Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 24

Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 24
 AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 NYTT OG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELU 13 -SÍMI73655 varahlutir Hamarsböfða 1 - s. 67-67-44 I HOGG- DEYFAR Verslió hjá fagmönnum LAUGARDAGUR 20. MARS 1993 l k V fc V STÓRSÝNING UM HELGINA Ingvar Helgason hf. REYKJAVÍK Sævarhöfða S BG bílasalan KEFLAVIK Bílakringlunni Sigurður Valdimarsson AKLJREYRI Óseyri 5a Enn og aftur bjóöum viö alla velkomna að skoöa og reynsluaka Nissan Micra, bíl ársins 1993. Fjölmargir íslendingar hafa þegar komiö, skoðaö og reynsluekið Micrunni og veriö hæstánægðir með bílinn. Sannreyniö sjálf gæði Nissan Micru á stórsýningu helgarinnar milli kl. 14-17.^ BÍLL ÁRSINS 1993 1 ) Nú hefur Nissan Micra bætt enn einni skrautfjöður í hattinn. Hið virta þýska tímarit Auto Bild gerði samanburð á nokkrum bílum og þar hafði Nissan Micra að sjálfsögðu vinninginn. Verðdæmi MICRA LX 3ja dyra, með VÖKVASTÝRI, beinni innspýtingu 1300cc, 16 ventla vél, hituð sæti VERÐ AÐEIIMS 799.000.- stgr. Ingvar Helgason hf. Sævarhöföi 2, 112 Reykjavík P.O. Box 8036, Sími 674000 NI55AIXI Aðgerðir hefjast gegn bifreiðaeigendum sem skulda bifreiðaskatta: Friðrik hrellir vanskila- menn Fjármálaráðuneytið hefur beint því til innheimtumanna ríkissjóðs að gera sérstakt átak í innheimtu bifreiðaskatta, en vanskil á þeim hafa aukist á síðustu misserum. í næstu viku verða númer klippt af þeim bilum sem skulda bif- reiöagjöld, hvar sem til þeirra næst. í dag eru 552 milljónir króna í vanskilum vegna bifreiðagjalda, þ.e. þungaskatts, bifreiðagjalds og vátryggingar ökumanns. 325 milljónir eru frá síðasta ári, 106 milljónir frá árinu 1991, 64 frá 1990 og enn eldri skuldir eru 58 milljónir. Á síðasta ári voru lagðir á rúmir 3,6 milljarðar í bifreiðagjöld. 9% álagðra gjalda eru í vanskilum fyrir það ár. Hægt er að greiða bifreiða- skatta hjá sýslumönnum, toll- stjóranum í Reykjavík og hjá lögreglustjóranum á Keflavík- urflugvelli. Þá er hægt að greiða á pósthúsum og í bönk- um. -EÓ Afli og verðmæti: Syrtir Fyrstu tvo mánuði yfirstand- andi árs nam verðmæti botn- fiskaflans rétt rúmum fimm milljörðum króna, sem er um hálfum milljarði minna en á sama tíma í fyrra, samkvæmt yfirliti Fiskifélags Islands. Á sama tíma nam verðmæti heildarafla landsmanna rétt tæp- um sjö milljörðum króna, sem er um sjö hundruð milljónum minna en var fyrstu tvo mánuð- ina í fyrra. Það sem af er fiskveiðiárinu nemur heildarafli landsmanna hins vegar 881.655 tonnum, en hann var 759.250 tonn í sömu mánuðum 1991-1992 og 577.519 tonn 1990-1991. Á þessum tíma hefur afli ein- stakra botnfisktegunda farið minnkandi að undanskildum út- hafskarfa og grálúðu. Sem dæmi þá var þorskaflinn fyrstu sex mánuði fiskveiðiársins 1990- 1991 115.074 tonn, 99.582 tonn 1991-1992 og á fyrri helmingi yf- irstandandi fiskveiðiárs nemur þorskaflinn aðeins 96.729 tonn. Aftur á móti hefur orðið aukn- ing í afla síldar á þessu tímabili og einnig í loðnu og rækju; enn- fremur hefur ræst úr afla hörpu- disks. -grh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.