Fréttablaðið - 20.03.2009, Qupperneq 20
20 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 56 Velta: 201 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
234 +4,25% 605 +5,12%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC 12,77%
ÖSSUR +9,55%
FØROYA BANKI +2,75%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -0,69%
MAREL -0,65%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 265,00 +12,77% ...
Bakkavör 1,44 -0,69% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 112,00 +2,75% ... Icelandair Group 7,00
+0,00% ... Marel Food Systems 46,10 -0,65% ... SPRON 1,90 +0,00%
... Össur 80,30 +9,55%
Nær öllu starfsfólki Straums var sagt
upp eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur
veitti fjárfestingabankanum heimild til
greiðslustöðvunar í gær.
Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er
að koma nýrri skipan á fjármál félags-
ins og gera það rekstrarhæft á ný í sam-
vinnu við lánardrottna. Heimildin gild-
ir til 11. júní næstkomandi en hana má
framlenga að gefnu samþykki kröfu-
hafa.
Um 300 manns störfuðu hjá Straumi
áður en heimildin lá fyrir. Þar af voru
um 110 hérlendis. Þrjátíu og átta starfs-
menn Straums hér hættu strax í gær en
tilkynnt var að nær allir hætti á næstu
þremur mánuðum. Þá var 41 starfsmanni
sagt upp í Bretlandi og Danmörku.
Ein og hálf vika er síðan skilanefnd
á vegum Fjármálaeftirlitsins tók lykla-
völdin í bankanum en stjórn bankans
hafði í bígerð að óska eftir heimild til
greiðslustöðvunar. William Fall for-
stjóri sagði starfi sínu upp í kjölfarið og
hefur Óttar Pálsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri lögfræðisviðs Straums,
tekið við því.
Flestar eignir Straums eru í söluferli.
Sumar hafa þegar verið seldar en lík-
legt er að aðrar verði seldar fljótlega.
Á meðal þeirra eru dönsku verslanirnar
Illum og Magasin du Nord, sem Straum-
ur fékk úr búi Baugs auk breska verð-
bréfamiðlarans Teathers og franska
flugfélagsins XL Holdings. - jab
STJÓRNARFORMAÐURINN Straumur fékk
heimild til greiðslustöðvunar í gær. Nær öllu
starfsfólki var sagt upp í kjölfarið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nær öllum sagt upp hjá Straumi
„Fullyrða má að þessi breyting
muni létta mörgum fyrirtækjunum
lífið,“ segja Samtök verslunar og
þjónustu (SVÞ) um lagabreytingar
sem leiða til þess að gjalddagar
virðisaukaskatts vegna innflutnings
og vörugjalda breytast.
„Þá skiptir verulegu máli að
gjalddögum er breytt og verður því
ekki um neinar vaxtagreiðslur að
ræða eins og upphaflega stóð til,“
segir í yfirlýsingu samtakanna.
Gjalddögum virðisaukaskatts
vegna hvers uppgjörstímabils er
dreift á þrjá daga og gjalddögum
vörugjaldsins skipt í tvennt. „Ekki
tókst að ná fram breytingu á gjald-
dögum virðisaukaskatts vegna inn-
anlandssölu og er það miður. Engu
að síður verður að fagna þessari
lagasetningu sérstaklega,“ segja
talsmenn SVÞ og telja stjórnvöld
koma þarna til móts við atvinnu-
lífið með myndarlegum hætti. - óká
Greiðsluað-
lögun léttir lífið
Breski einkaframtakssjóðurinn Montagu og
fleiri til hafa átt í viðræðum við William Dem-
ant Invest, Eyri Invest og stjórnendur Össur-
ar um kaup á hlutabréfum þeirra í stoðtækja-
framleiðandanum. Þá mun Össur Kristinssyni,
stofnanda fyrirtækisins, hafa fengið tilboð í
hluti sína. Hann á 8,4 prósenta hlut í gegnum
Mallard Holding.
Eftir því sem næst verður komist er tilboð-
ið gert með vitund og vilja stærsta hluthafa
félagsins.
William Demans Invest á 34 prósenta hlut í
Össuri en Eyrir Invest tæpan fimmtung. Gengju
kaupin eftir yrði kaupandi að gera öðrum hlut-
höfum boð um yfirtöku.
Viðskipti með hlutabréf Össurar voru stöðv-
uð í gær eftir að fréttaveitan AMX greindi frá
viðræðunum. Þar sagði að tilboðið hljóðaði upp á
einn Bandaríkjadal á hlut. Gengi bréfa Össurar
stóð í 73,3 krónum á hlut í byrjun dags. Það jafn-
gildir 63 sentum. Á sama tíma í fyrra var verðið
um einn dalur á hlut. Gengi bréfa í félaginu
hækkaði um tæp tíu prósent í fjórtán viðskipt-
um í gær. Öll viðskipti voru á söluhliðina.
Ekki náðist í Jón Sigurðsson, forstjóra Össurar
í gær. Árni Oddur Þórðarson,
forstjóri Eyris Invest, vildi
ekki tjá sig.
Bæði stjórn Össurar og
Eyris sendu tilkynningu frá
sér í gær vegna málsins.
Í tilkynningu stjórnar Öss-
urar sagði að engar ásættan-
legar tillögur hefðu borist og
ætti hún ekki von á viðskipt-
um á þeim nótum sem nefnd
hefðu verið.
Í tilkynningu Eyris sagði
að fyrirtækið hefði hafn-
að tilboðunum enda endurspegluðu þau ekki
virðisaukninguna fram undan.
Eyrir Invest hefur verið meðal stærstu hlut-
hafa Össurar síðastliðin fimm ár. Fjárfesting-
arfélagið hefur mikla reynslu af yfirtökum en
stjórnendur tóku sér tvö ár í kaup á hollensku
iðnsamsteypunni Stork sem gekk í gegn í fyrra.
jonab@markadurinn.is
Bretar reyna yfirtöku á Össuri
Erlendir fjárfestar hafa mikinn áhuga á Össuri. Hlutabréfaverðið er hagstætt í dölum eftir fall krónunnar.
HAGKVÆMUR KOSTUR
Stoðtækjafyrirtækið Össur finnur minna fyrir
efnhagsástandinu en sambærileg félög nú um
stundir. Kennitölur fyrirtækisins hafa þó lækkað
hlutfallslega meira en sambærileg fyrirtæki og
eru þær nú afar hagstæðar, samkvæmt spá IFS
Greiningar.
IFS gerir ráð fyrir nokkuð minni vexti hjá
Össuri en almennt er spáð en miðgildi saman-
burðarfélaga er 3,4 prósent á þessu ári. Gert er
ráð fyrir að sala Össurar aukist um 2,8 prósent
á þessu ári og skili félaginu hagnaði upp á 26,7
milljónir dala samanborið við 28,5 milljónir í
fyrra. Hagur félagsins mun batna talsvert eftir
það, að mati IFS.
JÓN SIGURÐSSON