Tíminn - 15.11.1986, Side 6
6 Tíminn
Laugardagur 15. nóvember 1986
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
BAHREIN - íraskar herþot-
ur eyöilögöu íranskan olíupall
í miöjum Persaflóa. Mannfall
varð og eldur logaöi í sjónum
umhverfis. Heimildarmenn
sögðu aö tilraunir til að bjarga
þeim 250 mönnum, sem voru
á Sassan olíuborpallinum er
árásin var gerð, gengju illa
vegna eldhafsins umhverfis
pallinn.
BAGHDAD — Yfirvöld í
irak sögöu sjö manns hafa
látist og 63 særst í eldflaugaár-
ás írana sem hitti íbúðarhverfi
í Baghdad.
N‘DJAMENA — Stjórnvöld
i Chad sögöu her sinn hafa
skotið niður líbýska herflugvél
og drepiö 200 líbýska hermenn
í bardögum í norð- austurhluta
landsins.
LUNDUNIR - Margrét
Thatcher forsætisráöherra
Bretlands hélt til Bandaríkj-
anna þar sem hún ræöir viö
Reagan Bandaríkjaforseta um
afvopnun og hryöjuverk.
TYRE, Líbanon — Maöur
lést og tveggja ára barn særö-
ist þegar liðsmenn „Suöur-LÍ-
banonhers", sem ísraelsmenn
styöja, hófu vélbyssuskothríö í
þorpi í sunnanverðu Líbanon.
OSLÓ — Stjórn Gro Harlem
Brundtland í Noregi tilkynnti
um viðskiptaþvingarnir gegn
Suöur-Afríku og Namibíu
(Suö-vestur Afríku) sem enn
auka alþjóðlegan þrýsting á
stiórn Suður-Afríku að láta af,
aóskilnaöarstefnu sinni.
LUNDÚNIR - Þrír tamilar
frá Sri Lanka létu lífið í hús-
bruna í East End hverfinu í
Lundúnum. Lögreglan sagöi
eldsprengju hafa valdið
brunanum og bætti við að kyn-
þáttahatur lægi aö baki þessari
íkveikju.
AUSTUR-BERLÍN -
Austur-Þýskaland lét í Ijós
áhuga sinn á aö taka þátt í
Ólympíuleikunum í Seoul í
Suður-Kóreu áriö 1988 þrátt
fyrir gagnrýni Sovétríkjanna og
stuöningsþjóöa þeirra á stað-
arvalið.
BRUSSEL — Samsteypu-
stjórn hægri- og miðflokka í
Belgíu virtist stefna í kreppu í
annað skiptiö á tveimur mán-
uöum út af frönskumælandi
bæjarstjóra sem neitar aö tala
flæmsku.
Reagan Bandaríkjaforseti og samskiptin viö íranstjórn:
Predikar hörku
sýnir linkind
Keuter
Stjórnmálaskýrendur sögöu í gær
að skýringar Reagans Bandaríkjaf-
orseta á leyniviðræöunum við írönsk
yfirvöld vektu upp fleiri spurningar
en svör og víst væri að bandalags-
þjóðirnar í Evrópu væru ósáttar við
Bandaríkjaforseta fyrir að prcdika
hörku en sýna linkind í samskiptum
sínum við þjóðir er styðja hryðj-
uvcrkamcnn.
„Eg er ekki ánægður", sagði Ro-
bert Byrd leiðtogi demókrata í öldu-
ngadeildinni eftir sjónvarpsræðu
forsetans í fyrrakvöld. „Ég Iteld að
fleiri spurningar hafi komið upp cn
hafi verið svarað", bætti hann við.
Víst þykir að Thatcher forsæt-
isráðherra Bretlands muni vilja ræða
þetta mál við Bandaríkjaforsetann í
viðræðum þeirra uni hclgina cn hún
er cin þeirra sem harðasta afstöðu
hefur tckið gegn hryðjuverkamönn-
um, í orði sem og á borði.
Reagan sagðist í ræðu sinni í
fyrrakvöld Itafa gcfiö lcyfi fyrirsend-
ingurn af litlu magni varnarvopna til
írans til að bæta samskiptin við
þessa þjóð þar sem Kóraninn er í
hávegum hafður. Hann neitaði hins-
vegar að þctta hcfði vcrið gcrt til að
fá lausa gísla sem Italdið var af
hópum í Líbanon sem íransstjórn
styður. Forsetinn hefur ávallt
predikað hörku í samskiptum við
hryðjuverkamenn og stuðningsaðila
þeirra og sagt stjórn sína aldrei
munu semja við slíka aöila.
Evrópskir stjórnarerindrekar
sögðu hinsvegar þá skýringu vera
afar ósannfærandi, að frclsun gísl-
anna frá Líbanon kæmi þessu máli
ekki við.
Willian Ury, prófessor í stjórn-
malafræðum við Harvardháskóla,
sagði það ckki nýtt að stjórnmálas-
amskipti er brytu í bága við yfirlýsta
stefnu færu fram bak við tjöldin.
Hann benti aftur á móti á að Reagan-
stjórnin hefði gert þau mistök að
hugsa ckki um almcnningsálitið fa’ri
svo að fréttin um samskipti þessi
spyrðist út.
Ali Khamenei forseti Iran sagði í
gær að ekki kæmi til greina að
friðnrælast við Washingtonstjórnina
ncma hún breytti um stefnu í málefn-
um Mið-Austurlanda og hætti að
styðja ísraelstjórn. Hann sagði (ran-
stjórn ekki „undir núverandi kring-
umstæðum" geta hjálpað Banda-
ríkjastjórn í sambandi við frelsun
gísla sem haldið er í Líbanon.
íranski forsetinn hvorki staðfesti
né neitaði fréttum um að stjórn sín
hefði hjálpað til við frelsun
bandarískra gísla frá Líbanon.
Costa Rica:
Hænsnadráp
í nafni
skemmtunar
San Jose - Reuter
Tvær best þekktu sjónvarpss-
tjörnurnar á Costa Rica þurfa að
mæta fyrir rétti eftir að hafa verið
sakaðar um að valda hænsni
óna uðsy n I egu m þj á n i ngu m.
Hænsnið var rifið í tætlur af
gestum í einunt þætti sjónvarps-
ins þar sem bregða átti á léttan
leik.
Þúsundir sjónvarpsátíþrfenda,
mörg af þeim börn, sáu hóp
kvenna ráðast á hænsnið og drepa
það. Takmark leiksins var að ná
í hænsnið fyrst og færa það til
dómaranna.
„Ein konan kom með höfuðið
og önnur færði okkur væng...
þetta var allt saman mjög hörmu-
legt," sagði einn hinna ákærðu
Luis „Lucho" Ramirez.
Dómsniðurstaða er væntanleg
í desember.
Bretland:
UTLÖND
Verkamannaflokkurinn
vann tvöfaldan sigur
BLAÐAMAÐUR
Liverpool - Reuter
Verkamannaflokkurinn, helsta
stjórnarandstöðuaflið í Bretlandi,
vann sigur í aukakosningum í vik-
unni í einu fátækasta kjördæmi
landsins. Úrslitin bentu einnig til að
róttækustu öflin innan l'lokksins
hefðu enn einu sinni lotið í lægra
haldi fyrir forystu hans.
Verkamannaflokkurinn hlaut
56% atkvæða í kosningunum í fyrra-
dag í Knowsleykjördæmi senr er í
útjarði Liverpoolborgar við ána
Mersey. Bandalag frjálslyndra og
jafnaðarmanna hlaut 35% atkvæða
og íhaldsflokkurinn fckk 6%.
Kallað var til aukakosninganna
Sameinuöu þjóðirnar:
Kanada verðlaunað fyrir
hjálpsemi við flóttamenn
Ottawa - Reuter
Sameinuðu þjóðirnar(SÞ) vcittu
stna æðstu viðurkenningu, er snert-
ir hjálp til flóttamanna, til Kanada
í gær og er það í fyrsta skiptið sem
heil þjóð fær þennan heiður en
ekki einhver einstaklingur.
Jeanne Sauve yfirlandsstjóri
Kanada tók við Nansen verð-
laununum og sagði þjóð sína ætla
að minnast þessa heiðurs með því
að gefa fimmtíu þúsund kanadíska
dollara, sem sanrsvarar um 1,4
milljónum íslenskra króna, til
þjálfunaráætlunar fyrir flóttakonur
frá Afríku sem SÞ standa fyrir.
Yfirmaður Flóttamannahjálpar
SÞ; Jean-Pierre Hocke, sem af-
henti verðlaunin, fór lofsamlegum
orðum um aðstoð Kanadamanna
við marga af hinum tólf milljón
flóttamönnum heimsins.
„Kanadamenn njóta endalausra
gæða þessa ntikla lands, en ekki
aðeins þeir sjálfir heldur deila þeir
því með fólki frá öðrum löndum
heimsins sem ekki hefur verið
jafnheppið," sagði Hocke.
Fyrir þremur mánuðum leyfði
Kanadastjórn 155 tamilum að vera
eftir í landinu eftir að skip hafði
koinið með þá frá Vestur-Þýska-
landi og sett þá í björgunarbáta úti
fyrir ströndum Kanada.
eftir að Robert Kilroy-Slik meðlinrur
Verkamannaflokksins sagði af sér
ábyrgðarstörfum og lýsti því yfir að
hann hcfði vcrið ofsóttur af róttæk-
um öflum innan flokksins.
Eftir að Kilroy-Slik sagði af sér
reyndu meðlimir róttæka arms
flokksins að koma sínum manni að
cn flokksforystan þvertók fyrir slíkt
og tilnefndi George Howarth sem
frambjóðanda. Howarth er yfirlýst-
ur stuðningsmaður Neil Kinnocks
formanns Verkamannaflokksins.
Áætlað er að um sex þúsund
manns, af 275 þúsund félögum
Verkamannaflokksins, flokkist und-
ir hinn svokallaða róttæka arm sent
gagnrýnt hefur Kinnock formann
fyrir hófsama stefnu og sagt hann
hafa svikið öll lögmál marxismans
vegna hennar.
Aukakosningarnar í Knowsley
gætu vel verið þær síðustu fyrir
þingkosningarnar sem stjórnmála-
skýrendur reikna með að Thatcher
muni kalla til á næsta ári.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sent birtist nýlega í blað-
inu The Guardian nýtur íhaldsflokk-
urinn nokkurs fylgis umfram Verka-
nrannaflokkinn.