Fréttablaðið - 20.03.2009, Side 50
30 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af …
Síðasta sýning á Óperuperlum
verður í Íslensku óperunni í
kvöld. Þar fara fjórir þaulvanir
söngvarar með atriði úr yfir
tuttugu óperum í sviðsetningu
óperustjórans, Stefáns Baldurs-
sonar. Þau sem fram koma eru
Diddú, Bjarni Thor, Ágúst Ólafs
og Sigríður Aðalsteins.
Sýningin hefst kl. 20.
Á laugardag verður ellefta
barna- og unglingabókaráð-
stefnan haldin í Gerðubergi.
Þar verða fjórir fyrirlestrar
haldnir um bækur og börn.
Þinghaldið, sem nú er orðið árlegt,
er haldið í samstarfi við Borgar-
bókasafnið, IBBY á Íslandi, Síung,
Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur,
Upplýsingu – félag bókasafns- og
upplýsingafræða og Félag fagfólks
á skólasöfnum. Það hefst á morgun
kl. 10.30 og stendur vel fram yfir
hádegi. Fyrirlesarar eru Halla
Kjartansdóttir: Að verða læs eða
lens. Halla segir: „Glíman við ólæs-
ið er stærsta og mikilvægasta verk-
efni bókmenntakennarans. Nem-
endur ættu að vera orðnir sæmilega
læsir á bókmenntatexta þegar þeir
koma í framhaldsskóla þar sem
skilningur þeirra ætti að vaxa og
dýpka í takt við þroska þeirra og
reynslu. En er það raunin?“
Guðlaug Richter rithöfund-
ur spyr: Hvernig glæðum við
áhuga barna á lestri? Fyrirlestur-
inn fjallar um könnun sem gerð
var á vegum Samtaka um Barna-
bókastofu síðastliðið sumar. Til-
gangurinn með könnuninni var
að safna upplýsingum um allt það
helsta sem verið er að gera á sviði
lestrarhvatningar á Íslandi.
Ingibjörg Baldursdóttir, bóka-
safns- og upplýsingafræðingur,
hefur starfað undanfarin tólf ár
á skólasafni Flataskóla í Garða-
bæ. Áður starfaði hún meðal ann-
ars á Borgarbókasafni og á Skóla-
safnamiðstöð Reykjavíkur. Í erindi
sínu fjallar Ingibjörg um ýmislegt
sem hún hefur verið að gera til
að kveikja áhuga nemenda á lestri
bóka.
Brynhildur Þórarinsdóttir kall-
ar erindi sitt: „Lestrarhestamót(un)
– gæðingaskeið, slaktaumatölt og
fleiri lestraríþróttir.
Í erindinu verður fjallað um bók-
lestur sem tómstundastarf, einkum
út frá hugmyndum um bókmennta-
uppeldi. Rætt verður um gagnsemi
bóklestrar og mikilvægi þess að
foreldrar, kennarar og samfélagið
allt virði barnabókmenntir og sýni
lestri barna áhuga. Fundarstjóri er
Silja Aðalsteinsdóttir.
pbb@frettabladid.is
AÐ RÆKTA BÓKAORMA
BÓKMENNTIR Börn eiga rétt á að læra að lesa bækur.
laugardag kl. 15
Stórsveit frá Brown University
heldur tónleika í Hátíðarsal FÍH
í Rauðagerði kl. 15. Stjórnandi er
Matthew McGarrell. Hljómsveitin
hefur komið fram víða um heim.
Hljómsveitin flytur fjölbreytta efnis-
skrá þekktra djasslaga fyrir stórsveit
og söngkonan Rosalind Schonwald
kemur fram í hluta efnisskrárinnar.
Stórsveit Tónlistarskóla FÍH kemur
fram sem opnunaratriði á tónleikun-
um. Aðgangur er ókeypis.
Í gærkvöld opnaði Elín Hansdóttir
myndlistarkona innsetningu í Lista-
safni Reykjavíkur í Grófinni. Elín hefur
að undanförnu vakið athygli víða
um lönd þar sem hún hefur sýnt en
innsetning hennar nú, sem er fyrsta
sýning hennar hjá Listasafni Reykja-
víkur, kallast Parallax sem þýða má
sem sýndarhliðrun. Er hún hluti
af sýningarröð Hafnarhússins
þar sem leitast er við að afmá
mörkin á milli safnsins og sam-
félagsins. Elín býður áhorfend-
um í óvissuför um sýningarsal
jarðhæðarinnar þar sem þeir
geta velt fyrir sér spurningunum
á borð við:
- Hvað gerist ef sýningarrými er
strokað út?
- Hvað gerist ef herbergi sem þú held-
ur að þú sért í er allt annað herbergi?
- Hvernig getum við talað um tiltekið
sjónarhorn þegar slíkur punktur er jafn
afstæður og raun ber vitni? Og að lokum:
- Til hvers að setja framhlið á hús sem
afhjúpast sem blekking um leið og
maður tekur eitt skref til hliðar?
Tækni sína við framsetningu
þessara spurninga sækir Elín í
blekkingar augans um dýpt eftir
sjónarmiði og lögun flata sem
afmarka sjónrýmið. Sjón er
sögu ríkari á vel við í þessari
upplifun.
Elín Hansdóttir fylgir
sýningunni úr hlaði með lista-
mannsspjalli á sunnudag kl.
15. Sýningarlok verða 17. maí.
- pbb
Vistarverur og sjónarhorn
MYNDLIST Elín Hansdóttir
Tilraunakvikmynda- og mynd-
bandahátíð 700.IS Hreindýra-
lands hefst á Héraði á morgun.
Er þetta í fjórða sinn sem hátíð-
in er haldin og er hún þriðja kvik-
myndahátíðin sem efnt er til utan
höfuðborgarsvæðisins.
Hátíðin verður sett í Sláturhús-
inu á Egilsstöðum annað kvöld kl.
20 með ávarpi Áslaugar Thorlacius,
myndlistarmanns og formanns
Sambands íslenskra listamanna.
Megináhersla á hátíðinni er nú á
videóinnsetningar og verða átta
listamenn með
verk sín í Slát-
urhúsinu: Andr-
eas Templin
(Þýskaland);
Hrafnkell Sig-
urðsson (Ísland);
Johanna Reich
(Þýskaland);
Julie Sparsö
Damkjaer (Dan-
mörk); L ana
Vogestad (USA);
Sigrún Lýðsdótt-
ir (Ísland) og Tom Goulden (Bret-
land); Soffía Guðrún Kr. Jóhanns-
dóttir (Ísland). Opnuninni verður
síðan fagnað frá hálftíu til mið-
nættis í Skjálfta í Valaskjálf þar
sem Gísli Galdur, Maggi Noem og
Danni Deluxxx halda uppi fjörinu
með dj/vj sýningu og boðið verður
upp á léttar veitingar.
Á sunnudag verður svokölluð
listamannaganga í Sláturhúsinu
milli kl. 12 og 13.30. Þá verða allir
listamennirnir á staðnum, ganga
um með gestum og sitja fyrir
svörum um verkin. Sama dag kl.
14 verður svo frumsýning gesta-
sýningarstjóradagskrár á Skriðu-
klaustri. Um er að ræða Colog-
neOFF, frá Köln í Þýskalandi.
Þetta er úrval verka af síðustu
CologneOFF hátíð, valið af Agri-
cola de Cologne. Dagskráin tekur
rúmlega klukkutíma í sýningu. Á
sunnudagskvöld verður frumsýn-
ing gestasýningarstjóradagskrár
í Skaftfelli á Seyðisfirði. Þetta er
dagskrá frá sænsku Örebro-hátíð-
inni, AVS. Sýningarstjórarnir,
Jonas Olsson og Eva Nilsson, verða
með spjall fyrir sýninguna, en hún
tekur tæpan klukkutíma.
Á mánudag verður frumsýnt
sýningarstjóraprógramm í sund-
lauginni á Eiðum kl. 20.00. Þetta
er dagskrá frá hátíðinni MOVES í
Manchester í Bretlandi. Sýningar-
stjóri er Pascale Moyse.
Á þriðjudagskvöld er síðasta
frumsýningin, en hún fer fram
í Þekkingarsetri Austurlands á
Egilsstöðum. Dagskráin er frá
VAIA-hátíðinni á Spáni og hefst kl.
19.30, en það á sérlega vel við því
að ÞNA sýnir einmitt spænskar
bíómyndir á þriðjudagskvöldum kl.
20 þessar vikurnar. Sýningarstjóri
VAIA er Pau Pascual Galbis.
Sýningin í Sláturhúsinu verður
opin alla vikuna að minnsta kosti
milli kl. 14 og 18. Hátíðinni lýkur
laugardaginn 28. mars og verða þá
gestaprógrömmin sýnd aftur kl. 14
um daginn.
Nánari upplýsingar um hátíðina
má finna á heimasíðunni www.700.
is. pbb@frettabladid.is
Í Hreindýralandi um helgina
KRISTÍN SCHEVING
Listrænn stjórnandi
Hreindýralands.
KVIKMYNDIR
Myndir frá verki
Jóhönnu Reich.
Hart í bak
Þrettándakvöld
Sædýrasafnið
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
MEÐÍSLENSKU TAL! SJÁÐU MYNDBROT Á
WWW.SENA.IS/BLAIFILLINN
9. HVERVINNUR!
MÖGNUÐ OG STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
UM VINÁTTU, ÁST OG HUGREKKI
FRUMSÝND 20. MARS
SENDU SMS ESL BFV Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR: BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
WWW.SENA.IS/BLAIFILLINN