Tíminn - 15.11.1986, Qupperneq 11
Laugardagur 15. nóvember 1986
llllllllllllllll:
illllllllll
Tíminn 11
staðbundinna landkosta, svo sem
áa og veiðivatna, jarðvarma, varp-
landa og útivistarsvæða, eða inn-
lendra hráefna, svo sem með loð-
dýrarækt og lax- og silungseldi. Til
þess að auka öryggi nýbúgreina svo
sem loðdýraræktar gagnvart verð-
sveiflum, verði komið á trygginga-
sjóði.
9. Að minnkandi álagi á beiti-
lönd og skipulagningu búvöru-
framleiðslunnar eftir héruðum
verði fylgt eftir með styrkingu
gróðurlendis, svo sem skipulegri
landfriðun og skógrækt í héruðum
þar sem skilyrði til hennar eru
vænleg.
10. Að mennta-, leiðbeininga-
og rannsóknastofnanir landbúnað-
arins verði efldar til þess að að-
stoða bændur við að mæta kröfum
nýrra tíma og til þess að opna nýjar
leiðir, sem orðið gætu landbúnað-
inum til styrktar.
11. Að gróðurríki landsins og
annað umhverfi eru auðlindir, sem
vaxa munu að verðmæti, ef tekst
að komast hjá þeirri mengun, er nú
ógnar matvælaframleiðslu ýmissa
nágrannaþjóða. Þessar auðlindir
þarf að umgangast með varúð og
ávaxta af fyrirhyggju með hag
komandi kynslóða í huga.
Sjávarútvegsmál
Sjávarútvegur er undirstöðuat-
verði í samræmi við markaðsað-
stæður og aðföng sjávarútvegs-
ins verði á heimsmarkaðsverði.
3. Að sparnaðar verði gætt í út-
gerð og fiskvinnslu.
4. Að reynt verði að auka sem
mest verðmæti þess afla sem á
land berst.
5. Að stöðugt sé unnið að fram-
leiðsluaukningu í útgerð og fisk-
vinnslu.
6. Að raunvextir séu hóflegir.
Fiskveiðistefnan
Stefna stjórnvalda í fiskveiði-
málum hlýtur ávallt að hafa mjög
mikil áhrif á fjárfestingu í sjávarút-
vegi og á afkomu hans og því um
leið lífsafkomu þjóðarinnar. Fjár-
festing í sjávarútvegi verður að
byggjast á langtíma stefnumörkun
í fiskveiðum og hafa núgildandi lög
um stjórnun fiskveiða reynst sjáv-
arútveginum farsæl. Því er nauð-
synlegt að fiskveiðistefna sé mótuð
til langs tíma. Stórauka þarf rann-
sóknir á nytjastofnum og afla sem
gleggstra upplýsinga um ástand
þeirra og lífríki sjávarins, þannig
að auðveldara verði að segja fyrir
um hve mikil afrakstursgeta hvers
stofns sé. Erlendar þjóðir hafa
stundað víðtækar rannsóknir á
klaki þorskhrogna og eldi smá-
seiða. Nauðsynlegt er að auka
samstarf við þá á þessu sviði og
Fulltrúar á flokksþingi framsóknannanna,
breyttra samgönguhátta. Mikil-
vægt er að laga sig að þessum
breyttu aðstæðum. Auka þarf full-
vinnslu sjávarafla og finna nýjar
leiðir til að varðveita ferskleika
afurðanna, m.a. með geislum.
Þjóðir með ósveigjanlega fram-
leiðsluhætti og þjóðfélagsgerð
standa í stað eða dragast aftur úr í
hinni hörðu samkeppni. Auka þarf
sjáflvirkni í fiskvinnslunni, þannig
að unnt sé að nýta aflann betur
með mun minna vinnuafli.
Sölu- og markaðsmál
Áherslu ber að leggja á sölu
sjávarafurða á verðmætustu
mörkuðum okkar. Jafnframt er
mikilvægt að afla nýrra. Útflutn-
ingsráð er mikilvægur vettvangur
hagsmunaaðila og hins opinbera til
að samræma og efla útflutning og
markaðsstarfsemi. Minna má á, að
ekki hefur reynst mögulegt að nýta
síldaraflann á nægilega hagkvæm-
an hátt vegna skorts á markaði. Því
þarf ávallt að vera í gangi stöðug
sókn í markaðsmálum. Aðeins
þannig fá íslendingar aukið
markaðshlutdeild sína.
Fræðsla
Ein af forsendum fyrir framför-
um í sérhverri atvinnugrein er að
menntun þess fólks sem í atvinnu-
greininni starfar sé góð. Á undan-
förnum árum hefur aðsókn að
þeim skólum sem starfa á sviði
sjávarútvegs farið minnkandi. Ein
af ástæðunum fyrir því er sú, að
skólarnir hafa lítið eða ekkert
samstarf sín á milli og einnig að
nemendur þessara skóla hafa ekki
haft greiðan aðgang í framhalds-
nám að námi loknu í þessum
skólum. Mikið hefur skort á að
skólarnir væru í tengslum við at-
vinnulífið.
Sjávarútvegsráðherra, í sam-
vinnu við menntamálaráðherra,
skipaði starfshóp til að gera tillögur
um aukna samvinnu og jafnvel
sameiningu þeirra skóla sem starfa
á sviði sjávarútvegs. Starfshópur-
inn hefur sent frá sér tillögur þar
sem gert er ráð fyrir því að skólarn-
ir, þ.e.a.s. Stýrimannaskólinn,
Vélskólinn og Fiskvinnsluskólinn
verði sameinaðir í einum sjávarút-
vegsskóla sem starfi sem hluti af
hinu almenna framhaldsskólakerfi.
Stofnað verði sérstakt fræðsluráð
sjávarútvegsins þar sem í sitja
hagsmunaaðilar úr sjávarútvegi,
fulltrúar rannsóknarstofnana og
aðrir þeir aðilar sem tengjast
fræðslumálum sjávarútvegsins á
einn eða annan hátt. Flokksþingið
telur mikilvægt að hraðað verði sem
mest sameiningu þessara skóla.
vinnuvegur íslensks þjóðfélags.
Við hann starfa um 13% af vinnu-
afli þjóðarinnar. Um það bil 18%
af þjóðarframleiðslunni myndast í
sjávarútvegi og um 75% af útflutn-
ingstekjunum eru af sjávarafurð-
um. Með markvissum aðgerðum
samfara bættum skilyrðum hefur á
síðustu árum tekist að rétta hag
sjávarútvegsins verulega. Sj ávarút-
vegurinn mun um langa framtíð
verða sú atvinnugrein sem þjóðin
byggir afkomu sína á.
í sjávarútveginum eru margir
ónýttic vaxtarmöguleikar. Með
bættri aflameðferð má auka til
muna verðmæti þess afla sem á
land berst. Þá eru umhverfis landið
ýmsir vannýttir eða jafnvel ónýttir
fiskistofnar, sem hægt væri að nýta
samfara skipulögðu átaki í mark-
aðsmálum.
íslendingar eru meðal fremstu
þjóða heims á sviði sjávarútvegs.
Þjóðin býr yfir mikilli þekkingu og
reynslu á þessu sviði. Mjög mikil-
vægt er að gera þetta hugvit þjóðar-
innar að útflutningsvöru.
Afkoma sjávarútvegsins
Forsendur þess að treysta megi
afkomu sjávarútvegsins eru:
1. Að áfram verði haldið þeirri
leið sem nú hefur verið mörkuð
við stjórn fiskveiða, því hún
hefur reynst mikilvægt skref til
aukinnar verðmætasköpunar og
sparnaðar í sjávarútvegi.
2. Áð þess sé gætt að gengisskrán-
ingin íþyngi ekki sjávarútvegin-
um og að kostnaðarhækkanir
undirbúa eldistilraunir hér á landi.
Mikilvægt er að með verndarað-
gerðum og skynsamlegri beitingu
fiskiskipastólsins verði unnt að
styrkja helstu nytjastofna, þannig
að dregið verði úr sveiflum í afla-
brögðum. í framtíðinni verður að
ríkja jafnvægi milli afrakstursgetu
flotans og fiskvinnslunnar hinsveg-
ar.
Fiskiskipastóllinn
Núverandi fiskiskipastóll getur
vel annað veiðum úr þeim fiski-
stofnum sem nú eru nýttir. Flotinn
var á sínum tíma byggður upp
miðað við spár um allt að 1,5 milli.
lesta loðnuafla og um 500 þús.
lesta þorskafla á ári. Aukin
rækjuveiði hefur komið að veru-
legu leyti á móti minnkandi veiðum
úr þessum fiskistofnum. Nauðsyn-
legt er að flotinn sé endurnýjaður
með tilliti til breyttra aðstæðna og
nútímatækni. Því ber á ný að fagna
að aðstæður hafa nú skapast til að
hefja endurnýjun flotans.
Fiskvinnsla
Mikið fé liggur bundið í fiskiðju-
verum víðsvegar um landið. Á
undanförnum árum hefur verið
lögð höfuðáhersla á uppbyggingu
hraðfrystiiðnaðar. Hann hefur ver-
ið undirstaðan í útflutningstekjum
okkar síðustu áratugina. Ekki er
þó öruggt að hefðbundnar vinnslu-
aðferðir séu þær einu sem henta
hagsmunum okkar. Framfarir eru
örar og landið í alfaraleið vegna
Ferðamál
Þjónusta við ferðamenn, inn-
lenda sem erlenda, er ört vaxandi
atvinnugrein sem náð getur til
landsins alls. Auk arðsemi hefur
uppbygging ferðaþjónustu um
landið þann kost að auka og bæta
stórlega þjónustu við íbúa lands-
byggðarinnar. Allt bendir nú til
mikillar fjölgunar erlendra ferða-
manna og batnandi vegakerfi stuðl-
ar að auknum ferðalögum íslend-
inga innanlands. Mikil uppbygging
aðstöðu til móttöku á og þjónustu
við ferðamenn fer nú fram víðsveg-
ar um landið. Líklegt er að þessi
uppbygging verði að vera enn örari
og tryggja þarf að hún nái til allra
landshluta. Þannig yrði vaxandi
fjölda ferðamanna dreift sem víð-
ast um landið og þar með hlíft
ýmsum viðkvæmum en vinsælum
stöðum við of miklum átroðningi.
Samgöngumál
Samgöngur eru forsenda fram-
reiðslu, viðskipta og mannlegra
samskipta. Þarfir fyrir öruggar og
ódýrar samgöngur fara sívaxandi.
Enn er flutningskerfið innanlands
þó vanþróað og veldur of miklum
kostnaði og víða hindra slæmar
samgöngur atvinnuþróun og' eðli-
leg félagsleg samskipti. Kröftug
framfarasókn undir forystu fram-
sóknarmanna mun tryggja hagvöxt
og vaxandi getu til framkvæmda.
Skynsamlegar framkvæmdir í sam-
göngukerfinu eru mjög arðsamar.
Því vill Framsóknarflokkurinn
nýta vaxandi framkvæmdamátt
þjóðfélagsins m.a. til að gera stór-
átak í uppbyggingu samgangna
innanlands, á landi, á sjó og í lofti,
með það að markmiði að samgöng-
ur hindri helst hvergi eðlilega sam-
skiptaþörf nútímasamfélags.
Áætlanagerð í samgöngumálum
verði samræmd. Gerð verði heild-
aráætlun um vegagerð, hafnagerð
og framkvæmdir í flugmálum, með
líkum hætti og vegaáætlun er gerð
nú. Með þeim hætti verða fram-
kvæmdir markvissari og síður er
hætta á að einn þessara þátta verði
út undan. Skipulagning fram-
kvæmda verði bætt þannig að verði
heillegri en nú er. Slík vinnubrögð
auka líkur á hagstæðum tilboðum
frá verktökum. Með þeim hætti
nýtist framkvæmdafé betur en ella.
Traustar millilandasamgöngur
verði í höndum landsmanna
sjálfra.
Flokksþingið hvetur til þátttöku
íslendinga í rannsóknum á norður-
slóðum og telur mjög mikilvægt að
fylgst verði með allri þróun í sigl-
ingum um Norður-íshaf. Trúlegt
er að skipaleið milli Atlantshafs og
Kyrrahafs um Norður-íshaf opnist
smá saman næstu áratugi fyrir
sakir öflugri ísbrjóta og hafísfærra
skipa. Önnur nútímatækni stuðlar
einnig að þcim framförum, svo
sem fjarkönnun úr gervihnöttum
og tölvuspár á sviði veður- og
haffræði. Á íslandi gæti um síðir
orðið umskipunarhöfn á þjóðleið
milli heimshafanna tveggja. Þátt-
taka íslendinga í þessari þróun
yrði okkur til hagsbóta og örvunar
á margan hátt.
Vegagerð
Áfram verði haldið þeirri hröðu
lagningu bundins slitlags, sem hófst
í samgönguráðherratíð Steingríms
Hermannssonar. Viðendurskoðun
langtímaáætlunar um vegagerð
verði miðað við að í lok áætlunar-
tímabilsins, eftir 12 ár, megi aka á
bundnu slitlagi til allra þéttbýlis-
staða og um þéttbýlustu sveitir. Til
þess að þetta verði mögulegt verði
gerð jarðgöng þar sem það er
nauðsynlegt og mögulegt. Átak
verði gert í endurbótum á sam-
göngukerfi höfuðborgarsvæðisins.
Auka þarf samstarf inan höfuð-
borgarsvæðisins um skipulag og
uppbyggingu aðalumferðaræða.
Gera þarf miklar endurbætur á
gatnakerfinu með tilliti til
umferðaröryggis.
Flugmál
Á tímum hraða og nútímatækni
gegna flugsamgöngur lykilhlut-
verki. Mikilvægt er að uppbygging
flugvalla og annars er lýtur að
þjónustu við flugsamgöngur haldist
í hendur við aðrar samgöngugrein-
ar. Allir flugvellir sem hafa áætlun-
arflug verði lagðir bundnu slitlagi
á næstu 12 árum. Öryggisbúnaður
flugþjónustunnar verði ávallt af
fullkomnasta tagi.
Hafnarmál og siglingar
Hafnarframkvæmdir þurfa að
greiða fyrir framförum í flutninga-
tækni. Gerð verði áætlun um upp-
byggingu tækjabúnaðar og aðstöðu
til vörugeymslu og vöruafgreiðslu,
þ.m.t. afgreiðslu á stórum gámum.
Slíkar endurbætur geta greitt mjög
fyrir þróun og hagræðingu í sjávar-
útvegi og fiskvinnslu. Samræmi sé
milli framkvæmda í höfnum og
annarri fjárfestingu í sjávarútvegi
og siglingum. ísland er eyland og
því eru samgöngur um landið og
við útlönd lífæð þjóðarinnar í við-
skiptum. Siglingar sem byggja á
nútímatækni og hagkvæmni ásamt
öflugri og hagkvæmri strandferða-
þjónustu eru forsenda framfara
um landið allt.
Fjarskipti
Mikilvægt er að við uppbyggingu
síma- og fjarskiptakerfis landsins
verði nýttar nýjungar, sem fram
hafa komið í hinum byltingar-
kenndu framförum fjarskipta-
tækninnar. Með tilliti til hinnar
nýju tækni er full ástæða til að
breyta gjaldskrárkerfi símans. f
fyrstu verði hvert svæðisnúmer eitt
gjaldsvæði og stðan allt landið.
Lekur
blokkin?
Er heddiö
sprungið?
Viðgerðir á öllum
heddumog blokkum.
Eigum oft skiftihedd
í ýmsar gerðir véla
og bifreiða.
Sjóðum og plönum
pústgreinar.
Viðhald og viðgerðir
á Iðnaðarvélum
Vélsmiðja
Hauks B.
Guðjónssonar
Súðarvogi 34
Sími 84110
Dráttarvélar
Sannarlega
peninganna virði.
Vélaborg
Bútækni hf.
-Sími 686655(686680
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES: ........... 93-7618
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........ 96-71489
HÚSAVÍK:....... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ... 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRent
1 1 AUKUM ÖRYGGI in II1 VETRARAKSTRII 1
■ > NOTUM ÖKUUOSIN ALLAN SÓLARHRINGINN ■ >
nOv. FEBR.
&5S