Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 2
2 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR A T A R N A í mars Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Tæki færi 142.900 Síðasti dagur til að gera góð kaup á Tækifærisdögum. Uppþvottavél - SN 45M200SK Tækifærisverð: kr. stgr. (Verð áður: 169.900 kr.) ÚTFLUTNINGUR Vaxandi útflutning- ur hefur verið á innmat úr sauð- fé og stórgripum frá Sláturhúsi KVH ehf. á Hvammstanga til landa í Evrópu, Asíu og til Banda- ríkjanna. „Við fluttum dálítið af innmat úr lömbum til Kína í haust,“ segir Magnús Jónsson framkvæmda- stjóri. „Kínverjarnir tóku ákveð- inn afskurð, fitu, nýru og svoleið- is. Svo erum við að skoða að flytja þangað vambir og keppi. Það fór smámagn af því í haust og kemur til með að verða meira í næstu sláturtíð. Til Evrópu sendum við lifur, þindar og fleira sem væntanlega er notað í vinnslu til manneldis. Þá sendum við hrútseistu til Banda- ríkjanna. Það er eini innmaturinn sem Bandaríkjamenn kaupa af okkur. Okkur er sagt að þeir djúp- steiki þau. Útflutningur á eistum þangað var í gangi fyrir nokkr- um árum en lagðist síðan af þar til nú.“ Magnús segir að það magn af innmat sem flutt hefur verið út sé ekki tiltakanlega mikið, en fari þó vaxandi milli ára. „Við höfum aldrei flutt innmat út í eins miklum mæli og í fyrra,“ heldur Magnús áfram. „Að vísu hafa menn verið að flytja út eitt- hvert magn sem hefur þá farið í dýrafóður og annað þess háttar. En tilgangurinn með þessum útflutn- ingi er tvíþættur. Annars vegar að koma þessum aukaafurðum okkar í verð en einnig erum við að leita leiða til þess að minnka urðun.“ Magnús segir nauðsynlegt að skapa verðmæti úr innmatnum með einum eða öðrum hætti. Til framtíðar litið verði öll urðun á honum bönnuð. Tvennt verði því í stöðunni, að auka útflutninginn eða vinna hann hér heima í dýrafóður eða til moltugerðar. Spurður um hvað fengist hafi fyrir þann innmat sem fluttur var út í fyrra segir Magnús það nema 25 milljónum króna. Árið áður hafi verið flutt út fyrir fimm milljónir. „Þannig að það eru ákveðin tæki- færi í þessu,“ segir hann. „Víða eru stórir markaðir fyrir hendi sem ganga þarf í að þróa.“ jss@frettabladid.is Djúpsteikja hrútseistu Vaxandi útflutningur hefur verið á innmat úr fé og stórgripum til útlanda. Bandaríkjamenn kaupa einungis hrútseistu hjá sláturhúsinu á Hvammstanga og djúpsteikja þau. Þjóðir í Evrópu og Asíu kaupa fleiri tegundir af innmat. VAMBIR OG KEPPIR Fyrirhugaður er aukinn útflutningur sláturhússins á Hvammstanga á vömbum og keppum til Kína. Prufusend- ing fór þangað í haust. Dóri, er hann Pinetop ekki kátur í Reykjavík? Jú, hann fílar Reykjavík svo lengi sem hann má reykja hérna. Pinetop Perkins er 95 ára blúsari sem reykt hefur í 88 ár en hann er gestur á blúshátíð sem hér er haldin. Halldór Bragason, sem er einn mesti blúsari Íslendinga, er góður vinur Pinetops og gestgjafi. STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra ætlar að bjóða sig fram til formennsku í Samfylk- ingunni á landsfundi flokksins, sem fram fer aðra helgi. Með þessu lætur Jóhanna undan miklum þrýstingi flokksmanna und- anfarnar vikur. Enginn annar hefur lýst yfir framboði til formanns og litlar líkur taldar á því að annar lýsi yfir framboði. Ekki náðist í Jóhönnu í gærkvöldi, en í tilkynningu sem hún sendi fjöl- miðlum segir að í ljósi niðurstöðu prófkjörsins í Reykjavík og þeirrar miklu hvatningar sem hún hafi feng- ið hafi hún tekið þessa ákvörðun. Áður hafði Jóhanna þvertekið fyrir að til greina kæmi að hún tæki við formennskunni eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. „Við jafnaðarmenn fengum það hlutskipti að leiða vinstristjórn eftir einhver harkalegustu áföll sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir. Verkefnið er hins vegar rétt að hefjast. Brýnt er að því verði fylgt eftir af festu og að við stjórn lands- ins fari saman ábyrg efnahagsstjórn og félagslegar áherslur,“ segir í til- kynningu Jóhönnu. „Því tel ég áríðandi að Samfylk- ingin gegni áfram lykilhlutverki í endurreisnarstarfinu, með jafnræði og samfélagslega ábyrgð að leiðar- ljósi.“ - bj Jóhanna Sigurðardóttir býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar: Lætur undan þrýstingi flokksmanna ÞAKKAR TRAUSTIÐ Jóhanna Sigurðardóttir segist þakka það traust sem flokksmenn sýni sér í yfirlýsingu til fjölmiðla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Grímuklæddur maður réðst inn í verslun úrsmiðsins Franchs Michelsen við Lauga- veg undir hádegi í gær og úðaði piparúða í augu Franchs. Ræninginn stökk síðan á brott, að því er virtist tómhentur. Hann var ófundinn þegar blaðið fór í prentun. „Hann tæmdi heilan brúsa í augun á mér,“ segir Frank. „En ég hékk bara á honum,“ bætir hann við. Þess vegna hafi ræninginn hrökklast á brott. Frank segir að reynt hafi verið að ræna sig áður en aldrei með jafnalvarlegum hætti og nú. Frank segir að í versluninni sé fullkomið upptökukerfi þannig að ómögulegt sé að ræninginn hafi ekki náðst á mynd. Ræninginn var þögull, og Franch telur hann hafa verið ungan. Hann segir ræningjann hafa hulið andlit sitt með dulu og að hann hafi verið klæddur í dökka hettupeysu. Við leit að manninum fannst slík peysa á Grettisgötu og er talið mögulegt að ræning- inn hafi klætt sig úr henni til að villa um fyrir lög- reglu. Franch er ánægður með snör viðbrögð lög- reglu. Hann þrýsti á neyðarhnapp um leið og hann varð ræningjans var og hann segir að ekki hafi liðið nema sekúndur þar til lögreglan var komin á vettvang. - sh Grímuklæddur maður reyndi að ræna verslun Franchs Michelsen úrsmiðs: Réðst með piparúða á úrsmið SÁRT Lögreglan lánaði Franch jakka áður en hann skolaði piparúðann úr augunum eftir að hafa stökkt ræningjanum á flótta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KÖNNUN Ríkisstjórn Samfylking- ar og Vinstri grænna fengi sam- tals 38 þingsæti af 63 yrðu úrslit kosninga í takt við könnun Capac- ent-Gallup, sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Samfylkingin mælist með 31,2 prósent atkvæða og 21 þingmann. Um 26,5 prósent sögðust styðja Sjálfstæðisflokk sem myndi skila 18 á þing. Vinstri græn njóta stuðnings 24,6 prósenta og fengju 17 þingmenn. Framsóknarflokk- urinn mælist með 11,3 prósent og fengi 7 þingmenn. Aðrir flokkar næðu ekki manni. 64,3 prósent sögðust styðja ríkisstjórnina, en 35,7 voru henni andvíg. - bj Ný könnun Capacent-Gallup: Stjórnin með meirihluta ÍSRAEL Ísraelskir hermenn sögðu frá óhæfuverkum sem þeir frömdu í innrás Ísraelsmanna á Gasa. Hermennirnir voru gestir á námskeiði í ísraelska herskól- anum Oranim og hafa frásagnir þeirra verið gefnar út. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Þeir sögðu frá konu og tveimur börnum sem voru myrt af leyni- skyttum eftir að hafa misskilið í hvaða átt þau ættu að fara frá heimili sínu. Þá voru hermenn sendir upp á þak til að drepa gamla konu sem gekk á veginum. Ísraelsk mannréttindasamtök hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rannsaka ekki ásakanir á hendur hernum. - kóp Sögur ísraelskra hermanna: Hermenn játa óhæfu á Gasa RÚSTIR Ísraelskir hermenn hafa sagt frá óhæfuverkum sem þeir hafi unnið á Gasa. Leyniskyttur hafi skotið á konur og börn. Hér er föngum bjargað úr fangelsi eftir loftárás Ísraela. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DUBAI Perluteppið frá Baroda verð- ur boðið upp í Katar á næstunni. Teppið er gert úr tveimur milljón- um perlna og skreytt hundruðum verðmætra steina, að því er segir á fréttavef BBC. Maharajann í Baroda á Indlandi lét gera teppið á sjöunda áratug 19. aldar. Teppið átti að skreyta graf- hvelfingu Múhameðs, en mahara- jann lést áður en af því varð. Uppboðið verður í Doha næsta fimmtudag og er lágmarksboð um fimm milljónir dollara. Uppboðs- haldarar búast við að það seljist á að minnsta kosti fjórfalt hærri upphæð. - kóp Fornt teppi boðið upp: Perluteppi frá Indlandi selt GERSEMI Ekki þykir ólíklegt að 20 millj- ónir Bandaríkjadala fáist fyrir teppið. NORDIC PHOTOS/AFP Páfinn fyllti fótboltavöll Um 60 þúsund manns fylltu fótbolta- völl í höfuðborg Kamerún í fyrstu messu Benedikts XVI páfa í Afríku. Páfi sagði Afríku „álfu vonarinnar“, en gagnrýndi efnishyggju og fólksflutn- inga til stórborga, og varaði við áhrif- um þessa á fjölskyldur í Afríku. KAMERÚN Tvö bifhjólaslys á sama tíma Tvö bifhjólaslys urðu um níuleytið í gærkvöldi á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaður annars hjólsins féll við Vík- urveg við Egilshöll, en ekið var aftan á hinn við Kaplakrika í Hafnarfirði. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild, en ekki er vitað um líðan þeirra. SLYS SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.