Tíminn - 20.03.1993, Page 4

Tíminn - 20.03.1993, Page 4
4 Tfminn Laugardagur 20. mars 1993 Tíminn MÁLSVABI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OC FÉLAGSHYGGJU Otgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjórí: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guömundsson Stefán Asgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Slml: 686300. Auglýslngaslml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Fnn er þörf skjótra viðbragða Upphlaupið sem varð í þessari viku vegna stöðu Landsbankans leiðir hugann að stöðu atvinnuveg- anna í landinu. Ljóst er að sá stuðningur sem sam- þykktur var á Alþingi í gær dugar skammt ef sú efna- hagsstefna sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar rekur fær að ráða. Forsvarsmenn sjávarútvegsins hafa haldið því fram að gengið sé ekki rétt skráð og sjávarútvegur- inn verði ekki rekinn við óbreytt gengi. Forsvars- menn Vlnnuveitendasambandsins biðja um launa- lækkun. Sameiginleg nefnd ASÍ og vinnuveitenda lagði ný- lega fyrir ríkisstjórnina tillögur um aðgerðir í at- vinnumálum. Forsætisráðherra bað um nokkurra daga frest til þess að skoða tillögumar. Síðan hefur ekkert heyrst frá ríkisstjórninni um þetta mál og engu líkara en stjórnvöld vilji þegja tillögurnar í hel. Sjávarútvegurinn er í herfilegri stöðu um þessar mundir og leggst þar allt á eitt. Afli hefur farið minnkandi og eindæma ógæftir hafa verið undan- fama mánuði. Síldarsöltun brást að verulegu leyti og verð fer lækkandi á mörkuðum erlendis. Verð- jöfnunarsjóður er tómur. Skipulag sjávarútvegs- mála er í athugun hjá ríkisstjómarflokkunum með þeim endemum sem alþjóð þekkir. Boðuð hefur verið stofnun þróunarsjóðs til að veðsetja og kaupa upp fískvinnslustöðvar og fískiskip. Ekkert sam- komulag er um þennan sjóð eða hver eigi að bera ábyrgð á skuldbindingum hans. Þetta aðgerðaleysi stjómvalda er glæfraspil. Hver vikan sem líður í þeirri óvissu sem nú ríkir um stöðu atvinnuveganna hleður upp vandamálum sem geta orðið illeysanleg. Stjómarandstaðan tók á málefnum Landsbankans af fullri ábyrgð. Málatilbúnaðurinn og umgjörð hans var harðlega gagnrýndur en aðgerðin sjálf að styrkja eiginfjárstöðu bankans var samþykkt með allvíðtæku pólitísku samkomulagi. Það er því engin ástæða til að ætla að ekki gæti náðst víðtæk samstaða um aðgerðir í efnahags- og kjaramálum svo framarlega sem þær aðgerðir leiddu til kjarajöfnunar, lækkunar vaxta og traust- ari gmndvallar fyrir atvinnuvegina í landinu. Til þess þarf að leggja auknar byrðar á þá sem betur mega sín en þar stendur hnífurinn í kúnni að sá þjóðfélagshópur er sérstakur skjólstæðingur ríkis- stjómarinnar. Ef hins vegar er ekkert að gert fjölgar áreiðanlega bankamálum af því tagi sem þjóðin varð vitni að nú í vikunni. Það má ekki verða. Þess vegna er nú þörf jafnskjótra viðbragða í málefnum atvinnuveganna eins og ríkisstjórnin var að hæla sér af varðandi Landsbankann. Þögn ríkisstjómarinnar um kjaramál og málefni atvinnuveganna vekur vaxandi undrun þjóðarinnar þótt hún sé að verða ýmsu vön úr þeim herbúðum. Atli Magnússon skrifar: f I minningu einangrunar- hyggjunnar Erlend menningaráhrif hafa frá öndverðu verið viðkvæmt mál á ís- landi, þótt raunar hljóti landnáms- menn margir að hafa fyrst og fremst Iitið á sig sem Norðmenn sem höfðu hleypt heimdraganum um stundarsakir. Vísast hafa ýmsir af þeim haft í hyggju að snúa heim til Noregs á ný og setjast að góssi sínu, þegar Haraldur lúfa væri all- ur. En svo hafa þau áform vatnast út og menn ílenst í nýjum heima- högum og tekið að líta á sig sem sérstaka þjóð. Þessi tifinning er greinilega orðin nokkuð rótföst þegar Einar Þveræingur synjar Ól- afi helga um Grímsey. Þar er strax komin til skjalanna tortryggnin gamla í garð útlendinga. Togstreita Snemma tekur svo einangrunar- hyggjan að togast á við forvitni þeirra sem afskekkt búa um það fjarlæga, eins og allir bálkamir um norska konunga og erlenda helgi- menn votta. Og senn tók það að liggja í loftinu að öll umtalsverð upphefð kæmi að utan. Menn sótt- ust eftir að verða handgengir menn og hirðmenn í útlöndum. Það varð loks til þess að einangr- unarhyggjan mátti lúta í lægra haldi fyrir einstaklingum sem áttu útlendum höfðingum svo margan bitann og sopann að launa að þeir gátu ekki verið þekktir fyrir minna en selja — ekki bara Grímsey — heldur alla hina ungu ættjörð und- ir framandi yfirráð. Öll hefur sú saga verið síðari tíma einangrun- arsinnum stórt sorgarefni og þess- um veikleika Gissurar jarls og fleiri hafa menn kennt um „myrku aldimar," sem í hönd fóm. Upphefðin að utan þverr Eftir gullöld strjáluðust siglingar og jarðbundnir danskir kóngar, sem létu sér fátt um skáld og hetj- ur norðan úr Dumbshafi finnast, tóku að ríkja yfir þjóðinni. Þeir settu henni danskt yfirvald og fyrir I ;;; : m vikið hlaut enginn Iandsmanna af þeim umtalsverðar nafnbætur. Kannske er það skýringin á því að íslendingar skrifuðu ekki miklar bókmenntir um danskan kóng, þvf eins og Egill vom þeir „glapmálir of glöggvinga." En danskir gerðu sér heldur ekki fleiri erindi til íslands en þeir minnst komust af með, helst til að hafa héðan skreið, ull og tólg. Þeir reyndu Iftt að kássast upp á lands- lýðinn með danska menningu og það sem af henni fluttist hingað var verk fátækra, innlendra emb- ættismanna og guðfræðinga. Þótt Danir yrðu að vísu til þess að þröngva upp á menn hér siðaskipt- um og píetisma, þá hefði hvort sem var komið til einhvers konar trúmálaumbrota í landinu — þrátt fyrir tilvist Dana. Einangrunar- hyggja á friðarstóli í ljósi þessa er ekki að undra að byrlega blés fyrir einangrunar- hyggju fram eftir öldum. Utlandið gerði lítið vart við sig, fyrir utan það að kaffi, sykur og brennivín minnti á að handan hafsins mundu vera betri veður og frjósamari lendur. Jón Indíafara og einhverja Bessastaðamenn bar að strönd með apaketti í pússi sínum og þær skepnur minntu á sólrík lönd blá- manna, sem sagðir vom með hala. Fátt fleira varð til að raska andlegu næði manna og kveikja útþrá. Þjóðin bjó því lítt tmfluð við sagnaskemmtun sína, þuldi sög- umar um „gullöldina“ lon og don og fannst að samtíminn með öll- um sínum bágindum væri hálfgert ómark. Því má leiða rök að því að Fjölnismenn og Jón forsti ásamt fylgiliði hafí fullt eins verið tólftu og þrettándu aldar menn, ekkert síður en nítjándu aldar. Þeir tóku upp þráðinn þar sem sjálfstæðis- öldinni lauk með Gamla sáttmála og létu eins og allt hefði þetta ver- ið í gær. Fögur einsemd þjóðarinn- ar var hafin til meiri vegs en nokkm sinni í pólitík og róman- tískum kveðskap. Gröndal teiknaði Fjallkonuna sem einslags „Brit- anníu“ einangmnarinnar" og Grímur Thomsen hnykkti á og orti um hana: Hörð og vitur háleitsitur hún við norðurpól, segulsteins á stól. Slíkt kvennaval var varla líklegt til að láta „fallerast" af útlendum læpuskap neinnar tegundar. Gissur jarl í Saville Row Svo losnaði þjóðin undan „nær sjö alda kúgun" sinni, sem hún gerði að einskonar dýrðarkórónu ofan á gullöldina í söguágripum. En þá þurfti það að verða að út- landið fengi enn áhuga á íslandi og hann mikið magnaðari en á dög- um Hákonar gamla og fyrirrenn- ara hans sumra. Og nú bar á strönd það útlenda herlið sem Ein- ar Þveræingur átti von á „via Grímsey." Nú lenti eingmnarhyggjan í harðri raun. Næstu áratugina urðu harðvítugir flokkadrættir og sáu margir Gissur jarl og óhappadurti Sturlungaaldar uppvekjast í hverju horni. Það var þrætt og þrætt og skáldin ortu og ortu — og flest í einangmnarandanum. En nú er einangmnarandinn víst hér um bil dauður — enda er þessi dálkur ritaður í minningu hans. Þeir em varla teljandi núna sem voga sér að ljúka upp munni hon- um til vamar, nema þá með svo mörgum fyrirvömm að hann er varla þekkjanlegur. Gissur jarl er orðinn maður dagsins. Hann lætur skraddarasauma á sig f Saville Row og þiggur „lúður og merki" hvers þess höfðingja sem vill bjóða hon- um stöðu lends manns. Þegar hann kemur heim þarf hann ekki að óttast teljandi ókyrrð á þinginu — gjárveggimir enduróma fagn- aðarhróp meirihlutans svo allur kurr sefast skjótlega. Enginn man hvað af Fjallkonunni varð, sem fyrir svo skömmu sat með ygglibrún „segulsteins á stól.“ Hugsanlega er hún flutt norður til Spitzbergen. En líka má vera að hún hafi bara slegið öllu upp í grín, sitji inni á veitingastaðnum Bangkok og snæði með prjónum þá framandi rétti sem blámenn og móríanar bera fram eftir settum kúnstarinnar reglum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.