Tíminn - 10.03.1995, Page 3
Föstudagur 10. mars 1995
3
Framtíö Fagraness og Djúpbátsins hf. í óvissu. Ríkisstyrkur afnuminn
um nœstu áramót og skuldir um 40 milljónir:
Framtíðin ræöst að
afloknum kosningum
Engilbert Ingvarsson, stjórn-
arformabur Djúpbátsins hf.,
sem gerir út ferjuna Fagranes
ÍS, segir aö það verbi trúlega
ekkert farið að ræöa um fram-
tíð ferjunnar fyrr en að af-
loknum þingkosningum. Á
meöan tekur stjóm fyrirtækis-
ins því rólega, enda erfitt aö
koma á fundum um málefnið
í þeirri ófærð sem er þar
vestra.
„Þeir eru nú búnir að sitja
saman þeir Halldór Blöndal og
Sighvatur í fjögur ár og það hef-
ur lítið gerst á þeim tíma. Þann-
ig að ég geri ekki ráö fyrir að þeir
geri mikið á þeim tíma sem þeir
eiga eftir," segir Engilbert.
Hann segir að það eina sem sé
nokkurn veginn handfast af
hálfu ríkosins sé að styrkur þess
til útgerðarinnar muni falla nið-
ur um næstu áramót. Ef það
gengur eftir og ekkert annað
kemur í staðinn, þá muni rekst-
urinn fara „lóðbeint á haus-
inn". í þeirri stöðu sé einnig
óvíst hvað verður um skuldir
fyrirtækisins sem nema um 40
milljónum króna. Sú upphæð er
álík þeirri sem hefur veriö á fjár-
lögum undanfarinna ára vegna
ferjubryggja við Djúp, án þess
að nokkuð hafi gerst í þeim efn-
um.
Málefni Djúpbátsins hf. komu
til umræðu á lokadögum þings-
ins þegar stjórnarliðar í sam-
göngunefnd fengu því fram-
gengt að afnuminn yröi styrkur
ríkisins til ferjunnar og þess í
stað yrði lögð áhersla á upp-
byggingu Djúpvegarins. í tillög-
um stjórnarliða var einnig gert
ráð fyrir að Slysavarnaskóli sjó-
manna fengi að nota skipiö
undir starfsemi sína hluta úr ári.
Skiptar skoðanir eru hinsveg-
ar mebal íbúa á noröanverðum
Vestfjörðum til þessa máls en
stærstu hluthafar í Djúpbátnum
hf. eru sveitarfélög og einstak-
lingar þar vestra. Hinsvegar
mun ríkið ekki eiga neitt í fyrir-
tækinu. Þeir sem eru andvígir
þessum breytingum á rekstri
ferjunnar telja að Fagranesið
hafi þegar sannað öryggisgildi
sitt í vetur en skipið var m.a.
notað sem stjórnstöð við leit og
björgun þegar snjóflóbin féllu í
Súðavík í byrjun ársins. Þá hefur
skipið nánast verið það eina
sem tengt hefur saman byggðar-
lögin þar vestra í vetur vegna
ófærðar bæði á landi og lofti.
Stuðningsmenn benda hinsveg-
ar á mikilvægi þess ab ráðist
verði af krafti í uppbyggingu
Djúpvegarins og telja að tími
ferjunnar sé einfaldlega liðinn í
ljósi þeirra breytinga sem orðið
hafa á búsetu manna við Djúp.
Á móti hefur verið bent á að
skipið hefur gegnt mikilvægu
hlutverki í feröaþjónustu á
svæðinu yfir sumarið og því
þurfi að fá nýtt skip til þess ef
ferjan verður ekki lengur til
taks. Engilbert segir ab menn
séu ekkert farnir að spá í þá
hluti og telur að það muni ekki
samrýmast samkeppnislögum
að ríkisstyrkt útgerb komi ná-
lægt slíkri þjónustu.
Undir sama þaki
Þab hefur vakib athygli vegfarenda á Lœkjartorgi ab þar eru skrifstofur
Framsóknarflokks og Sjálfstœbisflokks undir sama þaki. Hafa gárungarnir
sagt ab þetta sé gert til ab aubvelda fyrir stjórnarmyndunarvibrœbum eft-
ir kosningar. Ekki verbur neitt um þab sagt hér, enda eiga kjósendur eftir
ab kveba upp sinn dóm yfir frambjóbendum og flokkum og því ekki nokk-
ur vegur ab segja til um samsetningu næstu stjórnar. Tímamynd GS
Heilbrigöiseftirlit Reykja-
víkur gefur út upplýs-
ingabœkling um:
Flest sem eig-
andi hunds
þarf að vita
„Þessi bæklingur er ætlaöur
þeim sem eiga hund eöa ætla
að fá sér hann. í bæklingn-
um er að finna upplýsingar
um flest þaö sem hundaeig-
andi í Reykjavík þarf að vita
um hundahald, skyldur sínar
gagnvart meðborgurum og
yfirvöldum, umhirðu og
meðferö hunda, útivistar-
svæði þeirra og fleiri," segir
Heilbrigðiseftirlit Reykjavík-
ur í inngangi nýs bæklings
sem þaö hefur gefib út meö
hliðsjón af bæklingi starfs-
bræðra sinna í Stokkhólmi.
Bæklingurinn fjallar um
skyldur hundaeigenda, ein-
veru hunds, fóðrun, umhirðu,
þrif, taumskyldu, bannsvæði
(sem eru fjölmörg, m.a. mið-
bærinn, Öskjuhlíðin og Elliöa-
árdalur), hund í fjölbýlishúsi,
lausan hund, hundsbit, hund í
bíl, leyfisgjald, tryggingar,
veikindi, einangrun og hunda-
hótel. í bæklingnum er einnig
að finna kort yfir þá rúmlega
20 staði í borgarlandinu þar
sem sérstökum ílátum fyrir-
hundaskít hefur verið komið
fyrir. fyrir. ■
Meöan talaö er um kaup á flotkvíum fyrir hundruö milljona króna kostar 7 milljónir aö koma
fullbúinni skipasmíöastöö í Garöabce í gagniö. Sœvar Svavarsson, framkvœmdastjóri í
Norma, er svartsýnn á atvinnumál í Reykjaneskjördcemi:
Kannski sjáum við sveltandi
böm hér á næstu ámm
Á sama tíma og fjárfest er
fyrir hundrub milljóna
króna hjá illa stæöum fyrir-
tækjum í skipasmíðaiönaði á
Akureyri og væntanlega
einnig í Hafnarfirði, stendur
fullbúið mannvirki viö Arn-
arvog í Garbabæ tilbúið að
taka vib allt aö 3.000 tonna
skipum til viðgeröa og breyt-
inga. Tíminn hefur greint frá
málefnum Norma hf. áður.
Þar vantar 7 milljónir króna
til aö dýpka innsiglingu að
fyrirtækinu, sem væri þá til-
búib að taka við skipum í
viðskipti. Hvorki ríki né bær
vilja nálægt málinu koma.
„Við höfum haldið okkur
mikið til frá skipabransanum
þar sem við erum ekki í stakk
búnir að taka skipin upp á
land, en hér er flest til reiðu að
þjónusta skipaflotann," sagði
Sævar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Norma hf. í
gærdag.
Sævar sagði að það gætti viss
kvíða hjá skipstjórum ab sigla
Félagsmálarábherra skipar hóp til tillöquqerbar um
starfsmat:
Starfsmat í haust
Starfshópi, skipuðum af félags-
málaráðherra, hefur verið falið
það hlutverk að safna upplýs-
ingum um og vinna að tillögum
um starfsmat, sem drægi úr
launamun karla og kvenna.
Rábgert er að hópurinn afli sér
upplýsinga erlendis frá, þar sem
starfsmat hefur verið unnið í
þessum tilgangi. Skýrslu skal
skilað í október. Starfshópinn
skipa hagfræðingarnir Ari
Skúlason frá ASÍ, Vigdís Jóns-
dóttir frá BHMR og Rannveig
Sigurðardóttir frá BSRB ásamt
Gunnari Bjömssyni deildar-
stjóra frá fjármálaráöuneyti og
Elsu Þorkelsdóttur frá Jafnréttis-
ráði, sem jafnframt er formaður
hópsins. ■
inn á Arnarvoginn vegna
grynninga sem moka þyrfti
burtu. Það er verkefni hins op-
inbera að sjá um að haffært sé
ab Garðabæjarhöfn.
„Ég vona að framvindan
veröi sú að við komum þessu
upp. Þab gæti orðið næsta
haust að við komum skipum
hingað upp," sagði Sævar.
Hann sagði ab hans fyrirtæki
hefði aldrei þegið eitt eða neitt
af því opinbera, öfugt vib þau
fyrirtæki sem hann keppi við.
Þurrkvíafyrirtækin stæðu mun
hallari fótum og væru styrkt í
bak og fyrir af almannafé.
„Eins og stefnir núna þá
virðist allur kvóti vera að
hverfa úr Reykjaneskjördæmi.
Þetta er ekki vegna þess að þeir
fyrir norðan séu svona kjark-
miklir og duglegir. Það er
bankakerfið og pólitíkin sem
miðstýra þessum peningum.
Það lítur illa út í þessu kjör-
dæmi. Vanskil á öllum sviðum
eru meiri hér en annars staðar.
Þab segir okkur að ástandið er
ekki beysið og lítið gert í at-
vinnumálum. Ef þetta heldur
áfram stefnir í óskaplegt at-
vinnuleysi á næstu árum í
Reykjaneskjördæmi, það gæti
orðiö 30% ef ekki verður að
gert. Kannski sjáum við svelt-
andi börn á þessu svæði á
komandi árum. Ég vona svo
sannarlega aö svo verði ekki,"
sagði Sævar.