Tíminn - 25.11.1995, Page 8
8
Laugardagur 25. nóvember 1995
Landsvirkjun varö 30 ára í sumar. Fyrirtœkiö framleiöir nú um 93% allrar raforku landsmanna. Augu manna beinast nú mjög aö
fyrirtcekinu vegna vœntanlegrar aukinnar stóriöju í landinu. TÍMINN rceöir viö Halldór jónatansson, forstjóra Landsvirkjunar:
8 milljaröa hagnaöur af
ÍSAL-samningi til 2014
Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar. Hann sér góba framtíö
framundan hjá fyrirtœkinu. Tímamynd cs
Hjá Landsvirkjun er allt stórt
í snibum, líka kennitölur um
hag fyrirtækisins. Ljóst er að
Landsvirkjun er risafyrirtæki
á íslenskan mælikvaröa og
skiptir miklu máli í íslensku
þjóblífi. Fyrirtækib sem
framleibir og selur svo til
alla raforku í landinu er
mikib í umræbunni þessa
dagana þegar menn velta
vöngum yfir stóribjufram-
kvæmdum af ýmsu tagi sem
nú mun verba ýtt úr vör ab
nýju eftir langt hlé. hrjátíu
ára saga Landsvirkjunar var
hlabin mikilli orku lengst af,
síbustu árin hefur hagur fyr-
irtækisins versnab, en þó
ekki eins og margir hafa vilj-
ab vera láta. TIMINN tók
Halldór Jónatansson, for-
stjóra Landsvirkjunar tali.
Halldór er lögfræbingur ab
mennt og hefur starfab hjá
Landsvirkjun frá upphafi, fyrst
sem skrifstofustjóri, síðan ab-
stobarforstjóri og loks forstjóri
frá 1983.
Landsvirkjun fyrst
staðbundin vib
subvesturhornib
-Hvers konar fyrirtœki er
Landsvirkjun?
„Landsvirkjun var stofnuö 1.
júlí 1965 á grundvelli fyrirætl-
ana um að nýta vatnsorku í
auknum mæli með uppbygg-
ingu stóriðju í landinu sam-
hliba því að anna hraövaxandi
eftirspurn hins almenna raf-
orkumarkaðar. í upphafi voru
eigendur fyrirtækisins Reykja-
víkurborg og ríkið til helminga
og hlutverk þess að sjá Suður-
og Vesturlandi fyrir rafmagni.
Árið 1983 tóku gildi ný lög
um Landsvirkjun sem fólu þab
meöal annars í sér ab orku-
svæbi fyrirtækisins varð landið
allt og á sama ári eignaðist Ak-
ureyrarbær hlut í fyrirtækinu.
Síðan þá er ríkið eigandi
Landsvirkjunar ab hálfu, eign-
arhluti Reykjavíkur um 45%
og Akureyrar um 5lMi.
Landsvirkjun vinnur, flytur
og selur í heildsölu raforku til
almenningsrafveitna og sam-
kvæmt sérstökum samningum
til stóriðjufyrirtækja að svo
miklu leyti sem almenningsr-
afveitur hafa ekki milligöngu
um slíka raforkusölu. Fyrirtæk-
inu er ætlað að stubla að auk-
inni nýtingu orkuaublinda
landsins og tryggja að ætíð sé
til staöar nægileg orka til þess
að anna eftirspurn," sagði
Halldór Jónatansson.
Raforkusala hefur
tífaldast á 30 árum
„I upphafi voru m.a. Sogs-
stöðvarnar lagðar til I.ands-
virkjunar. Frá stofnun hefur
Landsvirkjun reist fjórar
stærstu virkjanir landsins
ásamt tilheyrandi vatnsmiöl-
unum og lokið við samteng-
ingu landsins alls í eitt raf-
orkukerfi. Landsvirkjun fram-
leibir nú 93% alls rafmagns
hér á landi. Frá öndverðu hef-
ur fyrirtækið verið helsti raf-
orkuframleibandi landsins og
leitt uppbyggingu raforkukerf-
isins af eigin rammleik. Upp-
sett afl í virkjunum fyrirtækis-
ins hefur nífaldast frá árinu
1965 en þá nam raforkusalan
tæpum 500 GWst á ári og eina
stóriðja á landinu var Áburðar-
verksmiðja ríkisins í Gufunesi.
Orkuþörf hins almenna mark-
abar hefur fjórfaldast á þeim
30 árum sem síðan eru liðin
og með tilkomu álversins í
Straumsvík árið 1969 og járn-
blendiverksmiðjunnar á
Grundartanga árið 1978 hefur
raforkusala til stóriðju aukist
úr innan við 100 GWst 1965 í
2.300 GWst árið 1994. Hefur
þá raforkusala Landsvirkjunar
í heild meira en tífaldast frá
upphafi og hlutur stóribju er
orðinn ívið stærri en raforku-
sala til almenningsveitna."
Heimilísrafmagn
hefur lækkab í
verbi um 40% á
áratug
-Hvernig hefur til tekist að út-
vega almenningi ódýra raforku
til heimila sinna?
„Með stofnun Landsvirkjun-
ar fyrir 30 árum var rennt
stoðum undir fjárhagslega
sterkt fyrirtæki sem gæti séð
landsmönnum fyrir nægri raf-
orku á öllum tímum og staðið
að aukinni verðmætasköpun.
Hér hefur vel til tekist, sem
sést best á því að eigiö fé er nú
meira en hjá nokkru öbru ís-
lensku fyrirtæki og handbært
fé úr rekstri stendur árlega
undir verulegri lækkun skulda
vegna virkjunarframkvæmda
enda eru Sogsstöbvar, Laxár-
stöðvar og Búrfellsstöð nú
skuldlausar og Sigöldustöð
uppgreidd að stórum hluta.
Styrk fjármálastjórn hefur gert
fyrirtækinu kleift að sjá lands-
mönnum öllum fyrir rafmagni
á æ hagkvæmari kjörum á
sama verbi um land allt en raf-
orkuverð frá fyrirtækinu hefur
lækkað um 40% ab raungildi
frá 1984," sagði Halldór.
Svipab eigib fé og
bankar og spari-
sjóbir samanlagt
-Nú er Landsvirkjun skuldug-
asta fyrirtceki landsins. Hvers
vegna og hvað er framundan í
þeim efnum?
„Uppbygging í orkumálum
hefur verið mjög hröb og
vatnsaflsvirkjanir krefjast mik-
i.ls stofnkostnaðar sem skilar
sér til baka á nokkuð löngum
tíma ef menn einsetja sér ab
stilla verði rafmagnsins í-hóf.
Aðrar þjóðir eins og t.d. Norð-
menn stóbu í sambærilegri
uppbyggingu mun fyrr á öld-
inni en við og eru því búnir að
fá til baka mun stærri hluta
síns stofnkostnaðar. Þótt
skuldir Landsvirkjunar séu
miklar, um 50 milljarðar
króna, þá eru eignirnar enn
meiri og eigib fé Landsvirkjun-
ar, um 25 milljarðar, er eins-
dæmi á íslandi, eba áiíka mik-
ið og samanlagt eigið fé allra
banka og sparisjóða landsins.
Það sýnir að fyrirtækið er á
réttri leið og þess má geta að
þrátt fyrir að hafa tekið á sig
tap vegna fjárfestingar í
Blönduvirkjun sem ekki skilar
auknum tekjum strax þá hefur
Landsvirkjun búið við jákvæða
greiðsluafkomu og getað varið
fjármunum til þess að lækka
skuldir sínar á undanförnum
árum. Meb orkusölusamn-
ingnum vib ÍSAI. eykst hæfni
Landsvirkjunar enn meira til
aö greiða niður skuldir og
bjóða æ lægra raforkuverð til
almennings þegar fram líöa
stundir."
Blanda — lán í
óláni
-Bar virkjun Blöndu vott um of
mikla framkvœmdagleði hjá
La'ndsvirkjun?
„Á sínum tíma var það rétt-
mæt ákvörðun ab ráðast í
virkjun Blöndu. Orkuspá þess
tíma benti til ab full þörf væri
fyrir orkuna og það er hlutverk
Landsvirkjunar að tryggja að
ætíð sé til raforka til að full-
nægja eftirspurn. Það er al-
þjóðlegt fyrirbæri ab orkuspár
í lok áttunda áratugarins og
framan af þeim níunda reynd-
ust of háar. Á þessum árum
urðu öll raftæki neyslugrennri
en ráð var fyrir gert og var það
ein afleibing af orkukreppum
og háu olíuverði á áttunda
áratugnum. Á íslandi leiddi
orkukreppan enn fremur til
aukinnar uppbyggingar á hita-
veitum og þar af leiðandi
minni rafhitunar en orkuspá
gerði ráb fyrir. Hvað Blöndu
varðar sýnir það sig nú að tím-
anleg virkjun hennar reynist
vera ein meginforsenda þess
að íslendingar eru í stakk bún-
ir til þess að bregðast nógu
fljótt við áhuga erlendra fjár-
festa á orkufrekum iðnaöi á ís-
landi."
Leyndarmálin og
Landsvirkjun
-Hefur Landsvirkjun kannski
staðið í vegi fyrir komu erlendrar
stóriðju með kröfum um of hátt
orkuverð?
„Vandinn við að fá erlenda
fjárfesta til landsins felst eink-
um í að vekja áhuga þeirra en
ekki í því ab þeir hafi verib
hindraðir, t.d. með kröfum
um hátt orkuverð. Aðalástæða
þess ab ekki hefur orðið úr
fjárfestingum erlendrar stór-
ibju á íslandi á undanförnum
árum er alþjóðleg efnahags-
kreppa.
-Nú vill Landsvirkjun ekki gefa
upp innihald orkusölusamnings-
ins við ÍSAL. Er fyrirtœkinu
stætt á þcssu og vœri ekki skað-
laust að gera það?
„Það er ástæðulaust að hugs-
anlegir kaupendur og sam-
keppnisaðilar Landsvirkjunar í
öðrum löndum sjái þá orku-
sölusamninga sem Landsvirkj-
un hefur gert til þessa. Slíkar
upplýsingar frá orkuframleið-
endum liggja ekki á lausu í
öbrum löndum. Að sjálfsögðu
verður iðnaðarnefnd Alþingis
gerð full grein fyrir innihaldi
þessa samnings. Ég get hins
vegar upplýst að núvirtur
hreinn hagnaður Landsvirkj-
unar af samningnum til 2014
er áætlaður um 8.000 milljónir
króna miöað við þær forsend-
ur sem taldar eru raunhæfar.
Þá er það metið svo að 80%
líkindi séu á að árleg innri arð-
gjöf af fjárfestingum Lands-
virkjunar vegna stækkunar ÍS-
AL verði 15% eða meiri og
nánast engar líkur á að arð-
semin verði minni en 5,5%."
-Er raforkan í raiin sú beita
sem notuð er til þess að fá er-
lenda stóriðju til landsins?
„ísland hefur ekki aðrar auð-
lindir en orkuna til að draga
að stóriðju til landsins. Á hinn
bóginn hefur ísland það um-
fram mörg önnur lönd sem
bjóba ódýra raforku að mennt-
unarstig er hér hærra og stöð-
ugleiki í efnahags- og stjórn-
málum meiri. Þetta meta er-
lendir fjárfestar okkur vissu-
lega í hag."
Huga þarf strax ab
næstu skrefum
-Framundan er uppbygging
virkjana vegna stóriðju. Verður
framvegis reynt að fara aðeins út
í framkvœmdir eftir að samning-
ar um orkusölu liafa verið
tryggðir?
„Það er pólitísk ákvörbun
hve stór stökk eru tekin í upp-
byggingunni á hverjum tíma.
F.n uppbygging í orkumálum
þarf ab svara almennri aukn-
ingu sem á sér stað smám sam-
an. Uppbyggingin fer fram í
stökkum og fyrst eftir virkjun
er alltaf einhver umframorka
til stabar. Hún getur nýst vel
til að auka viðbragösflýti og
samkeppnishæfni Islendinga
ef erlendir fjárfestar vilja koma
inn með orkufrekán iðnað.
Þær framkvæmdir sem nú er
verið að rábast í munu ekki
aðeins duga vegna stækkunar
ISAL heldur einnig almennri
aukningu fram um aldamót.
Það þarf nú þegar að huga að
því hvert næsta skrefið veröur
til þess að svara aukinni eftir-
spurn á fyrsta áratugi næstu
aldar."
Ómakleg árás
þingmanns
-Össur Skarphéðinsson alþing-
ismaður og fyrrverandi umhverf-
isráðherra hefur haft stór orð á
Alþingi um umgengni Lands-
virkjunar í umliverfismálum og
nefnt Steingrímsstöð og Þing-
vallavatn sem duemi.
„Fg tel þetta ómaklega árás.