Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
25. mars 2009 — 73. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála hjá Höfuðborgarstofu, fór í ævintýralega siglingu með Norrænu í fyrrasumar ásamt eig-inmanni og fjórum börnum. Fjöl-skyldan lagði í hann frá Seyðis-firði, sigldi til Færeyja og þaðan til Noregs. Í Noregi fór hún í land, keyrði yfir til Svíþjóðar og Dan-merkur þaðan sem hún sigldi aftur heim.
„Þótt flug sé góðra gjaldaþá er h
inn er Norræna sem er gerð út frá Færeyjum. Dóra gerði sér ekki sérstaklega háar hugmyndir um skipið í fyrstu þrátt fyrir að hafa skoðað af því myndir og heyrt sögur af því hversu vel útbúið það væri. Hún varð þó ekki fyrir von-brigðum.
„Hugmyndir mínar lituðust óneitanlega svolítið af Smyrligamla sem ég f ð
ið lætur úr höfn. Um borð eru frí-höfn, veitingastaðir, líkamsræktar-aðstaða og sundlaug, en hún vakti mikla lukku yngri kynslóðarinnar enda reyndist klikkað fjör að taka sprett í góðum veltingi. Á kvöldin er svo boðið upp á lifandi tónlist, skemmtiatriði og töfrabrögð meðtilheyrandi fjöri “D
Naut lífsins í Norrænu
Sjóleiðin frá Íslandi til Skandínavíu er að sögn Dóru Magnúsdóttur óviðjafnanleg. Hún er vissulega tíma-
frekari en flug en hefur marga kosti og gerir ferðalagið á áfangastað mun innihaldsríkara.
Dóra segir gaman að sjá veröldina úr lofti en einstakt að sjá haf og lönd af skipsfjöl.
MYND/ÚR EINKASAFNI
MYNDASÝNING frá ævintýralegri ferð Sæmundar
Þórs Sigurðssonar, göngufararstjóra ÍT ferða, á Aconcagua
í Argentínu verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal á
laugardaginn klukkan 11.00.
Gjaldþrota draugaborgir
„Nú eru um 7.000 íbúðir tómar,
hálfbyggðar eða lóðir tilbúnar.
Er hægt að kalla það annað
en hrun á hugmyndafræði í
húsnæðismálum?“ spyr Reynir
Ingibjartsson.
Í DAG 16
DÓRA MAGNÚSDÓTTIR
Einstakt að sjá haf
og lönd af skipsfjöl
• á ferðinni • fermingar
Í MIÐJU BLAÐSINS
Laugavegi · Kringlunni · Leifsstöð
www.skifan.is
BOND Á DVD
KOMINN Í SKÍFUNA!
2.499kr
Kaffirjómi í
nýjum umbúðum
Frábær út í kaffið og til
matargerðar.
Geymsluþolin
mjólkurvara
ms.is
Í minningu
Hólmfríðar
Leikfélag Hörgdæla
styrkir Krabba-
meinsfélag
Akureyrar.
TÍMAMÓT 18
FORMÚLA 1
Háspenna, kjarkur
og þor ráða úrslitum
Sérblað um Formúlu 1-keppnina
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
formúla 1MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2009 Nýjar reglur - nýir bílarFormúlan hefst á Stöð 2 Sport á fimmtudaginn.
SÍÐA 2
DARRI INGÓLFSSON
Ætlar að reyna fyrir
sér í Borg englanna
Flytur til Los Angeles á morgun
FÓLK 30
Dökkhærð
Sandy
Ólöf Jara Skagfjörð
og Bjartur Guð-
mundsson leika
aðalhlutverk-
in í Grease.
FÓLK 22
TÓNLIST „Við reyndum að halda
þessu leyndu enda vildum við að
fólk kynni að meta lagið en væri
ekki að kjósa út frá pólitískum
hagsmunum,“
segir rúss-
neska söngkon-
an Tinatin Jap-
aridze. Hún er
meðhöfundur
að íslenska lag-
inu Is it True?
sem Jóhanna
Guðrún flytur
í Euro vision-
keppninni í
Moskvu. Söngkonan þýðir nú
texta lagsins yfir á rússnesku til
að kynna það frekar.
Tinatin er ákaflega ánægð
með Jóhönnu Guðrúnu og er
fullviss um að hún eigi eftir að
standa sig vel á stóra sviðinu.
- fgg / sjá síðu 30
Óvæntur liðstyrkur Íslands:
Með leynivopn
í Eurovision
STJÓRNMÁL Eigið fé bankanna var
aukið með reiknilistum og er eitt
af því sem fór úrskeiðis í fjármála-
kerfinu. Þetta er mat Gylfa Magn-
ússonar viðskiptaráðherra.
„Já, ég held að það sé alveg aug-
ljóst að eitt af því sem gerðist í
hrunadansinum var að menn bjuggu
til eigið fé með því annars vegar að
breyta lánsfé í eigið fé með því að
lána til hlutabréfakaupa og síðan
bjuggu menn til eigið fé á pappírn-
um með því að kaupa eignir á verði
sem var mjög óraunhæft og færa
muninn sem viðskiptavild,“ sagði
Gylfi á fundi með blaðamönnum í
gær.
Atli Gíslason, þingmaður VG,
sagðist í Fréttablaðinu í gær hafa
heimildir fyrir að eigið fé bankanna
hafi verið „fixað“. Með aukinni við-
skiptavild fengist aukinn hagnað-
ur sem aftur leiddi til möguleika
á auknum arðgreiðslum. Loftbólu-
hagnað og loftbóluarðgreiðslur kall-
ar Atli slíkar kúnstir.
Gylfi er á sama máli. Menn hafi
búið til fjármagn á pappírnum sem
engin innstæða hafi verið fyrir.
Spurður hvort forvígismenn
bankanna hafi stundað ámóta við-
skiptahætti og stjórnendur banda-
ríska fyrirtækisins Enron gerðu
og leiddu til þrots þess sagði Gylfi
margt líkt með skyldum. „Auðvitað
voru menn að blekkja sjálfa sig að
hluta og aðra í leiðinni,“ sagði hann
og kvaðst telja að sumt af háttalag-
inu verði rannsakað sem sakamál.
Það væri þó í höndum þar til bærra
stofnana að ákvarða slíkar rann-
sóknir.
Gylfi segir hætt við að viðskipta-
vild sé ofmetin í bókum þeirra fjár-
málafyrirtækja sem enn starfi. Hún
hafi ekki verið færð niður. Til hins
beri þó að líta að slík bókfærð við-
skiptavild sé ekki mikils virði nú
um stundir.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að samanlögð viðskiptavild Glitnis,
Kaupþings og Landsbankans jókst
úr tæpum nítján milljörðum árið
2003 í 123 milljarða árið 2007. Á
sama tíma jókst eigið fé bankanna
þriggja úr 92 milljörðum í 714 millj-
arða. - bþs / sjá síðu 12
Bankarnir bjuggu til
eigið fé með kúnstum
Viðskiptaráðherra segir bankana hafa búið til eigið fé í bókum sínum. Líkindi
séu með þeim gjörningum og athæfi stjórnenda Enron. Hann telur fullvíst að
sum af verkum forvígismanna bankanna verði rannsökuð sem sakamál.
ÆFA SVEIFLUNA Það var margt um manninn í Básum í Grafarholtinu gær þar sem kylfingar æfðu sveifluna fyrir sumarið. Þótt kalt
hafi verið í veðri í vetur hafa kylfingar slegið hvítu kúlurnar í Básum af miklum móð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
-2 -4
-4
0
-1
BJART Í BORGINNI Í dag verða
norðlægar áttir, 3-13 m/s hvassast
NV-til. Heldur meiri vindur síð-
degis. Él á norðurhluta landsins,
snjókoma suðaustan til en bjart
með köflum suðvestanlands. Frost
0-7 stig.
VEÐUR 4
VIÐSKIPTI Að höfðu samráði við
fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (AGS) var það mat Fjármála-
eftirlitsins (FME) að SPRON
myndi ekki uppfylla skilyrði um
eiginfjárhlutfall þrátt fyrir að
eftir gengi áætlun sú sem spari-
sjóðurinn vann að í samstarfi við
stýrihóp kröfuhafa bankans. Þetta
kemur fram í rökstuðningi fyrir
þeirri ákvörðun FME að taka yfir
stjórn SPRON um helgina, en þá
var einnig tekin yfir stjórn Spari-
sjóðabankans.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins gætir megnrar óánægju í
hópi kröfuhafa SPRON sem furða
sig á að AGS hafi ekki gætt betur
hagsmuna þeirra banka sem um
ræðir, enda hafi samningaleið um
niðurfellingu skulda og framleng-
ingu lána ekki verið fullreynd.
Í tölvuskeytum til stjórnvalda
síðasta föstudag, daginn áður en
SPRON og Sparisjóðabankinn
voru teknir yfir, vara kröfuhaf-
arnir sterklega við ótímabærum
aðgerðum yfirvalda sem byggja
kunni á misskilningi og slæmri
ráðgjöf. Áhyggjur hópsins virðast
hafa aukist eftir símafund með
fulltrúum stjórnvalda síðdegis á
föstudag. - óká / sjá Markaðinn
Kröfuhafar SPRON töldu samningaleið ekki fullreynda og vildu meiri tíma:
Furða sig á þætti AGS í málinu
Réðu ekki
við Jón Arnór
KR-ingar eru komnir í
2-0 í einvíginu á móti
Íslandsmeisturum
Keflavíkur eftir
sigur í Keflavík.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
SJÁVARÚTVEGUR Helga Pedersen,
sjávarútvegsráðherra Noregs,
íhugar að beita Íslendinga þving-
unum fyrir að hafa úthlutað sér
einhliða 112 þúsund tonna makríl-
kvóta. Meðal
aðgerða sem
koma til greina
er að fá norsk
fyrirtæki til að
hætta að flytja
inn fiskimjöl og
lýsi frá Íslandi
eða þá að banna
íslenskum skip-
um sem veitt
hafa makríl að veiða, hvaða fisk-
tegund sem er, innan norskrar
landhelgi.
Landssamband íslenskra
útvegsmanna hefur farið þess á
leit við Steingrím J. Sigfússon
sjávarútvegsráðherra að hann
ræði málin við norska kollega
sinn. - jse/sjá síðu 8
Makríldeila við Norðmenn:
Íhuga að svipta
íslensk skip
veiðileyfum
HELGA PEDERSEN
TINATIN