Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 36
ÞAÐ HEITASTA Í …
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Þórður Grímsson
Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365. MasterCardMundu
ferðaávísunina!
– helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í
3 nætur á Hotel Platanus *** með morgunmat.
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MARS 2009
Þ að er hreint ekki skrýtið að ungir Íslendingar skuli flykkjast til Berlínar, hvort sem það er í frí eða til þess að freista þess að búa þar í nokkur ár.
Berlín er næstum orðin nýlenda ungra lista-
manna enda er hún enn með ódýrari borgum
í Evrópu. Það er óneitanlega eitthvað ferskt
og spennandi í loftinu í þýsku höfuðborginni.
Berlín, sem lengi hefur verið tengd við listir og
neðanjarðarkúltúr, hefur öðlast sjálfstraust sitt
á ný og heldur upp á það í sumar að tuttugu ár
verða liðin frá falli múrsins. Hin tuttugu breyt-
ingarár Berlínar eru einmitt þemað í borginni
nú í ár og boðið verður upp á ótal viðburði af
þessu tilefni.
Berlín hefur ávallt verið nátengd listum
og þess má geta að einar mikilvægustu kvik-
mynda- og tónlistarhátíðir eru haldnar í borg-
inni. Raftónlistarsenan í Berlín er heims-
fræg og avant-garde hljómsveitir eins og hin
goðsagnakennda Einsturzende Neubauten
eru nátengdar borginni. Listasenan blómstr-
ar og listamannahverfi eru fjölmörg og barir,
skemmtistaðir og veitingastaðir á hverju horni.
Næturlífið í Berlín stendur alltaf langt fram á
hábjartan daginn.
Hvar á að vera?
Hverfin sem er mest spennandi að eyða tíma í
eru óneitanlega Mitte, Friedrichshain, Prenz-
lauer Berg og Kreuzberg. Mitte er hin gamla
miðja Berlínarborgar þar sem áin Spree rennur
í gegn og var óumdeilanlegur miðbær borgar-
innar fram að annarri heimsstyrjöld. Undan-
48 STUNDIR Í BERLÍNHvar á að versla, borða,
drekka og skemmta sér
í svölustu borg Evrópu?
Anna Margrét Björnsson
fann hina fullkomnu
uppskrift.
FRAMHALD Á BLS. 4
Sælkeraborgin San
Sebastian Spænska borgin við
Biscaya-flóann SÍÐA 6
Á skíði um páskana
Bestu skíðasvæðin innanlands
SÍÐA 2
Eftir að hafa verið dugleg að
heimsækja erlend skíðasvæði
undanfarin ár benda aðsóknar-
tölur á helstu skíðasvæði lands-
ins til þess að þjóðin sé mun iðn-
ari við að bruna niður íslensku
fjöllin en áður. Um páskana er
ekki úr vegi að njóta íslensku
náttúrunnar og eyða dögunum á
einhverjum af helstu skíðasvæð-
unum. Enda hefur færið það sem
af er vetri verið mun betra en í
fyrra og veit því á gott að pásk-
arnir gætu komið sterkir inn
fyrir skíðafólkið. Þannig mætti
annaðhvort skella sér norður í
Hlíðarfjallið á Akureyri þar sem
talað hefur verið um að aðsókn sé
120 prósent meiri en í fyrra. Odd-
skarð á Austurlandi kemur einnig
sterkt inn eða skíðasvæði Dal-
víkur. Svo er aldrei að vita nema
Bláfjöll verði opin um páskana
þar sem færið hefur einnig verið
mjög gott í vetur.
- jma
Á SKÍÐI UM PÁSKANA
Bláfjöll. Skíðafæri er mun betra en í fyrra og um að gera að skella sér um hátíðarnar.
L
ux 11 er eitt svalasta hótel Berlín-
ar og gæti ekki verið betur stað-
sett í hverfinu Mitte: umkringt
flottum verslunum, veitinga-
stöðum og börum. Hackesher Markt og
Prenzlauer Berg eru í góðu göngufæri.
Hótelið er í keðju Design Hotels og er
mjög fallega hannað í naumhyggjulegum
stíl sem minnir á japanskar innréttingar.
Baðherbergin eru í raun inni í stofunni
og eru með stórglæsilegu „onsen“-bað-
kari ofan í gólfinu. Öll herbergi eru í
raun litlar íbúðir eða svítur ásamt eld-
húsaðstöðu og þess má geta að því leng-
ur sem maður gistir á Lux 11 fer verð-
ið lækkandi. Morgunmatur er innifalinn
en þar er boðið upp á lífrænan og heilsu-
samlegan mat, allt frá þýskum mjólkur-
afurðum, ostum og pylsum upp í nýbak-
aðar vöfflur og ferska exótíska ávexti.
Veitingastaðurinn Shiro-i-Shiro er á hót-
elinu en hann er vinsæll japanskur stað-
ur þar sem boðið er upp á sushi og ýmiss
konar teriyaki-rétti. Einnig er glæsilegt
Aveda Spa á hótelinu þar sem hægt er að
sækja alls konar nudd og fegrunarmeð-
ferðir. - amb
Lux 11, Rosa-Luxemburg Strasse 9-13.
www.lux-eleven.com
HÖNNUNARHÓTEL
Í MIÐJU BERLÍNAR
Lux 11 er hluti af Design Hotels-keðjunni og býður upp á einstaklega smekklegar íbúðir.
E
itt af því skemmtilegasta sem ég geri er að
fara á nýjan áfangastað sem ég hef aldrei
heimsótt áður og uppgötva hann sjálf. Það
er bráðnauðsynlegt að leyfa sér að villast
og taka ákveðna áhættu til þess að komast að hinum
sanna kjarna hins nýja lands. Oft er fólk hrætt við að
fara sjálft á stjá án þess að vera undir verndarhendi
heimamanns, og enn oftar er fólk hrætt við að líta út
eins og túristar og þorir ekki að láta sjá sig með kort
eða leiðsögubók undir hendinni. Það eru reginmis-
tök, það fyrsta sem ég geri í nýrri og óþekktri borg
er að kaupa mér góðan ferðahandbók frá útgáfu sem
ég treysti og finna þar sniðug hverfi, söfn, bari eða
veitingastaði. Annað sem mér finnst mikilvægt að
muna þegar haldið er í helgarferð er að vera ekki að
stressa sig á því að þurfa að sjá allt. Maður er jú í fríi,
ekki satt, og það er alls ekki gott í endurminningunni
að hafa verið að vakna upp fyrir allar aldir og þeys-
ast um allan liðlangan daginn í stífu prógrammi þar
til maður lekur niður úr þreytu eftir fyrsta bjórinn
um kvöldið. Ef borgin er skemmtileg og spennandi
eru sennilega líkur á því að þú farir þangað aftur.
Langbest er að leyfa sér að reika aðeins um, ganga
um skemmtileg hverfi og detta óvart inn á eitthvað
áhugavert heldur en að vera búinn að þaulskipuleggja
allan daginn og stressast ef maður nær ekki ákveðnu
tímamarkmiði. Slíkt finnst mér líka ná til verslana:
ekki ákveða fyrirfram að þú verðir að versla í útlönd-
um. Það er ekki einungis rándýrt þessa dagana heldur
sóar fólk allt of miklum tíma í svoleiðis stress. Ef þú
rambar á réttu búðina þá er það frábært en ekki eyða
eftirmiðdegi í að finna akkúrat rétta svarta kjólinn
sem þér tókst ekki að finna í Reykjavík. Oft lendir
maður líka í því að heimamenn hnussa hálfpartinn
þegar maður ávarpar þá á ensku og þykjast ekkert
kunna. Mér finnst viðmót fólks breytast heilmikið ef
maður lærir til dæmis bara að segja „góðan daginn“
og „takk fyrir“ á nýju tungumáli til þess að fólk brosi
og verði hjálplegra. Að lokum er svo einn hlutur bráð-
nauðsynlegur til borgarferða í vor, eitt stykki regn-
hlíf, því að fátt er óskemmtilegra heldur en að ganga
um ókunnar götur niðurrigndur og þvældur.
Anna Margrét Björnsson skrifar
AÐ UPPGÖTVA
NÝJA BORG
Vel staðsett. Lux 11 er í Mitte-hverfi Berlínar.
2 FERÐALÖG
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is