Fréttablaðið - 21.03.2009, Page 81

Fréttablaðið - 21.03.2009, Page 81
LAUGARDAGUR 21. mars 2009 53 Hús moskunnar eftir Kader Abdolah er komin út. Þetta er átakanleg en hlý frásögn af örlögum einnar fjölskyldu og um leið heillar þjóðar á umbrota- tímum. Nútíminn er tekinn að berja að dyrum í Íran eftir aldalanga stöðnun. Þegar heit- trúarbylgja skellur á landinu, hlát- urinn þagnar og skothríð tekur við af bænakalli bregðast íbúarnir í Húsi moskunn- ar við á ólíkan hátt. Höfundurinn, Kader Abdolah, fæddist og ólst upp í Íran en flúði land og hefur búið í Hollandi frá 1988. Hús moskunnar varð margföld metsölubók þar í landi. Jóna Dóra Óskarsdóttir þýddi. JPV gefur út. Þýðing Atla Magnússonar á meistaraverki F. Scott Fitzgerald, Hinn mikli Gatsby, er komin út í kilju hjá Bókafor- laginu Uglu. Skáldsagan hefur löngum verið talin höfuðverk skáldsins og lýsir samfélagi auðmanna á austurströnd Bandaríkjanna á árunum fyrir kreppu og hvernig dular- fullur aðkomumaður þrengir sér inn í þeirra hóp. Uppheimar gefa nú út saka-málasögur Lizu Marklund og er nýjasta skáldsaga hennar, Þar sem sólin skín, nú komin út í þýðingu Önnu R. Ingólfsdótt- ur. Sænsk fjölskylda finnst látin í villu sinni á spænskri sólarströnd og Annika Bengtzon er send þangað til að skrifa um morðin. Sagan var metsölubók á þessu hausti víða um Norðurlönd og er umfjöllunarefnið falið fé, pen- ingaþvætti og eiturlyfjaverslun. Önnur fræg og vinsæl kona snýr aftur í spennubókinni Blóð- reiturinn eftir Patriciu Cornwell. Kay Scarpetta, greinandi hjá bandarísku alríkislögregl- unni er kölluð úr jólafríi þegar lík konu finnst upppstillt í Central Park og allt bendir til að raðmorðingi sé kominn á kreik. Bókafélagið Ugla gefur út en þýðandi er Atli Magnússon. NÝJAR BÆKUR Söngleikurinn Mamma mia var frumsýndur í Osló í fyrrakvöld í nýuppgerðu Folketeatret. Björn og Benny voru viðstaddir frumsýninguna, en miðasala á söngleikinn hófst í ágúst í fyrra. Sviðsetningin sem er unnin fyrir fyrirtæki Judy Cramer, sem stóð að uppsetningunni fyrir tíu árum í London og að kvik- myndinni vinsælu í fyrra, er í öllum atriðum eins og aðrar sviðsetningar á verkinu. Aðstoðarleikstjóri sá til þess að fylgt var í æsar fyrirmyndinni. Eini mun- urinn er sá að hér var leikið og sungið á norsku en það hefur víða verið gert. Gagnrýnandi Aftenposten kvartaði í gær í dómi sínum um sýninguna að það skemmdi nokkuð fyrir þátttöku leikhúsgesta í sýningunni sem gerði bæði sviðsetningu á ensku í London og New York að skemmtilegu samspili söngvara á sviði og í sal. Þetta er fyrsta sviðsetningin sem kemur á svið eftir að kvikmyndin var frumsýnd og heldur áfram sigur- göngu verksins sem áhorfendur á öllum aldri taka fagnandi. - pbb Mamma mia í Osló LEIKLIST Björn og Benny raka inn fé á endurvinnslu laga sinna í Mamma mia. Fréttir eru nú teknar að berast af yfirvofandi hlut Ragnars Kjart- anssonar í Tvíæringnum í Fen- eyjum. Þannig greinir bandaríska tímaritið Art Forum frá plönum æringjans í nýju hefti: Raggi ætlar að setjast að í Palazzo Michiel dal Brusa og hafa þar sumarsetu. Sýning hans mun heita Endalok- in og samkvæmt frétt Art Forum sýnir hann þar nýja innsetningu í Brúsahöllinni. Þar hyggst Ragn- ar verða á staðnum sumarlangt og mála mynd af ungri fyrirsætu með Canal Grande í baksýn. Fyrir- sætan á að reykja og drekka bjór á baðfötunum einum. Ragnar Kjart- ansson setur sýningu sína upp í samstarfi við Kynningarmiðstöð myndlistar - CIA - og gallerista sína í I8 og Luhring Augustine í Bandaríkjunum. Ragnar í Feneyjum MYNDLIST Ragnar Kjartansson málar mikið í sumar en þó alltaf sömu myndina. Afkoma Sameinaða lífeyrissjóðsins á árinu 2008 markast mjög af áföllum á fjármálamörkuðum; afleiðingum af falli viðskiptabankanna og mikilli gengislækkun verðbréfa hér á landi og erlendis. Þrátt fyrir að markvisst hafi verið unnið að því hjá sjóðnum að draga úr vægi innlendra og erlendra hlutabréfa á árinu 2008 og auka vægi innlendra skuldabréfa og innlána, rýrnaði eignasafn sjóðsins við þessar óvenjulegu aðstæður og var í árslok 90,5 milljarðar króna á móti 96,6 milljörðum króna árið áður. Við fall bankanna urðu hlutabréf og víkjandi skuldabréf þeirra verðlaus og mikil óvissa er enn um verðmæti annarra skuldabréfa sem þeir gáfu út og eru í eigu sjóðsins. Þá ríkir einnig mikil óvissa um verðmæti skuldabréfa annarra innlendra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Vegna þessarar óvissu voru 7.761 milljón króna færðar í varúðarafskrift, sem rýrir eignir sjóðsins í sama mæli. ÁRSFUNDUR 2009 Ársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 27. maí nk. kl. 16.00 á Grand Hótel, Reykjavík. Í samráði við tryggingastærðfræðing sjóðsins hefur stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins ákveðið að leggja fyrir ársfundinn tillögu um 10% lækkun lífeyrisréttinda sjóðfélaga og lífeyrisþega. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. Helstu kennitölur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.