Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 18

Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 20. mars 1993 Aðalfundur m ISTEX, ÍSLENSKUR TEXTILIÐNAÐUR H.F. Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn laugar- daginn 3. apríl, kl. 14.00, í Bændahöllinni/Hótel Sögu, 3. hæð í sal Framleiðsluráðs. Dagskrá: 1. Almenn aðalfundarstörf samkv. 16. grein samþykkta félagsins. 2. Aukning hlutafjár samkv. tillögum stjórnar fé- lagsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Mosfellsbæ, 18. mars 1993. Stjórn ÍSTEX hf. VELKOMIN TIL U.S.A. Sértilboð frá bandarísk- um stjórnvöldum Bandarlsk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öðlast varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætiun AA-1. Dregið verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki- færi til að setjast að í Bandaríkjunum og stunda þar vinnu. (orðið handhafi „græna kortsins”). Umsóknarfrestur um dval- arieyfi rennur út 31. mars nk. og þvi nauðsynlegt að bregð- ast við strax, svo umsókn þín nái fram í tíma. Allir þeir, sem eru fæddir á Islandi, Bretlandi eða (riandi og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa rétt til að sækja um þetta leyfi. Sendið 45 Bandarikjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar- stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstaö ógiftra bama undir 21 árs aldri. Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas, Texas, 75382, USA. Kópavogur — Framsóknarvist Spilum að Digranesvegi 12, sunnudaginn 21. mars kl. 15.00. Góð verðlaun og kaffiveitingar. Freyja, félag framsóknarkvenna Alfreð Reykjavík - Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag 21. mars I Hót- el Lind, Rauðarárstlg 18, og hefst kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun karia og kvenna. Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi flytur stutt ávarp I kaffihléi. Aðgangseyrir kr. 500,-. Kaffiveitingar innifaldar. Framsóknarfélag Reykjavlkur REYKJANES Opnir stjómmálafundir með Steingrimi Hermannssyni og nokkrum þingmönnum Framsóknarflokksins Steíngrímur Kópavogur Finnur Opinn stjómmálafundur með alþingismönnunum Steingrimi Hermannssyni og Finni Ingólfssyni verður I Framsóknarhúsinu, Digranesvegi 12, Kópavogi, mánudaginn 22. mars kl. 20.00. Ingibjörg Borgarnes — Félagsbær Asta R. Opinn fundur um heilbrigöismál verður I Félagsbæ þriðjudaginn 23. mars kl. 21.00. „Hverju er veriö að breyta I heilbrigðismálum?" Þvl svara: Ingibjörg Pálmadóttir al- þingismaður, Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir upplýsingafulltrúi Tryggingastofn- unar rlkisins, og Halldór Jónsson héraöslæknir. Sigríður J. Ragnar Fædd 26. júní 1922 Dáin 10. mars 1993 Hér var sú er hugprúð lagði hiklaust á hinn bratta tind. Æðrumæli engin sagði, ókvíðin við fljót sem lind. Og sem hafði að gfírbragði austanheiðríkjunnar vind. (Ketill Indriðason) Austanheiðríkjan er kær þeim, sem hafa alist upp í sveitum Þing- eyjarsýslu. Aðaldælir sáu hana vaka undir frá Grísatungufjöllum, suður um Lambafjöll til heiðanna er skilja að Mývatnssveit og Aðal- dal. Birta hennar boðaði góðviðri. Hún lyfti gráum þokufeldinum og regnþrungnum skýjum hærra og hærra, og greiddi veg vermandi sólar. Birta og léttleiki austanheiðríkj- unnar einkenndi svip og fram- komu Sigríðar vinkonu minnar. Hún átti líka æsku og uppvaxtarár f Mývatnssveit og fjallahringurinn þar á fáa sína Iíka. Fundum okkar bar saman „í faðmi fjalla blárra" fyrir rúmum 20 árum. Ég var stödd á ísafirði og hitti á götu séra Sigurð Kristjánsson prófast. Við tókum tal saman og hann spurði mig hvort ég þekkti Sigríði J. Ragnar. Ég kvað nei við. „Komdu þá heim með mér, ég á von á henni í kvöld.“ Ég þáði boðið og eftir nokkra stund kom Sigríður. Hún var í áköfum samræðum við hús- móðurina, Margréti Hagalínsdótt- ur, og Ieyndi sér ekki að þar var engin hálfvelgja í samræðum. Málefninu hef ég gleymt, en svip Sigríðar, áhuganum og léttleikan- um í fasi hennar og svo gleðinni yfir að hitta alls ókunna mann- eskju, þó hún vissi deili á mínu fólki, það man ég og mun ekki gleyma. Þetta var á þeim árum sem Lax- árdeilan stóð sem hæst og þeim hjónum Sigríði og Ragnari Hjálm- arssyni frá Ljótsstöðum í Laxárdal var heitt í hamsi. Skoðanir okkar voru mjög samhljóma og eftir þessi fyrstu kynni átti ég vinum að mæta og sat mig sjaldnast úr færi með að líta inn á Smiðjugötu 5, þegar ég kom til ísafjarðar, enda eins og að koma í foreldrahús. Það var tæpast hægt að tala um annað hjónanna án þess að nefna hitt og mér virtust þau mjög samstiga og samhent, og gagnkvæm virðing, traust og umhyggja einkenndu hjónaband þeirra og saman unnu þau stórvirki f tónlistar- og menn- ingarlífi ísfirðinga. Það verður lengi í minnum haft og Sigríður dóttir þeirra hefur tekið upp merki þeirra á því sviði. Barnung stóð ég við hlið föður míns á Fjallshnjúk og hlýddi á nöfn þeirra kennileita er blöstu þar við augum. Grímsey var lengst í norðri. Bárðarbunga og Dyngju- fjöll í suðri, ef skyggni var mjög gott. í suðaustri risu Mývatnsfjöll, Reykjahlíðarhyrna, Bláfjall og Sel- landafjall. Ég fékk líka að heyra um nálægar sveitir og bæi þar. í Mývatnssveit voru það nöfn eins og Arnarvatn, Skútustaðir, Grænavatn og Gautlönd. Frá Gautlöndum stafaði ljómi af nöfnum þeirra er þar höfðu alið aldur sinn og barist fyrir frelsi, er þá var talið öllu æðra. Frelsi til að ráða sínu landi, án fyrirskipana annarra þjóða. Frelsi, innlendrar verslunar og siglingar eigin skipa undir íslenskum fána. Menntun þjóðarinnar og uppbygging, rækt- un lands og lýðs. Þar réðu þau gildi, sem nú eru talin lítils virði af skammsýnum ráðamönnum í dag. Þetta var arfleifð Sigríðar J. Ragnar. Hún fæddist á Gautlönd- um 26. júní 1922. Frá 1848 bjó þar sama ættin. Jón Sigurðsson al- þingismaður og Sólveig Jónsdótt- ir, síðan Pétur Jónsson alþingis- maður og Þóra Jónsdóttir, afi og amma Sigríðar, og foreldrar henn- ar Jón Gauti Pétursson og Anna Jakobsdóttir. Frá Gautlöndum var líka Kristjana Pétursdóttir, föður- systir Sigríðar, sem var fyrsta for- stöðukona Húsmæðraskólans á Laugum og stjórnaði honum til dauðadags. Sigríður lauk gagn- fræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1939 og hún giftist Ragnari H. Ragnar 1945. Hann varð skólastjóri tónlistarskólans á ísafirði 1948 og andaðist 1987. Börnin urðu þrjú: Anna Áslaug, Sigríður og Hjálmar. Þau Sigríður og Ragnar urðu góðir og gegnir ísfirðingar, en heimaslóðirnar fyr- ir norðan gleymdust ekki og þang- að fóru þau flest sumur. Þar voru þeirra sólarstrendur. Ein af fáum fær að berjast, fremst í röð, þar mest lá við. Örugg jafnt að vaka og verjast vina sinna fast við hlið. (K.I.) Þessar hendingar áttu vel við Sig- ríði, hún gaf sig alla og af heilum hug og baráttugleði, hverju því málefni sem hugann hreif. Henni var fátt mannlegt óviðkomandi. Hún hóf kennslustörf í Barna- skólanum á ísafirði 1957 og kenndi þar óslitið meðan kraftar entust. Kennarastarfið var henni hjartfólgið. Hún var metnaðarfull BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIDÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar UTBOÐ Hálfdán III Vegagerð rlkisins óskar eftir tilboðum I ný- lagningu Bíldudalsvegar á Hálfdáni I Vestur- Baröastrandarsýslu. Helstu magntölur: Bergskeringar 10.000 m3, fýllingar og fláafleygar 124.000 m3 og neðra burðariag 11.700 m3. Lengd vegarkafla 5,8 km. Verki skal lokið 1. nóvember 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkis- ins á Isafirði og I Borgartúni 5, Reykjavlk (að- algjaldkera), frá og meö 22. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fýrir kl. 14:00 þann 5. aprll 1993. Vegamálastjóri UTBOÐ Suðurlandsvegur — Vestur- landsvegur, Áfangi I Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum I jarðvinnu við Suðurfands- og Vesturiands- veg milli Rauðavatns og Höfðabakka, gerð vegamóta þessara vega og gerö hljóð- mana og rofvarna I Reykjavík. Helstu magntölur: Fyllingar og burðariög 138.000 m3, skeringar I laus jarðlög 145.000 m3, skeringar í berg 154.000 m3, malbik 5.300 m2, regnvatnslagnir 3.000 m, hljóömanir 35.000 m3 og rofvamir 65.000 m3. Fyrsta áfanga verksins skal lokiö 11. júní 1993, en verkinu skal aö fullu lokið 29. apr- í| 1994. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald- kera), frá og með 23. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 5. april 1993. Vegamálastjóri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.