Tíminn - 15.11.1986, Síða 5
Laugardagur 15. nóvember 1986
Tíminn 5
Þingsályktunartillaga:
Betri nýtingu á sjávarfangi
er vilji Guðna Agústssonar o.fl.
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir sérstökum
ráðstöfunum til að efla fullnýtingu
sjávarafla, nt.a. með því að auðvelda
aðgang fiskiðnaðarins að áhættufé".
Þannig hljóðar þingsályktunartil-
laga, sem Guðni Agústsson (F.Su.)
flytur ásamt flciri þingmönnum
Framsóknarflokksins.
í ýtarlegri greinargerð segir að
það sé einkenni á íslenskum fiskiðn-
aði að hann nýtir eingöngu að litlu
leyti sjávaraflann og að því lcyti
standa Islendingar sig verr en ná-
grannaþjóðirnar.
Kvótakerfið hafi leitt til þess að
nú skipti gæði meira máli en magn
fyrir afkomu fiskveiðiflotans. Að-
eins tæplega 40% af þorskafla ís-
lendinga verði að verðmætri útflutn-
ingsvöru en annað fari í bræðslu eða
sé beinlínis hent.
I greinargerð nefna Guðni og félag-
ar fleiri dænti um nýtingu sjávarafla
þar sem betur má gera:
„Skuttogarar: Fimmtungur af afla
skuttogara fer útbyrðis sem slóg.
Nýta má allt þctta slóg í meltu með
litlunt tilkostnaði. Unt 5% af þunga
þorsks og ufsa er lifur, sent nýta ntá
til niðursuðu og lýsisgerðar, en nægir
markaðir eru fyrir þær afurðir.
Frystitogarar: Unt 60% af afla
frystitogara ier útbyrðis í vinnslunni.
Þetta magn má nýta á sama hátt og
í öðrum togurum cn auk þess kcmur
vinnsla á marningi, kinnum, gellum
og sundurgrcindum innyflum o.fl. til
greina.
Rækjuvinnsla: Einungis fjórðung-
ur rækju nýtist við núverandi
vinnslu. Um 50% af rækjuaflanum
má nýta í rækjuskcljarmjöl, fram-
leiðslu á krafti til gervikrabba-
vinnslu, súpugerðar o.fl. Svipað rná
segja unt aðra skelíiskvinnslu.
Fiskimjölsvinnsla: Svo til allt fiski-
mjöl sem framleitt er á íslandi er í
lágum verðflokki. Ef einungis 25%
af mjöli sem framleitt er í landinu
væri selt sem gæðamjöl væri um
nokkur hundruð milljón króna verð-
mætaaukningu að ræða.
Þá er bent á nokkra framleiðslu-
möguleika sem líklcga vaxtarbródda
í þessu tilliti:
Gæludýrafóður: Þar er um að
ræða stóran markað með góðu verði.
í slíka framleiðslu má nota meltu,
fiskimjöl, rækju- og krabbaúrgang.
Fiskeldisfóður: Gildir sama og
fyrir gæludýrafóður.
Súrími: Vaxandi markaður er fyrir
slíka framleiðslu og til hennar væri
hugsanlegt að nýta iðnaðarfisk eins
Algengustu heildarlaun kennara í BK:
Um 59.000 hjá körlum
og 49.000 hjá konum
- frá næstu mánaöamótum
Laun kennara í lang algengasta
launaflokki BK -135 -ættu að verða
í kringum 41 þús. krónur á mánuði
fyrir dagvinnuna nú frá næstu mán-
aðamótum. Með álíka yfirvinnu og
s.l. vetur ættu heildarlaun karlkyns
kennara í þeim launaflokki að verða
rúmlega 59 þús. kr. að meðaltali, en
heildarlaun kvennanna í hópnum að
verða í kringum 49.500 kr. að meðal-
tali. Heildarlaun um þriðjungs af
karl-kennurunum verða svo væntan-
lega frá 10-15 þús. krónum hærri en
að framan greinir, eða um 70-85 þús.
kr. á mánuði. Flestar konurnar utan
algengasta launaflokksins eru hins
vegar með mun lægri dag- og heildar-
laun en að framan greinir. Hér er átt
við laun á heilt stöðugildi.
Samkvæmt launagreiningu um
2.700 stöðugilda kennara í BK (sem
áður voru í Kennarasambandi
íslands) mánuðina mars-maí s.l. vor,
sem fjármálaráðherra kynnti í svari
við fyrirspurn á Alþingi nýlega, kom
fram að rúmlega helmingur karlanna
og um 3 af hverjum 4 konum voru í
launaflokki 135. Dagvinnulaun (fast
mánaðarkaup) þessa hóps voru þá
um 36.500 kr. á mánuði að meðal-
tali. Heildarlaun karlanna - sem
voru með rúmlega 43% yfirvinnu -
fóru þá í tæp 53 þús. í þessum
launaflokki, en kvennanna - sem
aðeins voru með 21% yfirvinnu -
voru í kringum 44 þús. að meðaltali.
Hér er eingöngu átt við 135. launa-
flokk. Laun höfðu síðan hækkað um
6,55% þann 1. september og eiga að
hækka um a.m.k. 5,5% nú þann 1.
desember.
Konur 60% kennaranna
Þau 2.700 stöðugildi sem launa-
greiningin náði til alls í BK skiptust
þannig að karlar fylltu 40% þeirra
en konur um 60%. Af körlunum var
síðan ríflega þriðjungur í hærri
launaflokki en 135 og flestir þeirra
jafnframt með meiri yfirvinnu sem
skilaði þeim upp í 15 þús. króna
hærri dagvinnulaunum en að framan
greinir og heildarlaunum sem samsvara
mundu á bilinu 70-87 þús. krónum
frá byrjun jólamánaðarins. Meiri-
hluti þess fjórðungs kvennanna sem
ekki voru í launafl. 135 var hins
vegar í lægri flokki - flestar í 132 -
sem með sömu viðmiðun skilar vænt-
anlega um 33 þús. króna dagvinnu-
launum og um 40 þús. króna heildar-
launum að meðaltali á fullt stöðu-
gildi frá næstu mánaðamótum.
Um 100% launamunur
á kennslustund
Þótt rætt sé um meðallaun í
launafl. 135 verður að taka tillit til
þess að verulegur munur er á milli
þrepa innan hvers flokks, sem ráðast
af starfsaldri. Dagvinnulaun
kennara sem nú eru í launafl. 135
gætu þannig frá næstu mánaðamótum
spannað allt frá um 33 þús. kr. í 1.
þrepi upp í tæplega 45 þús. krónur í
8. þrepi (eftir 15 ára starfsaldur) en
meðallaunin í flokknum ættu að
verða um 41 þús. sem fyrr segir. En
auk þess sem launin hækka verulega
með auknum starfsaldri getur
kennsluskyldan minnkað úr 30 niður
í 20 kennslustundir á viku hjá grunn-
skólakennurum. (Úr 26 niður í 17 í
framhaldsskólum). Laun fyrir hverja
kennslustund geta þannig orðið um
100% hærri hjá þeim gömlu og
reyndu í stéttinni heldur en hjá
nýgræðingunum, sem þó má ætla að
þurfi líka meiri tíma til undirbún-
ings.
Yfir tvöfalt meiri
yfirvinna hjá körlunum
Athyglisvert er hve yfirvinna
kennara skiptist misjafnlega milli
kynjanna, eða um 49% hjá körlun-
um samanborið við um 22% hjá
konunum að meðaltali yfir alla þá
sem fylla þessi 2.700 stöðugildi. Það
ásamt mismunandi flokkaröðun,
eins og að framan greinir veldur
miklum mun á heildarlaunum milli
kynja.
Meðal dagvinnulaun allra karl-
kennaranna í vor voru ríflega 38
þús. kr. og heildarlaunin losuðu um
57 þús. að meðaltali. Frá næstu
mánaðamótum ætti það að samsvara
rúmlega 43 þús. króna dagvinnu-
launum og ríflega 64 þús. króna
heildarlaunum.
Dagvinnulaun kvennanna voru að
meðaltali tæplega 36 þús. krónur á
vormánuðum og heildarlaunin tæp-
lega 44 þús. Það ætti að samsvara
rúmlega40þús. kr. dagvinnulaunum
og rúmlega 49 þús. króna heildar-
launum, frá næstu mánaðamótum
að meðaltali. Munurinn á heildar-
laununum verður því um 15 þús.
milli karlanna og kvennanna að
meðaltali.
Samanburðurinn við hina
Til samanburðar má geta þess að
- miðað við sama yfirvinnuhlutfall
og í vor - ættu heildarlaun annarra
starfshópa hjá ríkinu frá næstu mán-
aðamótum að vera að meðaltali:
Hjá starfsmönnum Stjórnarráðsins;
um 62 þús. hjá körlunum og 42 þús.
hjá konunum - hjá BSRB; um 62
þús. hjá körlunum en 46 þús. hjá
konunum - í BHMR; um 73 þús. hjá
körlunum og 59 þús. hjá konunum
og hjá læknum fyrir störf þeirra á
sjúkrahúsunum um; 125 þús. hjá
körlunum en 107 hjá starfssystrum
þeirra. MismUnurinn felst að mestu
í minni yfirvinnu hjá konunum en
einnig í að fleiri karlar eru í hærri
launaflokkum. - HEI
Guðni Ágústsson varaþingmaður
(Tímamynd Pclur)
Reykvíkingar
Stuðningsmenn Haralds
Ólafssonar minna á prófkjör
Framsóknarflokksins semfram
fer 29. og 30. nóv.
Rétt til þátttöku hafa fé-
lagar í Framsóknarfélögunum
í Reykjavík og þeir sem rita
undir yfirlýsingu um að þeir
vilji taka þátt í prófkjöri
flokksins.
Menn geta
gengið í flokksfé-
lögin eða óskað eft-
ir að taka þátt í
prófkjörinu á skrif-
stofu Framsóknar-
flokksins Rauðar-
árstíg 18. fram á
miðvikudagskvöld
19. þ.m.
Opið alla daga
og kolmunna og loðnu.
Kraftur og bragðefni: Mikil eftir-
spurn er cftir þessari vöru. sem
sérstaklega er unnin úr skelfiski og
kröbbum, og er hún til dæmis notuð
í súpur og gervikrabba.
Ensímvinnsla: Fiskslóg cr það
hráefni sem helst er horft til ef af
lífefnaiðnaði verður hérlendis.
Af þessari upptalningu má ljóst
vera að miklir tnöguleikar eru fyrir
hendi á frekari nýtingu sjávarfangs
hérlendis. En til að yfirvinna þá
tregðu sem ríkir varðandi aðgerðir í
þá átt þarf að bcita markvissum
aðgerðum.
Guðni Ágústsson bendir m.a. á
eítirfarandi:
1) Veita fiskiðnaðinum betri aðgang
að áhættufé til fjárfestingar í þessari
úrvinnslu.
2) . Auka aðstoð við vöruþróun og
búa fyrirtækjuin aðstöðu til hennar.
3) . Stórefla markaðsleit.
4) . Hvetja íyrirtæki til að leggja
aukinn hluta veltu í tilraunir- og
þróunarverkcfni, t.d. með framlög-
um ríkisins á móti cigin fé fyrirtækja.
5) . Hvetja útgerðarfyrirtæki og sjó-
ntenn til að sinna þessum hlutum
mcð tckjuhvetjandi aðgerðum.
- Þ.í.Ú