Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 63
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
STRANDBAD MITTE
KLEINE HAMBURGERSTR. 16
Byrjum daginn með staðgóðum „Frühstück“.
DO YOU READ ME! AUGUSTSTRASSE 28
Glæsilegt úrval tímarita. Tilvalið að kippa með
sér einu þýsku Vogue eða Liebling og halda
síðan á gott kaffihús.
BARISTA ODERBERGERSTRASSE 54
Þegar rölt er upp Kastanienallee fram hjá ara-
grúa verslana endar maður á horni Oderberger-
strasse þar sem framreitt er gæðakaffi, sem er
annars vandfundin vara í Berlín.
BÖRWITZ Á HORNI LINIENSTRASSE
OG TUCHOLSKYSTRASSE
Síðdegis eða snemma kvölds er gott að fara og
fá sér æðisgenginn vínarschnitzel og renna
matnum niður með þýskum hveitibjór.
DUE FORNI SCHÖNHAUSER ALLEE 12
Frábær „pönkarapizza“. Tvennt kunna Ítalir
öðrum þjóðum betur: Að pönkarast og búa til
pizzu. Hér færðu hvort tveggja eins og það getur
best orðið.
EERDBEER MAX BEER STR. 56
Frábærir jarðaberjakokteilar á góðum bar veita
nauðsynlega hressingu.
OASE WARSCHAUER STR. 25–26
Síðla nætur er ekkert betra en kebab í Berlín.
Oase er kórónar allt í þessum efnum. Alveg
þess virði að skreppa í stutta leigubílaferð frá
miðri Austur-Berlín.
Flug til Berlín gefur 3.000–9.600 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
MÍN
Flug og gisting í 2 nætur
frá 51.900 kr.
á mann í tvíbýli á Arcotel John F Berlin ****
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Reykjavík – Berlín
frá 17.300 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er 2 sinnum í viku.
Gallerírölt um Mitte
Við göturnar Linienstrasse og Auguststrasse í
Mitte eru fleiri fermetrar af galleríplássi en tölu
verður á komið. Auk þess eru nokkur söfn á
sama svæði sem vert að minnast á vegna
áhugaverðra sýninga. t.d. Künstwerke og C/O
Berlin.
Skoðunarferð að Olympiastadion
Olympiastadion var reist fyrir Olympíuleikana í
Berlín árið 1936 og er gott dæmi um þrekvirki í
húsagerðarlist Þriðja ríkisins. Nú er Olympiasta-
dion heimavöllur fótboltafélagsins Herthu Berlin
þar sem Eyjólfur okkar Sverrisson gerði garðinn
frægan á árum áður. Það er upplifun að kíkja á
leik með liðinu áður en tímabilið er úti í lok maí;
þeir eru í harðri keppni um að endurheimta
Þýskalandsmeistaratitilinn eftir langþráða bið.
Dagsferðir út fyrir Berlín
Dresden og Leipzig eru steinsnar frá Berlín og
skemmtilegar heim að sækja en þessar borgir
voru báðar jafnaðar við jörðu í lok seinni
heimsstyrjaldar. Þær eru hvor á sinn ólíka hátt
góð dægradvöl — Dresden vegna menningar-
arfleifðar og Leipzig sem háskólabær með litríku
mannlífi.
Næturklúbbarölt
Í Berlín eru margir næturklúbbar í heimsklassa
sem eru hver öðrum frægari. Sem dæmi má
nefna Bar 25, sem einungis er starfræktur á
sumrin, Week End á 12. hæð við Alexanderplatz
með stórkostlegu útsýni yfir alla borgina og
Watergate við ána Spree.
Tyrkjamarkaðurinn í Kreuzberg
Á þriðjudögum og föstudögum er hinn
svokallaði Tyrkjamarkaður opinn. Þar er selt
grænmeti og ýmis varningur frá Tyrklandi og
Austurlöndum á kostnaðarverði. Hér er hægt að
kaupa grænmeti í stórum skömmtum sem er t.d.
tilvalið að nýta í góða súpu. Gözleme, tyrknesk
pönnukaka, er mikið uppáhald og gott nesti
áður en haldið er út í nóttina.
Lifað á ystu nöf
Til að krydda tilveruna með ævintýramennsku,
svo ekki sé minnst á hvað þetta er góð leið til
að kynnast borginni almennilega, er fátt
skemmtilegra en að notfæra sér þjónustu
sporvagnanna endurgjaldslaust og gera sér leik
úr því að reyna að koma auga á óeinkennis-
klædda eftirlitsmenn. Hafa verður í huga að
þetta getur verið dýr skemmtun fyrir þá sem
hafa ekki fengið þjálfun í leiknum.
BERLÍNHörður Kristjbjörnsson,grafískur hönnuður
VEITINGASTAÐIR
TIL HAMINGJU
MEÐ BORGINA ÞÍNA!
María Bjargmundsdóttir var vinningshafi
í Borgarlukkuleiknum í Mín borg um síðustu
helgi. Hún fær í vinning tvo farseðla á
Economy Class til einhvers af áfangastöðum
Icelandair í Evrópu. María er ritari hjá
Ríkisendurskoðun. Hún hefur mestan áhuga
á að bregða sér annaðhvort til London
eða Kaupmannahafnar.