Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 21. mars 2009 37 Hildur Helga og Bjarni Haukur höfðu aldrei hist fyrir viðtalið. Bjarni var búinn að ímynda sér að Hildur Helga væri nautnaseggur, vinamörg og félagslynd, færi seint að sofa og hann sá hana ekki fyrir sér í mikilli útivist. Bjarni hafði rétt fyrir sér, nema að Hildur ríður á fjöll og fer í langar gönguferðir með hundinn sinn. En finnst líka notalegt að vera inni. Hildur Helga var líka búin að ímynda sér að Bjarni væri matelskur nautnaseggur, vel skipulagður og hefði gaman að því að tefla. Hildur hafði rétt fyrir sér. Bjarni heldur með Manchester United. Hildur Helga á íslenska fjárhundinn, Skottu, sem birtist með víðfrægri „Íslandsgrein“ í Vanity Fair. VISSUÐ ÞIÐ AÐ... www.postur.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 0 9 – 0 4 3 9 Nú getur þú sent persónuleg frímerki með boðskortinu í fermingarveisluna. Á frímerkið getur þú valið mynd úr þínu eigin myndasafni og skreytt umslagið með frímerki sem kemur á óvart. Það eina sem þú þarft að gera er að fara á www.postur.is, velja mynd sem þú hefur skannað inn eða tekið á stafræna myndavél og við sendum þér frímerkin innan fimm daga. Þú færð persónuleg frímerki á www.postur.is Boðskort Mikilvægasta manneskja í heimi Bjarni: Og Sylvía Nótt toppaði sig of snemma. En ég er sam- mála Hildi. Ef Jóhanna Guðrún segir: „Perhaps we should have been more careful“ á rússnesku og brosir svo bara – þá er okkur borgið. Hildur: Svo má líka kenna henni að segja „We are not terrorists“ á rússnesku. Af hverju erum við ekki almannatenglar efnahagshruns- ins Bjarni? Endurvinnsla á gömlum jakkafötum Prófkjörin eru nú rétt ný afstað- an. Ef þið væruð sjálf í framboði – hvernig myndi plakatið af ykkur líta út? Hverju tókuð þið einkum eftir í framboðsauglýsingunum í ár? Bjarni: Ég væri á morgunsloppn- um, úfinn. Og slagorðið væri: „Hef ekkert betra að gera – why not?“ Hildur: Líst vel á að fá bara að vera memm í þessu. Ég verð með skuplu og kaffibolla og blöðin í eldhúsinu í morgunslopp: „Lofa að mæta.“ Bjarni: Við verðum bara saman Hildur með þetta slagorð: „Erum með tiltölulegan lausan tíma, munum mæta.“ Í framboðsaug- lýsingunum sem eru afstaðn- ar tók ég hins vegar eftir því að frambjóðendur X-D höfðu lista- bókstafinn „d“ alveg svakalega smáan í auglýsingunum. Í aug- lýsingum fyrri ára hefur X-D alltaf náð yfir alla síðuna en nú þurfti maður að leita lengi áður en maður fann d-ið þar sem það var yfirleitt falið neðst í ein- hverju horninu. Hildur: Sumir gleymdu meira að segja að taka fram fyrir hvaða flokk þeir væru í framboði í próf- kjörunum. En þessir frasar sem hafa verið í notkun í auglýsing- unum finnast mér alveg skelfi- lega þreyttir. Ég myndi vilja láta lóga þeim öllum. Hvernig er þetta aftur: „Þjarkur, þor og þraut- segja.“ „Kjósið þann sem þorir.“ Þorir hvað? Þetta er svo innant- ómt og manni finnst að tími inn- antómra klisja sé liðinn. Bjarni: Hárrétt. Það vantar líka dálítið að frambjóðendurnir tali frá hjartanu en hljómi ekki eins og vélar. Maður fær á tilfinn- inguna að þeir séu að spila sömu spólu og þeir spiluðu síðast og segi bara það sem „á“ að segja. Hildur: Svo er líka svo skrítið að það er eiginlega enginn munur á yngri og eldri frambjóðendum. Eða ekki skrítið, því yngri fram- bjóðendur eru að koma í gegnum flokksvélarnar þar sem er búið að móta þá og skapa, teygja og toga, þannig að „they walk the walk, they talk they talk.“ End- urnýta bara jakkafötin af þeim eldri. Ekki það sem við þurfum núna. Að lokum. Ef þið mættuð bæta einni spurningu inn í viðtalið, handa hvort öðru, hver yrði spurningin og hvert yrði svarið? Hildur: Þessi stendur alltaf fyrir sínu: Áttu dýr? Bjarni: Nei, ég á ekki dýr. Nema son. Með hvaða liði heldurðu í ensku knattspyrnunni? Hildur: Leeds. Af því að mig minnir að sonur minn geri það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.