Tíminn - 15.11.1986, Side 24
S SAMBANDSFÓÐUR
I
VÍKINGUR og svissneska liöiö
St. Ottmar leika Evrópuleik í
handknattleik í Laugardalshöll
annaðkvöld kl. 20:15.
Búist er viö spennandi leik
liðanna sem bæöi eiga svipaöa
sögu aö baki.
Sjá íþróttir bls. 12-13.
Iiniinn
Laugardagur 15. nóvember 1986
Arnarflugi veitt
ríkisábyrgð í gær
- tryggir best hagsmuni ríkisins og félagsins, segir Steingrím-
ur Hermannsson
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum
á fimmtudag að nota heimild í
lögum sem samþykkt voru á Alþingi
í fyrra um Arnarflug, og veita félag-
inu umbeðna ríkisábyrgð. „Arnar-
flug hefur fullnægt skilyrðum sem
sett voru og því var ákveðið að nota
þessa heimild" sagði Steingrímur
Hermannsson í samtali viðTímann.
„Það er Arnarflugi lífsspursmál
að þetta gangi hratt fyrir sig þannig
að þeir geti losað um ýmis mál.
Kristinn Finnbogason og Svanur Þór Vilhjálmsson undirrita samninginn í gær.
BLAÐAPRENTí
NÝTT HÚSNÆÐI
I gær yar undirritaður samningur
milli Blaðaprents hf. og Persíu hf.
um makaskipti á húsnæði Blaða-
prents í Síðumúla og Lynghálsi 9.
Blaðaprent mun byggja hús að
Lynghálsi þar sem prentsmiðjan
mun í framtíðinni hafa aðsetur á
jarðhæð. Dagblöðin sem að Blaða-
prenti standa munu einnig fá fram-
tíðaraðsetur á efri hæðum hússins
sem eru þrjár.
Gólfflötur hússins á jarðhæð er
1000 fermetrar en hver hæð 700
fermetrar. Það var Kristinn Finn-
bogason sem undirritaði santninginn
fyrir hönd Blaðaprents hf. og Svanur
P. Vilhjálmsson fyrir hönd Persíu hf.
"ElREB mtöJi ±o±d ínm! ] [TLElDd IBmS
TTtl irfmni tTTTf TTffn 1 □ an IMÖ
im I 1"T j i n i i'TÍ ttt- 'tm
I*’ i- -±ú Hi i - rx., -IrtiL. írt ± -pr itt^ f H ppö
Teikningin sýnir hvernig húsið að Lynghálsi 9 mun líta út.
Bændur sem ætla að selja eða leigja
fullvirðisrétt sinn:
Umsóknarfrestur
er framlengdur
Framleiðnisjóður landbúnaðar-
ins hefur framlengt frest til að skila
inn umsóknum bænda á leigu eða
sölu á fullvirðisrétti til 30. nóv.
ember. Áður auglýstur frestur var
15. nóvember.
Ástæða þess er sú að ýmsar
upplýsingar svo og útreikningar á
fullvirðisréttinum sem nú er reikn-
aður út í fyrsta sinn fyrir sauðfjár-
bændur eru að berast þessa dag-
ana. Þessar upplýsingar þurfa
bændur hins vegar að hafa áður en
þeir taka ákvarðanir um að hætta
búskap.
ABS
Þarna vona ég að þeir sem afgreiða
lánið geri það fljótt og vel. Arnarflug
stendur alls ekki vel og það er okkar
mat að skuldir félagsins við ríkissjóð
séu betur tryggðar með því að gefa
út ríkisábyrgð og taka veð í flugvél-
inni, heldur en hingað til hefur verið.
Sömuleiðis hefur mikill fjöldi
manna lagt fram hlutafé í þeirri trú
að ríkissjóður gæfi út ríkisábyrgð-
ina, þannig að við erum náttúrlega
siðfcrðislega skuldbundnir þarna
líka,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son.
-phh
Breytingar á atvinnuháttum í sveitum:
Minjagripir í
stað sauðfjár?
Stjórn Stéttarsambands bænda
hefur að undanförnu rætt um at-
vinnumál í sveitunum í framhaldi al'
tilboði Framleiðnisjóðs um kaup
eða leigu á fullvirðisrétti.
Verið cr að útbúa eins konar hug-
myndaskrá um nýja atvinnumögu-
leika sem búnaðarfélögunum verður
send urn áramótin.
Hákon Sigurgrímsson fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambandsins
sagði að ekki væri búið að útfæra
slíka hugmyndaskrá nákvæmlega en
þar mætti t.d. nefnaýmsan smáiðnað
svo sem minjagripagerð, en einnig
loðdýrarækt, fiskeldi, kanínurækt og
ferðaþjónustu.
„Við erum að ræða það hvernig
hægt er að fylgja þessum aðgerðum
Framleiðnisjóðs eftir og vekja menn
til umhugsunar um það hvaða tæki-
færi þeir hafi, því við viljum náttúr-
lega ekki að sveitirnar fari í eyði.
Markmiðið cr að hjálpa mönnum
yfir í annað og Framleiðnisjóður
tekur þátt í því. Jafnframt því að
benda fólki á hvaða möguleika það
getur haft, þá þarf aö hjálpa því til
þess að framkvæma og stjórn Stétt-
arsambandsins vill lcggja sitt af
mörkum til þess,“ sagði Hákon.
ABS
Bók sem færir
líf og liti sumarsins
heim í stofu
PLOMTUHAIMDBOKIM
Þetta er fyrsta bókln sem birtir litmyndir
af meginþorra íslensku flórunnar í sínu
rétta umhverfl.
Höfundurinn er prófessor í grasafræði
við Háskóia íslands. Hann hefur um
árabil stundað rannsóknir á íslenskum
plöntum og er einn virtasti visindamaður
á þessu sviði hérlendis.
í texta er lýst eln-
kennum; m.a. útlltl,
blómgunartfma,
stærð. umhverfl og
útbreiðslu.
Þetta er fyrsta bókln
með lltprentuðu kortl
sem sýnlr hvar hver
plöntutegund vex á
landlnu.
eftir Hörð Kristinsson
prófessor
Röð tegunda fer
eftlr blómalltum
og öðrum áber-
andl elnkennum.
Öm og Örlygur
Siðumúla 11,
sími 84866
GRUIMDVALLARRIT TIL GAGNS OG GAMANS