Fréttablaðið - 21.03.2009, Síða 22
22 21. mars 2009 LAUGARDAGUR
Hver er ábyrgð þín í því hruni sem íslenskt
samfélag varð fyrir?
Það er alveg ljóst að ábyrgðin á bankahrun-
inu liggur fyrst og fremst hjá forsvarsmönn-
um fjármálastofnana og stærstu útrásárfyr-
irtækja sem fóru allt of geyst. Í mínum huga
er líka ljóst að eftirlitsstofnanir stjórnvalda
brugðust einnig og þær hefðu átt að grípa inn
í fyrr. Það voru mjög margir, meðal annars
ég, sem treystu mjög á að eftirlitsstofnanir
legðu rétt mat á málin.
Ég lagði ítrekað fram fyrirspurnir á
Alþingi, líklega einar tuttugu á árunum 2005
til 2007, um bankakerfið. Ég spurði hvort
stefnt gæti í hrun bankakerfisins vegna
stærðar þess, hvort endurskoða þyrfti inni-
stæðutryggingar, um hættuna vegna kross-
eignatengsla, kaup bankanna í óskyldum
fyrirtækjum og óeðlilegar lánveitingar til
stjórnenda bankanna, svo dæmi séu tekin.
Svörin voru öll á einn veg: Fyrrverandi við-
skiptaráðherra Framsóknarflokksins vísaði í
eftirlitsstofnanir, FME og Seðlabankann, um
að allt væri í besta lagi.
Auðvitað bera margir ábyrgð, líka þeir
sem stóðu vaktina. En forsendan margra var
eflaust sú að treysta eftirlitsstofnununum, að
þær legðu rétt mat á málin.
Samfylkingin tók á málunum með ákveðn-
um hætti. Það sem helst er hægt að ásaka
hana fyrir er að hún hefði átt að grípa fyrr
inn í, hefði átt að setja Sjálfstæðisflokknum
stólinn fyrir dyrnar miklu fyrr. Þegar við
gerðum það var farið í nauðsynlega endur-
skipulagningu. Ný ríkisstjórn var mynduð og
Samfylkingin hefur því verið forgönguaðili
þeirra breytinga sem gerðar hafa verið í end-
urreisnarstarfinu.“
En það var eftir hrun?
Já, það var eftir hrun. En við vildum grípa
miklu fyrr inn í og það er hægt að gagnrýna
okkur fyrir að vera allt of þolinmóð við Sjálf-
stæðisflokkinn eftir hrunið. Við vildum strax
fara í ýmsar breytingar. Samfylkingin hefur
axlað ábyrgð, meðal annars með stjórnarslit-
um við Sjálfstæðisflokkinn, og verið burða-
rásinn í því endurreisnarstarfi sem unnið
hefur verið.
En bera þingmenn og ráðherrar ekki allir
ábyrgð?
Jú, það bera allir ábyrgð, stjórnarþingmenn
og stjórnarandstaða og þeir sem voru í rík-
isstjórn. Auðvitað bera þeir mikla ábyrgð
sem voru í þeim ráðuneytum sem fóru með
efnahagsmálin; forsætis-, fjármála- og við-
skiptaráðuneyti. Björgvin G. Sigurðsson axl-
aði pólitíska ábyrgð og sagði af sér ráðherra-
dómi og hafði forgöngu um að stjórn FME
vék frá. Þetta er mikilvægt fordæmi og hann
er maður meiri eftir þetta. Við höfum síðan
haft forgang um ýmsa hluti sem nauðsynleg-
ir voru til að koma hlutunum á réttan kjöl,
til dæmis endurskipulagningu Seðlabankans,
Fjármálaeftirlitsins og fjármálakerfisins.
En andvaraleysið var vissulega of mikið,
en ég vísa bæði til þeirra fyrirspurna sem
ég setti fram og þess hvernig eftirlitsstofn-
anir leiddu stjórnvöld ekki á réttar brautir
með afstöðu sinni. Ég tel að ef sannleikur-
inn hefði komið í ljós í þessum fyrirspurnum
hefðu menn getað gripið fyrr inn í.
Ertu þá að segja að sannleikanum hafi verið
hagrætt?
Það er ljóst að byrjunin á hruninu liggur
nokkuð langt aftur í tímann og í þessum fyr-
irspurnum, frá árunum 2005-2007, er verið að
spyrja um hluti sem síðar kom í ljós að voru
ekki í lagi. Ég minni líka á skýrslu Seðla-
bankans um fjármálastöðugleika frá því í
maí 2008, þar sem niðurstaðan var sú að fjár-
málakerfið væri í meginatriðum traust.
Auðvitað rýnir maður í svona skýrslur
til að meta málin og þar segir að íslenska
bankakerfið uppfylli kröfur sem gerðar voru
til þess og stæðist álagspróf FME og Seðla-
bankans. Þetta kom fram í þessari skýrslu
þannig að ábyrgð þeirra er náttúrulega tölu-
vert mikil.
Þannig að menn hafi fegrað sannleikann í
þessum skýrslum og svörum við fyrirspurn-
um þínum?
Já, ég held að það sé alveg ljóst.
Hvað olli þessu hiki á að tilkynna formanns-
framboð?
Mín svör voru afdráttarlaus þegar niður-
staða Ingibjargar Sólrúnar lá fyrir. Ég sagði
strax að þetta væri verkefni sem ég mundi
ekki taka að mér og ég ætlaði mér aldrei að
gera það.
Ég gaf kost á mér sem forsætisráðherra
og forsætisráðherraefni að því tilskyldu að
annar yrði formaður. Eftir mikla hvatningu
og mikinn stuðning í prófkjöri endurmat ég
mína afstöðu. Ég þurfti nokkra umhugsun því
þetta var alls ekki sjálfgefið. Þetta er spenn-
andi og ögrandi verkefni og nú þegar ákvörð-
un hefur verið tekin geng ég til verksins stað-
ráðin í að bregðast ekki trausti fólksins og
leiða endurreisnarstarfið sem nú er hafið.
Mér fannst ég ekki geta vikið mér undan
verkefninu. Nú verða allir að leggjast á
árarnar og mér fannst ég ekki geta neitað því
á sama tíma og ég krafðist þess af öðrum,
atvinnulífinu, launafólki og þjóðinni allri, að
leggja sitt af mörkum.
Þú sagðir á Alþingi eftir bankahrunið að
frjálshyggjan hefði beðið skipbrot og hefja
þyrfti félagsleg gildi til virðingar á ný. Þarf
uppstokkun okkar gilda?
Já. Þau stjórnmál sem hafa verið hér við lýði
síðastliðinn einn eða tvo áratugi, sérstaklega
síðustu tíu ár, hafa verið með þeim hætti að
græðgis- og einkavinavæðingin hafa haft hér
öll tök. Við sjáum hve dýrkeypt það hefur
verið þjóðinni. Hver hefur verið sjálfum sér
næstur, en nú þurfum við samstöðu um önnur
gildi í samfélaginu.
Það þarf að byggja á jafnræði, samfé-
lagslegri ábyrgð, bættu siðferði og kannski
ekki síst hófsemd. Ég tel að það séu fyrst og
fremst gildi jafnaðarstefnunnar sem munu
leiða okkur upp úr þessum öldudal og það sé
lykilatriði að jafnaðarmenn verði leiðandi í
ríkisstjórn.
Ertu þá ekki að boða félagshyggjustjórn?
Jú, ég held að það væri mjög farsælt. Skoð-
anakannanir sýna að núverandi stjórnar-
flokkar eru með meirihluta, þó margt get
gerst á þeim mánuði sem er til kosninga.
Ég held að það væri farsælast ef núverandi
stjórnarflokkar fengju óskorað umboð til að
halda verkefnunum áfram.
Mun stjórnin sitja áfram fái hún meirihluta?
Já, ég held að innan flokkanna sé meirihluta-
vilji fyrir því. Fái stjórnin ótvíræðan meiri-
hluta liggur það beinast við. Ég held að það
sé nauðsynlegt eftir 18 ára stjórnarsetu Sjálf-
stæðisflokksins að hann vermi áfram stjórn-
arandstöðubekkina. Stjórnarseta flokksins
lagði grunn að mörgum þeim hremmingum
sem íslenskt samfélag gengur nú í gegnum.
Verður þessu lýst yfir?
Það á eftir að ræða það í flokknum.
En hafið þið Steingrímur rætt þetta?
Nei, við höfum ekki gert það. Ekki nema
óbeint þannig að samstarfið gangi vel. Ég
held að menn geti alveg séð það fyrir sér
áfram.
En standa Evrópumálin ekki í vegi fyrir slíku
samstarfi?
Vinstri græn þekkja þá áherslu sem Sam-
fylkingin leggur á Evrópumálin. Ég held að
aðild að Evrópusambandinu og myntbanda-
laginu sé sú framtíðarsýn sem þjóðin þarf
á að halda.
Við munum auðvitað setjast yfir þetta og
sjá hvort og hvernig við náum saman í því.
En þetta eru okkar áherslur og eiga ekki að
koma Vinstri grænum á óvart.
Tala atvinnulausra nálgast nú 20 þúsund.
Hvernig á að koma þeim til hjálpar, sem og
skuldsettum heimilum?
Við höfum þegar kynnt mjög fjölbreytt
úrræði er varðar heimilin. Það er fleira á
döfinni frá þinginu í þeim efnum sem ég bind
vonir við; greiðsluaðlögunin, greiðsluaðlögun
fasteignalána, séreignasparnaðurinn, hækk-
un vaxtabóta, frestun á nauðungarsölum og
svo framvegis.
Við höfum einnig gert ýmislegt fyrir
atvinnulífið og kynnt áætlun um að skapa
6.000 störf. Atvinnuleysið er allt of mikið
núna og það gæti orðið níu til tíu prósent á
þessu ári og næsta, en síðan mun það lækka
verulega.
Af þessum 6.000 störfum eru um 2.000 í
orkufrekum iðnaði. Þar er ekki aðeins stór-
iðnaður sem skiptir máli, heldur mannafls-
frekar framkvæmdir og til þeirra lítum við
þegar við nefnum þessi 6.000 ársverk. Þá er
mikilvægt að hlúa að atvinnugreinum þar
sem við nýtum sem best menntun og þekk-
ingu; ég nefni hátækniiðnað og sérfræði-
störf.
Þá vil ég nefna endurgreiðslu virðisauka-
skatts vegna viðhaldsframkvæmda úr 60
í 100 prósent tímabundið. Þetta mun auka
atvinnu verulega, ekki síst hjá verktökum
og iðnaðarmönnum. Þá hefur sá möguleiki
að gera ráð fyrir hlutastörfum samhliða
atvinnuleysisbótum verið nýttur mikið. Tut-
tugu prósent þeirra sem eru skráðir atvinnu-
lausir eru í hlutastarfi.
Það mikilvægasta er þó að endurskipu-
leggja bankakerfið sem er langt komið, vinna
skipulega að áætlun um að afnema gjaldeyr-
ishöftin og ná niður stýrivöxtum hratt og
markvisst, en það ferli er nú hafið. Þetta er
undirstaða endurreisnar efnahagslífsins.
Gríðarlega mikill fjárlagahalli blasir við
næstu ár. Hvernig á að vinna á honum?
Hallinn sem þarf að taka á er gífurlegur og
við sjáum ekki fyrir okkur hallalaus fjárlög
fyrr en 2012 til 2013. Það þarf að sýna veru-
legt aðhald í ríkisrekstrinum og það er þegar
hafið. Sambland af aðhaldi í rekstri og breyt-
ingum á skatttekjum. Við verðum að brúa
bilið og það er óhjákvæmilegt að allir muni
finna fyrir samdrættinum.
Eitt af því sem mér finnst ekki hafa verið
gert nægilega mikið af – og ég tel mig geta
unnið farsællega að með Vinstri grænum –
er að forgangsraða í ríkisrekstrinum. Það er
alltaf byrjað á því að taka á velferðarkerf-
inu, eins og það sé ekkert annað sem megi
taka á.
Eitt vil ég einnig nefna og það er undan-
dráttur í skattkerfinu. Um nokkra hríð hefur
legið fyrir skýrsla sem ég bað um um hversu
mikill hann er og þar er verið að ræða um
tugi milljarða. Það hefur aldrei verið farið
út í almennilega aðgerðir til að loka fyrir
skattasmugur, samt hafa legið fyrir tillögur í
fjármálaráðuneytinu í upp undir áratug. Það
er fyrst núna sem menn eru að taka á þessu
með markvissum hætti, eins og því að kom-
ast inn í skattaskjól. Þarna eru miklir pen-
ingar og ef við náum í þá þarf minna að skera
niður eða breyta skattkerfinu.
Það er alveg ljóst að í samstarfinu sem
við erum núna með Vinstri grænum, verður
reynt að verja velferðarkerfið í þeim niður-
skurði sem fram undan er. Þeir sem verst hafa
það, þeir sem helst þarf að hjálpa, munu finna
sem minnst fyrir því. Þar mun fólk sjá breytt-
ar áherslur frá því sem var þegar Framsókn
og Sjálfstæðisflokkur stjórnuðu. Þá var ekki
verið að hlífa velferðarkerfinu þó afgangur
af ríkisfjármálum væri gríðarlegur. Þá var
skattkerfið notað til að hækkar byrðina á fólki
með lágar og meðaltekjur á meðan þeim var
hlíft og þeir fengu skattalækkanir sem mest
höfðu fyrir.
Ég tel að við ættum að skoða breytingar á
stjórnkerfinu og sameiningu ráðuneyta, svo
sem efnahagsráðuneyta og atvinnuráðuneyta.
Það myndi gera kerfið mun skilvirkara og það
vantar líka meiri stjórnfestu í stjórnsýsluna.
Þú nefnir breytingar á skattkerfinu. Þarf að
hækka skatta og kemur til greina að koma á
þrepaskiptum skatti?
Ég er ekki að boða aukna skattheimtu. Það
eina sem ég er að segja er að ekkert er und-
anskilið þegar verið er að skoða hvað hægt er
að gera. Það þarf að draga verulega saman í
ríkisrekstri og það eru einkum tvær leiðir til
þess; að skera niður og veita aðhald í ríkis-
rekstri og svo að auka með einhverjum hætti
skatttekjurnar. Það þarf að gera þannig að
þeim sem minnst hafa fyrir og meðaltekjurn-
ar verði hlíft sem mest.
Síðan þarf að ráðast í stjórnkerfisbreyt-
ingar sem ég hef verið að ræða um. Þær taka
lengri tíma, en allt þarf að vera undir á næst-
unni.
Ég vil ekki segja af eða á með þrepaskipt
skattkerfi fyrr en við höfum skoðað það. En
það fylgja því ýmsir kostir.
Hvað viltu segja um gagnrýni á Samfylking-
una um að sinna ekki kalli um endurnýjun?
Ég held að ekki sé hægt að segja annað en að
hjá okkur sé eðlileg endurnýjun. Fyrir síðustu
kosningar varð mikil endurnýjun og hún er
töluvert mikil núna. Síðan þarf að hafa reynsl-
una í bland líka og ég tel að hún sé til staðar
hjá okkur.
Mun Samfylkingin bjóða upp á persónukjör
við kosningarnar?
Það mál er í höndum þingsins og þar eru ein-
hverjar hugmyndir um breytingar sem ég hef
heyrt. Ég vil ekki tjá mig um þetta fyrr en
þær liggja fyrir.
Fegruðu sannleikann í svörum
Jóhanna Sigurðardóttir segir ástand efnahagsmála hafa verið fegrað í svörum við fyrirspurnum hennar á þingi. Hún sagði Kol-
beini Óttarssyni Proppé að hún telji flokkana vilja að stjórnin sitji áfram fái hún til þess umboð. Halda eigi Sjálfstæðisflokknum
sem hafi græðgisvætt samfélagið í stjórnarandstöðu. Hagræða þurfi í ríkisfjármálum, endurskoða skattkerfið og stöðva skattsvik.
FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna telur farsælast að stjórnin fái umboð til að halda áfram verkum sínum eftir
næstu kosningar. Á málverkinu er amma hennar og verkalýðshetjan Jóhanna Egilsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR