Tíminn - 15.11.1986, Side 4
4 Tíminn
Laugardagur 15. nóvember 1986
Það verður að hafa fyrir hinum glæsilega ungpíu-
vexti, þegar komið er á sextugsaldurinn !
Morgunverðurinn er aðallega ávextir
E
IN af aðalpersónunum í nýjum Dynasty-
þáttum heitir Dominique Deveraux og er leikin af
blökkukonunni Diahann Carroll. Hún segist vera
hreykin af því að vera fyrsta blökkukonan sem
stjórnaði sínum eigin sjónvarpsþáttum, en það var
á sjöunda áratugnum.
Diahann hafði mikinn áhuga á að komast inn í
viðurkenndan sjónvarpsþátt, - því þar eru
peningarnari . Hún leitaði til ýmissa
framkvæmdastjóra framhaldsþátta, en þeir sögðu
af og frá að blökkukona gæti fengið stórt hlutverk
í vinsælum sjónvarpsþætti.
„Það var fyrst þcgar ég kom og spurði Aaron
Spelling, framkvæmdastjóra Dynasty, að mér var
vel tekið og Spelling leist vel á að fá eina
hörundsdökka á móti hinni ljósu fegurðardís
Lindu Evans“, sagði Diahann nýlega í viðtali.
Diahann Carroll er orðin 50 ára en hún hefur
húð sem tvítug stúlka og vöxt ungrar fyrirsætu.
„En þið skuluð ekki halda að slíkt útlit náist
fyrirhafnarlaust", segir leikkonan . „Það er
hörkuvinna að halda sér fallegri. “ Og það má með
sanni segja að hún vinnur kappsamlega að
fegurðinni. Hún fer á fætur kl. 04:30 á morgnana
og syndir í klukkutíma í einkasundlaug sinni.
Morgunverðurinn er aðallega ávextir og
ávaxtasafi, og Diahann hefur trampolin-
hoppbretti bæði heima hjá sér og á upptökustað,
svo hún geti hoppað og hoppað ef hún hefur stund
aflögu. „Svo er það eilífur megrunarkúr, og ef ég
læt það eftir mér að borða svolítið vel og fá vín með
þá verð ég að muna eftir því næsta dag og vera þá
ströng við mig“.
Diahann segist láta vinnuna ganga fyrir öllu og
lítið hugsa um skemmtanalífið. Hún hefur verið
þrisvar sinnum í hjónabandi og eignast eina dóttur,
sem nú er komin yfir tvítugt. „Ef ég ætti að lifa
lífinu upp á nýtt, þá myndi ég hugsa meira um
sjálfa mig og leikferil minn, en það gerði ég ekki
á yngri árum, þegar einkalífið tók svo hart á mig
að lá við að ég missti heilsuna. Þetta tímabil í ævi
minni er fínt og ég ætla að njóta þess og reyna að
halda mér „í fínu formi“, sagði leikkonan í lok
viðtalsins.
SVEITARSTJORNARMAL
Aðalfundur
Samtaka sveitar-
félaga á höfuð-
borgarsvæðinu
Aðalfundur Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu var hald-
inn að Garðaholti í Garðabæ sl.
laugardag 8. nóvember.
Markmið samtakanna er:
Að vinna að sameiginlegum hags-
munamálum sveitarfélaganna.
Að efla samstarf sveitarfélaganna
og auka kynningu sveitarstjórnar-
manna.
Að vinna að gerð svæðisskipulags
og þróun byggðarinnar á höfuðborg-
arsvæðinu í nánu samstarfi við aðild-
arsveitarfélögin.
Á aðalfundi S.S.H. eiga sæti allir
kjörnir sveitarstjórnarmenn í þeim
níu sveitarfélögum, sem höfuðborg-
arsvæðið skiptist í, þ.e. Hafnarfjörð-
ur, Garðabær, Bessastaðahreppur,
Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnar-
nes, Mosfellshreppur, Kjalarnes-
hreppur og Kjósarhreppur. Einnig
eru boðnir á fundinn alþingismenn
Reykjavíkur- og Reykjaneskjör-
dæmis, fulltrúar annarra landshluta-
samtaka og fleiri gestir.
Svæðaskipulag
höfuðborgarsvæðisins
Á fundinum var lögð fram greinar-
gerð um svæðisskipulag höfuðborg-
arsvæðisins, en það eru drög að
sameiginlegri stefnumótun þessara
sveitarfélaga í þeim málaflokkum,
sem skipulagið tekur til. í meginatr-
iðum er hér horft 20 ár fram á
veginn, en einnig er reynt að gera
grein fyrir hugsanlegri þróun til
lengri tíma. Ljóst er að á þessu
tímabili munu að öllum líkindum
eiga sér stað mjög miklar breytingar
á höfuðborgarsvæðinu á mörgum
sviðum. Líklegt er að mjög dragi úr
mannfjölgun á höfuðborgarsvæðinu
á þessu tímabili, öldruðum fjölgi
mjög verulega, en hlutfall fólks á
atvinnualdri minnka.
Á næstu áratugum mun þéttbýli á
höfuðborgarsvæðinu einnig vaxa
saman að miklu leyti í eina heild, frá
Mosfellssveit suður til Hafnarfjarð-
ar. Af þeim sökum er í vaxandi mæli
nauðsynlegt að hafa náið samráð um
skipulag og framkvæmdir á þessu
svæði, ef vel á að fara, en með
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis-
ins er lagður grundvöllur að slíkri
samræmingu.
Á aðalfundinum var ákveðið að
vísa svæðisskipulagsgreininni til
hlutaðeigandi sveitarfélaga til með-
ferðar.
Almenningssamgöngur
Á fundinum var einnig lögð fram
og rædd áfangaskýrsla um almenn-
ingssamgöngur á höfuðborgarsvæð-
inu, sem nýlega hefur verið unnin á
vegum Samgönguráðuneytisins. í
ræðu Sveins Björnssonar, forstjóra
S.V.R., sem var formaður þeirrar
nefndar sem skýrsluna vann, kom
m.a. fram að tekjur ríkissjóðs af
almenningssamgöngum á höfuð-
borgarsvæðinu hefðu numið röskum
30 milljónum króna á sl. ári (fyrir
utan aðflutningsgjöld), en að kostn-
aður 4 manna fjölskyldu við sam-
göngur á þessu svæði næmi nú víða
20.000 krónum á mánuði.
Sameiginlegt
breiðbandskerfi
Einnig var á fundinum m.a. rætt
um sameiginlegt breiðbandskerfi á
höfuðborgarsvæðinu, en þar hafði
Ólafur Tómasson, póst- og síma-
málastjóri, framsögu, og frumvarp
um nýja tekjustofna sveitarfélaga
(málshefjandi Magnús Guðjónsson,
framkv.stj. Sambands ísl. sveitarfé-
laga).
Formaður samtakanna nú, er
Magnús Sigsteinsson Mosfells-
hreppi.
Dálkur um sveitarstjórnarmál
mun birtast hér á síðunni af og til í
vetur. Efni frá sveitarfélögunum er
vel þegið. Sendist til ritstjórnar
Tímans, Síðumúla 15, 108 Reykja-
vík.