Tíminn - 15.11.1986, Page 18
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 108 REYKJAVIK S1M1 (01)681411
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum:
Toyota Corolla 1600 GT.........árgerð 1986
Opel Record Diesel ............árgerð 1985
Nissan Bluebird diesel ........árgerð 1985
Saab 900 GLE ..................árgerð 1984
MMCTredia......................árgerð 1983
Volvo 240 .....................árgerð 1982
Daihatsu Charade ..............árgerð 1982
Lada2105 ......................árgerð 1981
Isuzu Gemini ..................árgerð1981
Daihatsu Charmant .............árgerð 1980
Ford Mustang GIHA..............árgerð 1980
Citroen GSA Pallas ............árgerð 1980
Mazda 929 .....................árgerð 1978
VW Passat......................árgerð 1976
Volvo 244 .....................árgerð 1976
Kawasaki GP 1100 bifhjól ....... árgerð 1982
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 17. nóvember 1986, kl.
12-16.
Á sama tíma:
Borðeyri:
B.M.W. 315........................árgerð 1982
Neskaupstað:
Upel Ascona GL....................árgerð 1985
Rauðalæk:
Daihatsu Charmant ................árgerð 1982
Stöðvarfirði:
Yamaha XJ 600 bifhjól.............árgerð 1985
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.,
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 18. nóvember.
Andnews hitablásarar
fyrirgaseðaolíu
eru fáanlegir í fjölmörgum
stærðumoggerðum
Algengystu gerðireru nú fyrirliggjandi
Skeljungsbúðin
SÍÖumúla33
símar 81722 og 38125
LAJUSAR STÖÐUR HJA
REYKJAVIKURBORG
Laus störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Rafmagnseftirlitsstarf í innlagnadeild.
Iðnfræðingsmenntun áskilin.
Rafvirkja vantar til starfa við veitukerfið.
Upplýsingar um þessi störf gefur starfsmannastjóri
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
18 Tíminn Laugardagur 15. nóvember 1986
lllllllllillllllllllllllllH MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Guðbjörg Sæmundsdóttir
Öllum cinstaklingum, scm öðlast
líf og þroska er áskapað að hafa
áhrif í umhverfi sínu, þiggja frá og
gcfa því fólki sem þeir umgangast.
Fácinum cr lyft upp á stall og ýtt
fram í sviðsljós fræðgar og athygli.
Gcfast dæmi um það mörg og nær-
tæk nú á öld fjölmiðlanna. Langflest
crum við þó í hópi hins nafnlausa
fjölda scm iðjar sinn vinnudag í
kyrrþcy og hvcrfum að lokurn yfir
landamærin án þcss að hcraðsbrest-
ur hcyrist. Þó veröur cftir autt rúm
og ófyllt, broddur saknaðar í flciri
hjörtum cn okkur kannski grunar.
Það á vissulega við unt þá konu, sem
hcr cr ætlunin að minnast í nokkrum
ófullkomnum orðum.
Guðbjörg Sæmundsdóttir hús-
móöir, Vanabyggö 1()B hér á Akur-
eyri, lést hinn 22. októbcr síðastlið-
inn og var borin til grafar á haustdcgi
einum þeim scm fegurstirogstilltast-
ir gcrast hér við Eyjafjörð. Hér við
fjörðinn átti hún starfsdag sinn að
mcstu og fæddist hinn 9. september
I929 að Litlagerði í Höfðahverfi,
dóttir hjónanna Guðrúnar Jónsdótt-
ur frá Hóli í Höfðahverfi og Sæ-
mundar Guðmundssonar frá Lóma-
tjörn í sömu sveit.
Guðrún lifir enn í hárri elli og
hcfur þar til fyrir um það bil tveimur
árum staðið fyrir hcimili með sonum
sínum í Fagrabæ, óbuguð, þótt hún
hafi á nokkrum síðustu árum fengið
þá þraut að reyna að sjá á bak
þremur börnunt sínum á besta aldri.
Sæntundur er látinn fyrir allmörg-
um árum. Þau hjón þóttu nokkuö
svo ólík að skapferli, Guðrún ein-
stök skapstillingarkona en Sæmund-
ur örlyndur ákafamaður, glaður á
góðri stund og atorkusamur í
störfum. Ættir þeirra hjóna kann ég
ekki að rekja í einstökum atriðum
en stofnar þeirra munu cinkum hafa
staðið hér við utan- og austanverðan
Eyjafjörð, þar sem upp fóstraðist
óvenjumargt atorku- og dugnaðar-
fólk á scinni áratugum aldarinnar
sem leið og fyrstu áratugum þcssarar
aldar. Þessu fólki tókst með því að
nýta jöfnum höndum kosti lands og
sjávar og komast frá fátæktarbasli
liðinna alda til bjargálna jafnvel í
byggðum eins og Látraströnd og
Fjörðum, sem nú eru í eyði komnar
og heyra sögunni til.
Úr Fjörðum kom einmitt föður-
amma Guðbjargar, Valgerður hús-
freyja á Lómatjörn, ein hinna nafn-
kenndu Kussungsstaðasystra sem
víða cru tilnefndar í heimildum og
kynsælar mjög hafa orðið eins og
dæmi einnar þeirra, Ingu Jóhannes-
dóttur. formóður Grímseyinga allra
sannar.
Þ;iu Guðrún og Sæmundur fluttu
1938 að Fagrabæ í Höfðahverfi og
bjuggu þar upp frá því allan sinn
búskap. Ekki mun Fagribær Itafa
talist til höfuðbóla því að ekki reikn-
ast það landkostir þótt útsýni sé meö
afbrigðum fagurt þaðan að líta um
Eyjafjörð. Þeim hjónum var Itcldur
ekki boðið þar til hóglífis, því að þar
ólu þau upp 10 börn. Okkur scnt nú
búum í húsakynnunt þar scm hver
einstaklingur hefur tugi fermetra til
umráða virðist nú fyrirmunað að
skilja. hvernig slíkar stórfjölskyldur
rúmuðust í þröngum húsakynnum,
jafnvel þótt þær aðstæður væru
næsta algcngastar á uppvaxtarárum
okkar.
Ekki gct ég stillt mig um að
minnast þess að 8 þcirra systkina frá
Fagrabæ voru nemendur mínir á
kennaraferli mínum við Héraðsskól-
ann að Laugum. Engin cin fjölskylda
lagði fram eins stóran skerl til ncm-
cndahópsins starfsár ntín viö
skólann.
Tvær elstu systurnar, Guðbjörg
og Valgerður, nú húsfreyja að
Tumastöðum í Fljótshlíð, hölðu lok-
ið nánti sínu rétt áður en ég kom til
starfa en hin systkinin eru: Guð-
mundur, tæknifræðingur í Reykja-
vík, Jón, bóndi í Fagrabæ. Hallur.
einnig bóndi í Fagrabæ, nú látinn,
Anna, húsmóðir, Akureyri, látin
fyrir nokkrum árum, Sigrún, áður
íþróttakennari í Reykjavík en nú
flutt í Fagrabæ með eiginmanni og
frá Fagrabæ
tekin þar við búsforráðum, Sveinn,
viðskiptafræðingur í Reykjavík,
Tómas, rafvirkjamcistari, Akureyri
og yngstur Baldur, búsettur í
Svíþjóð.
Guðbjörg var elst sinna systkina
og lætur að líkum að eftir því sem
hún óx úr grasi og systkinum fjölgaði
hafi hún þurft að taka til höndum við
umönnun þeirra og aðra búsýslu. Lá
hún ekki á liði sínu í því efni og
vandist á að taka til hendi og taka
ákvarðanir unt þau vandamál sem
að höndum bar. Eðliskosti sína,
hispursleysi, bjartsýni og ötulleika
að hverju vcrki sem gengiö var,
hafði hún erft frá forfcðrum cn þeir
þróuðust og stældust við þessar að-
stæður.
Svo sem áður er frant komið hélt
hún til náms í Laugaskóla, sem á
þcim árum var einn helsti kostur
þingeyskra og eyfirskra unglinga unt
framhaldsmenntun að loknu skyldu-
námi. Dvöl hennar í skólanum var
veturna 1946-47 og 1947-48. Vetur-
inn 1951-52 stundaði hún svo nám
við Húsmæðraskólann að Varma-
landi í Borgarfiröi. Næstu sumur
vann hún að skógrækt í Vaglaskógi
og að Tumastöðum í Fljótshlíð. Sá
starfi mun hafa verið henni hugleik-
inn vegna áhuga á ræktun sem bæði
var eðlislægur og áunninn við upp-
vöxt og athafnir á bernskuheimili.
1958 breytti hún þó til og fluttist
búfcrlum til Akureyrar og starfaði í
Prentverki Odds Björnssonar næstu
árin eða þar til hún giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Sigtryggi Davíðs-
syni, rennismið frá Ytri-Brckkum á
Langanesi. Þau gcngu í hjónaband
10. október 1964 og tæpu ári síðar
eða í ágúst 1965 fluttu þau inn í
raðhúsíbúð að Vanabyggð 10B hér
á Akureyri. Þar hefur heimili þeirra
staðið síðan. Þar hafa alist upp börn
þeirra þrjú, Sigrún, nú viö hjúkrun-
arnám í Reykjavík, Sæmundur í
vélvirkjanámi við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri og yngstur Sveinn,
einnig í námi við sama skóla. Öll
hafa þau mikið misst við fráfall
húsfreyju og móður, sem helgaði
hcimilinu starfskrafta sína nær
óskipta um tveggja áratuga skeið.
Mestur er þó missirinn Svcini, sem
enn cr á þeim aldri að forsjá og
umhyggja er næsta nauðsynleg og
æskileit.
Guðbjörg og eiginkona mín voru
skólasystur í Laugaskóla og tókst þá
með þeim góður kunningsskapur.
Þeim tengslum varö ekki við haldiö
eftir að hvor um sig hélt til síns
hcima að námi loknu. Svo liðu fram
ár, réttur aldarfjórðungur að við hjón-
in fluttum búferlum til Akurcyrar
haustið 1973. Þá vildi svo til að
búseta okkar varð skammt frá hcim-
ili þeirra Guðbjargar og Sigtryggs.
Leið ckki heldur á löngu að þær
hittust skólasysturnar og endurnýj-
uðu gömul kynni. Tókust þá þegar
góð samskipti milli heimilanna sem
urðu enn þá nánari þegar við fluttum
okkur um set svo að einungis var yfir
götu að fara milli húsanna. Bctri
nágranna var vart hægt að hugsa sér.
Aðstoð þeirra stóð ævinlega til boða
ef á þurfti aö halda og Guðbjörg
flutti með sér blæ glaðværðar og
hressilegs viðmóts þegar hún skrapp
yfir götuna og þáði kaffisopa við
eldhúsborðið.
Á fyrstu mánuðunt þessa árs varð
Ijóst að hún bjó við heilsubrest sem
leiða mundi til aðgerðar á sjúkra-
húsi. í febrúarmánuði sl. gekk hún
svo undir skurðaðgerð sem varð
stórfelldari en okkur sem til þekkt-
um hafði grunað. Eftir því sem vikur
og mánuðir liðu varð Ijóst að hún
ntyndi ekki endurheimta heilsu sína
og þótt ekki bærust um það bcinar
fregnir eða umsagnir varð sá grunur
áleitnari að hún mundi hcyja það
stríð, sem aðeins gæti dregið til
einna endaloka, cinungis spurning
hve langa tíma það tæki.
Fyrir ekki kom þótt hún færi til
Reykjavíkur að lcita sér lækninga
þar sem bestri tækni var unnt að
beita. Leiðin lá aftur heim og hún
hafði í sumar fótavist að nokkru og
bar sig vel þegar af henni bráði og
hún gat komið yfir götuna í heim-
sókn.
Með haustdögum varð hún að
fara aftur á sjúkrahús hér á Akureyri
og þaðan átti hún ckki afturkvæmt.
Dró raunar fyrr til úrslitanna en við,
sem til þekktum. höfðum ætlað.
Að lokum þessara fátæklegu orða
cr aðeins eftir að þakka hinni látnu
fyrir hjálpsemi. önnur góð samskipti
og ánægjustundir liðinna ára. Aldr-
aðri móður er vottuð innilcg samúð
svo og börnum og eiginmanni, sent
borið hefur missi sinn af því þreki og
þeirri skapstillingu sem honum er í
ríkum mæli gefin.
Eftirlifandi systkinum skal hcldur
ekki gleymt. Öll eigum við saman
minningu um konu sem á vegferð
sinni veitti samferðamönnum gleði
og uppörvun og létti þeim sporin, ef
þungt gcrðist fvrir fæti.
Guömundur Gunnarssun
Laus staða
Staöa bókbindara á bókbandsstofu Landsbóka-
safns íslands er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist Menntamálaráöuneytinu fyrir
12. desember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
12. nóvember 1986.
Verðbréfamarkaður
Höfum kaupendur að hverskyns kröfum gegn
Óskari Mikaelsyni og Huginn-Fasteignamiölun,
Pósthússtræti 17, Reykjavík til sameiginlegra
innheimtuaðgeröa.
Hýbýli s.f. - Eignaumsýsla
Freyjugötu 27. Box 321 - 121 Reykjavík
Sími 17453.