Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 32
32 21. mars 2009 LAUGARDAGUR Hver er ykkar fyrsta minning um hvort annað? Bjarni: Við höfum aldrei hist áður, er það? Hildur: Ekki mér vitandi. Ég er nú reyndar ómannglögg en ég þekki þig af myndum og svona. Og ég myndi eftir því ef við hefðum hist. Erum við ekki bæði alveg ógleymanleg? Bjarni: Ætli ég muni ekki fyrst eftir þér úr sjónvarpinu. Þú varst auðvitað fréttaritari Ríkisútvarpsins og Sjónvarps- ins í London. Og svo man ég eftir að þú stjórnaðir skemmtilegum spurningaþáttum um skeið, sem landsbyggðin fylgdist með af miklum áhuga. Bíddu hvað varð um þá þætti? Hildur: Þeim var bara slátrað eftir þrjú ár, þegar við vorum með um fjörtíu prósenta áhorf. Auglýsingadeildin grætur enn. Það urðu reyndar dagskrárstjóra- skipti þarna um miðjan síðasta veturinn. Rúnar Gunnarsson tók við af Sigurði Valgeirssyni og svo var bara einhver sem … Bjarni: Ákvað það? Hildur: Já, eða fannst við eitt- hvað of beitt. Mér fannst við hins vegar alltaf vera réttu megin við mörkin. En auðvitað var svolít- ill broddur í þáttunum, kosning- ar voru í nánd og þessari slátr- un var hálfgert smyglað fram hjá útvarpsráði þegar átti að sam- þykkja dagskrá næsta vetrar. Þá stóð eitthvað á þessa leið í inni- haldslýsingunni: „Líflegur spurn- ingaþáttur fyrir alla fjölskyld- una.“ Flest í útvarpsráði, nema kannski Gunnlaugur Sævar, þáverandi formaður, héldu auð- vitað að þau væru að kvitta fyrir áframhald á „Þetta helst“. En svo einn daginn, strax eftir síð- ustu útsendingu vorsins, lá leik- myndin brotin úti í porti. Minnir að það hafi verið skúringakonan sem sagði okkur verið væri að mölva leikmyndina úti í porti. En svona bara gengur þetta. Bjarni: Þetta var dálítið þannig, það hefur kannski breyst, en ef eitthvað gekk vel – þá var ákveð- ið að slaufa því. Hildur: Einmitt. Eins og þeir hafi hugsað: Ókei, þetta gengur sem sagt svona vel. Þá bara … Bjarni: …skulum við passa okkur að halda því ekki áfram. Hildur: Við náðum nefnilega öllum aldurshópum í áhorfsmæl- ingum. Meira að segja þessum áhorfshóp, milli tvítugs og þrí- tugs, MTV-kynslóðinni sem þá þótti íslenskt sjónvarp það alhall- ærislegasta. Annars man ég best eftir Bjarna í tengslum við Hellis- búann þótt mig rámi í hann áður. Svo veit ég að þú ert búinn að fara út um víðan völl með þessa sýningu og fleiri sýningar, er það ekki? Svona alvöru, heiðarleg- ur, útrásarvíkingur? Ekki rænt neinn við að setja upp þín verk? Bjarni: Nei, ekki rænt neinn. En hins vegar finnur maður fyrir því núna þegar maður er að tala við útlendinga að þeir hafa áhyggj- ur af okkur og manni er sýnd umhyggja. Og þeir vilja jafnvel gera samning við mann bara af því að. Hildur: Já, þú meinar – af aum- ingjagæsku bara? Bjarni: Já. Ég var einmitt að tala við Íra áðan í símann varðandi samstarf í leikhúsinu. (Bjarni setur upp vinalega kennararödd og leikur Írann): „Já, vinur, við skulum bara endilega gera eitt- hvað saman. Bara hvað sem er.“ Hildur: Haha! Þú ert nú auðvitað að sýna smá hógværð. En ég held hins vegar að útrásir framtíðar- innar liggi í sköpun og hugverk- um. Við förum ekkert til útlanda núna og segjumst vera banka- menn. Guðjón Þórðar í agasætið Byrjum leika á Alþingi. Í vikunni þurfti að fresta atkvæðagreiðslu á Alþingi vegna slæmrar mæting- ar þingmanna. Einnig hefur þurft að fresta þinghaldi. Ef þið ættuð að ráða agameistara á Alþingi – hvaða þjóðþekkta Íslending mynduð þið velja og af hverju? Hildur: Forseti Alþingis á auð- vitað að halda uppi aga, en ég er nú samt ekkert viss um að hægt sé að kenna núverandi for- seta Alþingis um hvað þingmenn mæta illa. Ég held að skýringin á því sé að hugur þingheims alls sé bundinn við eitt: Komandi kosn- ingar. Það má enginn vera að því að róa einhvern lífróður fyrir þjóðarbúið. Bjarni: Ég held þeir séu einmitt að hugsa bara tvennt: Kosningar og að leita sér að nýrri vinnu. Hildur: Já, þú meinar, sem þeir ætla að hafa í bakhöndinni. Það var algjörlega fyrirsjáanlegt að þetta myndi enda svona með því að vera með kosningar svona fljótt. Það er eins og fólk í stjórn- kerfinu geri sér ekki grein fyrir því að hver mínúta telur í björg- uninni. Og það er að gera þjóð- ina vitlausa að fylgjast með þess- ari kyrrstöðu. Auðvitað er þessi stjórn ekkert sterk stjórn, ólíkt síðustu stjórn sem var mjög burð- ug. Maður hugsaði einmitt með sér að nú mætti gott á vita þegar hún komst til valda. Bjarni: Þessi stjórn sem var að fara frá var fjórum árum of seint á ferðinni. En að ráða agameist- ara Alþingis? Ég held það væri lítið mál að biðja Guðjón Þórðar- son að koma. Hann myndi örugg- lega mæta og aga þá. Hildur: Sigurbjörn Bárðarson er líka vel þjálfaður tamningamaður. Bjarni: Eða þá bara að fá ein- hvern mjög reyndan skólastjóra eða kennara. Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari á Akureyri. Hildur: Já, hann yrði góður, eða Guðna kjaft, ef hans nyti við enn. Vitur eftir á Af Alþingi í söngvakeppni. Euro- vision-farinn okkar í ár, Jóhanna Guðrún, verður send á námskeið um bankahrunið til að geta svar- að spurningum fjölmiðlamanna í Moskvu. Hvað finnst ykkur að Jóhanna Guðrún eigi að segja erlendum fjölmiðlamönnum um hrunið? Bjarni: Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér. Námskeið um bankahrunið? Hvað á það nám- skeið að gera? Það er ekkert hægt að útskýra þetta öðruvísi en það fór allt á hvolf og hverju á hún eiginlega að svara öðru? Hildur: Nákvæmlega. Á að leggja það á þessa unga stúlku, vart af barnsaldri komna, að hún eigi að geta verið einhver málpípa íslensks efnahagslífs. Bjarni: Og í Moskvu! Hildur: Þegar fyrrverandi for- sætisráðherra hafði fátt annað um málið að segja en „Perhaps we should have“. Það má kannski kenna henni þær setningar. Og í guðanna bænum, þá vona ég að þjálfarar Jóhönnu muni hafa þessa kennslu á einföldum nótum. Rígfullorðnir fræði- og stjórn- málamenn eiga alveg nógu erfitt með að stinga sér í þennan haug. Það er ekki eins og fjölmiðlar þarna úti megi vera að því að bíða eftir því að hún romsi upp úr sér einhverri doktorsritgerð. Bjarni: Jú, hún hefur bara upp raust sína og og segir: „Skohh … þannig er mál með vexti að …“ og flytur svo langa tölu. Á rússnesku jafnvel? Hildur: En hefði Sylvía Nótt ekki svínvirkað núna? Hún hefði bara sagt öllum að fara til fjandans. Bjarni: Já, eða Gleðibankinn og boðskapurinn þar: Þú leggur ekkert inn í gleðibankann tóman blús. Passar hann ekki núna? Hildur: Við erum greinilega bæði rosalega vitur eftir á Bjarni. Bjarni: Aha. Gleðibankinn kom tuttugu árum of fljótt. Hildur: Og þarsíðasta ríkisstjórn fjórum árum of seint. Á RÖKSTÓLUM Ættum að vera almanna- tenglar efnahags- hrunsins Bjarni Haukur Þórsson fær ómögulega skilið hvernig Jóhanna Guðrún, Eurovision-fari, eigi að geta útskýrt íslenska efnahagshrunið erlendis þegar færustu hagfræðingar geti það jafnvel ekki. Hildi Helgu Sigurðardóttur finnst að Jóhanna Guðrún eigi bara að segja: „Perhaps we should have“ eða „We are not terrorists“. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti rökstólapar vikunnar. ALLT VAR OF SNEMMA Á FERÐINNI Bjarni Haukur Þórsson og Hildur Helga Sigurðardóttir eru sammála um að Gleðibankinn, Sylvía Nótt og síðasta ríkisstjórn hafi verið nokkrum árum of snemma á ferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hvernig er þetta aftur: „Þjarkur, þor og þrautseigja.“ „Kjósið þann sem þorir.“ Þorir hverju? Þetta er svo innant- ómt og manni finnst að tími innantómra klisja sé liðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.