Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 5
Laugardagur 20. mars 1993 Tíminn 5 Varanlegur spamaður í heilbrigðismálum Ingibjörg Pálmadóttir skrifar Fátt hefur verið meira til umræðu undanfarin misseri en hvemig spara megi í heilbrigðis- málum. Krukkað hefur verið í hér og þar með misjöfhum árangri, en minna rætt um heil- steypta stefhu í heilbrigðismálum. Hinn eini varanlegi spamaður er í því fólginn að koma eins og hægt er í veg fyrir sjúkdóma og slys. Við eigum marga möguleika á því sviði ónýtta. Undirrituð lagði fram þingsályktunartillögu ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Svav- ari Gestssyni, Láru Margréti Ragnarsdóttur og Jóni Helgasyni, þar sem bent er á hvemig megi spara með því að auka rannsóknir og for- vamir og fræðslu varðandi gigtsjúkdóma. Hver króna til gigtlækninga skilar sér fertugfalt til baka Þessi tillaga til þingsályktunar fjallar um rannsóknir, forvamir og fræðslustörf um gigt- sjúka og er ætlað að spara þjóðfélaginu þegar til lengri tíma er litið nokkra milljarða árlega. En sá sjúkdómur sem þessi þingsályktunartil- laga fjallar um, þ.e.æs. gigtsjúkdómar, er áætl- að að kosti íslenska ríkið 10 milljarða árlega, en inn í þeirri upphæð er ma. sjúkrahúslega, heilsugæslukostnaður, endurhæfing, lyfja- kostnaður og vinnutap, hjálpartæki ýmis og sérfræðikostnaður. Sem dæmi má taka að árið 1990 vom greiddir sjúkradagpeningar fyrir gigtsjúkdóma í samtals 51.511 daga. Þá fær fimmti hver öryrki örorkubætur vegna gigt- sjúkdóma. Þegar giskað er á að spara mætti 15% af þjóðarútgjöldum íslendinga eða allt að 10 milljarða kr. árlega, ef unnt væri að koma í veg fyrir gigt, er auðséð að hér er til mikils að vinna. Bandarískir arðsemisútreikningar hafa leitt í ljós að hver króna til gigtlækninga skil- ar sér fertugfalt til baka og er þá ekki talað um þá miklu þjáningu sem sparast, ef koma má í veg fyrir sjúkdóminn eða halda honum í skefj- um. Auknar rannsóknir Fullnægjandi skýringar hafa ekki fengist á hvað veldur þessum sjúkdómi, en vitað er um marga samverkandi þætti, bæði meðfædda og ytri, sem orsaka gigt Frekari rannsóknir á or- sökum sjúkdómsins eru nauðsynlegar. ís- lenskir fræðimenn hafa lengi stundað rann- sóknir á gigtsjúkdómnum og hlotið alþjóð- lega viðurkenningu fyrir störf sín. Rannsóknir þeirra hafa hins vegar að mestu verið stundað- ar í hjáverkum sökum fjárskorts. Gigtarfélag íslands stóð ný- verið fyrir söfnun fjár í vísindasjóð félagsins, sem er notaður til að kosta rannsóknir á gigtsjúkdóm- um. Flutningsmenn þessarar þings- ályktunartillögu telja mikilvægt að ríkisvaldið aðstoði félagið efdr föngum við framkvæmd og fjármögnun rannsóknanna. Því er lagt til við heilbrigðisráðherra að hon- um verði falið að móta tillögur um eflingu rannsókna á gigtsjúkdómum í samráði við Gigtarfélagið. ísland nýtur sérstöðu Að sögn sérfræðinga nýtur ísland nokkurrar sérstöðu, sem gerir það að verkum að rann- sóknir á gigtsjúkdómum eru að mörgu leyti auðveldari hér á landi en víða erlendis. Kemur þar til hversu fámenn þjóðin er, en það m.a. auðveldar faraldurs- og erfðafræðilegar rann- sóknir svo og nálægð og náin samvinna vissra sérgreina læknisfræðinnar, sem oft einangrast á stórum stofnunum erlendis. Þá eru ættar- tölur góðar og almennur ættfræðiáhugi ríkj- andi, en eins og ég sagði áðan er sjúkdómur- inn að hluta til arfgengur svo og er hér mikill skilningur á nauðsyn læknisfræðilegra rann- sókna. Er því brýnt að gerðar verði tíllögur um eflingu rannsókna á þessu sviði. Hér má spara mikið fé og sjúklingum mikla og varan- lega þjáningu. Aukin fræðsla Það er að mati flutningsmanna mikilvægt að ffæða fólk um gigtsjúkdóma og þá þætti sem leitt geta til þeirra. Forvamarstarf með áherslu á rétta hreyfingu, verklag og mata- ræði skiptir hér mestu. Rannsóknir sýna að neysla mjólkur og lýsis dregur verulega úr hættu á beinþynningu, en það er sjúkdómur sem hrjáir þúsundir íslendinga, einkum kon- ur á miðjum aldri. En þegar talað er um gigt- sjúkdóma er talað um sjúkdóm í bandvef, svo og sársaukafúlla kvilla f stoðkerfí lfkamans. Gigtsjúkdómar eru flokkaðir í marga flokka. Alls 200 sjúk- dómar teljast til gigtar. Allra al- gengustu gigt- sjúkdómar eru slitgigt og ikt- sýki. Þessir sjúk- dómar eru ólíkir og þarfnast Fjöldi gigtsjúkra Árið 1992 var eins og fyrr sagði Norrænt gigt- arár. Markmið Norræns gigtarárs var að vekja athygli á gigtinni, tíðni sjúkdómsins og áhrif- um hans og hins vegar að efla forvamir. Ákvörðun Norðurlandaráðs má rekja til hins mikla fjölda gigtsjúklinga á Norðurlöndum og þess gríðarlega flárhagslega tjóns og þeirra þjáninga sem af gigtinni hljótast Tálið er að á Norðurlöndunum séu 5 milljónir gigtsjúk- linga og þar af um 50 þúsund hér á landi. Ætla má að gigtsjúkdómar hafi í för með sér beinan og óbeinan kostnað fyrir Norðurlöndin sem nemur þúsund milljörðum árlega, eitt þús- und milljarða. Endurhæfmg Samhliða þessum tillögum um auknar rann- sóknir, forvamir og ffæðslustörf um gigtsjúk- dóma kemur einnig fram í greinargerð með tillögunni mikilvægi endurhæfingar gigt- sjúkra, en slík endurhæfing krefst mikils sér- hæfðs mannafla, góðrar aðstöðu, tækjabúnað- ar og húsnæðis. Markmið endurhæfinga hennar er að hjálpa gigtsjúkum til að lifa sem eðlilegustu lífi. Endurhæfingin er einkum fólgin í m.a. sjúkra- og iðjuþjálfun, meðferð hjá kiropraktorum. Við eigum hóp sérfræð- inga sem vinna að þessum málum og eflaust þarf að samhæfa störf þeirra enn meira með stefnumótun. Við Landspítalann í Reykjavík er rekin stærsta sérhæfða gigtdeildin hér á landi. Auk þess starfa sérfræðingar í gigtlækningum á Landakotsspítala, Grensásdeild, Borgarspít- alanum, Vinnuheimili SÍBS á Reykjalundi, Heilsuhælinu í Hveragerði og Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri svo og á einkastofn- unum. Greining, meðferð og endurhæfing gigtsjúkra fer fram á þessum stöðum og á Gigtlækningastöðinni í Reykjavík, sem rekin er af Gigtarfélagi íslands. Þá var nýlega stofhuð endurhæfingardeild á Kristneshæli í Eyjafirði. Aðstæður til endurhæfingar eru þó ekki fúll- komnar, þrátt fyrir þessa upptalningu. Þannig er engin endurhæfingardeild rekin við Land- spítalann nú og hugmyndir hafa verið um að fækka gigtarsérfræðingum þar. Að áliti flutningsmanna er mikilvægt að hald- ið verði áfram öflugri þjónustu við gigtsjúka hér á landi um leið og enn frekar verði ráðist að rótum vandans. Er þvf æskilegt að heil- brigðisraðherra móti tíllögur um þetta efni og leggi fyrir Alþingi. Út á það gengur þingsálykt- unartillagan. Kostnaðarvitund Sífelldar breytingar hafa verið gerðar að und- anfömu varðandi kostnaðarþátttöku einstak- linga. Flestar þessar breytingar eru gerðar, að sögn heilbrigðisráðherra, til að auka kostnað- arvitund þeirra. Ég fullyrði að þessar sífelldu breytingar auka ekki kostnaðarvitund sjúk- linga, enda tel ég það ekki brýnast í heilbrigð- ismálum að minna menn á að það er dýrara að vera sjúkur en heilbrigður. Ég tel að allra ódýr- asta lausnin til að spara í heilbrigðismálum al- mennt sé að menn geri sér almennt grein fyrir hvemig eigi að halda í gott heilsufar með því að koma í veg fyrir veikindi og slys. Ég held að það sé einmitt þessi kostnaðarvitund um gildi aukinna rannsókna til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma sem vantar hjá heilbrigðisyfirvöld- um. Ég hef litla trú á að það skili ríkinu til lengri tíma miklum fjárupphæðum, að láta sjúkt fólk greiða meira en góðu hófi gegnir fyr- ir heilbrigðisþjónustuna. Það eykur ekki kostnaðarvitund. Það bætir ekki heilsuna. Það leiðir aðeins til ójafnaðar í þjóðfélaginu. Gigtsjúkdómar og gigtareinkenni em algeng- ustu vandamál sem valda því að fólk leitar læknis. Einungis kvef og hliðstæðir kvillar em algengari. Við íslendingar getum verið í farar- broddi varðandi lausn á gigtargátunni. Hér er til mikils að vinna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.