Fréttablaðið - 20.03.2009, Side 58
38 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson hefur verið lengi á hlið-
arlínunni sökum erfiðra axlarmeiðsla. Það er loksins að birta til
hjá hörkutólinu og hann byrjaði að æfa með félögum sínum í
Flensburg í síðustu viku.
Reyndar má hann ekki fara í neinar snertingar enn sem
komið er enda tekur Flensburg ekki neina áhættu með öxlina á
honum. Alexander fór í aðgerð á hægri öxlinni nú í nóvem-
ber og getur því kastað þar sem hann er örvhentur.
Hann hafði lengi verið að hlaupa einn áður en hann
fékk að koma á æfingar og hann neitar því ekki að
vera fullur óþreyju yfir að komast almennilega af
stað.
„Þetta er búinn að vera frekar erfiður tími. Fyrstu
tveir mánuðirnir voru alveg hræðilegir. Ég gat ekki
hreyft hendina, svaf ekki neitt og var bara ónýtur,“
sagði Alexander við Fréttablaðið í gær en hann hitti
lækni í gærkvöldi og var að vonast eftir að fá grænt
ljós á að geta farið að æfa almennilega í næstu
viku.
„Ég fór svona smám saman að sjá ljós við enda gangsins. Öxlin
fór að styrkjast og ég gat farið að hreyfa mig. Hún er samt enn
mjög veik og ég þarf að passa hana. Það er raunhæft að segja
að ég geti farið að spila á ný í byrjun maí,“ sagði Alexander sem
gengur oft undir nafninu vélmennið enda vílar hann ekki fyrir
sér að spila meiddur. Hann spilaði til að mynda kjálkabrotinn
eitt sinn með landsliðinu.
„Ég er að vonast til þess að geta spilað með lands-
liðinu í sumar. Ég sá leikinn við Makedóníu heima og
samgladdist strákunum sem stóðu sig frábærlega.
Ég var allur á iði í sófanum og hreyfði hendurnar
með sama hvort liðið var í vörn eða sókn. Ég var á
staðnum en samt ekki. Þessi úrslit eru mögnuð og
sýnir hvað við erum með frábæran þjálfara,“ sagði
Alexander kátur. Alexander og unnusta hans, Eivor
Pála Blöndal, eiga von á barni eftir þrjár vikur,
öðrum syni. „Ég er að safna slagsmálahundum í
íslenska landsliðið,“ sagði Alex og hló létt. „Það
verður nóg að gera hjá okkur næstu mánuði sem
ALEXANDER PETERSSON: SÉR FRAM Á BJARTARI TÍMA MEÐ BETRI HEILSU OG ÖÐRU BARNI
Get vonandi spilað með landsliðinu í sumar
Skiptum um bremsuklossa strax í dag hjá Max1.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel. Og ódýrt einnig.
Eru bremsurnar búnar?
Fáðu fast verð hjá Max1 í dag
Skoðaðu verðdæmin hér að neðan.
Komdu við hjá Max1 í dag
og fáðu þér kaffi.
Max1 verðdæmi – bremsuklossaskipti að framan:
Toyota Yaris 1,3 Árg. 2002–2007 Varahlutir og vinna: 13.013 kr.
Nissan Almera 1,4 Árg. 1995–2007 Varahlutir og vinna: 12.685 kr.
VW Golf V Plus 1,4 16v Árg. 2005–2007 Varahlutir og vinna: 14.541 kr.
Honda Civic HB 1,6 16v Árg. 1991–1995 Varahlutir og vinna: 14.472 kr.
Ford Focus 1,6 Árg. 1999–2004 Varahlutir og vinna: 14.536 kr.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt, vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Skoðaðu www.max1.is
Iceland Express-deild karla
Snæfell - Stjarnan 73-71
Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 20, Sigurður
Þorvaldsson 17 (9 fráköst), Hlynur Bæringsson 14
(12 fráköst), Lucious Wagner 10 (9 fráköst, 6
stoðsendingar), Magni Hafsteinsson 6, Slobodan
Subasic 4, Atli Hreinsson 2.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 16, Justin
Shouse 16 (8 stoðsendingar), Ólafur Sigurðsson
13, Fannar Freyr Helgason 11 (10 fráköst), Guðjón
Lárusson 8, Kjartan Atli Kjartansson 7.
NÆSTU LEIKIR
Sunnudagur 22. mars: KR - Keflavík
Mánudagur 23. mars: Grindavík - Snæfell
UEFA-bikarkeppnin:
Metalist Kharkov - Dynamo Kiev 3-2
Dynamo Kiev komst áfram á útivallarmörkum.
Shakhtar Donetsk - CSKA Moskva 2-0
Shakhtar Donetsk vann samanlagt, 2-1.
Zenit St. Pétursborg - Udinese 1-0
Udinese vann samanlagt, 2-1.
Galatasaray - Hamburger SV 2-3
Hamburger SV vann samanlagt, 4-3.
Tveimur leikjum var ólokið þegar Fréttablaðið fór
í prentun.
ÚRSLIT
> Björgólfur búinn að semja
Björgólfur Takefusa hefur gengið frá samningi við KR
sem gildir til loka næstu leiktíðar. Þetta
staðfesti Rúnar Kristinsson, yfirmaður
knattspyrnumála hjá KR, í samtali við
Fréttablaðið. Björgólfur var efins um
hvort hann ætlaði að halda áfram í
knattspyrnu eftir að síðasta tíma-
bili lauk en eins og hann
sagði í samtali við Frétta-
blaðið fyrir nokkru vaknaði áhuginn á
ný nú á vormánuðunum.
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Íslenska handbolta-
landsliðið kom til landsins
skömmu fyrir kvöldmatarleytið í
gær eftir langt og strangt ferða-
lag frá Makedóníu. Það hófst með
því að þeir fóru frá hótelinu í
Skopje klukkan þrjú um nóttina,
flugu til Búdapest og þaðan til
Frankfurt og loks heim.
„Þetta var 15-16 tíma ferðalag,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari. „Og við náðum
auðvitað ekkert að sofa. Við
misstum einfaldlega úr eina nótt.
Við erum því nokkuð þreyttir.“ - esá
Landsliðsmenn komnir heim:
Sváfu ekkert
ÞJÁLFARINN Á æfingu með íslenska
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJORIVIC
HANDBOLTI Það er nú ljóst að
Arnór Atlason verður ekki með
íslenska landsliðinu gegn Eist-
landi á sunnudaginn. Arnór
meiddist á læri á æfingu lands-
liðsins á mánudaginn og er einnig
meiddur á hné.
„Ég fer til læknis í fyrramálið
(í dag) og gæti jafnvel komið til
greina að fara í speglunaraðgerð
á hnénu. Hnéð er bólgið þó svo
að ég hafi fengið bólgueyðandi
sprautu fyrir nokkrum vikum.
Það þýðir að eitthvað er að þó
svo að ekkert óeðlilegt hafi sést í
myndatökum,“ sagði Arnór.
Meiðslin á lærinu gera það að
verkum að hann verður frá næstu
2-3 vikurnar. - esá
Arnór Atlason meiddur:
Ekki með gegn
Eistlandi
KÖRFUBOLTI Óvíst er hvort Nick
Bradford, leikmaður Grindavíkur,
getur spilað með sínum mönnum í
undanúrslitum úrslitakeppni Ice-
land Express-deildar karla.
Bradford féll í yfirlið eftir að
hafa fengið sprautu í hnéð vegna
meiðsla. Hann féll í gólfið með
þeim afleiðingum að hann
rotaðist og sauma þurfti tólf
spor í andlit hans.
Friðrik Ragnarsson, þjálf-
ari Grindavíkur, sagði
í samtali við Frétta-
blaðið að talið sé
að blóðþrýsting-
u r Brad fords
hafi hríðfall ið
með fyrrgreindum
afleiðingum.
„Hann skall bara með andlitið á
undan sér á flísarnar. Ég var með
hann í fanginu með opin augun og
hann fékk krampakast í kjölfar-
ið. Ég vissi ekki hvort maðurinn
væri að fá hjartaáfall eða hvað.
Hann fékk stóran skurð á
hökuna og það blæddi úr
eyrunum á honum, svo
ég var mjög smeykur,“
sagði Friðrik.
Bradford gisti á
spítala í fyrrinótt
og er líðan hans góð
eftir atvikum.
„Ég er að gera mér
vonir um að hann spili
með okkur á manudaginn.
Hann er merkilega brattur
þrátt fyrir allt.“ - esá, bb
Nick Bradford, Grindavík, tæpur fyrir úrslitakeppnina:
Rotaðist og þurfti
tólf spor í andlitið
KÖRFUBOLTI Snæfellingum tókst
loksins að vinna leik þegar tíma-
bilið var undir þegar þeir unnu
73-71 sigur á Stjörnunni í oddaleik
liðanna í átta liða úrslitum Iceland
Express-deildar karla í körfubolta.
Snæfell hafði tapað fjórum slíkum
leikjum í röð fyrir leikinn í gær og
um tíma í lokin var eins og félagið
ætlaði að kasta frá sér leiknum.
Snæfellsliðið var með frum-
kvæðið allan leikinn en baráttu-
glaðir Stjörnumenn gáfust aldrei
upp og Hólmurum ætlaði síðan
aldrei að takast að landa sigrinum
á lokasekúndunum sem drógust á
langinn.
„Þessi leikur var alveg stór-
merkilegur og þessi endir var alveg
fáránlegur. Fyrst náðu þeir að plata
dómarana til þess að láta mig taka
vítin. Það var gott trix hjá þeim því
ég var ekki búinn að hitta mikið af
þeim undanfarið. Þá byrjaði ein-
hver atburðarrás þar sem alltaf var
verið að stoppa og bæta við tímann.
Þetta ætlaði ekki að klárast,“ sagði
Hlynur Bæringsson, annar þjálfara
Snæfells, eftir leikinn.
„Ég var kannski ekki nógu
stressaður fyrir leikinn því mér er
alveg sama þótt við hefðum dottið
út á móti Stjörnunni. Ef við hefðum
ekki unnið þennan leik þá hefðum
við ekkert átt í Grindavík að gera.
Takmarkið hjá mér er bara að vinna
titilinn og tímabilið hjá mér er ekk-
ert betra sama hvort ég fer í úrslit
eða undanúrslit,“ sagði Hlynur
Bæringsson sem sér alltaf hlutina
á sinn einstaka hátt. Snæfell mætir
Grindavík í undanúrslitunum.
Stjörnumenn voru með frum-
kvæðið framan af leik og voru 14-
12 yfir þegar rúmar tvær mínútur
voru eftir af fyrsta leikhlutanum.
Snæfellsliðið náði þá góðum og
löngum spretti. Stjörnuliðið skor-
aði bara þrjú stig á átta mínútum
og á meðan breyttu Hólmarar stöð-
unni úr 12-14 í 30-17. Snæfell var
ellefu stigum yfir í hálfeik, 38-27.
Stjörnumenn komu grimmir inn
í seinni hálfleikinn, fóru að hitta
betur og komu sér inn í leikinn.
Það virtist þó vera sem mis-
tök Justins Shouse 1 mínútu og 55
sekúndum fyrir leikslok væru að
kosta Garðbæinga leikinn. Justin
lét Hlyn stela af sér boltanum og
fékk síðan á sig óíþróttamanns-
lega villu. Jón Ólafur Jónsson
setti bæði vítin niður og Snæfell
var komið með 7 stiga forskot, 70-
63, og boltann.
Slobodan Subasic gekk þá
eiginlega í lið með Stjörnumönn-
um með því að stoppa klukkuna,
braut þrisvar af sér í röð og endaði
á að brjóta á Fannari Frey Helga-
syni í þriggja stiga skoti og áður en
heimamenn vissu af voru Stjörnu-
menn komnir með möguleika á að
senda þá í sumarfrí.
Sóknarleikur Snæfells í seinni
hálfleik var hægur og vandræða-
legur og Hlynur gerir sér grein
fyrir að þar þarf liðið að bæta sig.
„Við vorum svolítið í basli með
sóknarleikinn í þessari seríu. Við
þurfum að finna einhver svör til
þess að fá betra flæði í þetta. Við
þurfum kannski að hringja í Geof
[Kotila, fyrrum þjálfara Snæfells]
til að fá svörin við þessu því við
erum að láta hanka okkur á smá-
atriðum sem eru að frysta sókn-
arleikinn hjá okkur,” sagði Hlyn-
ur. Hann viðurkenndi að þeim
hefði gengið hræðilega að dekka
sinn gamla félaga Justin Shouse
sem kom nánast að öllum körfum
Stjörnuliðsins í seríunni.
„Það er alltaf erfitt að tapa síð-
asta leiknum en það gerðust marg-
ir góðir hlutir hjá liðinu í vetur.
Vonandi fara þeir sem lengst í
úrslitakeppninni og láta okkur líta
betur út,“ sagði Justin eftir leik-
inn Hann var skiljanlega svekkt-
ur eins og þjálfarinn því það mun-
aði svo litlu hjá þeim í lokin en það
var líka auðvelt fyrir þá að vera
ánægðir með tímabilið.
„Ég er gríðarlega stoltur af
strákunum. Andrúmsloftið var
mjög dauft þegar ég kom í desem-
ber en núna er þetta árið sem þessi
strákar muna eftir allavega er það
svoleiðis fyrir mig. Ég er ofboðs-
lega sáttur með veturinn. Það
vantar ekki mikið í þetta lið til
þess að það komist í fremstu röð,“
sagði Teitur Örkygsson, þjálfari
Stjörnunnar.
ooj@frettabladid.is
SIGURÐUR ÞORVALDSSON Skoraði sautján stig fyrir Snæfell í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Við þurfum kannski að hringja í Geof
Hlynur Bæringsson og félagar í Snæfelli eru komnir í undanúrslit Iceland Express-deildar karla á móti
Grindavík eftir 73-71 sigur í spennandi oddaleik á móti bikarmeisturum Stjörnunnar í Hólminum í gær.