Tíminn - 10.03.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.03.1995, Blaðsíða 8
Föstudagur 10. mars 1995 s Náttúrulagaflokkurinn - nýr og allt ööru vísi stjórnmálaflokkur œtlar inn á Alþingi. Jón Hall- dór Hannesson framkvœmdastjóri í efsta sœti í Reykjavík: „Samstilling okkar á íslandi mætti vera meiri" Flokkur meb sérkennilegt nafn og frumlega stefnuskrá, Nátt- úrulagaflokkur íslands, ætlar ab bjóba fram lista vib alþing- iskosningarnar 8. apríl næst- komandi. Flokkurinn nálgast þjóbfélagsvandamálin á ný- stárlegan hátt og hyggst leysa vandamál samfélagsins meb vísindalega sannprófubum leibum til ab bæta heilsu, auka sköpunarmátt, leysa vandamál í fæbingu meb því ab eyba streitu úr samvitund þjóbar- innar. Efsti mabur á lista Nátt- úrulagaflokksins er Jón Hall- dór Hannesson, 42 ára fram- kvæmdastjóri lítillar ferba- skrifstofu, Island Direkt, sem annast móttöku erlendra ferbamanna á sumrin. Jón Halldór er fæddur og upp- alinn Kópavogsbúi, sonur hjón- anna Hannesar Jónssonar, fé- lagsfræbings og sendiherra ís- lands í Moskvu til margra ára, og konu hans, Karinar Waag frá Færeyjum. Jón Halldór nam heimspeki vib Stirling háskóla í Skotlandi og lauk BA-prófi þaban og síbar prófi í uppeldis- og kennslufræbum vib Háskóla ís- lands. Hann hefur samib bók um innhverfa íhugun og þýtt bókina Holl er hugarró. Alvöruframbob „Þetta er alvarlegt frambob. Vitund okkar einstaklinganna ræbur lífi okkar og samvitundin eba hugur samfélagsins stýrir í raun samfélaginu. Vib teljum okkur geta komib ýmsu góbu til leibar," sagbi Jón Halldór í sam- tali vib Tímann í gær. Hann seg- ir ab Náttúrulagaflokkurinn stefni ab því ab leysa vandamál Jón Halldór Hannesson. samfélagsins meb vísindalega sannprófubum abferbum til ab bæta heilsu, auka sköpunarmátt og leysa úr læbingi í fæbingu ýmis vandamál meb því ab eyba streitunni úr samvitund þjóbar- innar. Lögb er áhersla á ab koma á fót svoköllubum samstillingarhópi sem noti vitundaraöferb sem kallast TM- shidi kerfiö. „Sam- stilling okkar á íslandi mætti vera miklu meiri," segir Jón Hall- dór Hannesson. Meöal atriba í stefnuskrá hins nýja flokks má nefna aö hann vill bæta heilbrigbisþjónustu en jafnframt draga úr sjúkdómum um 50% meb náttúrulækningum og náttúrulegum forvörnum. í tryggingakerfinu geti menn valib á milli náttúrulækninga og hefb- bundinna lækninga. í menntamálum vill flokkur- inn leggja áherslu á vitund nem- andans sem gmndvöll alls náms. í efnahagsmálum telur flokkur- inn ab meö aöferðum sínum megi leysa vandamálin á fmm- stigi og spara helming ríkisút- gjalda. Þab megi lækka skatta án þess að draga úr þjónustu. Skap- andi kraftur þjóðarinnar sé í hættu vegna ofsköttunar. Vandi atvinnuvega og lág laun á íslandi telur flokkurinn ab stafi af skoti á sköpunarhæfni at- vinnurekenda og launafólks. Heföbundnir stjórnmálaflokkar viðhafi innantóm orö, en Nátt- úmlagaflokkurinn bendi á leiðir til ab auka skapandi greind ein- staklingsins. TM-hugleibsla gegn glæpum Náttúmlagaflokkurinn telur að stöðva megi glæpi með því að skapa andrúmsloft þar sem af- brot þrífast ekki, alþjóblegar rannsóknir sýni að það sé hægt. TM-hugleiðslu megi virkja í end- urhæfingu síbrotamanna og sú aðferð hafi hentab vel vib endur- hæfingu áfengis- og eimrlyfja- sjúklinga þar sem tvisvar til þrisvar sinnum betri árangur hefur nábst en með öðmm ab- ferðum. „í raun og vem ráðast framfar- ir og velgengni þjóbar ekki af dug ríkisstjórnarinnar heldur af vimndarstigi fólksins. Því er að- alstefnumál Náttúmlagaflokks- ins að hækka vitundarstig þjóð- arinnar," segir Jón Halldór Hannesson. „Viö stybjum það að allur landbúnaður verbi lífrænn og öll úrvinnsla matvæla. Við teljum að sjúkdómum megi fækka með- al annars með slíkri rækmn, notkun jurtalyfja og TM-hug- leiðslu," segir Jón Halldór. Þessar aðferðir hafi verið reyndar víða um heim, meðal annars í Japan, og það með stórkostlegum ár- angri, einkum innan fyrirtækj- anna. „Aubvitaö er gert grín.." „Við vimm að framboð okkar vekur athygli. Auðvitað er gert svolítið grín að okkur af sumum. Við gemm okkur grein fyrir því ab fyrst verður hlegið svolítib, svo verðum við gagnrýnd þegar menn uppgötva ab við fömm meb rétt mál. Að lokum munu flokkarnir halda því fram að þeir hafi nú reyndar alltaf haldið þessu fram!" sagði Jón Halldór Hannesson í gær. Átta efstu á fyrirhuguðum lista Náttúmlagaflokksins em: 1. Jón Halldór Hannesson fram- kvæmdastjóri 42 ára; 2. Örn Sig- urðsson kerfisfræbingur 30 ára; 3. Ingimar Magnússon garð- yrkjumaður 36 ára; 4. Edda Kaa- ber bókavörbur 63 ára; 5. Halldór Birgir Olgeirsson vélstjóri 63 ára; 6. Rúna Björg Garðarsdóttir leib- sögumabur 23 ára; 7. Árni Sig- urðsson jarðeðlisfræðingur 39 ára; 8. Guðjón Björn Kristjáns- son framkvæmdastjóri 34 ára. ■ Framadagar í Háskólanum Svokallabir Framadagar eba „starfsframadagar" voru haldnir íHáskólanum sl. föstudag. Þrjátíu fyrirtœki og stofnanir kynntu þarstarfsemi sína og möguleika ungra háskólakandídata á framtíbarstarfi. Mikill fjöldi náms- manna sótti Framadagana, sem þóttu takast mjög vel. Ljósm. g.t.k. Mikil aösókn í ráögjöf og leiöbeiningar um „hreingerningu í fjár- málum fjölskyldunnar": Fimmta hver fjölskylda meö neimilis- bókhald „Undirtektir hafa verib all- deilis frábærar. Ég bókabi 120 manns á fjármálanámskeib fyrsta daginn og vib þurftum ab bæta vib aukanámskeibi á þribjudaginn. Nú eru abeins þrjú pláss laus þab sem eftir er vikunnar," sagbi Eiríkur Gub- jónsson í fræösludeild Búnab- arbankans abspurbur um hvernig fólk hafi brugbist vib þeirra tilbobi um abstob vib hreingerningu í fjölskyldufjár- málunum. Hugmyndina um að halda heimilisbókhald og ná þannig skipulegum tökum á fjármálum segir hann meðal þess sem kennt er á námskeiðunum, enda finni fólk þörfina. Og heimilis- bókald. er kannski útbreiddara en ýmsir kunna að ætla. „Af því fólki sem kemur til okkar er u.þ.b. fimmti hver sem þegar heldur heimilisbókhald," segir Eiríkur. Símalínur hafa einnig veriö glóandi hjá Neytendasamtök- unum, Húsnæðisstofnun og öbrum bönkum og sparisjóðum sem einnig buðu fólki upp á að- stoð og leiöbeiningar til ab koma fjármálum heimilanna á rétt ról. Mikill fjöldi fólks hefur leitab aðstoðar þessara stofnana og tugir starfsmanna sinna nú eingöngu þessari starfsemi, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Samstarfsnefnd um greiðslu- vanda heimilanna. Eiríkur segir þaö m.a. hafa komið nokkuð á óvart hversu blandaður hópur hafi sótt fjár- málanámskeibin hjá Búnaðar- bankanum, bæði hvar varðar aldur, tekjur og fleira. „Þannig að þetta er greinilega eitthvað sem hefur slegið í gegn." Tilboð um ókeypis námskeið þessa viku eigi sjálfsagt stærstan þátt í því hversu absóknin hefur verið gríðarleg, en sýni jafnframt að þörfin sé mikil og áhuginn fyrir hendi. Námskeiðin í þessari viku byggir Búnaðarbankinn á reynslu af námskeiðum í svip- uöum dúr, sem hann hefur bob- ið upp á áður, nema þau hafa staðib í tvö kvöld og þátttakendur verð að greiða fyrir þau. Gjaldið hefur verið 1.900 til 2.500 kr. með fjármála- handbók innifalinni. Margir hafa undanfama daga rekið upp stór augu yfir auglýs- ingum Búnaöarbankans þar sem sýnt er fram á hvab ýmsir „litlir" ávanar geta kostað mikið á heilu ári. Það kostar t.d. 195.000 kr. á ári reyki hjón (eða kannski tveir auralitlir skólanemar) 2 pakka af sígarettum á dag. Fjölskylda sem kaupir skyndi- bita, sælgæti og gos fyrir um 400 kr. á dag fer meb 146.000 kr. á ári í þann lið einan. Og panti hún sér pizzu og leigi myndbandsspólu einu sinni I viku kostar það 125.000 kr. á ári. Geri fjölskylda þetta allt saman kostar það 466.000 kr. á ári (38.800 kr. á mánubi). En til þess að hafa þær 466.000 kr. til ráðstöfunar (eftir stabgreiðslu, lífeyrissjóð og félagsgjald) þarf hún nærri 850.000 kr. viðbótar- tekjur, eða um 70.000 kr. á mán- uði til að vinna fyrir þessum út- gjaldalibum einum saman. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.