Tíminn - 15.11.1986, Side 19
Laugardagur 15. nóvember 1986
MINNING
Tíminn 19
100 ára minning
Björn Björnsson
teiknikennari
Heiðan haustdag árið 1935 eru
nokkrir unglingar á leið niður
Frakkastíginn. Þeir hópast saman
rétt við skólann sinn, Ingimarsskól-
ann svokaliaðan, sem er til húsa í
Franska spítalanum niður undir sjó,
þar sem Tónmenntaskóli Reykjavík-
ur er nú.
Þarna má þekkja ýmsa efnilega
myndlistarmenn s.s. Björn Th.
Björnsson, Hörð Ágústsson, Kjart-
an Guðjónsson og Kristin Guð-
steinsson. Kvenfólkið er ekki eins
auðþekkt, það var ekki móðins þá,
að konur væru mjög framgjarnar.
Við sniglumst þarna. í fermingar
kápunum okkar í humátt á eftir
þessunt strákum, sem við vissum
fyrir víst, að yrðu frægir menn.
„Hálf tylft úr bolsaskólanum,"
hrópa krakkarnir í götunni á eftir
okkur. Það hripar af okkur eins og
vatn af gæs. Okkur finnst það bara
óskaplega fyndið.
Ingimarsskólinn hlaut auðvitað
nafngiftina af skólastjóranum, séra
Ingimar Jónssyni, sem stýrði skólan-
um af skynsemi og skörungsskap.
Það sást best á því kennaraliði, sem
hann valdi með sér. Ég nefni, sem
dæmi Sveinbjörn Sigurjónsson mag-
ister, sem kenndi alla þætti íslensks
máls, hugljúft prúðmenni, Árna
Guðnason, enskukennara, ógleym-
anlegan öllum sínum nemendum (ég
held, að það hafi ekki verið hægt að
komast hjá því, að læra hjá Árna)
Einar Magg var þar enn á ferð - ekki
seinn í sporum - hann er alltaf
einsog sverð yfir höfðum vorum,
ortum við um hann. Sjálfur kenndi
sr. Ingimar stærðfræði, sögu og fé-
lagsfræði, strangur og nákvæmur.
Allt voru þetta viðurkenndir af-
bragðskennarar. Loks kem ég svo
að þeim, sem þetta greinarkorn mitt
átti að fjalla um, Birni heitnum
Björnssyni, teiknikennara.
Björn fæddist á ísafirði 15. nóv.
1886, sonur hjónanna Sigríðar Þor-
láksdóttur frá Fagranesi á Reykja-
strönd og Björns Árnasonar gull-
smiðs frá Þingvöllum. Hann ólst upp
á ísafirði, gekk í Latínuskólann í
Reykjavík, en sneri sér svo að
listmálun. Lærði að teikna og mála í
Berlín. Er heim kom frá námi,
stundaði hann gullsmíðar með föður
sínum og Baldvini bróður sínum um
skeið. Gullsmíðastofu rak hann með
Finni Jónssyni og Kjartani Ás-
mundssyni.
En dráttlistin átti hug hans. Hann
hætti gullsmíðinni og sneri sér að
myndskreytingu bóka (Vísnakver
Fornólfs t.d.) og teiknikennslu, sem
varð lífsstarf hans, og sinnti hann
því til æviloka. Hann sá um alla
teiknikennslu í 3 skólum: Iðnskólan-
um, Kennaraskólanum og
Gagnfr.sk. í Reykjavík - og þætti
ýmsum nóg - þar til hann Iést 27.
apríl 1939.
Sem myndlistarmanns veit ég, að
mér færari menn minnast Björns,
svo marga leiddi hann fyrstu sporin
á þeirri oft þyrnum stráðu braut. Ég
hætti mér ekki út í þá sálma. En sem
kennara er mér ljúft að minnast
hans, svo ríkir eru teiknitímarnir
hans enn mér í minni. Þar var ekki
aðeins verið að kenna unglingum
byrjunaratriði dráttlist. Maðurinn
var sjálfurein lifandi listasaga. Hann
gekk um og leiðbeindi, sífræðandi
um allt mögulegt, sem að listum laut
á hinn alþýðlegasta og einfaldasta
hátt, svo tímarnir urðu ein samfella
fróðleiks og skemmtunar. Leturgerð
kenndi Björn og gerði þá gjarnan
myndir úr bókstöfunum. Það kom
sér vel fyrir margan barnakennarann
síðar meir. Ekki voru kennslutækin
mörg til hjálpar í þann tíð, aðeins
taflan og krítin. Hann þurfti nú
eiginlega ekkert annað en blað og
blýant, hann Björn teiknikennari.
Einu sinni fór Björn með okkur út
úr teiknitíma niður að sjó. Við
stikluðum á steinum í fjöruborðinu
og sáum allt umhverfið í nýju ljósi
undir leiðsögn Björns. Svona getur
ein gönguferð stuttan spöl lifaðleng-
ur og skilið meira eftir en margar
Iengri og dýrari ferðir.
Eins og ég nefndi fyrr, var Björn
Th., bróðursonur Björns í skólanum
með okkur, einnig Sigríður, dóttir
Björns, falleg og skemmtileg stúlka,
sem varð að hætta námi sökum
veikinda. Ég, sveitastelpan, leit að
vonum upp til þessa listræna frænd-
liðs og þótti því ekki upphefðin lítil,
þegar Björn heitinn bauð okkur
tveim vinstúlkum Sigríðar með
henni á árshátíð Iðnskólans um
veturinn. Ekki reyndist þó auðvelt
að útvega samkvæmisklæðnað, því
fermingarkjólarnir voru löngu orðn-
ir að blússum og fjárfestingar í
síðum kjólum ekki til umræðu. Ein-
hvernveginn sátum við nú samt allar
síðklæddar og sigri hrósandi uppi á
svölunum í gamla Iðnó á árshátíð-
inni: Björn í miðjunni „selskaps-
klæddur sjentilmaður", Sigríður eins
og prinssessan í ævintýrinu í nýjum
taftkjól frá pabba sínum, Stella álíka
glæsileg, en ég í giftingarkjólnum
hennar systur minnar. Okkur fannst
þetta ótrúlegt. Svona áttu pabbar að
vera.
Það er erfitt að krækja hjá þeirri
keldu að tala mest um sjálfa sig,
þegar rifjaðar eru upp ntinningar frá
æskuárum og um þá, sem settu svip
á þau. Ég hef auðvitað lent ofan í
keldunni, þó langaði mig aðeins að
minnast manns, sem brá lit á þessi
æskuár, svo þau standa manni enn í
einhverskonar töfrabirtu. Ég sé
Björn fyrir mér, hávaxinn, eilítið
lotinn. Hann strýkur hárið frá aug-
unum og bendir okkur til fjallanna,
Esjunnar, hvort sem hún „teygir
grænar tærnar undan hvítri sæng-
inni“ einsog dóttursonur Sveinbjarn-
ar íslenskukennara orðar það (Svb.
I. Baldv.) eða er í kuldalegum
vetrarham. Við vefjum fermingar-
kápunum úr Gefjunarull að okkur
og gleymum kuldanum í ríki fegurð-
arinnar.
Sem fyrr segir, lést Björn á miðj-
um starfsferli sínum. Með konu
sinni Ingibjörgu Árnadóttur, systur
Ástu málara, Ársæls bókbindara,
Magnúsar málara og þeirra systkina
eignaðist hann 3 börn, sem erfa
listræna hæfileika úr báðum ættum.
Þau eru: Sigríður fædd 1921, Jón H.
landslagsarkit. fæddur 1923, Árni
skipstjóri fæddur 1927.
Fjölmargir nemendur Björns heit-
ins, sem dreifst hafa um landið vítt
og breitt, veit ég að minnast hans
með hlýhug og þakklæti. Blessuð sé
minning Björns Björnssonar.
Unnur Kolbeinsdóttir.
Magnús Einarsson
bóndi Laugum, Hrunamannahreppi
Slysin gera ekki boð á undan sér
og oftast dauðinn ekki heldur. Ég
varð felmtri sleginn er mér var tjáð
að hann Maggi væri dáinn.
Hvað skal segja, hvað skal gera,
sennilega ekkert, heldur þakka guði
fyrir það sem hann færði okkur í
gegnum þennan mann og þær stundir
sem við fengum að njóta með
honum.
Hann Magnús gekk alltaf á guðs
vegum og gott að vita af því að þar
sé hann nú, því við vitum það öll að
þar líður honum best.
Snemma sumars 1981 er ég var
þrettán ára gamall kom ég fyrst að
Laugum í Hrunamannahreppi og
dvaldi þá í 3 vikur. Nokkrar ferðir
átti ég austur að Laugum það árið.
En eins og svo oft vill verða um
unga og gáskafulla drengi er í sveita-
sæluna koma, þá tók sveitin og
fólkið á bænum allan hug minn og
átti Maggi góðan þátt í því.
Fóru mál svo að ég réð mig sem
kaupamaður að Laugum næstu tvö
sumur. Ófá skiptin síðan hefur leið
mín legið að Laugum þegar tækifæri
hefur gefist. Margar voru þær stund-
irnar sem við Maggi áttum saman og
óteljandi voru þær taflskákirnar sem
teknar voru síðla á sumarkvöldum.
Aldrei sat Magnús aðgerðalaus.
alltaf fannst eitthvað sem þurfti að
gera, lagfæra girðingar, smíða þetta
og laga hitt. Natni hans við búið var
mikil.
Síðastliðið sumar er ég dvaldi
erlendis fékk ég bréf frá Laugum
sem færði mér þær fréttir að Maggi
væri veikur og hefði dvalið um tíma
á sjúkrahúsi. Brá mér mjög við þær
fréttir.
I haust kom ég til Magnúsar á
spítalann er hann dvaldi þar í nokkra
daga. Tjáði hann mér að sjaldan
hefði honum liðið eins illa er hann
gat lítið sem ekkert aðhafst, lýsir
það persónuleika Magnúsar einkar
vel.
Síðast hittumst við er ég fór austur
í smalamennsku nú í haust. Þá sem
endranær var gaman að hitta Magga.
Mynd hans í huga mér sem ég mun
aldrei gleyma er maður með bros á
vör og framrétta hönd.
Góður vinur er kvaddur, vinum
mínum á Laugum og öðrum ættingj-
um votta ég dýpstu samúð mína.
Guð blessi minningu hans.
Eyþór Guðjónsson.
Auglýsing
frá landbúnaðarráðuneytinu
Athygli skal vakin á því, að samkvæmt 1. mgr. 42.
gr. laga nr. 46/1985 er innflutningur á kartöflum,
nýju grænmeti, sveppum og blómum óheimill,
nema að fengnu leyfi landbúnaðarráðherra.
Við tollaafgreiðslu á framangreinum vörum skulu
innflutningsaðilar framvísa tollskýrslu, áritaðri af
landbúnað'irráðuneytinu.
12. nóvember 1986.
Bændur
Loðdýra- og fiðurbændur
Til sölu nokkur lítið gölluð fiskiker, meðal annars
útlitsgölluð. Henta jafnt fyrir loðdýrafóður sem
matvöru.
Stærðir 660 og 1.000 lítra. Seljast með góðum
afslætti.
Borgarplast h.f.
Vesturvör 27 Kópavogi
Sími 91-46966
LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og
dísillyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum
lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
VatnagörSum 16, símar 82770-82655.
Ertu einmana?
Filippseyskar og pólskar stúlkur á öllum aldri óska
að kynnast og giftast.
Yfir 1000 myndir og heimilisföng, aðeins 1.450 kr.
S. 618897 milli kl. 17 og 22 eða box 1498,121 R.vík.
Fyllsta trúnaði heitið. Póstkr.
Meinatæknar
Staða deildarmeinatæknis við sjúkrahúsið á Húsavík er
laus til umsóknar. Húsnæði í boði. Upplýsingar um
starfið gefa Ólafur Erlendsson, framkvæmdastjóri í
síma 96-41333 og Kristjana Helgadóttir, deildarmeina-
tæknir, vinnusími 96-41333 og heimasími 96-41934.
Bændur
Óska eftir að koma 3ja mán. tík í sveit. Upplýsingar
í síma 91-672327.
t
Útför
Guðrúnar ívarsdóttur
Geröavegi 18, Garði
fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 15. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aöstandenda.
Halldór Þorvarðarson.
t
Móðir min
Ragnhildur Bjarnadóttir
Lönguhlíð 3
veröur jarösungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 18. nóvember kl.
10.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Óskar Þ. Þorgeirsson.