Fréttablaðið - 21.03.2009, Síða 45
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Djúpavogshreppur auglýsir
Leikskólinn Bjarkatún
Laus er staða deildarstjóra eldri deildar við leikskólann
Bjarkatún frá 1. maí 2009 auk leikskólakennara í 4
stöðugildi frá 15. ágúst 2009.
Leikskólinn Bjarkatún er tveggja deilda með um 30
nemendur sem eru teknir inn eins árs. Leikskólinn er
staðsettur í nýlegu húsnæði þar sem stutt er í ósnortna
náttúru og skemmtilegt útivistarsvæði. Bjarkatún leggur
áherslu á umhverfi smennt, hreyfi ngu og leikgleði.
Opnunartími leikskólans er frá 7:45-16:15. Áhugasamir
geta skoðað heimasíðu leikskólans: www.djupivogur.
is/leikskoli
Upplýsingar veitir Þórdís Sigurðardóttir leikskólastjóri í
síma 478-8832 eða í tölvupósti thordis@djupivogur.is
Umsókn fylgi yfi rlit um nám og störf. Umsækjendur geta
sótt um í tölvupósti á bjarkatun@djupivogur.is
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009 og 15. júlí 2009
Grunnskóli Djúpavogs
Fyrir næsta skólaár vantar kennara í eftirfarandi náms-
greinar: Íþróttir, ensku, dönsku, stærðfræði, nátt-
úrufræði, textílmennt, heimilisfræði, upplýsinga- og
tæknimennt.
Grunnskóli Djúpavogs er einsetinn skóli þar sem mikil
áhersla er lögð á samkennslu, samvinnu árganga og
grenndarnám. Mjög gott samstarf er milli grunnskólans,
tónskólans, leikskólans og Umf. Neista. Möguleiki er,
fyrir íþróttakennara, að fá þjálfun fyrir Ungmennafélagið
samhliða íþróttakennslu í skólanum.
Umsóknum skal skal skila til skólastjóra, fyrir 1. maí
2009. Eyðublöð má fi nna á heimasíðu skólans:
http://djupivogur.is/grunnskoli/
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Halldóra Dröfn
Hafþórsdóttir í síma: 478-8246 eða dora@djupivogur.is
Í Djúpavogshreppi búa um 500 manns. Þar er góður
leikskóli, grunnskóli, íþróttamiðstöð með innisundlaug,
verslanir, heilsugæsla, læknir auk annarrar almennrar
þjónustu.
Starfssvið
Leitum að Hugbúnaðarsérfræðingum
Þróun á hugbúnaðarlausnum og stuðningur við þjónustu. Aðstoð við þarfagreiningu fyrir
viðskiptavini TrackWell og ábyrgð á afhendingu lausna.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa menntun og reynslu á sviði tölvunar- eða kerfisfræði. Viðkomandi þarf
að hafa góða þekkingu á uppbyggingu vefþjónusta í Java. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða
þekkingu á Spring frameworki, HTML, JavaScript, Ajax og CSS.
Framtíðartækifæri
TrackWell Forðastýring
Nánari upplýsingar má fá hjá TrackWell í síma 5100600. Tekið er á móti ferilskrám á
job@trackwell.com eða á skrifstofu félagsins. Umsóknir skulu berast fyrir 30. mars.
Allir umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði og verða að geta unnið sjálfstætt, agað og eiga auðvelt
með samskipti við aðra. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að vinna í tæknilega krefjandi
umhverfi og læra nýja hluti.
TrackWell hefur frá stofnun árið 1996 sérhæft sig í hugbúnaðargerð með sérstakri
áherslu á lausnir tengdum fjarskiptum og staðsetningatækni. TrackWell hefur þróað
þjónustu fyrir fyrirtæki sem kallast TrackWell Forðastýring (Mobile Resource Management)
með verkferlum til þess að hafa eftirlit með og stýra notkun forða - hver er að gera hvað á
hverjum tíma, hvar og hvernig. Með þann ávinning sem nær 300 íslenskir viðskiptavinir hafa
náð með TrackWell Forðastýringu hefur TrackWell tekið fyrstu skref í að bjóða erlendum
fyrirtækjum að ná fram hagræðingu og aukinni framleiðni með íslensku hugviti.