Fréttablaðið - 21.03.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 21.03.2009, Síða 8
8 21. mars 2009 LAUGARDAGUR Leikkona: Þóra Karítas Árnadóttir Leikstjóri: María Ellingsen Íslenskun: Gísli Rúnar Jónsson Ath. örfáar sýningar: 22/3 27/3 28/3 4/4 5/4 18/4 Miðasala í síma 568 8000 á borgarleikhúsid.is og midi.is Næsta sýning kl. 16:00 á morgun Námsmannatilboð 2 fyrir 1 Sannsögulegt verk sem hefur farið sigurför um allan heim á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja Marstilboð til elli- og örorkulífeyrisþega FRAKKLAND, AP Ókunn skytta skaut úr þrýstiloftbyssu á leikskóla í borginni Lyon í Frakklandi í gær, með þeim afleiðingum að ellefu fullorðnir hlutu skotsár, að því er saksóknarinn í borinni greindi frá. Ekkert leikskólabarnanna sakaði. Lögregla umkringdi svæðið en allt kom fyrir ekki; skyttan fannst ekki. Skothríðin átti sér stað um það leyti sem foreldrar voru að sækja börn sín á leikskólann um hádeg- ið í gær. Nokkrir voru fluttir á slysadeild en meiðslin af völdum skotanna reyndust ekki alvarleg. Atvikið er mönnum ráðgáta. „Það voru engin vitni, enginn sá skyttuna,“ sagði saksóknarinn, Xavier Richaud. - aa Undarleg árás í Lyon: Loftbyssuskot- hríð á leikskóla LEIT Á STAÐNUM Þrátt fyrir fjölmennt lögreglulið fannst skyttan í Lyon í Frakk- landi ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1 Hvaða þjóðlega góðgæti er verið að flytja út djúpsteikt til Bandaríkjanna frá Hvamms- tanga? 2 Hve mikið lækkuðu stýrivext- ir Seðlabankans á fimmtudag? 3 Hvaða breska leikkona lést eftir höfuðmeiðsl sem hún fékk er hún féll á skíðum? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66 Samstarf aukið Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, fundaði með Georgi Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæsl- unnar, í gær um öryggismál á Norður- Atlantshafi. Gade sér tækifæri í nánari samvinnu við Gæsluna, ekki síst með tilliti til opnunar siglingaleiða á Norð- ur-Íshafi. Gade viðrar möguleika á að Landhelgisgæslan taki þátt í eftirliti við Grænland og Færeyjar. LANDHELGISGÆSLAN Kúabændur vonsviknir Landssamband kúabænda deilir vonbrigðum „málsmetandi aðila“ með hversu lítil lækkun stýrivaxta Seðlabankans var á fimmtudag. Vextir lækkuðu um eitt prósentustig. „Kúabændur hefðu viljað sjá miklu meiri vaxtalækkun, þar sem vandséð er önnur aðgerð sem kæmi rekstri búanna betur,“ segir á vef sambands- ins. EFNAHAGSMÁL BRUSSEL, AP Leiðtogar Evrópu- sambandsins lögðu til á vorfundi sínum í Brussel í gær að neyðar- sjóður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins yrði tvöfaldaður upp í 500 millj- arða Bandaríkjadala, andvirði um 57.500 milljarða króna. Þetta skyldi gert í því skyni að efla getu sjóðsins til að hamla gegn viðlíka áföllum í efnahagsmálum heimsins og heimsbyggðin gengur í gegn um þessar mundir. Sjálf ætla Evrópu- sambandsríkin að leggja til þriðj- unginn af þessari endurfjármögn- un AGS. Það voru Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og aðrir leiðtogar sambandsins sem tilkynntu um þetta samkomulag í lok leiðtogafundarins í gær. Aðal- umræðuefni fundarins var annars efnahagskreppan í álfunni og ráð- stafanir gegn henni. „Evrópusambandið er að sýna að það er vandanum vaxið,“ sagði Barroso. Leiðtogarnir sögðu sam- bandið sjálft munu leggja á bilinu 75 til 100 milljarða dala til hinnar áformuðu endurfjármögnunar AGS. Endanleg ákvörðun um þá endur- fjármögnun verður tekin á leiðtoga- fundi G20-hóps mestu efnahags- velda heims í Lundúnum 2. apríl. Á þeim fundi stendur til að finna leið- ir til að stýra efnahagskerfi heims- ins út úr kreppunni. - aa JOSE MANUEL BARROSO Á blaðamanna- fundi eftir leiðtogafundinn í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Leiðtogafundur Evrópusambandsins um aðgerðir gegn efnahagskreppunni: Vilja endurfjármagna AGS STYRKIR OG TAP STJÓRNMÁLAFLOKKA ÁRIÐ 2007 0 20 40 60 -20 -40 -60 -80 -100 Styrkir frá fyrirtækjum Tap ársins HEIMILD: RÍKISENDURSKOÐUN 60,3 28,6 28,4 4,8 29,1 5,7 89,7 23,5 37,3 56,9 36,2 16,9 Tölur eru í milljónum króna SPÁNN Eftir að Benedikt XVI páfi lét hafa eftir sér í Afríkuferð sinni, sem nú stendur yfir, að smokkar væru „ekki lausnin“ á HIV- smitvandanum í álfunni, hefur spænska ríkisstjórnin ákveðið að senda eina milljón smokka til dreifingar í Afríkulöndum. Með smokkadreifingunni vilja spænsk stjórnvöld leggja sitt af mörkum til baráttunnar gegn útbreiðslu HIV í Afríku, að því er segir í tilkynningu frá spænska heilbrigðisráðuneytinu. Þar segir að smokkar hafi reynst „nauðsyn- legur þáttur í þessari baráttu“; þeir séu „gagnvirk vörn gegn HIV- veirunni“. - aa Í tilefni af páfaummælum: Spánarstjórn sendir smokka STJÓRNMÁL Allir stjórnmálaflokk- ar sem buðu fram til Alþingis árið 2007 skiluðu tapi á kosningaár- inu. Samtals töpuðu flokkarnir 281 milljón króna. Þetta kemur fram í úrdrætti úr ársreikningum flokk- anna fyrir árið 2007, sem Ríkisend- urskoðun birti í gær. Flokkarnir höfðu samtals 796 milljónir króna í tekjur á árinu, og eyddu því samanlagt um 1.077 millj- ónum króna. Samfylkingin tapaði mest allra flokka um 90 milljónum króna. Næst mestu tapaði Framsóknar- flokkur, rúmum 60 milljónum. Allir flokkarnir fengu styrki frá fyrirtækjum. Mest fékk Sjálfstæðisflokkurinn, 56,9 millj- ónir króna. Það er tæplega tvöfalt hærri upphæð en sá flokkur sem næst komst fékk. Það var Fram- sóknarflokkurinn, sem fékk um 28,6 milljónir króna frá fyrirtækj- um. Í útdrætti af ársreikningunum má sjá lista yfir fyrirtæki og stofn- anir sem styrktu stjórnmálaflokk- ana á árinu 2007. Hámarksfjárhæð styrks hvers fyrirtækis eru 300 þúsund krónur. Meirihluti þeirra fyrirtækja sem styrktu flokkana gáfu þá upphæð. Glitnir og Landsbankinn styrktu alla stjórnmálaflokkana um 300 þúsund krónur hvor banki. Kaup- þing styrkti alla flokka nema Fram- sóknarflokkinn um 300 þúsund krónur. Baugur styrkti Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu og Vinstri-græn um 300 þúsund krónur og Frjálslynda flokkinn um 200 þúsund krónur. Að auki styrktu Hagar, sem þá voru í eigu Baugs, Samfylkingu, Vinstri- græn og Íslandshreyfinguna um 300 þúsund krónur. FL Group styrkti alla flokka nema Sjálfstæðisflokk og Frjáls- lynda flokkinn um 300 þúsund. Þrjú félög Ólafs Ólafssonar, Sam- skip, Ker og Kjalar, styrktu Fram- sóknarflokkinn um samtals 650 þúsund krónur. Athygli vekur að utanríkisráðuneytið styrkti flokk- inn um 90 þúsund krónur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk einn- ig hæst framlög frá einstakling- um, um 47 milljónir króna. Aðrir flokkar voru ekki hálfdrættingar, næst hæst framlög frá einstakling- um fékk Samfylkingin, 15,1 milljón króna. Framsóknarflokkurinn fékk 12,6 milljónir og Vinstri-græn 9,8 milljónir króna. Minnstu flokkarnir fengu áber- andi lægri upphæðir frá einstak- lingum. Frjálslyndi flokkurinn fékk 1,5 milljón króna, og Íslandshreyf- ingin 324 þúsund krónur. Allir flokkarnir, fyrir utan Íslandshreyfinguna, fengu að auki framlög úr ríkissjóði í samræmi við fjölda þingmanna, alls tæplega 425 milljónir króna á árinu 2007. Sjálfstæðisflokkurinn var með langhæstu tekjurnar á árinu 2007, rúmar 317 milljónir króna saman- lagt. Samfylkingin kom þar næst á eftir með 197 milljónir, og þar á eftir Framsóknarflokkur með 136 milljónir. Tekjur Vinstri-grænna voru alls 80 milljónir, Frjálslyndi flokkurinn var með um 63, og Íslandshreyfingin rak lestina með 6,5 milljónir króna í tekjur. Birting ársreikninga stjórnmála- flokkanna vegna ársins 2007 hefur dregist, en þetta er í fyrsta skipti sem flokkunum er gert að skila árs- reikningum til Ríkisendurskoðunar. Stefnt er að því að birta niðurstöður ársreikninga flokkanna vegna árs- ins 2008 í haust. brjann@frettabladid.is Eyddu um 1,1 milljarði 2007 Stjórnmálaflokkarnir töpuðu samtals 281 milljón króna á árinu 2007. Sjálfstæðisflokkur fékk hæsta styrki frá bæði fyrirtækjum og einstaklingum. Sam- fylkingin tapaði mestu, tæpum 90 milljónum króna. VEISTU SVARIÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.