Tíminn - 10.03.1995, Síða 12
12
Kwilli - ALÞINCISKOSNINCARNAR 1995
Föstudagur 10. mars 1995
VESTFIRÐIR
______________________
Atvinnumál, samgöngumál
og kvótamál vega þyngst
Atvinnumál eru fyrirferbar-
mikil í kosningabaráttunni í
Vestfjaröakjördæmi, líkt og
víöar á landinu, en samgöngu-
málin eru Vestfiröingum jafn-
framt ofarlega í huga. Þéssi tvö
mál ber hæst þegar rætt er um
framfaramál viö hinn almenna
kjósenda fyrir vestan.
Um síöustu kosningar fengu
fimm stjórnmálaflokkar sex
menn kjörna á þing. Þeir eru
Matthías Bjarnason og Einar
Kristinn Guðfinnsson, fyrir
Sjálfstæöisflokk, Ólafur Þ.
Þórðarson, fyrir Framsóknar-
flokk, Kristinn H. Gunnarsson,
fyrir Alþýðubandalag, Sighvat-
ur Bjögvinsson, fyrir Alþýðu-
flokk og Jóna Valgeröur Krist-
jánsdóttir, fyrir Kvennalista.
Á framboöi Sjálfstæöisflokks-
ins veröa þær breytingar núna
aö Matthías Bjarnason lætur af
þingmennsku vegna aldurs og
Einar Kristinn verður í fyrsta
sæti í hans staö. Guöjón A.
Kristjánsson færist úr þriöja
sæti listans í það fjóröa. Einar
Oddur Kristjánsson kemur nýr
inn í annaö sætiö og Ólafur
Hannibalsson, blaöamaöur í
Reykjavík skipar þaö þriðja.
Nokkrar breytingar verða
sömuleiðis á lista Framsóknar-
flokksins. Ólafur Þ. Þórðarson,
alþingismaður, tók ekki þátt í
prófkjöri flokksins í vetur
vegna veikinda. í hans stað var
kjörinn Gunnlaugur M. Sig-
mundsson, framkvæmdastjóri
í Reykjavík, en hann barðist
um fyrsta sætiö við Pétur
Bjarnason, varaþingmann Ól-
afs. Pétur hafnaöi ööm sæti á
listanum og ákvað aö bjóða
fram sinn eigin lista. Annar
maöur á lista hjá Pétri er Stefán
Gíslason, sveitarstjóri á
Hólmavík.
Sighvatur Björgvinsson, ráð-
herra og alþingismaður, veröur
áfram í fyrsta sæti hjá krötum
og það sama er að segja um
Jónu Valgerði fyrir Kvennalsita
og Kristinn H. Gunnarsson,
sem skipar fyrsta sætið hjá Al-
þýöubandalaginu.
Þjóöarflokkurinn var á sín-
um tíma nokkuð sterkur á
Vestfjörðum og nálægt því að
koma manni inn á þing. Hann
býður ekki fram aö þessu sinni,
en Þjóövaki Jóhönnu Sigurðar-
dóttur bætist við. Siguröur Pét-
ursson, formaöur Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík,
leiöir lista Þjóövaka fyrir vest-
an.
Kjördæminu má í grófum
dráttum skipta upp í þrjú
svæöi. Standir, ísafjarðarsvæö-
iö og suður- og suðvestursvæð-
ið. Togaraútgerö er undirstaða
atvinnulífs á ísafirði, Bolungar-
vík og Súðavík, en í þorpunum
á vesturfjörðunum og Barða-
strandasýslu byggja menn nú
orðið að mestu á línubátum og
krókaleyfisbátum. Landbúnað-
ur er sterkastur á Ströndum, en
þar byggja menn að miklu leyti
á sauðfrjárrækt og hafa náð
góðum árangri þrátt fyrir að
framtíð þessarar atvinnugrein-
ar sé ekki björt um þessar
mundir.
Vestfirðingar, sér í lagi á suð-
urfjörðunum og vesturfjörðun-
um, hafa misst mikinn kvóta,
en þar hefur togaraútgerö
hrunið í kjölfar þess að kvóti
útgerðanna hefur verið seldur
burt. Kvótakerfið í þeirri mynd
sem það er núna á sér þess
vegna formælendur fáa á Vest-
fjörðum og flestir vilja annað
hvort leggja þaö af eða gera
gagngerar breytingar á því.
Kosningabaráttan mun því án
efa einnig snúast um kvóta-
málin, eins og best sést á því aö
frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins hafa sett fram sína
eigin stefnu í fiskveiöistjórn-
un, sem gengur þvert á stefnu
flokksins á landsvísu.
í samgöngumálum hefur
verið unnið talsvert þrekvirki
með gerð jarðganga úr Tungu-
dal yfir í Súganda og á Flateyri.
Þegar hefur verib opnað fyrir
takmarkaða bílaumferð milli
ísafjarðar og Suðureyrar, en
tengingu vib Flateyri er ekki
Iokið. Næsta líklega stórverk-
efni í kjördæminu eru lagfær-
ingar á veginum um Djúp til
Hólmavíkur.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um eru sjálfstæðismenn sterk-
astir á Vestfjörðum, en reikna
má með að Alþýðubandalag,
Framsókn og Alþýbuflokkur
haldi sínum þingmönnum. Þá
er ekki ólíklegt að Jóna Val-
gerður nái að halda sínum hlut
þrátt fyrir ab fylgi Kvennalista
á landsvísu hafi hmnib, en
hún þykir hafa staðið sig nokk-
uð vel á þingi. Þjóðvaki er nán-
ast óskrifað blað fyrir vestan og
sömuleiðis er erfitt að segja til
um hversu mikið fylgi Pétur
Bjarnason kemur til með að
hafa. ■
Vestfirbir 1983 # atkv. % 1987 atkv. % 1991 atkv. %
Alþýðuflokkur 924 16,8 1.145 19,1 . 893 15.8 27.8
Framsóknarflokkur ... 1.510 27,5 1.237 20,6 1.582
Sjálfstæðisflokkur 1.511 27,4 1.742 29,1 1.966 34,6
Alþýðubandalag 723 13,1 676 H/3 619 11,0
Kvennalistinn 318 5,3 443 7,8
Aðrir 836 15,2 878 14,6 164 2,9