sætið.
Jón Sigurðsson sagði í samtali
við Tímann í gær að hann hefði
ákveðið að gefa kost á sér nú þegar
ljóst væri hverjar leikreglur próf-
kjörsins yrðu. Komist hann í fram-
boð til næstu kosninga mun hann
óska eftir árs leyfi frá störfum á
Þjóðhagsstofnun, en þó sinna
áfram langtímaverkefnum sem
hann hefur tekið að sér, ss. fram-
tíðarkönnum sem nú er verið að
vinna fyrir forsætisráðherra.
Blaöamannafélagið:
Tilræði við
Frjálsa fjölmiðiun
Á stjórnarfundi Blaðamannafé-
lags íslands var samþykkt svolátandi
ályktun:
Stjórn Blaðamannafélags íslands
lýsir furðu sinni á þeim ummælum
Matthíasar Bjarnasonar viðskipta-
ráðherra á Alþingi 12. nóvember
1986 að hann myndi styðja setningu
laga er skylduðu blaða- og frétta-
menn til að brjóta trúnað við heim-
ildarmenn sína. Það er tilræöi við
frjálsa fjölmiðlun að setja í lög
skyldu fjölmiðlafólks til að gcfa upp
heimildir sínar l'yrir fréttum. Mörg
mál, sem hafa verið til umræðu upp
á síðkastið, svo sem mál Hafskips,
Landsvirkjun:
Landsvirkjun telur sig þurfa að
hækka gjaldskrá sína um 10-16,5%.
um komandi áramót eftir því hvaða
markmið eru lögð til grundvallar við
rekstrarafkomu og greiðsluafkomu
Landsvirkjunar. Þá er gengið út frá
5% verðbólgu á næsta ári eins og
ríkisstjórnin stefnir að.
Þetta kom fram í máli Halldórs
Jónatanssonar forstjóra Lands-
virkjunar, á vetrarfundi Sambands
íslenskra hitaveitna og rafveitna í
gær.
Halldór segir að verðbólgan hafi
verið áætluð 7-9% þegar gengið var
til kjarasamninga í mars s.l. og í
tengslum við þá hafi gjaldskrá
Landsvirkjunar verið lækkuð um
10%.
Nú sé hins vegar nokkuð ljóst að
verðbólgan verði orðin um 14% um
áramót og því sé raunlækkun gjald-
skrárinnar orðin miklu meiri en
hæfilegt geti talist. Hæfileg raungild-
islækkun milli ára hafi verið talin á
bilinu 3% að jafnaði á ári frá og með
líðandi ári, en hún verði þess í stað
urn 10% á þessu ári. Telur Lands-
.virkjun því óhjákvæmilegt að taka
mið af þessu við ákvörðun gjaldskrár
um áramót.
Þessi viðhorf Landsvirkjunar hafa
verið kynnt Þjóðhagsstofnun og ósk-
að eftir umsögn hennar lögum
samkvæmt. Eftir umsögn Þjóðhags-
stofnunar mun stjórn Landsvirkjun-
ar taka ákvörðun um til hvaða
gjaldskrárbreytinga kemur um ára-
mót.
Áhrif af hækkunum Landsvir-
kjunar á dreifiveiturnar gætir að
helmingi eða þar um bil vegna þess
að urn helmingur af útlögðum kostn-
aði dreifiveitnanna eru orkukaup frá
Landsvirkjun. Þar ofan á leggst
síðan hækkun vegna annars kostnað-
ar hjá dreifiveitunum.
ABS
Útvegsbankans og Hjálparstofnunar
kirkjunnar, ættu að vera nægur rök-
stuðningur fyrir nauðsyn frjálsrar og.
gagnrýninnar fjölmiðlunar á íslandi.
Boðar 10-16% gjaldhækkun
Billjardstofumálið:
Tveggja
mánaða
fangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt mann-
inn sem úrskurðaður hefur verið
í um hálfs mánaðar gæsluvarð-
hald vcgna kynferðisafbrota á
billjardstofu í Garðabæ, í tveggja
niánaða fangclsi og sviptingu
ökuleyfis ævilangt fyrir ítrekuð
umferðarlagabrot. Með dóini sín-
um staðfcsti Hæstiréltur -sakar-
mat héraðsdóms frá því í maí s.l.
ABS