Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 20. mars 1993 Umsjón: Stefán Ásgríms- son Bílhjólið fundið upp á ný: Dekk og felga sem ein heild Nýja bílhjóliö er ein heild. Sjálfsagt finnst mörgum það ekki fagurt álitum enda er það ólíkt hefðbundnum bílhjólum. Nýr Nissan Micra eftirlæti þýskra bílablaðamanna: Mikil hugmyndaauógi og vilji til að hrinda hugmyndum í fram- kvæmd virðist vera ríkjandi við- horf hjá hönnuðum og stjóm- endum Renault bílaframleiðand- ans í Frakklandi. Hér í Tímanum var nýlega sagt frá nýja fólksbfln- um Twingo sem byrjað er að framleiða og mun væntanlegur hingað til lands með haustinu. TVvingo er ekki einasti votturinn um andríki Frakkanna hjá Rena- ult því að þessa dagana eru þeir að reynsluaka frumgerð nýs jeppa sem þeir kalla Racoon. Racoon er mjög sérstæður í út- liti og líkist einna helst vatns- dropa. Hann getur ekið á hrað- brautum eins og venjulegur þægilegur bfll en auk þess bæði klifrað og synt. Hjólabúnaður bæði að framan og aftan er festur á miklar sperrur sem liggja undir bflnum á lang- veg þannig að fjöðrunarsviðið er mjög langt. Hún er annars gas/vökvafjöðrum sem vinnur eftir sömu grundvallarreglu og sú sem þekkt er hjá Citroén þannig að hækka má bflinn og lækka á fjöðrunum. Racoon er ekkert sér- lega hár í venjulegri akstursstill- ingu en í í hæstu stöðu er 40 sm. hærra undir botninn á honum en í akstursstillingunni. Þá er einnig hægt að stilla mýkt hennar á fjölda vegu eftir aksturslagi og aðstæðum öðrum. Vélin er V-6 með tveim forþjöpp- um og millikæli. Gírkassinn er með sex gírum og háu og lágu drifi. Hámarkshraði er sagður 155 km. á klst. Þegar ekið — rétt- ara sagt siglt — er á vatni í bfln- um þá knýja hann áfram tvær skrúfur sem lokaðar eru af inni í rörum. Siglingarhraði er 8 km. á klsL Ekki er vitað hvenær Racoon kemur á almennan bflamarkað, né hvað hann muni kosta. Nýl Nissan Micra bíllinn féll þýskum bílablaðamönnum vel í geð. Hann fæst bæði tvennra og fernra dyra og er þegar fáan- legur hjá íslenska umboðinu. Loftfylltur gúmhjólbarði á felgu undir bfl er fyrir flestum jafn sjálfsagt og það að nótt fylgi degi enda er fyrirbærið næstum jafn gamalt bflnum sjálfum. Hvemig líst jeppaáhugamönn- um á gripinn? Ankannalegur er hann alla vega. Konungur dverganna Frönsk hugmyndaauðgi í bílahönnun: RAC00N -frumlegur jeppi frá Renault að fæðast Fyrr í vikunni kusu blaðamenn þýska bflablaðsins Auto-Bild besta smábflinn — konung smábflanna. Valið stóð milli 10 smábfla og fékk Nissan Micra samtals 180 punkta. Meðal atriða sem tekið var tillit til voru verð, rými, frágangur, hljóð- einangrun og fleira. Það eina sem fundið var að bflnum var hversu farangursrýmið var lítið. Opel Corsa Joy, sem er ný útgáfa af hinum kunna smábfl, hafnaði í öðru sæti með 175 punkta og Ford Fiesta CLX í því þriðja með 166. Neðstur á blaði var Fiat Uno Start með 155 punkta. En það fannst ekki öllum jafh sjálf- sagt að hafa þetta svona og þeirra á meðal var Svíinn Hans Erik Hans- son. Hann hreinlega tók sig til og fann (bfl)hjólið upp á ný og hefur undanfarin ár í samvinnu við iðn- tæknistofnun Svía gert tilraunir með hina nýju gerð bflhjóla sem hann hefur fundið upp. Munu þær lofa góðu og fjöldaframleiðsla f sjónmáli. Hið nýja bflhjól Hans Eriks Hans- sons er í stuttu máli þannig að felga og dekk eru ein eining. Sjálfur slit- flöturinn er úr gerviefnablönduðu gúmi sem steypt er saman við það sem kalla mætti felgu, en hún er úr gerviefnum. Hið nýja hjól virðist hafa ýmislegt framyfir hefðbundið bflhjól. Það er miklu léttara, viðnám þess, eða tregða mætti kannski segja, er miklu minni eða sem nemur milli 10 og 30% þannig að talsvert elds- neyti sparasL Þá er það mun hljóð- Iátara en hefðbundin bflhjól eða sem nemur um 10 dB að því er til- raunir á vegum sænska umferðar- ráðsins hafa leitt í ljós. Síðast en ekki síst hefur þetta nýja hjól þann kost að það springur aldrei á því. Hans Erik Hansson vinnur þessa dagana að því að reyna ýmis gervi- efni sem til greina geti komið í framleiðslu á nýja hjólinu. Hingað til hafa þau einkum verið gerð úr trefjaplasti en verið er að prófa önnur efni og að heitsteypa hjólið. Iðntæknistofnun Svía hefur skip- að í starfshóp sem vinnur nú með uppfinningamanninum að þróun hjólsins og að því að kanna markað fyrir það. Hjólið er þegar komið undir nokkrar raf- og vetnisknúnar bifreiðar sem ýmist eru á tilrauna- stigi eða komnar á markað. —sá Mun minni vegdynur, miklu minna viðnám og minni þyngd en í venjulegum bíl- hjólum eru eftirsóknarverðir kostir nýju bílhjólanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.