Tíminn - 10.03.1995, Blaðsíða 11
Föstudagur 10. mars 1995
WíHWftt - ALÞINCISKOSNINCARNAR 1995
11
Runólfur Ágústsson, Þjóövaka:
Erum trygging fyrir
félagshyggjustjóm
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Sérstaða framboðs Þjóðvaka
í öllum kjördæmum er sú að
við göngum bundin til kosn-
inga í þeim skilningi að við er-
um bundin gagnvart okkar
kjósendum af okkar stefnu-
skrá. Þess vegna útilokum við
stjórnarsamstarf með Sjálf-
stæðisflokknum. Þeir félags-
hyggjuflokkar sem „ganga
óbundnir til kosninga" eru í
raun að áskilja sér rétt til að
svíkja sína stefnu strax að
kosningum loknum og ganga í
sæng með íhaldinu.
Slíkt stjórnarmyhstur verbur
aldrei í anda félagshyggju.
Þetta geröist með stjórnar-
myndun Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks eftir síðustu
kosningar og nú er sú staða
uppi að félagshyggjuflokkarn-
ir standa í bibröð við dyr Dav-
íðs. Þannig hafa framsóknar-
menn á Vesturlandi enga vissu
fyrir því að með því að kjósa
Framsóknarflokkinn séu þeir
ekki í raun ab kjósa yfir sig
Davíð Oddsson sem forsætis-
ráðherra. Þvert á móti benda
ýmsar yfirlýsingar Halldórs
Ásgrímssonar til þess að hugur
hans standi í þá átt ab leiða
Framsóknarflokkinn í hægri-
stjórn undir forystu hins fyrr-
nefnda.
Jafnaðar- og samvinnu-
menn geta hins vegar lagt sitt
lóð á vogarskálar félags-
hyggjustjórnar meb því að
kjósa eina stjórnmálaflið sem
útilokar samstarf við Sjálf-
stæðismenn. Þjóðvaki er
þannig eina tryggingin fyrir
slíkri stjórn aö afloknum
kosningum.
Hvert er helsta baráttumálið?
Helsta baráttumál Þjóðvaka
er uppstokkun á úreltu flokka-
kerfi. Flokkakerfi sem flestir
telja að skili íslensku félags-
hyggjufólki litlu og valdi bein-
línis áhrifaleysi þeirra hér-
lendis.
Jafnframt uppstokkun í
stjórnmálum þarf að leggja
grunn að nýrri stjórnarstefnu
sem felur í sér jöfnuð, réttlæti
og afkomuöryggi fyrir alla
þegna landsins. Við viljum
tekjutengja persónuafslátt
þannig að hann hækki í 67
þúsund krónur. Tillögur okkar
samsvara 4% launahækkun
hjá fólki sem er með tekjur
undir 80 þúsund krónum á
mánuði. Við viljum koma á
fjármagnstekjuskatti, stór-
eigna- og hátekjuskatti og ná
þannig 2 miljörbum árlega í
skatttekjur. Við viljum ná inn
öðrum 2 miljörðum árlega
með herferð gegn skattsvik-
um. Skattastefna okkar felur
þannig í sér skattalækkun á
lágtekjufólkið, en skattahækk-
un á þá sem háar tekjur og
miklar eignir eiga. Við viljum
auka framlög til mennta- og
menningarmála um miljarð
á ári næstu átta árin og
standa þá jafnfætis grann-
löndunum.
í atvinnumálum viljum við
gera landbúnaðinn sam-
keppnisfærari með þvi að ráð-
ast gegn ofhlöðnu og óskil-
virku millilibakerfi. Við höfn-
um einkaeignarétti ab óveidd-
um fiski og viljum gera
auðlindir sjávar að ótvíræðri
þjóðareign meb því að taka
upp veiðileyfagjald. Við vilj-
um láta selja allan afla um
fiskmarkaði og efla smábátaút-
gerð.
Hér er aðeins drepið á
nokkrum atriðum úr stefnu
Þjóbvaka. Andstæðingar okkar
hafa sagt að í henni sé fátt
nýtt ab finna. Við ætlum okk-
ur ekki þab ab hafa fundið upp
stefnu jöfnuðar, samvinnu og
samhjálpar. Við ætlum okkur
hins vegar að framkvæma þá
stefnu og hefja þessi grund-
vallarhugtök félagshyggju-
fólks til vegs pg virbingar á ný
í íslensku samfélagi. ■
Hansína B. Einarsdóttir; Samtökum um Kvennalista:
Mikilvægt ab sjónaraiib
kvenna komi fram
Hver er sérstaða þíns fram-
boðs og hvert er helsta baráttu-
málið?
Sérstaða Kvennalistans felst
fyrst og fremst í því að nýta
hugvit, reynslu og stjórnunar-
hæfileika kvenna til jafns við
karla. Við erum helmingur
þjóðarinnar. Vib leggjum
grundvöllinn ab þjóðfélaginu
með umhyggjusemi, ákvebni
og hlýju. Við eigum líka ab
taka þátt í því ab stjórna þjób-
inni með sömu áherslum. Það
er afar mikilvægt að sjónarmið
kvenna komi fram í allri opin-
berri þjóðfélagsumræðu og að
konur eigi jafnan hlut í allri
ákvarðanatöku.
Helstu stefnumál Kvenna-
listans á VeSturlandi eru at-
vinnu-, skóla-, og umhverfis-
mál ásamt auðvitab málefnum
fjölskyldunnar, svo sem fé-
lagslegri þjónustu, húsnæbis-
og skattamálum.
Við viljum ab byggbarlagið
móti samræmda atvinnumála-
stefnu til framtíðar þar sem
öllum greinum er gert jafnt
undir höfði. Eins og málum
er háttab í dag er starfsgrein-
unum verulega mismunað.
Vaxtarbroddur atvinnulífsins
felst meðal annars í þjón-
ustu og nýjum iöngreinum.
Þessar greinar eiga í dag ekki
neinar sterkar stofnanir sér að
baki.
Kvennalistinn telur að af-
skipti stjórnvalda af atvinnu-
rekstri eigi meðal annars að
felast í því að efla menntakerf-
ib þannig ab það þjóni sem
best atvinnu- og mannlífi á
hverjum stað. Stjórnvöld eiga
að styðja sveitarfélög með því
að veita markvissa aðstoð í
miklu ríkari mæli, svo sem við
markaðssetningu og vöruþró-
un.
Sem dæmi um nýjar greinar
má nefna iðnhönnun, tölvu-
og tæknigreinar.
Einnig má taka til ýmsan
smáiðnað sem hefur farið vax-
andi á undanförnum ámm en
meðal kvenna hafa orðið til
fleiri hundruð störf á allri
landsbyggðinni þar sem þekk-
ing þeirra og hugvit hefur nýst
á því svæði þar sem þær búa. í
iðngreinunum á sér stað vem-
leg nýsköpun.
Þar að auki þarf að efla
tengsl á milli fyrirtækja þann-
ig að framleiðslunýting geti
orbið sem best. Við teljum að
samstarf abila, t.d. í ferðaþjón-
ustu og ýmsum skyldum
greinum, geti orðið til þess að
bæta stöbu fjölmargra. Um
leib og atvinnutækifæmm
fjölgar eykst samvinna og
samstarf og við teljum að
þannig verbi fólk bjartsýnna á
eigin fmmkvæði og mögu-
leika.
■
Vesturland
Alþýöuflokkurinn
1. Gísli Einarsson, alþingismaður.
2. Sveinn Þór Elínbergsson, aöstoðarskólastjóri.
3. Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnmálafræðingur.
4. Guðrún Konný Pálmadóttir, oddviti.
5. Jón Þór Sturluson, hagfræðingur.
6. Hervar Gunnarsson, form. Verkalýðsfél. Akraness.
7. Sigrún Hilmarsdóttir, húsmóðir.
8. Sigurður Arnfjörð Guðmundsson, sjómaður.
9. Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur.
10. Rannveig Edda Hálfdánardóttir, móttökuritari.
Framsóknarflokkurinn
1. Ingibjörg Pálmadóttir, alþingismaður.
2. Magnús Stefánsson, sveitarstjóri.
3. Þorvaldur T. Jónsson, bóndi.
4. Sigrún Ólafsdóttir, bóndi.
5. Ragnar Þorgeirsson, sölustjóri.
6. Sturlaugur Eyjólfsson, bóndi.
7. Halldór Jónsson, héraðslæknir.
8. Gunnlaug Arngrímsdóttir, bóndi.
9. Elín Sigurðardóttir, ljósmóðir.
10. Gunnar Guðmundsson, ráðunautur.
Sjálfstœöisflokkurinn
1. Sturla Böðvarsson, alþingismaður.
2. Guðjón Guðmundsson, alþingismaður.
3. Guðlaugur Þór Þórðarson, háskólanemi
og form. SUS.
4. Þrúður Kristjánsdóttir, skólastjóri.
5. Ólafur Guðmundur Adolfsson, lyfjafræðingur.
6. Hrafnhildur J. Rafnsdóttir, húsfrú.
7. Bjarni Gunnarsson, skipstjóri.
8. Þóra Björk Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
9. Ólafur Gunnarsson, bóndi.
10. Elínbjörg Magnúsdóttir, fiskverkakona. vesturl.gb
Alþýöubandalagiö
1. Jóhann Ársælsson, alþingismaður.
2. Ragnar Elbergsson, verkstjóri.
3. Anna Guðrún Þórhallsdóttir, búfræðikennari.
4. Eyjólfur Sturlaugsson, kennari.
5. Margrét Birgisdóttir, verkakona.
Samtök um Kvennalista
1. Hansína B. Einarsdóttir, framkvæmdastjóri.
2. Sigrún Jóhannesdóttir, lektor við
Samvinnuháskólann Bifröst.
3. Helga Gunnarsdóttir, námsráðgjafi og
forstöðumaður Farskóla Vesturlands.
4. Þóra Kristín Magnúsdóttir, jarðeplabóndi.
5. Ása Sigurlaug Harðardóttir, háskólanemi.
6. Dóra Líndal Hjartardóttir, tónlistarkennari.
7. Sigríður V. Finnbogadóttir, skrifstofumaður.
8. Ingibjörg Daníelsdóttir, kennari og bóndi.
9. Svava Svandís Guðmundsdóttir,
ferðaþjónustubóndi.
10. Danfríður K. Skarphéðinsdóttir, kennari og
fyrrverandi alþingiskona.
Þjóövaki
Listi Þjóðvaka haföi ekki verið lagður fram þegar
blaðið fór í prentun.
Þegar komiö er af vegum meÖ bundnu slitlagi
tekur tíma aö venjast breyftum aöstæðum
FÖRUM VARLEGA!