Tíminn - 20.03.1993, Side 8
8 Tíminn
Laugardagur 20. mars 1993
„LýöfræðHegur dómsdagur“ sagður yfirvofandi:
Bálför í Indlandi: trúarbrögö
valda miklu um fólksfjölgun.
Mannkyninu fjölgar hraðar en nokkru sinni fyrr. í Afríku sunn-
an Sahara fjölgar fólki þessi árín hraðar en nokkru sinni áður
þar í álfu eða í nokkrum heimshluta öðrum. Þau met verða
slegin þegar á þeim fáu árum, sem eftir eru til aldamóta. Á þeim
fjölgar mannkyninu, sem nú telur um 5,5 milljarða, um millj-
arð. Það er nokkru meira en íbúafjöldi Indlands í dag.
Fyrir 40 árum voru einstaklingar af
tegundinni homo sapiens „aðeins“ 2,6
milljarðar. Þeim hefur sem sé fjölgað
um rúman helming síðan. Og fjölgun-
arhraðinn verður sífellt meiri. Sam-
kvæmt einni spá, sem margir kalla
bjartsýniskennda um of, verða á jörð-
inni árið 2025, eftir rúm 30 ár, um 8,5
milljarðar af manneskjum. Sumra mál
er að fyrirsjáanlegt sé að mennimir
verði innan skamms (á næstu áratug-
um, á næstu öld) orðnir 12 eða 14
milljarðar.
Örast í Afríku
Spár þessar eru frá lýðfræðingum, fé-
lagsfræðingum og öðrum fræði- og
vísindamönnum með víðtækar rann-
sókniraðbaki.
Fjölgunin er og verður svo til öll hjá
þjóðum á syðri hluta hnattarins, í
þriðja heiminum svokallaða, og mest
þar sem síst eru möguleikar á að fram-
fleyta fleira fólki. Örast fjölgar Afríku-
mönnum, svo sem fyrr segir, þar næst
íbúum Suður-Asíu og Rómönsku Am-
eríku, í Austur-Asíu hefúr verulega
dregið úr fjölgun og hjá þjóðum norð-
urheims er nú ffekar um að ræða
fækkun en Qölgun. Árið 2025 verða
íbúar syðri hluta hnattarins 85% allra
fbúahans.
Fæðingum að tiltölu við fólksfjölda
hefur að vísu fekkað talsvert síðan á
sjöunda áratug, miðað við heiminn í
Dagur
Þorleifsson
skrifar jlfi
heild, en jafrível þótt þeim fekkaði á
næstunni miklu meira breytti það litlu,
segja sérfræðingar. Vegna þess að fiöldi
fólks á besta getnaðaraldri er orðinn
svo mikill í þriðja heiminum. Spáð er
að ekki fyrr en einhvemtíma á næstu
öld muni feðingartalan í heiminum
sem heild hafa lækkað niður í það sem
hún er í dag. Sú tala þykir flestum mik-
ilstilofhá.
Fræðimenn em efins um að jörðin
þoli þetta álag og margir þeirra telja
það útilokað. Með það í huga kallar
Paul Ehrlich, þekktur bandarískur
mannfræðingur, fólksfjölgunarspreng-
inguna B-bombu (kjamasprengjur em
gjaman kallaðar A-bombur). Oft hefur
fyrir komið að vissar dýrategundir hafa
stofríað lffsbjargarmöguleikum sínum
í hættu með mikilli fjölgun. En aldrei
fyrr hefur ein dýrategund stofríað ekki
aðeins sjálfri sér í hættu með offjölgun,
heldur og gervöllu lffríkinu, eins og
maðurinn gerir nú, segir Thomas Kes-
selring, heimspekiprófessor í Bem.
Afganistan: tvöföldun á
11 árum
Sem dæmi um kraft B-bombunnar
segir þýska vikuritið Der Spiegel að
nú sé búið að gefa upp þá „óskamm-
feilnu von“ að alnæmið hægi að ráði
á fjölguninni í Afríku.
Dæmi: í Afganistan er allt í flagi eft-
ir hálfs annars áratugs stríð, en ekki
hefur það fengið meira á landsfólkið
en svo að árleg fæðingatíðni er þar
6,7%, sem þýðir að með sama áfram-
haldi verða landsmenn búnir að
fiölga sér um helming eftir ellefu ár.
Ibúar Indlands eru nú um 864 millj-
ónir, en verða líklega árið 2025 um
1440 milljónir og þá hugsanlega
orðnir fleiri en Kínverjar, sem þó eru
nú um 1200 milljónir og fjölga sér
árlega um 16 milljónir. fbúar Kenýu
eru nú um 22 milljónir og verða lík-
lega orðnir helmingi fleiri eftir 17 ár.
Frá því að Khomeini kom til valda í
íran hefur landsmönnum þar fjölgað
úr 36 milljónum í um 60 og við
munu bætast um 14 milljónir til
aldamóta.
Afleiðingar fyrir umhverfið? Af þeim
má nefría vaxandi gróðurhússáhrif
og hraðvaxandi notkun á hráefnum
sem ekki er hægt að endurnýja. Enn
verr verða úti auðlindir, sem til þessa
hefur verið talið fært að endumýja,
akurlönd og haglendi, vatn og viður.
Nú þegar er notkunin á þessu meiri
en svo að hægt sé að bæta hana upp.
Vatnsskortur vegna ofnotkunar, sem
aftur stafar af því að fólkið sem notar
vatnið er orðið of margt, er þegar
orðið alvarlegt vandamál víða um
heim. Sérstaklega í Afríku ogAustur-
löndum nær er hætta á að vatnið (Ld.
í Efrat og Tígris sem Tyrkir, írakar og
Sýrlendingar deila um) valdi stríð-
um. Á helmingi þurrlendis jarðar er
ekki lengur nóg vatn. Á norðurhluta
hnattarins er hinsvegar víðast nóg af
því.
Bömin ellitrygging
Verst er það þó með skóginn. 70%
allra íbúa þriðja heimsins nota við til
að sjóða og hita upp. Til þeirra þarfa
fóm 1987 um 86% þess viðar, sem
það ár var notaður í hitabeltinu, að
sögn Matvæla- og landbúnaðarstofrí-
unar Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Sérfræðingar á vegum S.Þ. segjast
hafa reiknað út að B- bomban sé völd
að 79% allrar eyðingar skóga. Skóg-
areyðingu fylgir uppblástur og þann-
ig glatast árlega 25 milljarðar smá-
lesta af góðum jarðvegi.
Um eftirfarandi orsakir til fjölgunar-
innar em sérfræðingar á þessum
vettvangi til þess að gera sammála:
1. f þriðja heimi er litið á böm nokk-
uð öðmm augum en í iðnvæddum
löndum. í þróunarlöndum mörgum
telst það manndómsmerki, ekki síst í
Fólksfjölgunarsprenging
Hl
Norður- }
Ameríka:
I
** '■ 3 T : •4 ya*a . /
-r '■*- - , - l ^ ^ V
r r ittttp>
í Evrópa
iiti
Suöur-
Ameríka
I = 100 millj. manna 1990
iMX-
Viðbót til 2025
ttl
| Frv.
, USSR
tl
tiiii
Afríka )
J f
f í
j* j
L->
iii
ititt
iitti
ííííí
1 Asía
■*# *
A
•S
4
iti
tiiii
iitii
Austur-
<£ Asía
f !
$ I Eyjaálfa
>