Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 20. mars 1993
Tíminn 11
Ingi Sigurösson.
Háskólafyrirlestur:
Arfleifð
upplýsingar
í tilefni þess að dr. Ingi Sigurðsson
hefur verið skipaður prófessor í
sagnfræði við heimspekideild Há-
skóla íslands flytur hann opinberan
fyririestur á vegum deildarinnar
fimmtudaginn 23. mars kl. 17:15 í
stofu 101 í Odda, húsi Háskóla ís-
lands. Fyrirlesturinn ber heitið
„Arfleifð upplýsingarinnar og út-
gáfa fræðslurita á íslensku."
Ingi Sigurðsson lauk doktorsprófi
frá Edinborgarháskóla árið 1972 og
fjallaði doktorsritgerð hans um
sagnaritun Jóns Espólíns og ís-
lenskra samtímamanna hans á tíma-
bilinú frá um 1790 til um 1830. Ingi
hefur stundað viðamiklar rannsókn-
ir á sviðum hugmyndasögu og
menningarsögu og þá sérstaklega
sögu sagnfræðinnar og á áhrifum
upplýsingarinnar og annarra §öl-
þjóðlegra hugmyndastefna á íslandi.
Auk þess hefur hann unnið að rann-
sóknum á sögu Skotlands.
Ingi starfaði sem bókavörður við
Háskólabókasafn 1972-1981 og var
jafnframt stundakennari við Há-
skóla íslands á árunum 1975-1981.
Hann var skipaður lektor í sagn-
fræði við heimspekideild árið 1981,
dósent árið 1986 og prófessor frá og
með 1. maí 1992.
Opið hús:
Háskólinn á
Akureyri í
Tæknigarði
Á árlegri námskynningu æðri
menntastofnana á morgun, sunnu-
dag, verður Háskólinn á Akureyri
með sérstaka kynningu á starfsemi
allra deilda skólans í Reykjavík.
Kynningin verður í anddyri Tækni-
garðs, Dunhaga 5.
Deildir Háskólans á Akureyri eru:
Heilbrigðisdeild, sem kynnir nám til
BS-gráðu í hjúkrunarfræði; kenn-
aradeild, sem er nýr starfsþáttur
skólans; og loks rekstrardeild, en
innan hennar er kennt á iðnrekstr-
ar-, rekstrar-, gæðastjómunar- og
sjávarútvegsbraut.
Nemendur sjávarútvegsdeildar
verða með kynningu á lifandi ígul-
kemm og hörpuskel úr Eyjafirði,
auk þess sem fólki gefst kostur á að
bragða á afurðum af þessum og fleiri
furðudýrum. Þá flytur dr. Stein-
grimur Jónsson, sérfræðingur við
Háskólann á Akureyri og útibús-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, fyrir-
lestur um vistfræði Eyjafjarðar, dr.
Snjólfur Ólafsson um hermilíkan
fyrir stjórn fiskveiða, Ágúst H. Ing-
þórsson um gæðastjórnun í evr-
ópskum sjávarútvegi og dr. Jömnd-
ur Svavarsson um botndýr á ísland-
smiðum. Fyrirlestrarnir hefjast kl.
14.00 og lýkur um kl. 15.00.
—sá
)
Skattborgararnir hvattir til að kynna sér hvernig æðstu menntastofnanir
þjóðarinnar verja Ijármunum sínum:
Háskólarnir og sér-
skólarnir kynna sig
Háskóli íslands og rúmlega tutt-
ugu aðrir sérskólar og skólar á
háskólastigi kynna sig og starf-
semi sína næstkomandi sunnu-
dag. Nokkur hefð er fyrir því að
þessir skólar efni til sameiginlegs
kynningardags á vorin og hafa
framhaldsskólanemar verið dug-
legir að sækja skólana heim á
þessum degi, enda geta þeir hjálp-
að þeim við að velja sér nám að
loknu grunnskóla- og stúdents-
prófl.
Nú er hins vegar markmiðið að ná
til allra, ekki síst skattborgaranna
sem greiða fyrir menntun lands-
manna, og veita þeim innsýn inn í
mikilvægt kennslu- og rannsóknar-
starf sem fram fer í æðri mennta-
stofnunum landsins.
Skólamir, sem eru 22 talsins, ætla
að opna dyr sfnar fyrir gestum og
gangandi frá kl. 13-18 á sunnudag
og leyfa þeim að skoða það umhverfi
sem kennsla, rannsóknir og al-
mennt starf skólanna fer fram í.
Ekki geta allir sérskólamir haft opið
hjá sér á sunnudag, en þeir munu
þess í stað kynna starf sitt í húsa-
kynnum stærri skólanna. Þannig
verður svokallað Opið hús í nokkr-
um kjömum á höfuðborgarsvæð-
inu, alls 24 byggingum. Tveir stræt-
isvagnar verða í fömm milli helstu
viðkomustaða allan daginn.
Mikil vinna hefur verið lögð í að
undirbúa Opið hús, enda um 150
námsgreinar, deildir, stofnanir og
félög sem kynna starfsemi sína
þennan dag. í sumum skólum verð-
ur boðið upp á formlega dagskrá,
annars staðar standa starfsmenn,
kennarar og nemendur fyrir sér-
stökum uppákomum; á enn öðmm
stöðum verða fluttir fyrirlestrar og
rannsóknir verða víða kynntar.
Sérstök dagskrá verður gefin út er að vera á Opnu húsi, og mun hún sunnudaginn kemur.
með yfirliti yfir það helsta, sem um liggja frammi í öllum skólum á
/----------------------------------;----------------------------
Ráðstefna Evrópubandalagsins
Hótel Saga 23. mars 1993
FRAMTÍÐ LANDBÚNAÐAR
í NÝRRI EVRÓPU
11.45 Jnnritun
12.00 Hádegisverður i Ársal, Hótel Sögu
13.20 Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, flytur ávarp
14.00 Aneurin Rhys Hughes, sendiherra EB á íslandi og i Noregi
14.40 Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bœnda
15.00 Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður og bóndi
15.40 Kaffihlé
16.00 Gerald Bruderer, yfirmaður samskipta EB og EFTA i landbúnað-
armálum, landbúnaðardeild EB í Brussel
16.40 Umrœður, fyrirspurnir og svör (túlkur verður til staðar)
17.00 Aneurin Rhys Hughes, sendiherra, flytur samantekt og lokaorð
Ráðstefhustjóri: Aneurin Rhys Hughes.
Ráðstefnugjald, sem innifelur hádegisverð og kaffi, er kr. 2000,-.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram í síma 91 - 62 24 11.
EB heldur ráðstefnuna í samvinnu við
Búnaðarbanka íslands og
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Skipuleggjendur ráðstejhunnar áskilja sér rétt til að breyta
dagskrá vegna ójyrirsjáanlegra breytinga.
Aðstoð við skipulag og umsjón: Kynning Og Markaður — KOM hf.
_____________________________
-EÓ
"N
Látiðfagi
Látw jagmenn vinna verkin! i .
nnumst!
Bifreiðaréttingar á fullkomnum réttingarbekk
með fullkomnum mælitækjum
Bifreiðaviðgerðir sprautun og boddysmíði.
Setjum á sílsalista mjög hagstætt verð
ILARETTINGAR G.A.K