Fréttablaðið - 21.03.2009, Qupperneq 41
J. S. Bach
Tónleikar í Langholtskirkju
sunnudag, 22. mars kl 20
miðvikudag, 25. mars kl 20
Stjórnandi: Magnús Ragnarsson
Hallveig Rúnarsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir
Einsöngvarar:
Miðasala við innganginn og í 12 Tónum - www.filharmonia.mi.is
Messa í g-moll
Requiem
Gissur Páll Gissurarson, Ágúst Ólafsson
W. A. Mozart
í nýrri útgáfu, lokið af Duncan Druce
FÍLHARMÓNÍA
SÖNGSVEITIN
Nemendaleikhús JSB 2009
Miðaverð 2.000 kr. - frítt fyrir 5 ára og yngri
Borgarleikhúsinu
23., 24. og 25. mars, kl. 18 og 20
Þema sýningarinnar í ár er „hittingur“ af ýmsu tagi
við fjölbreyttar aðstæður,
á mismunandi tímum og á mismunandi stöðum
Miðasala er í Borgarleikhúsinu og á www.midi.is
EINN
AF RAFTÆKJUM
SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF!
30% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum í 3 vikur
OPIÐ
www.friform.is
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég ætla aðeins að fara inn í auga
stormsins og hvíla mig þessa
helgi. Í dag ætla ég að keyra út úr
bænum, ásamt vinkonum mínum,
Helgu og Hildi, sem ég bý með, og
fara í sumarbústað,“ segir Anna
Pála Sverrisdóttir sem er nú í
tíunda sæti á lista Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
„Þó svo við vinkonurnar búum
saman þá hittumst við frekar lítið
þannig að þetta sambýli ætlar að
fara í sumarbústað á Laugarvatni
þar sem stefnan er að slaka á,
fara í göngutúra, lesa bækur sem
fjalla ekki um stjórnmál, borða
góðan mat og gera allt þetta sem
maður gerir í bústað,“ segir Anna
Pála en síðasta helgi var undir-
lögð af stjórnmálum.
„Þótt ég stefni að því að vinna
sem minnst í stjórnmálum um
helgina þá býst ég nú samt við
að einhver tími fari í að undir-
búa landsfund Samfylkingarinn-
ar sem verður um næstu helgi,“
segir hún og bætir við: „Reynd-
ar ætla ég að eyða morgnunum
í námið þar sem ég er að skrifa
ritgerð í hafrétti, en ég er að
klára mastersnám í lögfræði við
Háskóla Íslands. Restin af helg-
inni fer hins vegar í umrædda
sumarbústaðarferð og skemmti-
legheit.“
Anna Pála segir sínar bestu
æskuminningar tengjast sumar-
bústaðarferð á Flúðum með fjöl-
skyldunni. „Ég væri til í að fara
oftar í sumarbústað en þar sem
ég hef ekki beinan aðgang að
bústað þá fer ég frekar sjaldan.
Einhvern veginn líður helgi eftir
helgi án þess að maður gefi sér
tíma til að slaka á. Reglan mín er
sú að ég geri allt sem ég get en
ekki meira, þó að einstöku sinn-
um bregði ég út af þeirri reglu,“
segir Anna Pála og brosir. „Ég lýk
síðan helginni á húsverkum þar
sem mín vika í þrifum klárast á
morgun en við sambýlingarnir
skiptum þessu á milli okkar.“
hrefna@frettabladid.is
Slökun, lærdómur og þrif
Síðasta helgi var annasöm hjá Önnu Pálu Sverrisdóttur enda var hún þá í prófkjörsslag. Þessi helgi fer
hins vegar í að hlaða batteríin en stefnan er tekin á sumarbústað með vinkonunum.
Anna Pála lifir annasömu lífi og er virk í stjórnmálum auk þess sem hún stundar nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Um helgina
ætlar hún hins vegar að slaka á í sveitinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKART og skipulag er yfirskrift sýningar skartgripa-
hönnuðarins Guðbjargar Kristínar Ingvarsdóttur í Lista-
safni Árnesinga. Guðbjörg verður með sýningarspjall
við gesti á sýningunni á morgun klukkan 15.