Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 21. mars 2009 27
2008
8. maí. Edgar Eusebio
Millán Gómez, yfirmaður
Mexíkósku lögreglunnar,
myrtur.
9. maí. Esteban Robles
Espinosa, yfirmaður hjá Mex-
íkósku rannsóknarlögreglunni,
myrtur.
28. maí. Sjö lögreglumenn myrtir í
skotárás í borginni Culiacan í Sinaloa.
26. júní. Igor Labastida, yfirmaður í
lögreglunni myrtur.
18. júlí. Kafbátur með sex tonnum af
kókaíni stöðvaður.
15. september. Átta myrtir og
yfir 100 særðir í sprengjuárás
eiturlyfjahrings í borginni Morelia í
Michoacán.
17. september. Bandaríska
fíkniefnalögreglan (DEA)
í samstarfi við önnur
lögregluembætti hrindir af
stað Operation Solare.
Um 200 glæpamenn
í Mexíkó, Guatemala,
Bandaríkjunum og Ítalíu eru handteknir. Meðal hinna handteknu voru meðlimir í Golfo-
eiturlyfjahringnum í Mexíkó og ítölsku mafíunnar Ndrangheta, sem hefur bækistöðvar í
Calabria á suðurodda Ítalíu-skagans. Á meðal þess sem lögreglan lagði hald á voru: 16
tonn af kókaíni, 23 tonn af maríjúana, hálft tonn af meþamfetamíni, 9 kíló af heróíni, 176
bifreiðar, 167 vopn og 60 milljón dollarar í reiðufé.
22. október. Jesus Zambada, einn höfuðpaura Sinaloa-eiturlyfjahringsins, handtekinn.
24. október. Andres Dimitriadas, rannsóknarlögreglumaður í Mexíkósku lögreglunni,
skotinn til bana.
26. október. Eduardo Arellano Felix,
höfuðpaur Tijuana-eiturlyfjahringsins,
handtekinn.
19. nóvember. Ricardo Gutierrez Vargas,
yfirmaður Interpol í Mexíkó, handtekinn
vegna tengsla við eiturlyfjasmyglara.
21. nóvember. Noe Ramirez
Mandujano, fyrrum yfirmaður
hjá Mexíkósku-lögreglunni,
handtekinn vegna tengsla við
eiturlyfjasmyglara.
10. desember. Felix Batista, fyrrum yfirmaður í bandaríska hernum og
sérfræðingur í mannránum, er rænt í borginni Saltillo í Coahuila. Ekkert
hefur spurst til hans.
21. desember. Átta hermönnum og fyrrum yfirmanni í mexíkósku lögreglunni
rænt í borginni í Guerrero. Höfuðlaus lík þeirra fundust við verslunarmiðstöð
í borginni ásamt skilboðum frá eiturlyfjasmyglurum þar sem sagt var að tíu her-
menn yrðu myrtir fyrir hvern einn „af okkur“.
2009
6. janúar. Eiturlyfjasmyglarar gera skotárás á Televisa TV sjónvarpsstöðina í Nueva Leon.
Engan sakaði. Eftir lágu skilaboð frá glæpamönnunum þar sem á var rita „hættið að fjalla
aðeins um okkur“.
21. janúar. Nokkrir lögreglumenn í Tijuana handteknir vegna tengsla við eiturlyfjahringi.
22. janúar. Santiago Meza (gælunafn: El Pozolero eða kjötkássumaðurinn) einn af líf-
vörðum hins alræmda Teodoro Garcia Simental (gælunafn: Teo eða Tres Letras sem þýðir
þrír bókstafir) yfirmanns í Sinaloa-eiturlyfjahringnum, handtekinn. Talið er að Meza og Teo
beri ábyrgð á hundruðum morða og að þeir hafi í sameiningu leyst um 300 lík upp í sýru.
Meza fékk um 600 dollara á viku í laun hjá Teo.
3. febrúar. Mauro Enrique Tello Quinonez, fyrrum yfirmaður í-hernum, var myrtur innan
við sólarhring eftir að hann tók við starfi sem ráðgjafi fíkniefnalögreglunnar í Cancún.
15. febrúar. Mexíkóski sjóherinn og bandaríska strandgæslan stöðva bát við strendur
Mexíkó. Lagt er hald á sjö tonn af kókaíni.
20. febrúar. Robert Orduna, lögreglustjórinn í Juarez í Chihuahua, segir af sér eftir að eitur-
lyfjasmyglarar höfðu myrt tvo lögreglumenn. Þeir hótuðu að drepa einn lögreglumann á
48 klukkutíma fresti þar til Orduna segði af sér.
26. febrúar. Bandarísk yfirvöld upplýsa að 755 manns hafi verið handteknir í
tengslum við Operation Xcellerator. Flestir hinna handteknu tengdust Sinaloa-
eiturlyfjahringnum. Lagt var hald á 22 tonn af fíkniefnum. Þá var upprætt
verksmiðja í Juarez sem gat framleitt 12 þúsund e-pillur á klukkustund. Einnig
var lagt hald á 60 milljónir dollara í seðlum, 147 bifreiðar, þrjú skip og þrjár
flugvélar.
19. mars. Mexíkóska lögreglan handtekur, Vicente Zambada, einn af
höfuðpaurum Sinaloa-eiturlyfjahringsins. Faðir hans, Ismael Zambada,
stjórnaði hringnum áður en hann var handtekinn í fyrra.
Eins og nafnið gefur til kynna hefur
Juarez-eiturlyfjahringurinn bækistöðvar
í Juarez í Chihuahua. Valdasvæði
hans teygir sig til Durango og hluta af
Sinaloa.
Juarez-eiturlyfjahringurinn var
stofnaður af Amado Carrillo Fuentes í
byrjun tíunda-áratugarins. Amado var
hundeltur af lögreglunni og fór í marg-
ar lýtaaðgarðir til að breyta útliti sínu.
Hann lést á dularfullan hátt árið 1997.
Banameinið er talið tengjast einhvers
konar aukaverkunum eða sýkingum
vegna lýtaaðgerða.
Eftir mikil innri átök komst Vicente
Carrillo Fuentes, bróðir Amado,
til valda en þó eru eru enn miklar
innbyrðis deilur innan hringsins. Bæði
Golfo- og Tijuana-eiturlyfjahringirnir
hafa skynjað þetta og herjað á Juarez-
hringinn undanfarin ár. Þess má geta
að í óskarsverðlaunamyndinni Traffic er
einmitt fjallað um átök milli meðlima
Tijuana- og Juarez-eiturlyfjahringanna.
Talið er að tímabili hafi Juarez-hring-
urinn borið ábyrgð á 50 prósent af
öllum fíkniefnasmygli
til Bandaríkjanna.
Mexíkóskir fjölmiðar
telja að í dag sé hann
varla skugginn af
sjálfum sér.
Bækistöðvar Tijuana-eiturlyfjahrings-
ins eru í Tijuana í Baja California.
Arrellanosystkinin tóku við völdunum
eftir að frænda þeirra Miguel Ángel
Félix Gallardo var stungið í steininn
árið 1989. Arellano-bræðurnir eru
sjö. Fjórir eru í fangelsi og einn látinn.
Eftir að Eduardo Arrellano Félix var
handtekinn í október í fyrra hefur
systursonur bræðranna, Luis Fernando
Sánches Arellano, tekið við stjórnar-
taumunum.
Tijuana-eiturlyfjahringurinn þykir
með þeim öflugustu og hrottafengn-
ustu. Einn af alræmdasti hrotinn
Teodoro Garcia Simental var háttsettur
innan glæpasamtakanna þar til í í
fyrra þegar það kastaðist í kekki milli
hans og bræðranna. Simental er talinn
berar ábyrgð hundruðum morða og
mannrána. Í janúar síðastliðnum var
einn af undirmönnum hans
handtekinn og kom
þá í ljós að Simental
hafði borgaði honum
fyrir að leysa um 300
lík upp í sýru.
Simental er nú
genginn til liðs
við Sinaloa-
hringinn og á
í hatrömmu
stríði við Tiju-
ana-hringinn.
VALDALITLIR
LÍKIN Í SÝRU
Vicente Carrillo
Fuentes
Eduardo
Arrelano Felix
Santiago Meza
TIJUANA-HRINGURINN
JUAREZ-HRINGURINN
FRÁBÆR GJÖF!
SAGA MANNSINS er sannkallað stórvirki og tilvalin gjöf til
fermingarbarnsins, stúdentsins nú eða sem tækifærisgjöf!
Ritstjóri bókarinnar er Illugi Jökulsson.
Þetta er bók til að lesa frá upphafi til enda
en líka til að fletta upp í og glugga í árum
saman. Sá sem sekkur sér á kaf í söguna
verður aldrei einmana.
Í þessari frábæru bók er saga
mannsins rakin frá fyrstu
apamönnunum í Afríku til
Cristiano Ronaldos. Kóngar
og drottningar, alþýðan og
aðallinn, spekingar og illmenni,
herforingjar og listamenn, allir fá
sitt pláss á síðum þessarar þykku
en þó handhægu bókar. Styrjaldir
og plágur, stórslys og glæstir
sigrar, kreppur og framfaraskeið,
allt er þetta að finna í bókinni.
Gífurlegur fjöldi mynda prýðir
bókina og bókin er í senn
fræðandi, auðveld í notkun og
einstaklega skemmtileg.
664 bls. og yfir
7.000 myndir!