Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 71

Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 71
LAUGARDAGUR 21. febrúar 2009 39 FRAMHALD AF SÍÐU 34 Á heimasíðum fyrirtækja sem flytja inn eða selja fæðubótarefni má finna ýmsar staðhæfingar um ágæti efnanna. Fréttablaðið tók dæmi af nokkrum slíkum heimasíðum og bar þau undir Magnús lækni. Cell-Tech Hardcore – fitness- sport.is Einfaldlega langöflugasta kreatín sem komið hefur á markað […] Inniheldur sérstakt insúlín flutn- ingskerfi sem lætur líkamann nýta hvert einasta gramm af kreatíninu og kolvetnunum fyrir hámarks styrk og úthald. Magnús: Ég trúi þessu ekki. Kreatín er kreatín. Það er ekkert eitt betra en annað en ef þeir eru að meina að varan sé betri en aðrar þá veit ég ekki hvað skal segja. Ég myndi allavega vilja sjá niðurstöður þeirrar rannsóknar sem þetta bygg- ist á. Þeir sem hafa skoðað kreatín hafa séð vissan skammtímaárangur en ekki mikinn, auk þess sem það er lítið vitað um langtímaáhrifin. Nitro-Tech – body.is Nitro-Tech hefur verið kallað prót- einduft nýrrar aldar og talað er um að það hafi gert mysuprótein eins og við þekkjum það úrelt á einni nóttu. Það sem gerir Nitro-Tech einstakt er svo kallað „Nitrogen Delivery technology“ sem sér um það að skutla aminósýrum inn í vöðvafrumurnar og auka þannig nýtingu próteinsins sem aftur hrað- ar á vöðvavextinum […] Nitro-Tech inniheldur líka „97% Whey isolates“ sem er hreinasta mysuprótein sem fáanlegt er … Magnús: Segja þeir ekki að þetta prótein hefði gert mysuprótein úrelt á einni nóttu? Samt á þetta að vera hreinasta mysuprótein sem fáan- legt er. Þessi texti er kjaftæði, bara bull. Þú skutlar ekki amínósýrum inn í vöðvafrumurnar. Það er ekki til nein aðferð til að gera það. Þetta er auglýsingaskrum, það er orðið sem ég hef yfir þetta. Það sem einkennir þennan markað svolítið mikið eru svona fullyrðingar sem standast ekki – allavega ekki nema að lágmarki og sumt fólk gleypir við þessu. Hydroxycut – fitnesssport. is/body.is Vinsælasta fitubrennsluefni í heim- inum og ekki að ástæðulausu! Það hreinlega virkar alveg gríðarlega vel þegar ætlunin er að tálga af sér aukakílóin. Hydroxycut eykur hitastig líkamans og örvar þannig grunnbrennslu hans. Með öðrum orðum: Þú brennir fitu allan dag- inn. Ekki bara á meðan þú æfir […] Virkar bæði með æfingum og án. Magnús: Ef þetta væri satt þá væri þarna komin endanleg lausn á offituvanda heimsins. Það er ekkert til sem heitir fitubrennslu- efni. Það er bara bull og skrum. Ef það er eitthvað til í þessu hlýtur þetta að innihalda einhver ólögleg efni því eins og þessu er lýst er verið að tala um hreina lyfjaverk- un, það er að vísu ekki til neitt nothæft lyf sem gerir þetta nema fyrirtækið hafi fundið það upp. Mass Factor – eas.is Í hverjum skammti af Mass Factor eru 615 orkuríkar, gæða hitaeining- ar – og einungis 2,9 grömm af fitu – til að útvega líkamanum þínum alla þá orku sem hann þarf til að stækka […] Mysuprótein hefur marga kosti, þ.á m. frásogast það mjög hratt og byrjar því snöggt að gera við vöðvavef og það er líka auðugast allra próteina af BCAA amínósýrum. Mysuprótein er því frábært prótein til að taka eftir æfingu, þar sem BCAA amínósýrur eru um 1/3 af vöðvavef og eru fyrstu amínósýrurnar sem er fórnað við stífar æfingar. Magnús: Þetta er bara svona blablabla. Sumt af þessu er rétt en annað ekki. Þetta byrjar til dæmis ekki mjög vel, gæðahitaeiningar og þar að auki orkuríkar?! Hitaein- ing er hitaeining og þær eru hvorki misgóðar né mis orkuríkar. Þetta er auglýsingaskrum frá upphafi til enda. Auglýsingaskrum eða heilsubót? „Yfirleitt er mikið próteinmagn í fæðunni sem við borðum. Kjöt, fiskur og mjólkurvörur eru til dæmis mjög próteinrík fæða og gæði próteinanna í þeim eru mikil,“ segir doktor Alfons Ramel, sérfræðingur á rannsóknarstofu í næringarfræði. „Spurningin er alltaf hvort prótein sé gagnlegt. Það er gott að borða eftir æfingar en sumir eru kannski ekki mjög svangir þá. Þá getur verið einfaldara að fá sér booztdrykki, próteinstykki eða skyr.“ Alfons segir fæðubótarefni geta verið hjálpleg en þau séu ekki nauðsynleg. „Fólk getur fengið öll þau næringarefni sem það vill úr hefðbundinni fæðu. Og hvað uppbyggingu varðar er það ekki bara próteinmagn sem skiptir máli. Venjulegur maður þarf kannski 2.500 hitaeiningar á dag en hann þarf að borða umfram þá þörf ef hann ætlar að byggja upp vöðvamassa. Tímasetning neyslu og orkun- eysla skiptir almennt meira máli.“ Að sögn Alfons hefur ekki verið sýnt fram á að prótein úr fæðubótarefnum sé betra eða verra en annað prótein. „Þetta eru oftast soja- prótein eða mysuprótein og gæðin líklega ekkert betri en í venjulegu fæðupróteini.“ Algengur skammtur sem fólk fær sér eftir æfingar er, að sögn Alfons, um tuttugu grömm af próteini og tuttugu af kolvetni. „Þetta er ekki stór skammtur og þú getur auð- veldlega fengið hann með því að borða ristað brauð og drekka glas af fjörmjólk.“ Alfons segir að mengun sé frekar algeng í fæðubótarefnum og vísar í sex ára gamla rannsókn sem fram- kvæmd var í Þýskalandi sem sýndi að hormónamengun var í 15 prósent allra fæðubótarefna. „Það eru mörg fyrirtæki sem fram- leiða fæðubótarefni og framleiða líka hormón. Samkvæmt rannsókn- inni virtist sem þrifin á milli fram- leiðslu efnanna væru ekki nægileg því það mældist hormónamengun í fæðubótarefnunum – ekki hættulega mikið magn en það kom engu að síður á óvart að það væri mengun,“ segir Alfons. Spurður hvort hann neyti sjálfur fæðubótarefna segir Alfons: „Nei, en ég tek mitt lýsi. Það er svo skilgrein- ingaratriði hvort það sé fæðubótar- efni eða ekki.“ En ef hann væri að reyna að byggja upp vöðvamassa myndi hann þá fá sér próteindrykki eða önnur fæðubótarefni? „Nei, það er mjög einfalt svar því ég veit að ég gæti fengið nóg af próteinum ef ég fengi mér bara góða máltíð eftir æfingu.“ ALFONS RAMEL Hann segir að ekki hafi verið sýnt fram á að prótein úr fæðubótar- efnum sé betra eða verra en annað prótein. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ RISTAÐ BRAUÐ OG MJÓLK GERIR SAMA GAGN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.