Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 52
32 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR Nýtt hefti af Þjóðmálum er komið út í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirs- sonar, fyrsta hefti þessa árs. Í heftinu eru greinar og ritgerðir um þjóðmál: Björn Bjarnason skrifar grein af vettvangi stjórnmálanna, Vilhjálmur Eyþórsson skrifar þjóðarhugtakið í umræðu kringum hrunið. Gunnlaugur Jónsson ræðir vörn frjáls- hyggjunnar og Gísli Freyr Valdórsson fjallar um pólitískar hreinsanir. Margt fleira er í ritinu sem er 96 bls. að stærð. Bókafélagið Ugla gefur út. Penny for your thoughts – tíu ráð til fjárfestinga og vaxtar er komin út. Í þessari bók er horft gagnrýnum augum á helstu goðsagnir viðskipta- heimsins um uppbyggingu og rekstur fyrir- tækja. Bókin er skemmtilega uppsett sem handbók með lýsandi dæmum úr atvinnulífinu og eru niður- stöður hennar byggðar á viða- miklum rannsóknum á fyrirtækjum í skapandi rekstri á Norðurlöndunum. Rannsóknin sem bókin byggist á er styrkt af Norræna nýsköpunarsjóðn- um. Höfundar eru Tobias Nielsén, Dominic Power og Margrét Sigrún Sigurðardóttir. Bókin er á ensku. Leiðin til lífshamingju eftir Dalai Lama og Howard C. Cutler hefur nú verið endurútgefin í kilju, enda má ætla að þörf fólks fyrir innri frið sé með meira móti nú um stundir. Í þessari einstöku bók greinir Dalai Lama, einn fremsti andlegi leiðtogi heims, frá því hvernig hann öðlaðist sál- arró og sigrast á þunglyndi, kvíða, reiði, afbrýði eða bara hversdagslegri geðvonsku. Dalai Lama er væntanlegur til Íslands í sumar. Meðan á dvöl hans stendur mun hann halda fyrirlestur í Laugar- dalshöll þann 2. júní kl. 15.00. Miða- sala er hafin á www.midi.is. Jóhanna Þráinsdóttir þýddi og Forlagið gefur út. NÝJAR BÆKUR Bjargey Ólafsdóttir ljósmyndari hefur verið tilnefnd til hinna virtu Leopold Godowsky, Jr. Color Pho- tography Awards (http://www. bu.edu/prc/godowsky.htm) fyrir sýningu sína TÍRU sem nú stend- ur yfir í Ljósmyndasafni Reykja- víkur. Verðlaunin voru sett á lagg- irnar til að heiðra Leopold Godowsky Jr. sem var einn þeirra sem fann upp Koda- chrome-filmuna og hefur tilkoma hennar haft gríð- armikil og varanleg áhrif í ljósmyndun. Tilgangurinn með þessum alþjóðlegu verðlaunum, sem voru fyrst veitt árið 1987, er að verðlauna fram- úrskarandi framlag á sviði samtíma litljósmyndunar og er valið úr tilnefningum frá virtum alþjóðlegum hópi sýningarstjóra, gagnrýnenda, ritstjóra og fagfólks á sviði ljósmyndakennslu. Meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaun- in eru Yinka Shonibare frá Nígeríu, Alex Webb, New York og Paul Seawright frá Norður-Írlandi. Sýning Bjargeyjar, Tíra: Horfðu í ljósið heillin mín en ekki í skuggann þarna, sem stendur til 10. maí nk. er opin virka daga 12-19 og frá 13-17 um helgar. Aðgang- ur er ókeypis í Ljós- myndasafn Reykja- víkur. Bjargey tilnefnd Guðrún Dalía Salómonsdóttir heldur sína fyrstu einleikstón- leika í Salnum á morgun en áður hefur hún haldið einleikstónleika í Listasafni Sigurjóns og í Stutt- gart í Þýskalandi. Guðrún Dalía segir efnisskrá tónleikanna bera nokkurn keim af því að hún hafi stundað nám bæði í Þýskalandi og Frakklandi. „Ég er með tvær Beethoven-sónötur, sú fyrri er létt, stutt í tveimur köflum og er oft spiluð af styttra komn- um nemendum – en sú síðari er síðan fyrsta virtúósa-sónatan hans. Ég ákvað að stilla þess- um tveimur sónötum saman til að sýna þá miklu breidd sem er í verkum Beethovens.“ Eftir hlé slær Guðrún Dalía á mýkri, kven- legri og franskari strengi. Þá hefst efnisskráin á þremur verk- um eftir Rameau, Papillons op. 2 eftir Schumann og loks þremur Prelúdíum eftir Debussy. Þegar hún er spurð hvað hafi ráðið efnisvalinu á tónleikunum segir hún: „Þetta er allt yndislega fal- leg tónlist, konfektmolar sem ég fæ að velja mér sjálf. Mig lang- aði til að setja saman íhaldssama og hefðbundna efnisskrá. Þótt ég hafi mjög gaman af því að spila nútímatónlist, þá er ég ekki með neitt af nýjum verkum núna vegna þess að mig langaði frek- ar að leggja áherslu á heildstæða efnisskrá en að reyna að spanna alla tónlistarsöguna.“ Guðrún Dalía stundaði píanó- nám í Tónmenntaskólanum í Reykjavík og síðan við Tónlistar- skólann í Reykjavík. Árið 2003 hélt hún til náms við Staatliche Hochschule für Musik og dar- stellende Kunst í Stuttgart og útskrifaðist þaðan með hæstu einkunn sumarið 2007. Hún er nú í framhaldsnámi í París. Árið 2006 fékk hún fyrstu verðlaun í háskólaflokki píanókeppni EPTA í Salnum í Kópavogi. Guðrún Dalía hefur hlotið ýmsa styrki, meðal annars úr Minningarsjóði um Birgi Einarsson apótekara og Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur. Á undanförn- um árum hefur Guðrún Dalía leikið á fjölmörgum tónleikum á Íslandi og í Þýskalandi, bæði sem einleikari og meðleikari. Árið 2008 flutti hún, ásamt Helgu Rós Indriðadóttur, öll útgefin söng- lög Jórunnar Viðar í Salnum og á næstu vikum kemur út geisla- diskur með sönglögunum. - pbb Velur konfektmolana sjálf TÓNLIST Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.