Tíminn - 25.11.1995, Síða 15
Laugardagur 25. nóvember 1995
15
„Ég skil vel aö þú hafir mikinn áhuga á
aö komast oð raun um hver myrti
son minn og þaö er gott. Eg
biö þess á hverjum degi aö
moröingi hans finnist,"
var þaö fyrsta sem sér-
ann sagöi viö fulltrú-
ann.
Lögreglumabur
rarmsakar
dekkjaför á moröstaönum.
Fjölskylduböndin
voru metin til fjár
David Sturches, 35 ára
gamall landbúna&ar-
verkama&ur, var á leiö
í vinnuna 5. ágúst 1931 þegar
hann sá eitthvaö liggja í veg-
kantinum í þorpinu Augusta,
Georgíufylki. Hann hra&a&i
sér aö næsta húsi sem var í
eigu Lombardhjónanna, rík-
ustu íbúa smábæjarins, og
hrópa&i í gegnum gluggann:
„Þaö liggur dauöur maöur
fyrir utan."
Frú Lombard brá illa, en gekk
út með Sturches. Skammt frá
húsi hennar lá maður í sjóhers-
einkennisklæönaði. Hann haföi
verið skotinn í brjóstiö og höf-
uðið.
Lombard hringdi á lögregluna
og William Kent fógeti var kom-
inn á staðinn innan skamms.
Gögn innan klæða sjóliðans
sýndu að hann hét Raiford Gra-
dy Williams, 22 ára gamall. Ým-
islegt benti til að hann hefði
verið rændur.
Sérstæð dekkjaför
Kent fulltrúi sá engin um-
merki um átök, en nýleg dekkja-
för voru skammt frá líkinu.
Munstrið var óvenjulegt og gat
orðið mikilvæg vísbending. Ná-
grannar sögöust ekki hafa heyrt
neinn hávaða um nóttina.
Fulltrúinn setti fram þá til-
gátu að líkinu hefði verið hent
úr bílnum og sjómaðurinn
mögulega skotinn í höfuðið eft-
ir að honum var varpað út. Svo
virtist sem um kaldrifjað morð
væri að ræða. Ein byssukúla
fannst í jarðveginum við hlið
líksins, sem hafði farið í gegn-
um höfuð hans, 38 kalíbera.
Eftir að búið var að hafa sam-
band við áhöfn skipsins sem
Raiford hafði, verið á, fengust
þær upplýsingar að hann hefði
fengið leyfi frá störfum í 3 daga.
Sonur prestsins
Faðir hans var prestur í þorpi
skammt frá, en Raiford átti kær-
ustu í Augusta. Eitt vitni sagðist
hafa séð þau saman ekki löngu
fyrir morðið. Gat verið að hún
tengdist morðinu? Var afbrýði-
semi orsök verknaðarins eða var
þetta bara kaldrifjað rán? Við
þessar spurningar glímdu Kent
fulltrúi og hans menn.
Tveimur dögum síðar geröi
Kent sér ferö til fööur Raifords,
sem var harmi sleginn og átti
samúð allra í þorpinu þar sem
hann bjó. Klerkur var ekki viö,
þegar fulltrúinn kom, en hann
ákvaö aö bíöa hans fyrir utan
heimili hans. Allt í einu rak að-
stoðarmaður hans augun í eitt-
hvað í jarðveginum. „Sjáðu
þetta. Þetta eru sömu dekkjaför-
in og voru á morðstaönum,"
sagði hann.
Kent hnyklaði brýrnar.
„Furðuleg tilviljun, býst ég við.
Þú ert ekki að gefa þér að prest-
urinn hafi myrt sinn eigin son,
er það?"
Aðstoðarmaðurinn hristi höf-
uðið, hikandi og skömmustu-
legur á svip. Skömmu síðar kom
presturinn, séra Williams, og
viðkynningin reyndist ágæt.
„Ég skil vel að þú hafir mikinn
áhuga á að komast að raun um
hver myrti son minn og það er
gott. Ég bið þess á hverjum degi
ab morðingi hans finnist," var
þab fyrsta sem sérann sagði við
fulltrúann.
Klerkur upplýsti að dóttir
hans væri ekki heil heilsu og
hann hygðist flytja til London
til að korna henni undir læknis-
hendur. Þar hafði honum verið
bobin vinna. Hann var ekkju-
maður.
Mótsagnir
Kent spurbi um ástæbur þess
ab sjómaðurinn, sonur hans,
hefði fengib leyfi og séra Hoi-
land sagbi ab ástæðan hefði ver-
ið sú aö dóttir hans hefði verið
mjög veik og Raiford hefði vilj-
að sjá hana áður en hann hélt
út á sjó, ef illa færi. Kent lýsti yf-
ir vilja sínum að tala vib dóttur-
ina, en þá kom hik á prestinn.
Eftir langa umhugsun sam-
þykkti hann það, en sagðist
veröa að vera viðstaddur.
Kent byrjaði á ab spyrja dótt-
urina hvernig henni liði og
svarið kom honum í opna
skjöldu. „Mér líður vel, þetta var
bara smákvef sem ég fékk, ekk-
ert alvarlegt." Kent tók eftir
hvernig faðir hennar fór að titra
og reyndi að senda henni skila-
boð án oröa, en hún hélt áfram:
„Ég er hraust eins og fíll."
Handtakan
Nokkrir dagar liðu og þá var
Kent búinn aö fá þær sannanir
sem hann taldi nægja til að
handtaka guðsmanninn. Hann
hafði oröið vís ab lygum hvað
varðaði ferðir sínar um morð-
kvöldið, vitni höföu séð hann á
bílnum skammt frá moröstaðn-
um, en sjálfur sagöist hann hafa
verið heima um kvöldiö. Þá var
Kcerasta Raifords í miöjunni.
Hann lét lífiö fyrir 2.500 dali.
mótsögn hans og dóttur hans
athugaverð.
9. ágúst 1931 gekk Kent á
hans fund með handtökuskip-
un. „Herrar mínir. Ég er jafnsak-
laus og nýfætt barn," sagði
prestur og hélt biblíunni. undir
hendinni. Hann var handjárn-
aöur og færöur í fangageymslu.
Handtakan vakti gríðarlega
athygli og íbúar í grenndinni
áttu bágt með að trúa að sálu-
sorgari þeirra hefði myrt son
sinn. Háværar kröfur voru á
hendur lögreglunni að sleppa
séra Williams og um tíma leit út
fyrir að óeirðir brytust út. Öld-
urnar lægði þó eftir því sem leið
á rannsóknina.
Raiford Williams í einkennisbún-
ingnum.
Myrt í au&gunarskyni
Gamall vinur prestsins gaf sig
fram skömmu eftir handtökuna
og sagðist hafa lánað vini sínum
byssuna daginn sem Raiford var
drepinn. Presturinn hafði sagt
að fangi hefði strokið úr fangelsi
og hann óttaðist um líf dóttur
sinnar. Þetta þótti vininum
skrýtið, þar sem enginn hafði
heyrt neitt um flóttamann, en
þar sem hann átti tvær skamm-
byssur varö hann við bón
prestsins. Byssan fannst síðar
með fingraförum guðsmanns-
ins.
Ástæða morbsins var óhugn-
anleg. Presturinn hafði stundab
verðbréfabrask af miklum móð
og tapað öllu sem hann átti á
bómullarviöskiptum. Hann
hafði líftryggt börnin sín ríku-
lega og þegar engin leið blasti
önnur við en gjaldþrot, fórnaöi
hann syni sínum meö köldu
blóði til að þiggja fyrir hann
2.500 dali í bætur.
Hann ginnti son sinn í land
til þess eins að leiða hann til af-
töku. Aftöku þar sem hann var
sjálfur böðullinn. Líklegt þótti
að nokkrir kunningjar hans
hefðu haft vitneskju um ráða-
bruggiö, en hylmt yfir meö
honum í von um ab fá til baka
peninga sem guðsmaðurinn
skuldaði þeim. Það fékkst þó
ekki sannað fyrir rétti.
Réttarhöldin yfir prestinum
hófust mánuði eftir morðið og
þeim lauk á tæpri viku. Mildi
þótti sýnd í dóminum, en prest-
urinn hlaut lífstíðarfangelsi fyr-
ir viðurstyggilegan glæp sinn.