Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 59

Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 59
með ánægju Skelltu þér á tvöfalt stefnumót með gömlu og nýju Evrópu í Berlín. Borgin býður upp á spennandi bræðing ólíkra menningarheima – og hún vill fá þig í heimsókn! Bókaðu flug til Berlínar núna á www.icelandexpress.is Það er vor í lofti í Berlín Enginn dýragarður í heimi hefur jafnmargar dýrategundir og Zoo Berlin Í Berlín er fjöldinn allur af spennandi söfnum. Auðgaðu andann og svalaðu forvitninni! vinsældir meðal Íslendinga. Hann er pínulítill og dimmur og minnir að vissu leyti á Sirkus heitinn og hefur verið mikið sóttur af íslensku tónlistarfólki og berlínsk um lista- spírum. Tónlistin er yfirleitt frá- bær og heldur sig við rokk og ról. Kim (Brunnenstrasse 10) er eins naumhyggjulegur og hægt er að ímynda sér: hrár, ómerktur staður á tveimur hæður þar sem oft er hægt að hlusta á góða plötusnúða eða tón- listarmenn. Astro bar (Dachstrasse 40, Friedrichshain) á að minna á einhvers konar geimskutlur frá 1950 og er skemmtilega „sjabbí“. Þar hangir unga og fallega fólk- ið og þess má geta að meðlimir bandarísku rokksveitarinnar The Virgin Tongues sjást þar oft á bak við barinn eða í plötusnúðsbúrinu. Hvar á að djamma fram á morgun? Berlín er fræg fyrir raf- og teknó- tónlist og hvort sem slíkur hávaði hrífur mann eða ekki er mjög áhuga- vert að sjá risavaxna klúbba eins og Panorama Bar (í fyrrum lestarstöð í Friedrichshain) en þar er boðið upp á minimal teknótónlist á nokkrum dúndrandi hæðum. Staðurinn, sem er opinn allan sólar hringinn alla helgina, er í raun fyrir samkyn- hneigða og gestir verða að taka því sem fyrir augu ber með opnum hug. Villa (Landsberger Allee, Prenzlau- er Berg) er mun minni og af öðrum toga, skemmtilega hrár og á þrem- ur hæðum og býður upp á bæði minimal teknó- og rokkhljómsveit- ir. Þar eru einnig herbergi þar sem fólk getur sest við borð og spjallað saman án þess að ærandi takturinn yfirgnæfi samtalið. Þess má geta að opnunartímar í Berlín eru frjálsir og að flestir barir í borginni eru opnir þar til 6 eða 7 um morguninn á degi hverjum. Iceland Express flýgur beint til Berlínar 2-3svar í viku árið um kring. Ljósmyndir: Þórður Gríms- son. Bar með sál Esschloraque, betur þekktur sem Monsterbar, heldur oft þemakvöld með tilheyrandi kvikmyndum og tónlist. Látlaus búðargluggi Það fer lítið fyrir hipp og kúl versluninni Apartment, en þegar gengið er niður í kjallarann blasa við hátískuföt. Japanskur matur Veitingastaðurinn Shiro i Shiro býður upp á sushi, sake og ýmiss konar teriyakirétti í fallega hönnuðu umhverfi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.