Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 4
4 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
efnAhAGsMál Vísitala neysluverðs
lækkaði um 0,59 prósent milli
febrúar og mars, og mælist verð
bólga nú 15,2 prósent, samkvæmt
mælingum Hagstofu Íslands. Hún
var í síðasta mánuði 17,6 prósent.
Mestu munar um lækkun á hús
næðisverði, um 5,1 prósent.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis
ráðherra segir þetta ánægjulegar
fréttir.
„Við erum að sjá mikinn við
snúning á verðbólgunni sem mun
örugglega auðvelda okkur að fara
hratt í stýrivaxtalækkun,“ segir
hún. Verðbólga, miðuð til þriggja
mánaða, reiknist nú 1,9 prósent, en
var 24 prósent í desember.
Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASÍ, segir verðbólguna ganga
hraðar niður en búist var við.
Spurð hvaða áhrif þetta hafi á
fjárhag heimilanna, nefnir hún
fyrst að höfuðstóll verðtryggðra
lána lækki um 0,6 prósent milli
mánaða. Um leið lækki verðbætur
á verðtryggðum innstæðum.
„En þetta þýðir auðvitað að
útgjöld til daglegrar neyslu heim
ilanna lækka einnig,“ segir Henný.
„Í mat og drykk sáum við miklar
og hraðar hækkanir þegar gengi
krónu veiktist, og það er eðlilegt
að það gangi til baka núna,“ segir
hún. Svo fremi sem gengi krónu
haldist stöðugt ætti verðbólga að
ganga hratt niður næstu mánuði.
„Okkar spár gera ráð fyrir því
að undir lok ársins gætum við
verið komin undir þrjú prósent,“
segir hún.
Vilhjálmur Egilsson, fram
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu
lífsins, segist ánægður með útkom
una. „Þetta sýnir að þetta er bara
algjörlega að detta niður,“ segir
hann. Honum þyki merkilegast
hvað aðrir liðir en húsnæðisliður
inn lækki mikið.
Seðlabankinn lækkaði vexti
sína nýlega um eitt prósentustig
og niður í sautj
án prósent. Vil
hjálmur segir
það umhugs
u n a r ef n i á
hvaða forsend
um stýrivaxta
ákvarðanir séu
teknar.
„Bankinn
lækkar ekki
vexti sína meira
núna vegna þess að í apríl í fyrra
var mikil hækkun,“ segir hann.
„Það virðist taka ár fyrir þá að
uppgötva að verðbólgan sé að
lækka,“ segir hann.
klemens@frettabladid.is,
bjorn@frettabladid.is
20
15
10
5
0
Mar. Apr. Maí. Jún. Júl. Ágú. Sep. Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mar.
%
8,7%
14,5%
11,8%
15,2%
18,6%
Verðbólga,mars2008–mars2009
lÖGReGlUMál Yngsti ökumaður-
inn sem tekinn var fyrir ölvunar-
akstur á höfuðborgarsvæðinu um
helgina var sextán ára stúlka.
Tíu ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur í umdæminu.
Þetta voru átta karlmenn á aldr-
inum 18 til 48 ára og tvær konur.
Eldri konan sem tekin var er
á sjötugsaldri. Báðar lentu kon-
urnar í umferðaróhappi sem og
sumir karlmannanna sem teknir
voru. Einn þeirra stakk af eftir
að bíll hans hafði lent á bifhjóli,
öðrum bíl og götuvita. Ökumað-
urinn kom á lögreglustöð klukku-
tíma síðar til að sækja bílinn en
var handtekinn. -jss
Tíu teknir fyrir ölvunarakstur:
Yngsti stútur-
inn sextán ára
seRbíA, AP „Árásin á land vort var
ólögleg aðgerð,“ sagði Mirki Cvet-
kovic, forsætisráðherra Serbíu,
í gær í tilefni af því að rétt tíu
ár eru liðin frá því að loftárásir
NATO á Serbíu hófust vegna hern-
aðar Serbíuhers gegn Kosovo-
Albönum í Kosovo. „Serbía getur
ekki gleymt þessum hörmungar-
dögum,“ bætti Cvetkovic við.
Við upphaf kennslu í skólum var
stríðsins minnst með mínútu þögn
og þjóðþingið í Belgrad hélt sér-
stakan fund af sama tilefni. Ráð-
herrar lögðu kransa að minnis-
merkjum.
NATO, sem mun halda upp á 60
ára afmæli sitt eftir mánaðamót-
in, gaf ekki út neina ályktun í til-
efni af afmæli loftárásanna. -aa
Tíu ár frá loftárásum NATO:
Serbar minnast
myrkra daga
Ósáttur„Ólögleg aðgerð“ segir Mirko
Cvetkovic, forsætisráðherra Serbíu (t.h.),
um loftárásir NATO fyrir tíu árum.
NOrdiCphOTOS/AFp
ÞRóUnARMál Nýtt samstarfsráð
um alþjóðlega þróunarsamvinnu
kom saman til síns fyrsta fundar
í utanríkisráðuneytinu í gær.
Ráðið hefur ráðgefandi hlut-
verk við stefnumótun í þróunar-
málum og fjallar um áætlun um
alþjóðlega þróunarsamvinnu.
Ráðið gefur ráð um forgangs-
röðun, val á samstarfslöndum og
skiptingu milli tvíhliða þróun-
arsamvinnu. Það ráðleggur líka
um fjölþjóðlegt samstarf, sem
á sér stað í alþjóðastofnunum á
borð við Sameinuðu þjóðirnar,
Alþjóðabankann og fleiri.
Valgerður Sverrisdóttir, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, er
formaður ráðsins. -aa
Nýtt þróunarsamvinnuráð:
Gefur ráð um
forgangsröðun
FjölskipaðÍ ráðinu situr fólk með
fjölbreytta reynslu af þróunarstarfi.
FréTTAblAðið/GVA
MAnnRéttInDI Aftökum fer fækk
andi í Bandaríkjunum, en dauða
refsing er enn algeng í ríkjum
á borð við Japan og SádiArab
íu. Frá þessu greindu talsmenn
Amnesty við kynningu á árs
skýrslu samtakanna í gær.
Alls 37 menn voru teknir af lífi
vestra á síðasta ári, en aftökur
hafa ekki verið færri þar í meira
en áratug. Þetta vilja talsmenn
Amnesty rekja til þess að sjónar
miðum þeirra sem hafna dauða
refsingum sé að vaxa ásmegin.
Aftur á móti eru um 50 sinnum
fleiri líflátnir árlega í Kína. -aa
Amnesty International:
Aftökum fækk-
ar vestanhafs
Mánuðurfyrirþjófnaði
Karlmaður hefur verið dæmdur í eins
mánaðar fangelsi, skilorðsbundið,
fyrir þjófnaði. hann stal þráðlausu
símtóli, áleggsbréfi af Goðaskinku og
Giletterakvél, ásamt raksápu.
dÓMstÓlar
sonurtudjmansíframboð
Miroslav Tudjman, sonur Franjo Tudj-
mans heitins sem var forseti Króatíu
1991-1999, hefur tilkynnt að hann
hyggi á framboð í forsetakosningunum
2010.
krÓatía
VeÐURsPá
heiMurinn
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
basel
berlín
billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
las palmas
london
New York
Orlando
Osló
parís
róm
Stokkhólmur
18°
9°
7°
4°
3°
9°
7°
6°
4°
3°
20°
12°
12°
26°
1°
10°
15°
0°
-2
-2
-4
-2
-4
-1
0
0
-1
-1
-6
10
7
5
8
3
5
2
5
6
8
5
-6
-4
0
1
-2
-5
-7 -7
-6
-5áMorgun
5-13 m/s
Föstudagur
Norðan 8-15 austan til
annars hægari
FrostuMMest
alltland
Kaldar norðanátt-
ir munu leika um
okkur næstu daga. Þá
verður vindur almennt
nokkuð stífur sem
þýðir að vindkæling
verður töluverð og
því napurt. Almennt
verða él á norðurhluta
landsins fram yfir
helgi en úrkomulít-
ið syðra, þó verður
snjókoma suðaustan
til í dag. Á laugardag
verður svo líklega
úrkoma víða um land.
síst þó á Austurlandi.
sigurðurÞ.
ragnarsson
veður-
fræðingur
Minni verðbólga
hraði vaxtalækkun
Verðbólga hefur ekki verið minni síðan í september. Forsætisráðherra segir
þetta hraða stýrivaxtalækkun. Hagfræðingur ASÍ telur verðbólgu geta farið
undir þrjú prósent í lok árs. Seðlabanki byggi stýrivexti frá því í apríl í fyrra.
henný hinz
VilhjálMur
egilsson
jÓhanna sigurðardÓttir
lÖGReGlUMál Íslenska ríkið var í
gær dæmt til að greiða Ólafi Vil
berg Sveinssyni skaðabætur. Lög
reglan á höfuðborgarsvæðinu hafði
handtekið hann án þess að geta sýnt
fram á rökstuddan grun um fram
inn glæp.
Manninum var haldið í fangaklefa
í sextán klukkustundir án þess að
„rannsóknarhagsmunir hafi verið
slíkir að réttlætti frelsissviptingu“,
eins og segir í dómnum: „Verður því
ekki annað séð en að aðgerðir lög
reglu […] hafi verið óþarfar.“
Lögreglan hafði fengið tilkynn
ingu um barsmíðar í húsi vélhjóla
samtakanna Fáfnis í júlí 2007. Hún
hitti þar Ólaf og segir að hann hafi
„brugðist illa við afskiptum“. Fórn
arlamb barsmíðanna benti á tvo
aðra menn sem árásarmenn, en
lögreglan handtók Ólaf engu síður,
ásamt öðrum í húsnæðinu.
Erlendur Þór Gunnarsson, lög
maður Ólafs, segir dóminn staðfesta
að lögreglu beri að fara eftir lögum
og reglum eins og aðrir og gæta
þess að brjóta ekki á rétti borgar
anna: „Lögreglan þarf að bregðast
eins við hvort sem um Fáfnismenn
er að ræða eða briddsfélagið Bald
ur.“ Ólafur fær 100 þúsund krónur
í bætur auk málskostnaðar.
Þetta er í annað sinn í mánuðin
um sem einstaklingar vinna slíkt
mál gegn lögreglunni. Þrír piltar
fengu nýlega 200 þúsund krónur
hver fyrir að hafa verið handteknir
að ósekju af vopnuðum lögreglu
mönnum, og síðan berstrípaðir og
niðurlægðir, að mati dómsins.
Lögreglan tapar máli vegna ólögmætrar handtöku í annað skipti í mánuðinum:
Ríki borgi Fáfnismanni bætur
erlendurÞÓrgunnarssonSegja
má að skjólstæðingur Erlends, Ólafur,
hafi fengið 6.250 krónur á tímann í
fangelsinu.
gengið24.03.2009
GjAldMiðlAr KAup SAlA
hEiMild: Seðlabanki Íslands
187,7868
GeNGISvíSITALA króNuNNAr
113,91 114,45
167,09 167,91
154,14 155,00
20,687 20,809
17,924 18,030
14,146 14,228
1,1600 1,1668
171,56 172,58
bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
japanskt jen
Sdr