Fréttablaðið - 21.03.2009, Síða 38
BERLÍN: PRENZLAUER BERG, MITTE, FRIEDRICHSHAIN, KREUZBERG BORGARFERÐIR
4 FERÐALÖG
Ferðafélag Íslands
www.fi .is - Sími: 568 2533
www.fi .is
Skráðu þig inn - Drífðu þig út.
farin tuttugu ár hefur Mitte aftur
orðið að hinni raunverulegu mið-
borg Berlínarborgar þar sem er
að finna sögulegar byggingar og
stórfengleg söfn jafnt sem hipp og
kúl verslunargötur, skemmtilega
veitingastaði og svalar verslan-
ir. Kreuzberg er í hinni fyrrver-
andi Vestur-Berlín og þar er að
finna mikið af tyrkneskum inn-
flytjendum. Sjarmi hverfisins er
einmitt fólginn í þeim mikla suðu-
potti menningarheima sem búa þar
í sameiningu. Í hverfin Prenzlau-
erberg og Friedrichshain flykkist
unga fólkið en þar er enn tiltölu-
lega ódýrt að búa. Götur þar iða
af skemmtilegum veitingahúsum,
börum og verslunum.
Hvar á að versla?
Einfaldast er að halda sig við
Mitte-hverfið, á Hakescher Markt,
Munzstrasse og Alte Schönhauser
Strasse. Þar er meðal annars hægt
að finna verslanir eins og Acne
Jeans, APC, American Apparel,
Converse og Wood Wood ásamt
versluninni Apartment ( Mein-
hardstrasse 36, Mitte) sem selur
fatnað frá merkjum eins og Cheap
Mondays, Raf Simmons, Bernhard
Wilhelm Undercover og April 77.
Kastanienallee í Prenzlauer Berg
er sérlega skemmtileg gata þar sem
er að finna litlar hönnunarbúðir og
flottar „vintage“-verslanir. Arkona-
platz-flóamarkaðurinn í Mitte er
opinn á sunnudögum og þar eru
húsgögn, bækur og fatnað.
Hvar á að borða?
Það eru ógrynni veitingastaða i
Berlín allt frá hinum frægu og
ódýru kebabstöðum upp í það sem
kallast „haute cuisine“. Kebab
getur vissulega verið góður, sér-
staklega ef valinn er kjúklingur
eða falafel í durum-brauði með
hvítlaukssósu. Mexíkóskí stað-
urinn Dolores (Rosa-Luxem burg
Strasse 7 í Mitte) er ódýr og góður
og býður upp á burritos og quesad-
illes að hætti íbúa San Fransisco
með úrvali af sósum og meðlæti,
meðal annars hinni ólýsanlega
sterku habanera-sósu. Ef þig lang-
ar í fjörugt og fallegt andrúmsloft
með mat í ódýrari kantinum er
hinn víetnamski Monsieur Vong (
Alte Schönhauser Strasse 46) kjör-
inn. Innréttingarnar eru flottar,
þar er alltaf yfirfullt af fólki og
fyrst og fremst er maturinn sér-
lega ljúffengur. Japanska staðinn
Shiro i Shiro er að finna á hótelinu
Lux 11(Rosa-Luxemburg-Strasse)
en hann býður upp á æðislegt sushi
og sashimi ásamt alls kyns öðrum
japönskum réttum og sake-úrvali.
Hvar á að drekka?
Bar að nafni 8mm ( Schönhauser
Allee 177B) hefur öðlast sérstakar
EKKI MISSA AF...
Taktu U-Bahn lestina eða strætisvagninn til Kreuzberg
til þess að skoða hið stórfenglega Judisches Museum
(Lindenstrasse 9-14) sem var hannað af arkitektinum Daniel
Libes kind. Ganga um safnið er sláandi, sérstaklega þegar
maður skoðar bréf og dagbækur gyðingafjölskyldna sem
skrifuðu úr fangabúðum nasista. Þar er einnig svokallað
Holocaust Tower sem er mjó, kuldaleg hvelfing með
gífurlegri lofthæð þar sem maður getur ímyndað sér
hrylling þann er beið gyðinga á leið í gasklefann.
Taktu lyftuna efst upp í Fehrnsehturm á Alexander-
platz í Mitte. Þessi sjónvarpsturn er 365 metra hár og
státar af veitingastað sem snýst uppi á toppnum. Mat-
urinn er ekki til að mæla með en það er mjög skemmti-
legt að sitja þarna uppi með bjór eða glas af Riesling og
skoða útsýnið yfir gervalla Berlín.
Röltu yfir á Museumsinsel í Mitte þar
sem gefur að líta fjölmörg söfn í
stórfenglegum húsakynnum. Eitt
merkilegasta safnið
er Pergamomn-
museum þar sem
er að finna góð
dæmi um fornan
arkitektúr frá
Grikklandi,
Persíu og Tyrk-
landi. Rússnesk stemning CCCP barinn ( Torstrasse 136) er lítill og eilitið skuggalegur og býður upp á vodka og rokktónlist í vænum skömmtum.
Torstrasse er full af alls kyns börum og veitingastöðum og er rétt hjá Mitte.
Við bara enduðum allir í Berlín Rokksveitin The Virgin Tongues nýtur mikilla vinsælda í
borginni en meðlimirnir eru allir bandarískir. „Við bara fíluðum stemninguna hérna og líkar
að búa hérna,“ útskýra þeir sem eins og fjölmargir lista- og tónlistarmenn hafa ákveðið að
búa í Berlín.
Kastanienallee Lífleg gata þar sem er að finna litlar hönnunarbúðir og „vintage“-verslanir.