Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 20. mars 2009 3 „Verkefninu er ætlað að fylla upp í holur sem hafa myndast í miðbæ Reykjavíkur. Hugmyndin kvikn- aði þegar ég sá að tómum rýmum í miðbænum var að fjölga og lang- aði mig að gera eitthvað við þau til að halda lífi í Laugaveginum. Ég setti því saman hóp af myndlistar- mönnum sem flakkar á milli, en þó eru það ekki alltaf þeir sömu sem sýna,“ útskýrir Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen, listakona og meistaranemi í hagnýtri menn- ingarmiðlun við Háskóla Íslands. „Ég fæ rými í hvert sinn til að setja upp sýningu og eru þær unnar sem ferli þar sem sýning- in fer eftir listamönnum sem taka þátt, stærð og gerð rýmis sem not- ast er við hverju sinni og samvinnu innan hópsins,“ segir Kristjana áhugasöm og heldur áfram: „Við erum með sýningar um það bil mánaðarlega og var sú fyrsta 14. febrúar síðastliðinn. Næsta sýning verður á morgun á Laugavegi 42 milli klukkan 13 og 18.“ Þeir listamenn sem taka þátt að þessu sinni hafa notað síðast- liðin ár eftir útskrift til að byggja upp myndlistarstefnu sína og hafa verið duglegir við að sýna bæði á einka- og samsýningum hérlendis og erlendis. „Listamennirnir sem taka nú þátt útskrifuðust úr Lista- háskóla Íslands og Myndlistarskóla Akureyrar. Við þekkjumst öll vel og vinnum mikið saman þannig að við erum búin að móta einhverja hugmynd um hvað við ætlum að gera en síðan vinnum við inn í rýmið hverju sinni. Hugmyndin er að þróa verkin eða hugmynd- ina á bak við þau með hverri sýn- ingu sem haldin er. Þannig er hægt að fylgjast með breyting- um og komast aðeins inn í hug- arheim myndlistarmannsins með því að sjá hvernig tíminn og hver opnun hefur áhrif á vinnsluna og verkin,“ segir Kristjana einlæg. Hverri sýningu fylgir því ákveð- in óvissa sem skapar skemmtilega stemningu. „Allir verslunareigendur hafa verið mjög liðlegir og skemmtilegt að tala við þá. Þeir treysta okkur fyrir þessu og eru opnir fyrir hug- myndinni,“ segir Kristjana og bætir við að hugmyndin sé hluti af námi sínu í hagnýtri menning- armiðlun við Háskóla Íslands. „Þetta er mín leið til að miðla menningu til Íslendinga og það að sýna ekki í hefðbundnum sýning- arrýmum er skemmtilegt. Þarna tökum við málin í okkar hend- ur og ráðum meiru sjálf. Verkin eru allt frá myndbandsverkum og innsetningum yfir í hefðbundin olíumálverk.“ Boðið verður upp á kaffi og með- læti meðan á sýningunni stendur og verða myndlistarmenn á svæð- inu sem hægt er að spyrja út í verk- in. Hægt er að fylgjast með Flökku- kindum, sýningum sem fram undan eru, listamönnnum sem taka þátt hverju sinni og myndum af liðnum sýningum á www.flokkukindur. blog.is. hrefna@frettabladid.is Flökkukindur í miðbænum Verkefnið Flökkukindur snýst um að fylla upp í holur sem myndast hafa í miðbæ Reykjavíkur með list- sýningum í auðum rýmum. Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen skipuleggur viðburðina og sýnir verk. Kristjana Ósk sá sér leik á borði þegar tómum verslunarrýmum tók að fjölga á Laugaveginum og ákvað að setja saman listahóp- inn Flökkukindur sem sýnir hér og þar í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú mikið úrval af handtöskum, tölvu- og skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum, ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt. Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á slóðina www.th.is þar sem hægt er að skoða úrvalið og gera góð kaup! Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is Alltaf góður! 10 bita tilboð 466 1016 www.ektafiskur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.