Tíminn - 25.11.1995, Side 12
12
Laugardagur 25. nóvember 1995
íslensku jólasveinarnir 7 3 búnir aö ráöa sig í vinnu 7
Hverageröi:
Þábu bob ný-
búans Sankti
Kláusar
íslensku jólasveinarnir 13
hafa rábib sig til vinnu í
Hveragerbi og taka til starfa
einn og einn í einu þegar þeir
koma til byggba í jólamánub-
inum. Jólasveinarnir voru
farnir ab sjá fram á atvinnu-
leysi og gripu því bob fjar-
skylds ættingja síns, Sankti
Kláusar, um atvinnu fegins
hendi.
Árni Björnsson þjóbhátta-
fræöingur veit manna mest um
jólasveina og lifnabarhætti
þeirra. Jólasveinarnir hafa und-
anfarin ár heimsótt Árna og fé-
laga á Þjóöminjasafninu eftir
ferö sína úr fjöllunum niöur til
byggöa. Þótt jólasveinarnir
muni ab þessu sinni halda til í
Hverageröi ætla þeir aö halda
tryggö við vini sína á Þjóö-
minjasafninu og heimsækja þá
ábur en þeir koma sér fyrir í
jólabænum. Árni féllst á ab
fræöa okkur örlítiö um þessa
skringilegu kunningja sína.
Nií hefur Sankti Kláits verið
mjög áberandi fyrir jólin liér á ís-
landi í mörg ár. Er hann kannski
íslenskur líka?
„Þaö liggur fyrir að Sankti
Kláus er nýbúi. Hann er ekki
upprunalegur íslenskur jóla-
sveinn og ekki af þeirra ætt. Ef
þeir eru eitthvaö skyldir eru
þeir mjög fjarskyldir. Okkar
menn eru komnir af heiönum
tröllum en Sankti Kláus er af
grískum biskupsættum, þannig
aö þaö er mjög fjarlægt."
Hvers vegna tóku íslensku jóla-
sveinarnir atvinnutilboði Sankti
Kláusar. Hafa þeir ekki meira en
nóg að gera í desember?
„Þeir hafa haft sífellt minna
aö gera undanfarin ár. Tæknin
er eiginlega búin aö gera störf
þeirra úrelt. Kýr eru t.d. mjólk-
aðar meö mjaltavélum nú oröiö
þannig aö þeir komast ekki í
froðu. Bjúgu og hangikjötslæri
hanga ekki lengur í eldliúsum
heldur í sérhönnuðum reyk-
húsum. Á mörgum húsum eru
engir strompar og enginn borö-
ar lengur úr aski, þannig aö þaö
eru engir askar til aö sleikja.
Áöur fyrr boröuöu þeir skófirn-
ar innan úr pottunum en nú er
einhver filma innan á öllum
pottum þannig aö þaö festist
Árni Björnsson, þjóöhátta-
frœðingur.
ekkert viö þá. Þeim voru því
orðnar allar bjargir bannaöar
greyjunum. Þá kom þessi fjar-
skyldi ættingi þeirra og bauö
þeim heiöarlega atvinnu í
Hveragerði og þeir hafa ákveðið
aö slá til."
Hvernig heldurðu að verði að
hafa jólasveinana í vinnu? Verða
þeirgóðir starfskraftar?
„Ja, nú er eftir að sjá hvernig
þeim gengur aö sitja á strák sín-
um. Það er nú spenningurinn
viö þetta aö sjá hvort eðlið segi
ekki til sín."
Sankti Kláus hefur ekki sett
þeim nein skilyrði?
„Hann vill fara aö fá þeim ný
föt en þaö er ekki gott aö segja
hvort þeir taka því allir, þaö
kemur í ljós. Þeir eru nokkuð
misjafnir. En þaö er nú allt í
lagi aö þeir eigi til skiptanna."
-GBK
BORÐIST
UMBÚDALAUST
UMJÓIJN
Því miður veröur nýi Jólaisinn frá Kjörís
seldur um jólin. Viljir þú njóta hans 1
kynnast innihaldinu betur, skaltu tryggja
af honum strax.
Hverageröi breytist í
jólaþorpiö á íslandi á
fullveldisdaginn meö:
Sankta
Kláus og
frænd-
fólki
„Hann kom bara hérna. Hann var
á slebanum og þurfti ab lenda til
ab hvíla sig og hitti þá frændur
sína. Hann sá reykinn stíga unp úr
bænum, vildi kanna þetta betur og
hita sér og var aldeilis undrandi ab
hitta þessa skemmtilegu fjölskyldu
sína," sagbi Helgi Pétursson, mark-
absstjóri Samvinnuferba-Landssýn-
ar, um ástæbur þess ab Sankti
Kláus tók upp á því ab flytjast bú-
ferlum til Hveragerbis. En Sankti
Kláus mun hafa absetur í jólaþorp-
inu í Hveragerbi, sem nú er óbum
ab verba tilbúib, ásamt Grýlu,
Leppalúba og sonum yfir jólin.
„Vib höfum fyrst og fremst unn-
ib ab því að koma jólaþorpinu
sjálfu í slíkt horf ab þar ríki jólast-
emning," sagði Helgi í samtali vib
Tímann. „Við erum búin að gera
mikið fyrir húsiö sjálft en það er
líka allur bærinn skreyttur, feikna-
miklar ljósaskreytingar á öllum
götum. Hvergerðingar sjálfir hafa
tekib þessu mjög skemmtilega og
með brosi á vör. Þeir eru að skreyta
sín hús og garða og það er sam-
keppni í gangi um fallegustu
skreytinguna heima fyrir og helgar-
ferð til London í bobi."
Helgi segir hlutafélaga í Jólalandi
renna blint í sjóinn með aðsókn og
ekki hægt að áætla eða setja fram
óskatölu gesta. „Hins vegar vitum
við það að Hveragerði á sér langa
forsögu sem ákjósanlegur stoppi-
staður á skemmtilegum bíltúr."
Ekki er ætlunin að horfa sérstak-
lega til erlendra ferbamanna að
þessu sinni enda veröur jólaþorpið
ekki tilbúið fyrr en 1. des. og því
ekki til það kynningarefni sem þarf
til kynningar á jólaferðum erlend-
is. „Þó ab okkur hafi tekist að koma
þessu í smákynningu núna í Bret-
landi og sent út bæklinga í allt
sölukerfi Flugleiða í Bretlandi þá
höfum við í raunirmi ekki haft
myndir af því sem við ætlum að
selja." Einhverjar bókanir hafa þó
borist frá Bretlandi og segir Helgi
ab mikill áhugi hafi verib sýndur á
jólaþorpinu vegna þeirrar menn-
ingarlegu sérstöðu sem hér er í
Helgi Pétursson.
jólahaldi. Jólaþorpið hefur veriö
kynnt í jólaskreytingum og -útstill-
ingum í Selfridges- versluninni í
London en þar er aöalvinningur-
inn ferð til íslands í jólaþorpið.
„Enn sem komið er gerum við okk-
ur engar sérstakar vonir um að geta
dregið til okkar einhvern fjölda er-
lendra ferðamanna í ár. Við stönd-
um hins vegar uppi mjög vel vopn-
um búnir strax eftir áramót. Þessar
ævintýra- og vetrarferðir eru
kynntar á mörkuðum og sölustefn-
um í febrúár og mars á hverju ári."
Að sögn Helga er jretta fyrst og
fremst hugsað sem tækifæri til ab
markaðssetja íslenska jólasiði og
menningu. „Við tengjum þetta
umheiminum með Sankta Kláusi
sem sest að í Hverageröi vegna þess
aö hann hefur hitt fyrir íslensku
jólasveinana og foreldra þeirra,
Grýlu og Leppalúða. Um leið kynn-
ist hann öllum þeim siðum sem
tengjast íslensku jólahaldi. Þetta er
meginhugsunin í því að koma
mjög öflugt inn á erlendan markab
á næsta ári meb íslenska jólasiði og
íslenska jólasveina."
Tívolíhúsið sem nú hefur verið
lagt undir Jólaland er geysilega
stórt. Hlutafélagið sem stendur bak
við Jólaland samanstendur af 50
aðilurn í Hveragerði, einstaklingum
og fyrirtækjum, og Samvinnuferð-
um- Landssýn og hafa verið uppi
hugmyndir um aö nýta húsið enn
frekar. „Við höfum verið að velta
fyrir okkur ýmsum hugmyndum í
framhaldi af þessu ágæta samstarfi
sem hefur myndast um þetta um
ab nýta húsið betur. T.d. í einhvers
konar sýningarhaldi. Svo hefur líka
verib gælt við það að hafa einhvers
konar verkstæði jólasveinsins eða
jólasveinaævintýrahús í Hveragerði
allt áriö um kring."
Því eru allar líkur á að Sankti
Kláus taki sig ekki upp á næstunni
heldur doki við og athugi hvernig
hann kann við sig í Hveragerði vet-
ur, sumar, vor og haust. -LÓA
/VYV-I r ■ ■
(imol husqogn
Domino hornsófi - 6 manna
Kr. 67.890
stgr.
Stóllinn
Smiðjuvegi 6d, sími 554 4544