Tíminn - 25.11.1995, Síða 19
Laugardagur 25. nóvember 1995
19
Seymour
komin á
steypirinn
Jólin verða viðburðaríkur tími
hjá Jane Seymour familíunni
og eiginmanni hennar James
Keach því þá er von á tvíbur-
um þeim sem gista nú leg leik-
konunnar.
Jane er orðin 44ra ára en hef-
ur staöið keik og geislandi alla
meðgönguna ailt þar til nú fyr-
ir skömmu þegar hún var flutt
meb hraöi á spítala með gífur-
lega samdráttarverki.
Læknar komust að þeirri
niburstöðu að verkirnir væru
afleiðing mikillar vinnu og
hita en Jane hefur verið við
tökur í Agoura í Kaliforníu.
Eftir lyfjagjöf var henni skipað
að taka lífinu rólega það sem
eftir væri meðgöngutífnans.
Tökum á myndinni' Dr Qu-
inn lauk í lok október og var
þá slegið upp óværitri ung-
barnaveislu þar sem Jane voru
afhentar snemmbúnar sæng-
urgjafir og tVær útgáfur af
hverri gjöf að sjálfsögðu. ■
I SPEGLI
TÍIVIANS
Fréttir í vikulok
íslenskt lambakjöt til Bandaríkjanna
„I’etta er lyginni næst, það hefur bókstaflega snjóað inn
föxum og símhringingum. I’etta eru ein fjögur hundruð kíló
sem við höfum sent til Ameríku,- svo er gífurlegur fjöldi af föx-
um sem við höfum ekki komist til að svara og afgreiða," sagði
I’étur Pétursson kaupmaður í Kjötbúri Péturs á mánudag.
Meðal fyrirspyrjenda eru bandarísk fyrirtæki sem hyggjast
gefa starfsfólki sínu íslenskt lambakjöt í jólagjöf.
Landsvirkjun sýknuö
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði I.andsvirkjun í tveim
málum er varða kröfu bænda um bætur fyrir virkjunarréttindi
í Blöndu á Eyvindarstaðaheiði og Auðkúluheiði. Segir í dómn-
um að stefnendur hafi ekki ieitt sönnur á að heiðarnar haf'
orðið eða séu fullkomið eignariand þeirra.
70% allra atvinnulausra á höfuöborg-
arsvæöinu
Nær 3.700 manns voru jafnaðarlega á atvinnuleysisskrám á
höfuðborgarsvæðinu í október, sem er 28% fjölgun frá sama
mánuði í fyrra. Fjölgun atvinnulausra milli ára er öll og meira
til á höfuðborgarsvæðinu, en á því svæði voru 70% allra at-
vinnuleysingja í októbermánuði. Hátt í 6 þús. manns voru á
atvinnuleysisskrá á landinu í októberlok, en í heild fjölgaði
atvinnulausum um nær 17% frá október í fyrra.
Kaupmenn hunsa enn lög um
verömerkingar
Stór meirihluti kaupmanna á helstu verslunarsvæðum
nhöfuðborgarinnar heldur áfram að hunsa lög og reglur um
verðmerkingar að öllu eða miklu leyti. í könnun Samkeppnis-
stofnunar kemur fram að minna en helmingur kaupmanna
við Laugaveg og í Kringlu hefur verðmerkingar í lagi og að í
nærri þriðjungi verslana vantar verðmerkingar algerlega.
Ástandið reyndist m.a.s. heldur verra á þessu ári heldur en í
fyrra.
Bergsteinn Þ. jónsson, matartœkninemi vinur launalaust hjá Land-
spítalanum um þessar mundir eftir oð stjórn Ríkisspítalanna ákvaö
aö hætta aö greiöa nemum laun.
Landspítalinn fellir niöur laun til mat-
artækninema
Iðnnemasamband íslands hefur leitað eftir leiðréttingum
bæbi til stjórnar Ríkisspítalanna og heilbrigðisráðherra vegna
þeirrar ákvörðunar Landspítalans að afnema laun til matar-
tækninema sem ljúka námi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
með 34 vikna starfsnámi á spítala. Formaður INSÍ segir þær
tilraunir hafa verið gagnslausar þótt launin nemi aðeins um
50.000 krónum á mánuði fyrir hvern nema.
Dagsbrún segir upp samningum
Á fundi trúnaðarmannaráös í Verkamannafélaginu Dags-
brún á fimmtudag var samþykkt ab segja.upp öllum gildandi
kjarasamningum félagsins og tekur uppsögnin gildi 31. des-
ember nk.
Tommi ætlar aÖ stækka Hótel Borg
Tómas A. Tómasson hyggst stækka Hótel Borg um 19 her-
bergi ef kaup hans á Pósthússtræti 9 ganga upp. Hann segir
núverandi stærö hótelsins mjög óhagkvæma rekstrareiningu,
en nú eru þar 32 herbergi.
Hart deilt um Leifsstöö á þingi
Miklar umræður hafa orðið á Alþingi um þingsályktunartil-
lögu þeirra Guðmundar Hallvarðssonar og Kristjáns Pálssonar
um ab fela einkaaöilum tollfrjálsan verslunarrekstur í Leifs-
stöb og ríkið dragi sig jafnframt út úr rekstri Fríhafnarinnar. í
umræburnar blönduðust einnig hörð skoðanaskipti um fjár-
hag flugstöðvarinnar og deildu fyrrverandi og núverandi ráð-
herrar hart um hver bæri ábyrgð á þeim mikla fjárhagsvanda
sem við er að etja í rekstri hennar.